Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 24
24 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ l\ t AÐSENDAR GREINAR Ungt fólk og skattadagurinn ræðunni en hinir sem vilja draga úr ríkisútgjöldum en það er forsenda skattalækkunar. Þrátt fyrir það er ég sannfærður um að mikill meiri- hluti þjóðarinnar vill að jafnvægi náist í ríkisbúskapnum og vandan- um sé ekki fleytt yfir á komandi kynslóðir. LAU G ARDAGINN 10. júní vakti Heimdall- ur, félag ungra sjálf- stæðismanna í Reykjá- vík, athygli á svokölluð- um Skattadegi. Þá voru liðin 43,8% ársins 1995 en það er sama hlutfall og nemur útgjöldum ríkis og sveitarfélaga af landsframleiðslu að viðbættum iðgjöldum lífeyrissjóða. Þetta er lofsvert framtak þótt varla sé eðlilegt að telja lífeyrisiðgjöld með sköttum. Meginatriðið er að rödd ungs fólks heyrist meira í þessum hluta þjóðmálaumræð- Áhugi fyrir kynslóðareikningum Friðrik Sophusson Vegna hallareksturs hins opinbera í flestum Evrópuríkjum hefur áhugi á því að skoða skattbyrði framtíðar- kynslóða vaxið. í því sambandi hafa nokkrar þjóðir látið vinna eins konar kynslóðareikn- inga, en þeir miða að því að kanna hvort ein- staklingar hverrar kyn- slóðar fái til baka í milli- færslum og þjónustu á æviskeiðinu það sem þeir hafa greitt í skött- um. Samkvæmt þessum unnar. Það er unga fólkið sem þarf að búa við aukna skatt- og skulda- byrði í framtíðinni, ef ekki verður dregið úr útgjöldum ríkissjóðs. Ríkisútgjöld hafa lækk- að um 5-6% á fjórum útreikningum þurfa t.d. framtíðar- kynslóðir í Þýskalandi og Svíþjóð og þola 25-30% skattahækkanir til að njóta svipaðrar þjónustu og núver- andi kynslóðum er boðið upp á. Ekki liggja fyrir útreikningar af þessu tagi hérlendis. Slíkar tölur geta verið mjög mikilvægar og því þarf að hefja undirbúning að kynslóðareikningum fyrir ísland. Á síðustu fjórum árum hefur tek- ist að lækka ríkisútgjöld um sem nemur 5-6% og skatttekjur ríkissjóðs sem hlutfall af vergri landsfram- leiðslu hafa ekki í sjö ár verið lægri en í ár. Ef einungis er horft á ríkis- sjóð hefur því þokast í rétta átt frá árinu 1991. Þá var „skattadagurinn" 14. apríl, en var á þessu ári þann 7. apríl. Þessum árangri verðum við að fylgja eftir og halda áfram að draga úr ríkisútgjöldum. Að undan- fömu hefur íjármálaráðuneytið í samvinnu við Þjóðhagsstofnun og Seðlabanka unnið að gerð langtímaá- ætlunar í ríkisfjármálum, en þar er gert ráð fyrir að jafnvægi náist í rík- isfjármálum á þessu kjörtímabili. Drög að þessari áætlun liggja nú fyrir og hefur ríkisstjómin samþykkt að stefna að þvi að fjárlög verði hallalaus árið 1997. Framtíðarhagsmunir í húfi árum, segir Friðrik Sophusson, og hafa Ríkisútgjöldin og hagsmunahóparnir ekki verið lægri í sjö ár. Þeir sem krefjast aukinnar fyrir- greiðslu úr ríkissjóði eru venjulega mun fyrirferðarmeiri í þjóðmálaum- Það skiptir miklu að rödd unga fóksins heyrist, þegar unnið er að því að ná jafnvægi í ríkisfjármálun- um, því að framtíðarhagsmunir þess eru í húfi. Öflugur stuðningur ungs fólks við sjónarmið þeirra sem vilja draga úr útgjöldum hins opinbera er því vel þeginn. Að tilnefna sér- stakan skattadag er ein leið til þess að minna á mikilvægi sparnaðar og hagræðingar í ríkisrekstri Höfundur er fjámtálaráðherra. ISLENSKT MAI Umsjónarmaður Gísli Jónsson 