Morgunblaðið - 22.06.1993, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1993
Þing norrænna húð- og kynsjúkdómalækna
Aukin útbreiðsla húð-
krabbameins rædd
„ÞETTA var líklega stærsta þing húð- og kynsjúkdómalækna
sem haldið hefur verið á Norðurlöndum," sagði Jón Hjaltalín
Olafsson húð- og kynsjúkdómalæknir og forseti norræns þings
húð- og kynsjúkdómalækna, sem lauk í síðustu viku. Þingið
var haldið hér á landi í fyrsta sinn, en húð-og kynsjúkdóma-
læknar á Norðurlöndum hafa þingað reglulega frá árinu
1910. Að sögn Jóns Hjaltalíns tókst þingið í Reykjavík með
afbrigðum vel.
Þó nokkur umfjöllun var um
aukna útbreiðslu húðkrabbameina
á Norðurlöndum. Jón Hjaltalín
sagði að meðal húðsjúkdómalækna
hefði mikil umræða verið um hina
auknu útbreiðslu á undanförnum
árum, enda fjölgaði tilfellum stöð-
ugt, bæði hér á landi og á hinum
Norðurlöndunum. Hann kvað
þingfulltrúa hafa verið mjög
áhugasama á þinginu og alls hefðu
um 150 manns staðið fyrir fyrir-
lestrum eða veggspjöldum, þar
sem skráðar voru upplýsingar um
nýjar rannsóknir á'sviði húð- og
kynsjúkdómalækninga.
Veitt voru þrenn verðlaun og
fékk Bárður Sigurgeirsson m.a.
verðlaun fyrir rannsóknir á tengsl-
um milli ákveðins blöðrusjúkdóms
og eitilfrumukrabbameinsins lym-
phone.
„Rætt var um ýmsar rannsókn-
ir og nýjar leiðir í lækningum,"
sagði Jón Hjaltalín. „Sem dæmi
má nefna kynningu á nýjum að-
ferðum við að greina fæðingar-
bletti, en hér á landi notast menn
þegar við þá aðferð. Kynnt var
ný leið í meðferð við sveppasjúk-
dómum og vörtur voru nokkuð til
umfjöllunar. Vörtur myndast við
virussmit, en það verður sífellt
erfíðara að ráða niðurlögum
þeirra. Margar nýjar tegundir
varta virðast hafa skotið upp koll-
inum og það þarf töluvert mikla
þekkingu til að losa fólk við þær. “
Þingstörf stóðu í þrjá daga og
að þeim loknum héldu þingfulltrú-
ar, um 200 talsins, í Bláa lónið
þar sem þeir nutu sólar og kynnt-
ust því sem sumir vilja meina að
sé lækningalind íslendinga.
Morgunblaðið/BB
Um 200 fulltrúar af Norðurlandaþingi húð- og kynsjúkdómalækna
héldu í Bláa Iónið að loknum þingstörfum.
iviorgunDiaoio/ porKen
Arthúr Björgvin Boilason og Jórunn Sigurðardóttir flytja Þjóðverjum
og íslendingum listadagskrá á Hótel Ork.
Menningardagskrá
fyrir þýska ferðamenn
HÓTEL Ork hefur nú bryddað upp á þeirri nýjung að vera með
íslenska menningardagskrá á þýsku alla sunnudaga í sumar fyrir
ferðamenn. Arthúr Björgvin Bollason hefur umsjón með dagskránni
og flytur hana ásamt Jórunni Sigurðardójttur leikkonu. Ferðamenn
kynnast skáldskap, tónlist og myndlist íslendinga, auk þess sem
þeir kynnast lítilsháttar siðum þjóðarinnar, vinnusemi hennar og trú
á huldufóik, svo eitthvað sé nefnt.
„Allt sem ykkur hefur alltaf lang-
að að vita um íslendinga en enginn
þorði að spyija um,“ er heiti dag-
skrárinnar sem frumflutt var á
Hótel Örk síðastliðinn sunnudag.
Að sögn Kristinar Aðalsteinsdóttur
sölustjóra á hótelinu varð hugmynd-
in að þessari menningardagskrá til
í fyrrasumar þegar þýska ferða-
skrifstofan Studiosus Reisen í
Múnchen lagði inn gistipöntun fyrir
hópfarþega sína fyrir sumarið ’93.
