Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 9 FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn VEFARARNIR Sigríður Halldórsdóttir, Agnes Davíðsson og Guð- rún Vigfúsdóttir við vefstólinn sem Agnes hefur gefið Gjábakka. Gamall vefstóll í Gjábakka AGNES Davíðsson vefnaðar- kennari hefur gefið Gjábakka, félagsheimili aldraðra í Kópa- vogi, vefstól sem aldraðir í Kópavogi geta í framtíðinni notað. Agnes, sem er rúmlega níræð, keypti vefstólinn í Danmörku árið 1932 og er þetta fyrsti vef- stóllinn sem hún eignaðist, og hefur hann verið í stöðugri notkun þar til nú allra síðustu ár. Sigurbjörg Björgvinsdóttir, forstöðumaður Gjábakka, segir gjöf Agnesar þýða það að í framtíðinni verði hugsanlega hægt að bjóða eldri borgurum í Kópavogi að koma og vefa í stólnum, en frá 1989 hafa í Gjá- bakka verið haldin námskeið í vefnaði undir sljórn Guðrúnar Vigfúsdóttur listvefara. Margir góðir vefarar „Það eru orðnir hér margir mjög góðir vefarar í röðum eldri borgara og hugmyndin er að stóllin verði hér og fólk geti nýtt hann að sínu eigin frum- kvæði í það sem það langar til að búa til. Þetta verður því nýj- ung í starfinu sem við getum boðið upp á og enn frekar til að auka á frumkvæði og sjálf- stæði eldri borgara. Þetta er mjög mikilvægt því að í okkar starfsemi erum við alltaf að reyna að mæta athafnaþrá ein- staklinganna og vinna með þeim en ekki fyrir þá,“ sagði Sigur- björg. Viðræður um bygg- ingn nýrrar stúku við Laugardalsvöll VIÐRÆÐUR standa nú yfir á milli Knattspyrnusambands ís- lands og Reykjavíkurborgar um það, hvort af nýrri stúkubyggingu við Laugardalsvöll verður. Þau skilyrði hafa verið sett fyrir landsleiki í undankeppni EM og HM í knattspyrnu, að áhorfendum verði aðeins hleypt inn í sæti. Ef ekkert verður aðhafst kemur þetta illa niður á íslendingum, en stúkan við Laugardalsvöll tekur aðeins 3.500 manns í sæti. Til samanburð- ar má geta þess að rúmlega fimmt- án þúsund manns fylgdust með leik íslands og Svíþjóðar í undan- keppni EM hér á landi í fyrra. Viðræður um nýja stúkubygg- ingu, sem tæki líka 3.500 manns í sæti þótt mun minna yrði lagt í hana, standa nú yfir milli KSI og Reykj avíkurborgar. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir borgarstjóri. segir að enn sé of snemmt að segja til um hvenær bú- ast megi við að niður- staða liggi fyrir í málinu. Hún tekur þó undir að þess gerist fljótlega þörf og segir: „Nú er að hrökkva eða stökkva." Gefið undir fótinn í bréfi sem Markús Orn Antons- son, þáverandi borgarstjóri, ritaði KSI í mars 1992, kemur fram að borgin ætli sér að hefja byggingu nýrrar stúku og stefni að því að hún verði fullkláruð árið 1997. Þá segir í verkefnalista Reykjavíkur- listans fyrir síðustu kosningar að „Byggð verði í áföngum aðstaða fyrir áhorfendur á Laugardalsvelli sem uppfyllir alþjóðakröfur.“ Ingibjörg segir að þarna hafi vissulega verið gefið undir fótinn með að borgin stæði fyrir byggingu nýrrar stúku, en bætir við: „Eitt er það og fjármögnun annað. Ég hlýt að horfa í þá íjármuni sem um er að ræða og og jafnframt að reyna að gera þetta með eins litlum tilkostnaði og unnt er.“ Ingibjörg bendir síðan á að það sé ákveðið umhugsunarefni að Reykjavíkurborg þurfi að standa ein og sér undir framkvæmdum á Laugardalsvelli til að hann standist alþjóðlegar kröfur, en aðrir aðilar komi þar hvergi nálægt. Ódýrasta leiðin valin Eggert Magnússon, formaður KSÍ, og Snorri Finnlaugsson, framkvæmdastjóri KSÍ, segja að KSÍ hafi lagt til að ódýrasta leiðin yrði farin í stúkubyggingu. Ef ékkert yrði aðhafst í málinu og Islendingar gætu aðeins selt í 3.500 sæti á heimaleikjum myndi það hins vegar þýða að ekki væri fjár- hagsgrundvöllur fyrir íslendinga að taka þátt í þessum mótum. Is- lendingar yrðu framvegis að leika landsleiki sína á erlendri grund eða hætta þátttöku í keppnunum. • í öllu falli myndi íslensk knatt- spyrna verða illa úti og niðurstaðan yrði „mikil vonbrigði fyrir íslenska knattspyrnuunnendur og áfall fyrir íslenskt íþróttalíf í heild sinni, ef við tækjum ekki þátt í alþjóðlegum mótum í stærstu og vinsælustu íþróttagrein í heimi,“ sögðu þeir. „Nú er að hrökkva eða stökkva." Nú er Ceorg í íslandsbanka í sumarskapi og allir krakkar sem eru félagar Georgs fá skemmtilega og hagnýta sumargjöf frá honum. í nœsta útibúi íslandsbanka fá félagar Georgs afhentan bakpoka sem hœgt er aö nota í allt sumar og miklu lengur; fyrir sundfötin, nestiö, í feröalagiö V|S/r»2'9Zd 'dH VQOA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.