802. þáttur RAB(B)ARBARI er jurtar- heiti sem komið er inn í mál okkar ekki seinna en á 17. öld. Hreintungumenn,, sem Halldór Laxness hefur kallað tilviksís- lendinga að gamni sínu, nefna þessa jurt tröllasúru. Orðið er komið til okkar úr dönsku, en svolítið skiptast í bókum skýr- ingar á uppruna. Sumir halda að til grundvallar liggi grísk ummyndun á persnesku orði, en aðrir rekja ekki lengra en til grísku; væri orðið þá samsett af rheon=rót og barbarum= erlent. Hinum lærðu og sjálf- umglöðu Grikkjum þótti sem aðrar þjóðir en þeir sjálfir töluðu óskiljanlegt þrugl: „bar-bar“, og nefndu útlendinga barbara. Ekki voru barbarar upp og ofan hafðir í háum sessi. En seinna veitti heilög píslarmær nafninu Barbara uppreisn æru. Víkur sögu þessari austur að Svartahafi sem Grikkir kölluðu Pontos. Umhverfis haf þetta kynntust Grikkir við hina fram- andi jurt, rheon-barbarum, og á Asíuströnd Svartahafs kvað ennþá spretta tröllasúra. Kunn- ug er íslenskum mönnum þessi þula: Rússneski ræningjaforing- inn Rama réðst (ruddist) inn í Rúmeníu og rændi rúsínum og rabbarbara. 1910 orðnar sex, fæddar dreift. Síðan kemst nafnið í tísku. Skírð- ar árin 1921-50 279. Á þjóðskrá 1990 rúmlega 700, fremur sjald- an síðara nafn af tveimur. Hann Mörður á Mosfelli er svo mikið með sjálfum sér, að allmargir hafa á því allmikinn vafa hvar hvor þeirra hvor um sig fer. ★ Hjördís er fomnorrænt sagna- og kvæðasafn, sett saman af hjör(r) sverð og dís, en það orð, dís, er kvenheiti út af fyrir sig frá fomu fari. Dís hefur breytilega merkingu, t.d. „gyðja, kvenkyns goðvera; (tigin) kona, fögur kona“ (Ásgeir Blöndal). Samsetningin Hjördís ætti að vera valkyija eða skjaldmær. Hjördís Eylimadóttir er nefnd móðir Sigurðar Fáfnisbana. Hjördís kemur ekki fyrir sem heiti íslenskra kvenna fyrr en á síðasta hluta 19. aldar eða fyrsta hluta 20. Árið 1855 er engin, en Baldur Ingólfsson sendir mér þetta góða bréf: „Kæri Gísli, mig langar að nefna við þig þijú orð sem ég held að gætu leyst af hólmi lang- lokur sem menn eru að verða samdauna: 1. Bundið slitlag á vegi mætti vel kalla þekju, og það hef ég einu sinni séð í blaði. Segja má að orðið þekja sé ekki lengur í notkun og því tilvalið að grípa það meðan það gefst. Að vísu eru sumir menn úti á þekju, en það er annað mál. Segja mætti: Ráðgert er að leggja þekju á veginn í sumar, þekjan á veginum er farin að bila og þarfnast viðgerðar. 2. I stað langlokunnar kvik- myndagerðarmaður mætti al- veg eins segja kvikmyndahöf- undur sbr. rithöfundur, gi'einar- höfundur, textahöfundur o.s.frv. Myndi nokkrum manni detta í hug að tala eða rita um skáld- sagnagerðarmann? 3. Mér hefur alltaf þótt orðið náttúruvænn óþarft. Það sem er átt við má oftast tákna með orðunum skaðlaus, meinlaus, hættulaus. Hluti af merkingu orða felst jafnan í umhverfí þeirra í textanum svo að óþarft er að búa til einskonar glóp- trausta íslenska langloku til að þýða aðra útlenda í stað þess að nota góð og gild orð sem all- ir skilja. E.s.: Örnólfur Thorlacius kenndi mér orðið glóptraustur sem ég hygg að sé þýðing hans á enska orðinu „foolproof". Bestu kveðjur." Eitt frægasta germanskt karlheiti fyrr og síðar er Sigurð- ur, allt frá Sigurði Fáfnisbana, en því miður höfum við ekki fæðingarvottorð hans. Þetta er hermanns heiti og á að tákna