Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 45 Reeve á hæg- um batavegi CHRISTOPHER Reeve, sem lenti í útreiðarhnjaski fyrir skömmu, er enn í öndunarvél. Þó segja læknar að taugamar sem stjómi öndun leikarans séu óskemmdar. Reeve er á föstu fæði og hefur verið leyft að fara í stuttar ferðir út undir bert loft. FOLK Michael Jacksonját- ar mistök ►EINS og greint var frá í blað- inu fyrir skömmu bakaði Micha- el Jackson sér reiði gyðinga í Bandaríkjunum með texta lags- ins „They Don’t Care About Us“, eða Þeim er sama um okk- ur, af nýjustu plötu hans, „HI- Story“. I textanum komu fram orðin ,jew me“ og „kike me“, sem gyðingahópum þóttu bera vitni um gyðingahatur. Jackson hefur nú séð að sér og ákveðið að taka upp nýja útgáfu af laginu, sem kæmi í stað þeirrar gömlu á plötunni. Hann hefur þar með kæft niður reiðiölduna sem skapaðist, en ljóst er að þetta uppátæki gæti kostað hann töluverðar fjárhæð- ir, þar sem mikið magn plötunn- ar er þegar komið í verslanir og héðan í frá er eins víst að kaupendur vilji frekar bíða eftir nýju útgáfunni en kaupa þá gömlu. „Ég geri mér grein fyrir því að ég kom við kaunin á sumum, en það var aldrei ætlun mín. Ég biðst innilega afsökunar," sagði Hljómsveitin Neistar með Karl Jónatansson og Kristbjörgu Löve í broddi fylkingar. FÓLK í FRÉTTUM „The Boys enn upplei ►SVO virðist sem frægð dúettsins „The Boys“ fari sífellt vaxandi, en eins og allir vita er hann skipaður íslensku bræðrunum Arnari og Rúnari Halldórssonum. Nýlega birtist heilsíðu- grein um þá í stærsta viku- blaði Norðmanna, Verdens Gang. Þar er meðal annars sagt frá því að í kjölfar þátt- töku þeirra í ítalska sjón- varpsþættinum „Bravo Bra- vissimo", hafi þeir eignast fjölda aðdáenda um alla Evrópu. Ásókn þeirra sé svo mikil að fjölskyldan hafi þurft að skipta fimm sinnum um símanúmer. Fyrir verð- laun sem þeir unnu í fyrr- nefndum sjónvarpsþætti hyggjast þeir kaupa upp- tökutæki í heimahlj óðver sitt sem þeir hafa í kjallaranum. Nú eru þeir nýbúnir í skólan- um og komnir í sumarfrí. En þeir liggja ekki í leti í sumarfríinu eins og margir jafnaldrar þeirra. Væntan- legur er innan skamms þriðji geisladiskur þeirra og ber hann heitið „The Boys 3“. Þá eiga þeir að koma fram í Sumarsýningu Dýragarðs- ins í Kristiansand ásamt frægum norskum skemmti- kröftum. Þeir segjast vera byijaðir að undirbúa þarnæstu plötu sína og segja að á henni verði lög eftir þá sjálfa, en hingað til hafa þeir aðallega flutt lög frá 6. og 7. áratugnum. Jackson í yfirlýsingu sem hann gaf síðastliðinn fimmtudag. Hann heldur því fram að textinn sé mistúlkaður af gyðingum og boðskapur hans hafi verið öfug- ur við túlkun þeirra. Búist er við að útvarpsstöðvar hætti að spila frumútgáfu lagsins, enda yrði það sársaukalaust fyrir þær, þar sem það hefur ekki náð neinum vinsældum. „Michael Jackson fór mjög viturlega að ráði sínu,“ segir rabbíninn Marvin Hier. „Jafnvel þótt túlkun hans væri sú að lag- ið talaði máli hins eilífa fórnar- lambs, gerði hann sér grein fyr- ir því að enginn annar leit málið þeim augum,“ sagði rabbíninn. Búist er við að HlStory verði mest selda plata heimsins í ár, en hún fór beint á topp breska breiðskífulistans á dögunum og var eina platan sem skákaði „Post“, plötu Bjarkar Guð- mundsdóttur, sem fór beint í annað sætið. Hljómsveitin SAGA KLASS, ásamt söngvurunum Guðrúnu Gunnarsdóttur og Reyni Guðmundssyni, Gylfi og Bubbi í GG bandi halda uppi léttri og góðri i / stemnmgu a MÍMISBAR -þín saga! ;> | i;:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.