Morgunblaðið - 22.06.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
39
Morgunblaðið/Kristinn
Fyrirsætan Sólveig Grétarsdóttir og Hörður Þór Harðarson á leið
út úr Dómkirkjunni og inn í glæsivagninn.
BRUÐKAUP
Gifting í góðu veðri
Solla í Módel 79 eða Sólveig Grét-
arsdóttir eins og hún heitir fullu
nafni og Hörður Þór Harðarson sölu-
maður í Radíóbúðinni gengu í hjóna-
band síðastliðinn laugardag í Dóm-
kirkjunni. Séra Halldór Gunnarsson
í Holti, sem er reyndar frændi
brúðgumans, gaf þau saman og síð-
an var haldið að Hraunholti í
Hafnarfirði, þar sem tekið var á
móti fjölda gesta.
Vinir beggja höfðu að sjálfsögðu
gert hjónaefnunum grikk fyrir gift-
ingu og síðastliðið miðvikudagskvöld
hafði Höddi verið tekinn í listflug.
„Vinur vinar míns fór með mig í
alls konar hringi og dýfur í loftinu.
Ég get ekki sagt að ég hafi notið
þess á meðan á fluginu stóð, en eft-
ir á fannst mér þetta bara gaman,“
sagði Hörður. Vinkonur Sollu höfðu
hins vegar séð um að hún færi í
skútusiglingu um síðustu helgi og
þeyst væri með hana á Harley David-
son-mótorhjóli um götur borgarinn-
ar.
SesapaS?
Látin syngja og dansa
Kristjana Pálsdóttir leikari og
Andrés Bjarnason gengu í
hjónaband síðstliðinn fimmtudag,
17. júní. Af því tilefni hresstu Tálkn-
firðingar — eða öllu heldur leikarar
og aðstoðarfólk í leiklist-
ardeild Ungmennafélags
Tálknafjarðar — heldur
betur upp á tilveruna og
gengu um bæinn með
Kristjönu í hjólastól. Var
hún sótt heim til sín fyr-
irvaralaust, tekin
traustataki og látin gera
hin ýmsu verk á götum
bæjarins eins og að þvo
leirtau, syngja vöggu-
vísu fyrir almennin'g í
gjallarhorn, elda súpu
handa tilvonandi tengda-
foreldrum sínum og
dansa á götunni fyrir
framan Póst og síma.
Vakti þetta glens mikla
kátínu bæjarbúa og ekki
síst Kristjönu sjálfrar,
þar sem hún sá að hún
hafði leiðbeint leikurun-
um svo vel að þeir gátu spjarað sig
án hennar. Kristjana leikstýrði hópn-
um fyrir tveim árum í leikritinu
Sólsetur. Krtstjana hefur sest að á
Tálknafirði — að minnsta kosti í bili.
Morgunblaðið/Helga Jónasdóttir
Kristjana Pálsdóttir leikari og verðandi
brúður var látin gera hin ýmsu verk eins
og til dæmis elda súpu handa tilvonandi
tengdaforeldrum sínum.
COSPER
Þetta er vatnsveitan. Hvað átti ég aftur að segja
þeim?
■ t' v..f ií! „
—-—.. .
GARÐAPANILL
Ný falleg viðhaldsfrí
húsldæðning!
Héðinn Garðastál hefur hafið framleiðslu á nýrri
viðhaldsfrírri panilklæðningu úr stáli með PVC-húð,
klæðningin nefnist GARÐAPANILL.
Garðapanillinn er auðveldur í uppsetningu, samsetningar
eru þéttar og festingar faldar. Hann er framleiddur í þrem
stöðluðum breiddum en lengdir eru eftir óskum kaupenda,
allir fylgihlutir fást í söludeild. Hvort sem þú ert með íbúðar-
eða iðnaðarhúsnæði, nýtt eða gamalt þá er GARÐAPANILL
ódýr og hagkvæm lausn á klæðningu bæði úti og inni.
Kynntu þér þessa íslensku hönnun og L| É J^l 1^1 JJJJJUJU
framleiöslu á syningarstandi í —■ ■■ mJ I lM I\l HZJZ
verksmiðju okkar. GARÐASTÁL
STÓRÁSI 6, GARÐABÆ, SÍMI 652000
UUddíUI
Hellissandur
isant
.s,rhó'mu'Búða®lur
irfjöróur
NISSAN PATROL, NISSAN PRIMERA, NISSAN MICRA,
NISSAN SUNNY, OG SUBARU LEGACY
ÞRIÐJUDAG 22.06
• OLÍS nesti
Akranesi kl. 12-20
MIÐVIKUDAG 23.06
• Bílasala Vesturlands
• Borgamesi kl. 12-20
Komið og reynsluakið
Gamli bíllinn metinn á staðnum
FIMMTUDAG 24.06
• Hellisandi kl 10-11/30
• Ólafsvík kl. 12-17
• Grundarfjörður kl. 19-21
FÖSTUDAG 25.06
• Búðardal kl. 10-12/30
• Skykkishólmur kl. 14/30-20
lngvar
Helgasort hf.
Sævarhöfði 2,112 Reykjavík
P.O. Box 8036, Stmi 674000
ARGUS / SÍA