að sá hermaður sé sigursæll eða vel varinn í orustunni, enda er til hliðarmyndin Sigvarður, sbr. Sivert í dönsku. Síðari hluti nafnsins á sér þá hliðstæðu í valkyijuheitum og þar með kvenheitum sem enda á vör,= „sú er ver (eða er vernduð)“, sbr. Ásvör og Steinvör. Seint yrðu taldir allir þeir kappar og konungar sem Sig- urður hafa heitið í sögum og kvæðum, og reyndar líka á landi veruleikans. Er 39 Sigurða get- ið í Sturlungu. Skemmst er og af því að segja að árið 1703 var Sigurður fjórða algengasta karlheiti á íslandi öllu, á eftir þeim Jóni, Guðmundi og Bjarna. Sigurður undi ekki lengi í 3. sæti og ruddi Bjarna þaðan fljótlega. Hélt Sigurður 3. sæti langa hríð og fór auk heldur upp í annað sæti í þjóðskránni 1982. Sigurðum hefur yfirleitt verið jafnt dreift á landshluta. Lífíð er pijón tímans með einstaka Iykkjufalli. En að lokum mun dauðinn, hinn mikli handavinnukennari, rekja það upp. (Jósep Benjamín Helgason). Hlymrekur handan kvað: Lífið er skólataska sem í eru tvær brauðsneiðar síðan í öðrum bekk með malakoffi ofan á: Harðar undir tönn og léttar í maga. (Sigurður Axel Hannesson) Þorskkvótar stofngjald fyrir varanlegan rétt EINMITT núna, þegar þorsk- kvótar eru komnir niður í þriðjung af upphaflegri úthlutun 1985, og Hafró gerir ráð fyrir að þeir fari í fjórðung á næsta fiskveiðiári, kemur fram tillaga frá stjórnar- formanni Granda hf. um nýtt fyrir- komulag á úthlutun kvóta í físki- lögsögu landsins. Þessi tillaga er mjög seint fram kom- in, því að flestir munu á þeirri skoðun, að skerðing kvótanna stafi beinlínis af of- sókn stórútgerðarinn- ar í þorskinn og spjöll- um á hrygningar- stöðvum hans, sem er afleiðing af stórfelldri tækniþróun í fiskveið- um. Hin nýja og full- komna tækni ógnar nú öllu lífi í fiskveiði- lögsögunni, og þar með framtíð þjóðar- innar, jafnvel þegar litið er til' mjög skamms tíma. Önundur Ásgeirsson Miðað við 14.000 tonna varan- legan þorskkvóta Granda, og afla- gjald 50 kr/kg er lagt til að stofn- gjaldið yrði 700 mkr., sem síðan væru reiknaðir af 7% ársvextir af eða 50 mkr. á ári, sem útgerðin myndi greiða til ríkissjóðs sem veiðigjald. Þetta sýnist heldur væglega reiknað, því að gangverð árskvóta eða leigukvóta fyrir þorsk hefir verið um 80 kr/kg en það myndi samsvara 1120 milljóna króna stofngjaldi, en 7% ársvextir af þeirri fjárhæð væri 78.4 milljón- ir króna, eða 60% hærri fjárhæð. Gengið er út frá að „stofngjaldið“ sé varanlegt, og taki til ákveðins og óbreytanlegs tonnafjölda í kvóta, sem aðeins verði hægt að afturkalla með eignarnámi, og komi þá fullt verð fyrir. íslending- ar eru í eðli sínu hjarðþjóð, og eta umhugsunarlaust hver eftir öðrum. Þegar hefir myndast mikil hjörð „sérfræðinga" um þessar tillögur, og Mbl. skipað sér í þann flokk. Eina röddin til andmæla kemur frá formanni LÍÚ, en hann skilur eðli kvótaúthlutunar bezt. Hafi veiði- gjald einhverntíma átt rétt á sér, sem ég tel ekki vera, þá er sá tími löngu liðinn nú, þegar þorskurinn er á þrotum. Kvótaúthlutunin hefir reynzt undirstaða mikillar og margvíslegrar spillingar í fiskveið- unum, en alþingismenn, hafa að hætti Nelsons, sett kíkinn fyrir blinda augað. Fyrsta spurningin er, hvers- vegna skyldi „stofngjaldið" miðast við 7% af 50 kr/kg aflakvóta eða 3,50 kr/kg, þegar sami árlegur leigukvóti