Morgunblaðið - 22.06.1993, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JUNI 1993
35
Guðmimdur Bjami
Baldursson — Minning
Fæddur 17. janúar 1941
Dáinn 4. júní 1993
Fallinn er frá la'ngt um aldur
fram minn kæri vinur og vinnufé-
lagi um 23 ára skeið Bjarni Baldurs-
son. Það er stórt skarð höggvið í
vinahópirin þegar Bjarna vantar.
Við vorum saman í skóla í Hvera-
gerði þegar við vorum að alast upp.
Hann var að vísu einum bekk á
undan mér, enda einu ári eldri og
mun lífsreyndari eða það fannst
honum, þegar við vorum að riíja
þessi ár upp í gamansömum tón
löngu seinna á lífsleiðinni. Ég man
eftir því að Bjami hafði strax mik-
inn metnað til þess að gera allt sem
hann tók sér fyrir hendur á prófum.
í sínum bekk fannst honum hann
standa sig frekar illa ef hann var
númer 2 á prófi. Hann vildi vera
efstur og það var hann oftast. Þessi
metnaður að gera eins vel og mögu-
legt er fylgdi honum til dauðadags.
Eftir að skólanum lauk í Hvera-
gerði fórum við hvor í sína áttina
eins og gengur, en báðir fórum við
til sjós og síðan í nám. Bjarni fór
í vélstjóranám og ég í Stýrimanna-
skólann, en Bjarni hafði alltaf mik-
inn áhuga á vélum og var við þær
mjög laginn. Hann hafði meðfædda
hæfileika og gat gert við flest sem
bilaði, ef það var ekki ónýtt.
Árið 1967 var næg atvinna á
Islandi, þensla var á vinnumarkaði
og illa gekk yfirleitt að manna báta-
flotann. Bjarni bjó þá á Akureyri
ásamt sinni góðu konu, Brynju
Herbertsdóttur, og bömum en þau
höfðu þá verið gift í sjö ár. Ég
hafði sarrrband við Bjarna og bað
hann að útvega mér 2-3 menn á
vertíð. Hann tók því ljúfmannlega
og kannaði málið. Enginn reyndist
þá á lausu sem honumn leist á svo
að hann ákvaða ð koma til Þorláks-
hafnar með fjölskyldu sína_ og vera
eina vértíð til reynslu. Árin hér
urðu 26 og hef ég oft hugsað að
líklega væri þetta einhvert besta
símtal sem ég hef átt þegar ég
hringdi í Bjarna forðum. Eftir þessa
vertíð hjá undirrituðum var Bjarni
vélstjóri lengst af á ísleifi. En okk-
Brynhildur Ingihjörg
Jónasdóttir — Muming
Mig langar til að minnast vin-
konu minnar Brynhildar Ingibjarg-
ar Jónasdóttur nokkrum orðum.
Hún var mér alltaf mjög kær, ég
kynntist henni á þeim árum sem
ég nam hárgreiðslu hjá dóttur henn-
ar Elsu. Mér þótti strax vænt um
þessa konu og aldrei rofnaði okkar
vinátta síðan. Síðast hittumst við
fyrir tveimur árum þegar Elsa bauð
mér á hárgreiðslusýningu. Þar var
Binna þótt lasin væri orðin. Þegar
ég talaði til hennar varð hún afar
glöð á svipinn en gat ekki tjáð sig
í orðum. Siðan fluttist ég með ijöl-
skyldu minni erlendis og var að
flytja á milli fylkja þegar dagar
hennar voru allir, en ég náði heim
að Fróni til að fylgja henni síðasta
spölinn í hvarf frá sjónum okkar á
þessari jörðu, en trú mín er sú að
við hittumst hinum megin móðunn-
ar miklu.
Brynhildur tók á móti þrem
yngstu sonum mínum á vöggustofu
Landspítalans, stuttu eftir fæðingu
þeirra fékk hún þá í fangið. Næst
yngsti sonur minn var hætt kominn
eftir fæðingu en Binna sá strax
hvað var að og kunni að bregðast
t
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vináttu við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
RANNVEIGAR HALLDÓRSDÓTTUR
frá Bæjum,
Hlff 1,
ísafirði.