Ferðaskrifstofan sem sérhæfir sig
einkum í menningarferðum kemur
með hópa hvern sunnudag í sumar
og gista þeir á Hótel Örk í þrjá
daga áður en haldið er í ferðir um
landið.
„Dagskráin er ekki eingöngu
ætluð farþegum Studiosus Reisen,
heldur öllum þýskumælandi ferða-
mönnum sem staddir eru á land-
inu,“ segir Krist.ín. „Hún hefst kl.
19.00 hvern sunnudag með fjöl-
breyttu fiskihlaðborði og síðan er
boðið upp á listaferð um hugarheim
Islendinga. Sýningin, sem tekur um
klukkustund, er flutt á þýsku og
verður fram til 8. ágúst.“
Salurinn á Hótel Örk var þéttset-
inn sl. sunnudag, bæði af Þjóðveij-
um og íslendingum. Listadagskráin
hófst á tónlist eftir Jón Leifs og
síðan tóku þau Arthúr Björgvin
Bollason og Jórunn Sigurðardóttir
til við að kynna menningu og listir
íslendinga frá upphafí til þessa
dags. Lesið var meðal annars upp
úr Eglu og Gerplu, flutt Ijóð eftir
Jónas Hallgrímsson, Stefán Hörð
Grímsson og fleiri skáld, íslensk
tónlist frá öllum tímum var Ieikin
og á stóru tjaldi mátti sjá verk ís-
lenskra myndlistarmanna. Eftir-
tektarvert var hversu íslensku ljóðin
hljómuðu vel á þýsku og vakti ljóð
Stefáns Harðar Grímssonar, „Vetr-
ardagur" í þýðingu Gunthers Wieg-
and, mikla athygli meðal erlendu
gestanna. Jafnhliða listinni voru
Þjóðveijar upplýstir um ýmsa siði
og venjur íslendinga, góðlegt grín
var gert af hetjudýrkun, vinnusemi
og álfatrú og lesnar upp tröllasögur.
Morgunblaðið ræddi við nokkra
Þjóðveija sem þama voru staddir
og sögðust þeir vera mjög ánægðir
bæði með sýninguna og hrósuðu
góðum flutningi. „Það er stórkost-
legt að helja dvöl sína á landinu
með því að kynnast listum og menn-
ingu þjóðarinnar á þennan hátt,“
sögðu þeir.
Fyrsta gnðsþjónusta
í Grafarvogskirkju
FYRSTA guðsþjónusta í Grafarvogskirkju fór fram sunnudaginn
6. þessa mánaðar, en kirkjubyggingin er nú í fokheldu ástandi.
Borgarsljórinn í Reykjavík, Markús Orn Antonsson, var viðstadd-
ur og ávarpaði kirkjugesti eftir að hafa undirritað samning milli
Reykjavíkurborgar og Grafarvogskirkju um að í kirkjunni verði
útbú frá Borgarbókasafni Reykjavíkur.
Talsvert fjölmenni var við þessa fyrir börnin. Áætlað er að helja
fyrstu guðsþjónustu í kirkjunni,
en sóknarpresturinn, séra Vigfús
Þór Árnason, bauð gesti velkomna
til þessarar fýrstu athafnar í kirkj-
unni, en Grafarvogssókn er nú ein
fjölmennasta sókn landsins, þar
sem nú búa á níunda þúsund sókn-
arböm. Eftir messuna var grillað
safnaðarstarf í kirkjunni við upp-
haf aðventunnar.
Formaður sóknarnefndar Graf-
arvogskirkju er Magnús Ásgeirs-
son, en arkitektar kirkjunnar eru
Finnur Björgvinsson og Hilmar
Þór Bjömsson. Verktaki er ístak.
Mikið fjölmenm var við athöfnina.
Markús Örn Antonsson ávarpar
kirkjugesti.
Sóknarpresturinn, séra Vigfús
Þór Árnason, heilsar upp á
kirlg'ugesti.
Sjóstanga-
veiðimót Is-
firðinga í
tólfta sinn
ÁRLEGT sjóstangaveiði-
mót ísfirðinga verður hald-
ið dagana 2. og 3. júlí nk.
