Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ____ ^ ______________ ,__________' ________________'_______LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ1995 2C ERLEIMT Major væntir sigurs þrátt fyrir misklíð Forsætisráðherrann brýnir fyrir flokksmönn- um að þeir verði að gera upp hug sinn því ekki verði unað við óbreytt ástand, segir í grein Kristjáns G. Arngrímssonar AÐ virðist hafa komið öll- um á óvart að John Maj- or, forsætisráðherra Bretlands, skyldi _ segja af sér embætti leiðtoga íhalds- flokksins sl. fimmtudag og skora á flokkssystkin sín að mæta sér í leið- togakjöri í bytjun næsta mánuðar. Þetta er í fyrsta skipti sem leiðtogi flokksins segir af sér með þessum hætti frá því reglum flokksins var breytt, fyrir 30 árum, þannig að mögulegt væri að halda leiðtogakjör árlega. Akvörðun hans um að leita mótframboðs nú þegar, í stað þess að bíða hausts, þykir bæði vogaður og snjall leikur sem hafi komið andstæðingum hans í opna skjöldu. Fyrstu viðbrögð ráðherra flokksins benda til að þeir muni fylkja sér á bak við Major. Forsætisráðherrann hafði boðað til fréttamannafundar á flötinni við bústað sinn að Downingstræti 10 klukkan 16.30 á fimmtudag. Fréttamennirnir þóttust vita að eitthvað lægi í loftinu, en grunur þeirra var óljós. Klukkan 17.00 kom Major ásamt Normu konu sinni og starfsfólki ráðherrabú- staðarins. Þegar hann hafði gefið yfirlýsingu sína neitaði hann að svara spurningum. Hann brosti og virtist hafa losað sig við þunga byrði. Svo hvarf hann til skrifstofu sinnar. Major sagði að ef hann yrði endurkjörinn myndi hann halda áfram í embætti forsætis- ráðherra og leiða flokkinn „í og gegnum“ næstu almennu kosning- ar. „Bíði ég ósigur, sem ég býst ekki við að verði, mun ég segja af mér sem forsætisráðherra og veita eftirmanni mínum fullan stuðning,“ sagði Major. Hann viðurkenndi að atlögur sem gagnrýnendur hafa gert að honum mánuðum saman og hert á undanförnum vikum hefðu vald- ið skaða. Flokksmenn yrðu að gera upp hug sinn, og ekki yrði lengur unað við óbreytt ástand. Sundurlyndi Stjórnmálaskýrandi The Daily Telegraph sagði í gær að þegar Major gaf óvænta yfirlýsingu sína hlyti forsætisráðherranum að hafa verið efst í huga • yfirvofandi árekstur við andstæðinga sína á hausti komanda. Hann hafi vitað að nú söfnuðu óvinir liði gegn honum. Hann hafi haft hugmynd um liðsskipan þeirra og vitað upp á hár hvenær þeir ætluðu að leggja til atlögu. Innanbúðardeilur vegna Evr- ópumála hafa valdið sundrungu í flokknum og hafa menn á hægri kantinum, fullir efasemda um samruna í Evrópu, viljað Major burt. Einnig eru þingmenn á vinstri vængnum orðnir efins um að Major sé maðurinn sem muni tryggja að þeir haldi sætum sínum. Fyrr í vikunni sagði ónefndur þingmaður: „Þetta er frágengið. Heseltine mun bjóða leiðtoganum byrginn.“ Dálkahöf- undur The Daily Telegraph full- yrti í gær að þótt stefna flokksins í Evrópumálum kunni að skipta marga kjósendur litlu muni hún á endanum ráða úrslitum um hver leiði flokkinn fram að næstu kosn- ingum. Þá hefur ríkisstjórn íhalds- flokksins einnig fengið að finna til tevatnsins vegna sífelldra fregna af skýrslu, sem væntanleg er í haust, um vopnasölu Breta til Tilnefningar þurfa að ber- ast fyrir fimmtudag Afsögn Reuter ÞAÐ var sól og blíða þegar Major tilkynnti fréttamönnum í rósagarðinum við Downingstræti 10 að hann hefði sagt af sér embætti leiðtoga íhaldsflokksins. Urðu margir til þess að rifja upp hinn örlagaríka