Halldór Margeirsson, Oddný Njálsdóttir,
Rannveig Margeirsdóttir, Sæbjörn Guðfinnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir mín,
SIGRÚN EINARSDÓTTIR
sjúkranuddari,
Grenimel 9,
Reykjavfk,
lést 10. júní.
Jarðarfórin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigurlfna María Gfsladóttir.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vináttu
vegna fráfalls eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður,
KJARTANS Ó. ÞÓRÓLFSSONAR
vaktformanns hjá S.V.R.,
Ásgarði 73.
Stella Guðnadóttir,
Rósa Kjartansdóttir, Jón Sig. Karlsson,
Vigdfs Kjartansdóttir, Hreinn Gíslason,
Guðni Kjartansson, Valka Jónsdóttir,
Kjartan Ó. Kjartansson, Guðfinna Sif Sveinbjörnsdóttir.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför litlu dóttur okkar, systur og barnabarns,
DAGNÝJAR ÚLFARSDÓTTUR.
Berglind Þorleifsdóttir, Úlfar Úlfarsson,
Þorleifur Úlfarsson,
Hrefna Einarsdóttir, Þorleifur Guðmundsson,
Úlfar Garðar Randversson.
ar samstarf hófst 1970 þegar hann
kom sem yfirvélstjóri á Jón Vídalín
ÁR og síðan Brynjólf ÁR 4 sem var
nýtt skip frá Slippstöðinni. Árið
1974 keytpum við Auðbjörgu hf.
ásamt Árna Hermannssyni, en Út-
gerðarfélagið Auðbjörg hf. átti þá
Arnar ÁR 55. Á þeim bát vorum
við saman til 1982 er Bjarni fór í
rétt við og gerði það með miklum
sóma. Drengurinn fór í aðgerð 12
klst. gamall sem heppnaðist full-
komlega. Mér hlýnar um hjartaræt-
urnar að horfa á þennan dugmikla
dreng með þakklæti í huga til þess-
arar yndislegu konu sem mér fannst
og hefur alla tíð síðan fundist hafa
bjargað lífí hans með sínu snar-
ræði. Ég er guði þakklát fyrir að
hafa verið svo lánsöm að fá að verða
þess aðnjótandi að kynnast þessari
elskulegu ljósmóður og dætrum
hennar sem eru góðar vinkonur
mínar frá fyrstu kynnum. Ég vil
votta þeim og öðrum ættingjum og
vinum mína dýpstu samúð.
Kristín Ottósdóttir.
land til að sjá um og reka Saltfisk-
verkun Auðbjargar hf. og það var
eins og annað sem hann tók sér
fyrir hendur, honum fórust þessir
hlutir allir mjög vel úr hendi.
Stundum þegar við vorum á
spjalli saman, eftir að báðir voru
hættir til sjós, vorum við sammála
um það að árin sem við vorum á
Arnari og allir máttu fiska eins og
hæg^ var, voru þau bestu og
skemmtilegustu, oft að vísu erfítt
og fast sótt, en Bjarni var alltaf til
í að ferðast um í fiskileit reyna að
fá meira ef þess var nokkur kost-
ur. Hann var aldrei að letja, alltaf
til í allar reisur, léttlyndur og bjart-
sýnn. Ef einhvetjir urðu þungir og
leiðinlegir þá skellti hann gjarnan
fram góðri vísu eða sögu, en hvort
tveggja átti hann ákaflega létt
með. Á þeim árum vorum við sæ-
greifar. Orðið sægreifi í dag er
öfugmæli frá þeim sem ekkert vita
og lítið skilja.
Árið 1987 seldu Bjarni og fjöl-
skylda hans hlut sinn í Auðbjörgu
hf. og setti þá á stofn bókhaldsskrif-
stofuna B.B. bókhald. Hún sá um
bókhald Auðbjargar hf. og fleiri og
hann sleppti aldrei tengslunum við
fyrirtækið, þetta var aðeins breyt-
ing á eignaformi.
