Morgunblaðið - 22.06.1993, Síða 48
Landsbanki íslands
100 millj.
hagnaður
af 5 mán-
aða rekstri
AFKOMA Landsbanka íslands
fyrstu fimm mánuði þessa árs
er vel viðunandi, þar sem hagn-
aður af rekstri bankans reyndist
vera rúmlega 100 milljónir
króna. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins leggur Lands-
bankinn fyrir 75 milþ’ónir í mán-
uði hveijum í sérstakan af-
skriftasjóð, sem er nú samtals
að upphæð 5,3 miHjarðar króna.
Á liðnu ári lagði Landsbankinn
100 milljónir króna á mánuði fyrir í
afskriftasjóð, en frá síðustu áramót-
um hafa 75 milljónir króna verið
lagðar fyrir mánaðarlega í afskrifta-
sjóðinn. Væri ekki um það að ræða,
lætur nærri að mánaðarlegur hagn-
aður Landsbankans fyrstu fimm
mánuði ársins væri um 100 milljónir
króna, sem jafngildir því að bankinn
hagnaðist um 1,2 milljarða króna á
ársgrundvelli.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins eru engar breytingar fyrir-
'ri'Tugaðar innan Landsbankans á
greiðslum í afskriftasjóð og munu
stjómendur bankans telja rétt að
greiða 75 milljónir króna á mánuði
í sjóðinn út þetta ár og lætur þá
nærri að afskriftasjóður Landsbank-
ans nálgist 6 milljarða króna um
næstu áramót. Stjómendur bankans
munu eiga von á því að þurfa að
afskrifa í töpuðum útlánum umtals-
verðar upphæðir á þessu ári, en á
þessu stigi liggur þó ekkert fyrir um
það hversu mikil útlánatöp bankans
verða. Því mun útilokað að segja til
um hversu sterkur sjóðurinn verður,
að afskriftum loknum.
r^dSS pA.r;, W
fiH 3 v
s tó' jiiii, 5
Banaslys
Morgunblaðið/Júlíus
MAÐUR á sjötugsaldri lést á sjúkrahúsi í gær af völdum áverka sem hann hlaut í árekstri á mótum Miklubrautar og Lönguhlíðar í gærmorgun.
Tveir látnir í
TVEIR menn hafa beðið bana í umferðarslysum hér á landi und-
anfarna daga auk þess sem á annan tug manna slasaðist í árekstrum
og bílveltum. Maður á sjötugsaldri lést á sjúkrahúsi i Reykjavík síðdeg-
is í gær af áverkum sem hann hlaut í hörðum árekstri á mótum Löngu-
hlíðar og Miklubrautar laust fyrir hádegi í gær. Ekki er að svo stöddu
unnt að greina frá nafni hans. 18 ára piltur, Guðjón Rúnarsson, Súlu-
kletti 6, Borgarnesi, beið bana aðfaranótt sunnudags þegar hann varð
fyrir bíl á Vesturlandsvegi skammt frá orlofshúsunum við Munaðames.
Fimm voru fluttir á sjúkrahús, þar
af tveir mjög alvarlega slasaðir, eftir
bílveltu á veginum milli Keflavíkur
og Garðs, aðfaranótt laugardags. Á
sunnudagsmorgun slösuðust tvær
stúlkur er bíll valt á Reykjanesbraut.
öldu bilslysa
Sofnaði undir stýri
Á laugardagsmorgun slösuðust
fímm manns í árekstri jeppa og fólks-
bifreiðar á Suðurlandsvegi við
Þrengslavegamót. Ökumaður jepp-
ans kvaðst hafa sofnað undir stýri.
Hann nefbrotnaði og missti meðvit-
und og leikur grunur á að hann hafi
verið undir áhrifum áfengis. í fólks-
bifreiðinni var kona undir stýri og
brotnaði hún í andliti auk fleiri
áverka. Auk hennar voru í bílnum
tveir fullorðnir og ungt bam og skár-
ust þeir allir.
Um miðjan dag á sunnudag missti
ökumaður vald á bíl sínum á Vestur-
landsvegi í Norðurárdal og valt bíll-
inn 2-3 veltur. Ökumaður var einn í
bílnum og slapp litið slasaður.