selst á gangverði 80 kr/kg. Hagnaður „kvótaeigand- ans“ nemur þá 76,50 kr/kg, þótt kvótinn sé sameign þjóðarinnar allrar. Ef Grandi setti öll sín skip til veiða á úthafinu, þar sem engra kvóta er þörf, a.m.k. ennþá, og seldi sinn 14.000 tonna kvóta fyrir- hafnarlaust á opnum markaði, fengi hann árlega 1.071 milljónir nettó fyrir kvótann, en greiddi rík- issjóði 49 milljónir fyrir úthlutun- ina. Flestir munu telja þetta sið- laust. En tillagan gerir ráð fyrir að „stofninn" sé varanlegur, og verði aðeins skertur með eignarnámi gegn fullu verði. Kvótum yrði þannig ekki úthlutað árlega, heldur í eitt skipti fyrir öll, og þannig lokað á síðari úthlutanir til nýrra aðila. Gangverð slíkra varanlegra þorskkvóta hefir verið 250 kr/kg. Þetta væri væntanlega rétt verð á „stofninum“, ef koma ætti í veg fyrir brask með kvótana. Heildar- stofn Granda væri þá 3.500 millj- ónir króna, og 7% ársvextir eða aflagjald 245 milljónir árlega. Þetta væri ódýrt, því að 80 kr/kg leigukvóti næmi 1.120 mkr., sbr. ao. Það væru því enn miklir mögu- leikar á kvótabraski. En hvernig myndu slíkir varan- legir kvótar þróast, burtséð frá verðmæti þeirra og veiðigjalds- ins? Framtíðin er óljós og greinilega mjög fallvölt, og því er rétt að skoða þetta í ljósi reynzlu liðinna ára. Kvóti Granda er nú þriðjungur þess, sem verið hefði 1985 við fyrstu úthlutun þeirra. Það þýðir að hann samsvarar 42.000 tonna þorskkvóta þá, en eflaust hefír fyrir- tækið keypt eitthvað af kvóta á liðnum tíma, sem ekki skiptir máli, ef rétt verð var á þeim kvóta, þegar keypt var. Grandi myndi þá eiga veiðirétt á 42.000 tonnum af þorski, og reyndar allir aðrir líka þrefalt magn úthlutaðs kvóta nú. Hugmyndir um veiði- gjald og kvóta hafa dag- að uppi, segir Önundur Ásgeirsson. Togveiðar á aðeins að leyfa á út- hafínu, og eingöngu umhverfisvæn veiðar- færi innan fiskveiði- lögsögunnar. Allir ættu veiðirétt til þrefalds þess magns, sem nú er heimilt að veiða, og sennilegast er að allur þorskur væri dauður. Ef stjórnvöld hefðu viljað stöðva darraðardansinn um þorskinn, hefðu þau þurft að taka kvótann eignarnámi með fullu verði til „kvótaeigendanna", sem á núverandi verðlagi nemur 250 kr/kg fyrir óskertan kvóta um 450.000 tonn, en það myndi kosta ríkissjóð 112,5 milljarða staðgreitt. Það er ekki allt sem sýnist. Mbl. skýrir frá því í dag, að góð veiði sé nú hjá landróðrabátum 30 mílur úti fyrir Vestfjörðum, líklega á Halanum, en lítið hafi veiðst þar að undanförnu af togurum, og þeir haldið sig fjarri. Nýr Sómabát- ur gengur 30 mílur og „planar" 25 mílur með 3ja tonna afla. Það er engin þörf fyrir úthafstogara innan fiskveðilögsögunnar, þeir gera þar aðeins ógagn. Fiskistofa hefir nú gripið sex sökudólga fyrir þann glæp, að fleygja fiski, sem þeir máttu ekki koma með að landi samkvæmt ákvörðun sömu stofn- unar. Er hægt að gera þetta vit- lausara? Til er einfalt ráð, sem leysir allan vanda. Hættið kvóta- vitleysunni, og bannið togveiðar innari fiskveiðilögsögunnar. Gefið veiðarnar fijálsar með vistvænum veiðarfærum. Það er engin ástæða til að halda fullhraustum sjómönn- um á opinberu framfæri í nýja fangelsinu á Litla-Hrauni. Miklu einfaldara er að leggja Fiskistofu niður. I 1 Höfundur er fyrrverandi forstjóri Olís.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.