Bjarni var hagmæltur og orð-
heppinn og hafði næmt auga fyrir
því skoplega í tilverunni ef það átti
við. Án hans erum við fátækari og
margt verður dauflegra en áður.
Minning um góðan og skemmti-
legan félaga mun lifa. Við sendum
Brynju, börnum, tengdabörnum,
ættingjum og vinum öllum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Einar Sigurðsson.
BLÓMIÐ
Blóm - Skrcytingar - Gjafavara
Kransar - Krossar - Kistuskrcylingar
Úrval af servícttum
OPIÐ FRÁ KL. 10-21
GRENSÁSVEGI 16 • SÍMI 811330
ERFIDRYKKJIR
!Í)VHEIL
-IBOK®
Sími 11440
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
perlan sími 620200
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt aö stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 677878 - fax 677022
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
INGÓLFUR PÁLL
BÖÐVARSSON
tjónaeftirlitsmaður,
Grýtubakka 6,
lést á heimili sínu 19. þessa mánaðar.
Sigríður Unnur Ottósdóttir,
Svanhvít Gróa Ingólfsdóttir, Tryggvi Þór Aðalsteinsson,
Eðvarð Ingólfsson, Svanhildur M. Ólafsdóttir,
Jón Steinar Ingólfsson, Berglind H. Ólafsdóttir,
Dóra Ingólfsdóttir, Svavar Ingvason,
barabörn og barnabarnabörn.
OPNA
P A P I S
1993
verður haldið laugardoginn 26. júni kl. 10
ó Hlíðarvelli, Mosfellsbæ. Leiknar verða 18 holur
með og ón forgjafar.
Ræst verður kl. 8 og 10, og 13 og 15.
Skróning fer fram hjó Golfklúbbnum Kili til kl. 18
föstudaginn 25. júní í síma 667415.
Flokkaskipting - tveir forgjafarflokkar.
Allir þótttakendur fú glaðning fró
STENDHflL.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/ReykjanesbrauL
Kopavogi, simi
671800
Toyota Corolla XL '90, 5 dyra, rauður, 5
g., ek. 45 þ. V. 750 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla Liftback '88, sjálfsk., ek.
980 þ. Góður bill. V. 630 þ. stgr.
Toyota Corolla XLI 16v, ’93, grænsans,
5 dyra, 5 g.. ek. 10 þ.km. V. 1080 þús.
Dodge Mirada ’81, V-6, sjálfsk., ek. 135
þ.km., m/öllu, aöeins tveir eig. Góður bíll.
V. 340 þús.
Nissan Sunny SLX Sedan '91, 5 g., ek.
35 þ. V. 850 þ. sk. ód.
Subaru 1800 GL Station '86, 5 g., ek. 120
þ. Ný timareim o.fl. V. 420 þ. stgr.
Daihatsu Charade CS 5 dyra ’88, stein-
grár, ek. 87 þ. Nýl. coupling og tímareim.
V. 390 þ. stgr.
Willys Cj 7 '84, blár, 4 g.p ek. 76 þ. (vél
„258“). Talsvert breyttur, 36“ dekk o.fl.
V. 820 þ. Dk. ód.
Toyota Corolla GTI '88, svartur, ek. 76
þ., sóllúga, rafm. í öllu o.fl. V. 750 þ.
Ford Bronco XL '87, blár og hvitur, 5 g.,
ek. 117 þ., krómfelgur o.fl. Gott eintak
V. 960 þ. stgr.
Suaru Justy J-10 4x4 '86, ek. aðeins 43
þ. V. 290 þús.
Toyota Douple Cap diesel '86, 5 g., ek.
160 þ. V. 980 þús.
Ford Bronco Eddie Bauer '87, 5 g., ek
100 þ. Óvenju gott eintak. V. 1.150 þús
MMC Pajero langur, diesel, turbo, m/lnt
erc., '92, 5 g., ek. 67 þ., sóllúga o.fl. V
3.150 þús., sk. á ód.
V.W. Jetta CL '91, svartur, sjálfsk., ek.
29 þ. V. 1.050 þús.
Fjöldi bifreiða af öllum árgerðum
á skrá og á sýningasvæðinu.
Verð og kjör við allra hæfi.