Þrjú umferðarslys urðu í umdæmi
lögreglunnar á Höfn um helgina en
ekki hlutust af alvarleg meiðsli.
Morgunblaðið/Sverrir
Viðgerðir í sumar
ÞEKJAN hefur sigið svo mikið að hún er orðinn mun lægri en stafn-
inn á bænum. Þórður Tómasson rifjar upp þá kenningu að Þorvarð-
ur Þórarinsson, höfðingi á 13. öld, og tengdasonur Steinvarar Sig-
hvatsdóttur og Hálfdanar Sæmundssonar, hafi skrifað Njálu og því
sé mögulegt að hún hafi verið skrifuð að Keldum. Á neðri mynd-
inni sést að veggirnir í skemmunni eru farnir að halla ískyggilega.
Elstí bær á íslandi
að hruni kominn
KELDUR í Rangárvallasýslu, elsti heillegi
bær á landinu, er að hruni kominn vegna
vatnsleka af þaki niður í vegghleðslur.
Vatn leiðir að auki að bænum og veldur
skemmdum á útveggjum hans. Guðmund-
ur Hafsteinsson, deildarstjóri húsverndar-
deildar Þjóðminjasafns, segir að viðgerð
húsanna sé afar brýnt verkefni og verði
hafist handa við að bjarga bænum síðsum-
ars.
Hermt er að Jón Loftsson hafi reist kirkju og
klaustur að Keldum á Rangárvöllum undir lok 12.
aldar. Ekki er útilokað að elsti hluti bæjarins sé frá
þeim tíma, að sögn Þórðar Tómassonar, safnvarðar
í Skógum, en engu að síður segir hann að skálinn
í bænum hafí sterk einkenni miðalda, en þá var
búskapur á bænum. Önnur fom íveruhús eru and-
dyri, búr, hlóðaeldhús og skálaloft, en búið var óslit-
ið í húsunum til 1946. Hafði þá verið bætt við fjór-
um útihúsum, skemmum, hjalli og viðbyggingu,
uppúr miðri síðustu öld.
Úrkoma sökudólgur
Allar þessar. byggingar standa enn og hafa verið
gestum og gangandi til sýnis í gegnum tíðina. Síð-
ustu ár hefur hins vegar horft til verri vegar, því
rigningarvatn hefur ekki fundið sér aðra leið af
þekjunni en niður vegghleðslurnar og nú er svo
komið að annarri skemmunni og smiðjunni hefur
verið lokað vegna hættu á hruni.
Ástæðan fyrir þessum farvegi rigningarvatnsins
er að sögn Guðmundar sú að burðarstoðir hafa geng-
ið saman, fært þekjuna neðar og myndað leið fyrir
regnvatn í gegnum veggina inn í húsið. Vatnið veld-
ur síðan meiri fúa í stoðunum.
Brýnt verkefni
Guðmundur segir að hér sé um afar brýnt verk-
efni að ræða og verði hafíst handa við að bjarga
fyrstu húsunum á þessu sumri. Síðan verði haldið
áfram af fullum krafti með hin húsin samkvæmt
áætlun til 2-3 ára en framgangur fari að sjálfsögðu
mikið eftir fjármagni til verksins. Innifalin í áætlun-
inni er að sögn Guðmundar viðgerð á Guðnýjarbæ,
gömlu íbúðarhúsi að Keldum, og á að nota það sem
þjónustuhús fyrir ferðamenn, en þess má geta að
4-5.000 manns skoða gömlu húsin að Keldum á
hveiju ári.
Eftir því sem Guðmundur segir mun Víglundur
Kristjánsson, hleðslumaður, sjá um viðgerðirnar á
skemmunum að Keldum og felast þær í því að þekja
húsanna verður tekin niður og veggirnir endurhlaðn-
ir. Tréverk verður bætt eða endurnýjað eftir því sem
þurfa þykir. Samkvæmt áætlun á svo að leiða vatn
frá húsinu, en brýnt er að það verði sem fyrst.