Mótið, sem er tólfta á veg-
um SJÓÍS frá árinu J982,
verður háð á hefðbundinni
fiskislóð frá Aðalvík vestur
um ísafjarðardjúp að Gelti
og róið verður á fiskibátum
10-30 rúmlesta að stærð.
Þátttökugjald er 8.000 kr.
en innifalið er akstur milli ísa-
ijarðar og Bolungarvíkur,
bátaleiga og miði á lokahóf
með veislumáltíð. Upplýs-
ingamiðstöð ferðamála á
ísafirði til húsa í Framhalds-
skóla Vestfjarða sér um skrán-
ingu og útvegar gistingu, sé
þess óskað.
Veiðitæknilegar upplýs-
ingar veita fúslega Úlfar Ag-
ústsson, Pétur Jónsson og
Þórir Sveinsson.
Ný stjórn SJÓÍS
Nýlega var kosin ný stjórn
Sjóstangaveiðifélags Isafjarð-
ar en hana skipa: Þórir Sveins-
son, Urðarvegi 56, ísafirði,
formaður, Kristín Böðvars-
dóttir, Eyrargötu 3, ísafirði,
gjaldkeri, og Úlfar Ágústsson,
Sunnuholti 2, ísafirði, ritari.
(Úr fréttatilkynningu.)
■ AIESEC, Alþjóðlegt félag við-
skipta- og hagfræðinema, féiag
lækna og verkfræðinema verður
með vikulega fundi á þriðjudags-
kvöldum á Gauki á Stöng þar sem
ræddar eru þær ferðir sem fara á
í sumar Fundurinn byijar kl. 21.
(Fréttatilkynning)
■ KYNNING verður á Krip-
alujóga, þriðjudaginn 22. júní kl.
20.30 í Jógastöðinni Heimsljósi í
Skefiunni 19, 2. hæð. Farið verður
í helstu undirstöðuatriði, teygjur,
öndun og slökun. Æskilegt er að
mæta í þægilegum fötum.
(Fréttatilkynning)
Háskólabíó sýnir
Fífldjarfan flótta
HASKOLABIO hefur hafið sýn-
ingar á myndinni Fífldjarfur
flótti, „La Fille de l’Air". Myndin
er byggð á sannsögulegum at-
burðum sem gerðust í Frakk-
landi vorið 1986 en þá komst
Nadine Vaujour á forsíður allra
blaða þegar henni tókst að
bjarga eiginmanni sínum úr
fangelsi á einstæðan hátt úr
þyrlu sem hún stjórnaði sjálf.
í myndinni segir frá Daniel sem
er þekktur glæpamaður á flótta
undan yfirvöldum. Hann leitar at-
hvarfs hjá Brigitte, systur Phillipe,
besta vinar síns og dóttur hennar
Celinu. Ástfangin upp fyrir haus
og hamingjusöm bíða Daniel og
Brigitte í sveitinni fæðingu fyrsta
barns þeirra. Þegar þau fara til
Parísar dag einn í viðskiptaerindum
hefur Brigitte enga hugmynd um
raunverulegan tilgang ferðarinnar
og hvaða afleiðingar ferðin á eftir
að hafa á líf þeirra. Vopnuð lög-
regla ræðst inn á heimili Brigitte
og finnur vopn, peninga og áætlun
um fyrirhugað vopnað rán. Brigitte
er tekin til fanga sem vitorðsmaður
og er neydd til að yfirgefa dóttur
sína. Lögreglumaður er síðan skot-
inn til bana þegar rán er framið
og Daniel settur í fangelsi grunaður
um morð. Þegar í ljós kemur að
Daniel á yfir höfði sér 36 ára fang-
elsisdóm getur Brigitte ekki hugsað
Béatrice Dalle, einn aðalleikari
myndarinnar.
sér að vera án hans og fer að vinna
að því að ná honum út.
Myndin er byggð á sögu Nadine
Vaujour sem tókst með dirfsku og
einstæðu áræði að frelsa eiginmann
sinn úr fangelsi. Leikstjóri myndar-
innar er Maroun Bagdadi sem m.a.
hlaut verðlaun á kvikmyndahátíð-
inni í Cannes árið 1991 fyrir mynd-
ina „Hors La Vie“.