og napra nóvemberdag 1990 þegar Margaret Thatcher sagði af sér. íraka á árunum fyrir Persaflóa- stríðið 1991 og allt útlit er fyrir að ráðherrar verði uppvísir að því að hafa blekkt bæði þingið og þjóð- ina. Því kann að vera, að Major hafi viljað efna til leiðtogakjörs nú, ef það mætti verða til þess að draga úr þeim skaða sem skýrslan kann að valda honum og öðrum ráðherrum þegar hún verð- ur birt opinberlega. Margir nánir samstarfsmenn Majors hafa frá því í vor hvatt hann til þess að fá sem fyrst úr því skorið hver skuli leiða flokk- inn, bæði vegna þess að argvítug- ar deilur í allt sumar kæmu illa við flokkinn og einnig vegna þess að skýrslan um vopnasöluna gæti gert Major skráveifu á flokksfund- inum í haust. Mikilvæg fimmtán prósent Reglur fiokksins kveða á um að leiðtoginn skuli leita eftir end- urkjöri einu sinni á ári í kjölfar þingsetningar. Major átti kost á að fá reglunum breytt og falast eftir endurkjöri fyrr. Þess í stað ákvað hann að segja af sér emb- ætti og gera með því leiðtogakjör mögulegt „eins fljótt og auðið er.“ Tilnefningar til embættis leið- toga þurfa að hafa borist fyrir hádegi á fimmtudaginn. Berist aðeins ein tilnefning er sá eða sú tilnefnda sjálfkjörin. Að öðrum kosti fer fyrsta atkvæðagreiðslan fram þriðjudaginn 4. júlí, og eru 329 þingmenn íhaldsflokksins atkvæðisbærir. Fái Major meiri- hluta atkvæða og 15% fleiri at- kvæði en sá frambjóðandi sem næstmest fylgi fær, hefur Major náð kjöri. Það voru þessi fimmtán prósent sem Margaret Thatcher náði ekki í fyrstu umferð á flokks- fundinum í nóvember 1990, og í kjölfarið dró hún framboð sitt til baka. Fái Major meirihluta at- kvæða en komist ekki yfir fimmt- án prósenta hindrunina kemur til annarrar umferðar viku síðar, og má þá leggja fram nýjar tilnefn- ingar. Fimmtán prósenta reglan gildir ekki í annam umferð og sá frambjóðandi sem fær meirihluta atkvæða nær kjöri. Ef enginn nær því kemur til þriðju umferðar þar sem kosið verður milli þeirra tveggja fram- bjóðenda sem fengu flest atkvæði í annam umferð. Sá sem fær fleiri atkvæði telst kjörinn leiðtogi. Ýmsir möguleikar Þótt flest þyki benda til að áhættan, sem Major tók með af- sögn sinni, muni borga sig, gætu veður skjótt skipast í lofti. Frétta- skýrandi The Daily Telegraph greinir fjóra möguleika: •Enginn býður sig fram gegn Major; hann er endurkjörinn og leiðir flokkinn í næstu þingkosn- mgum. •Lítt þekktur þingmaður býður sig fram sem skálkaskjól þunga- vigtarmanns sem ekki vill bjóða sig fram fyrr en í annarri um- ferð, en Major sigrar „Trójuhest- inn“ með yfirburðum og hefur þar með styrkt stöðu sína. •Major sigrar í fyrstu umferð en nær ekki fimmtán prósentunum, sem reglur kveða á um. Hann gæti boðið sig fram í annarri umferð, en þó er líklegra að hann segi af sér sem forsætisráðherra. Leiðin er greið fyrir framboð helstu ráðherra, til dæmis Micha- els Heseltines eða Kenneths Clar- kes. •Major sigrar og nær tilskildum fimmtán pró- sentum, en rúmlega hundrað þingmenn hafa annaðhvort greitt at- kvæði gegn honum eða setið hjá. Hann gæti setið áfram í embætti, en þar eð hann skortir stuðning um þriðj- ungs fulitrúanna hefur honum mistekist að festa sig í sessi. Núna um helgina mun í raun ráðast hvernig fer. Þingmenn halda heim í kjördæmi og heyra hljóðið í flokkssystkinum sínum. Þeir vita, að ef enginn býður sig fram gegn Major mun hann sitja í embætti fram að næstu þing- kosningum, og ekkert tækifæri mun gefast til annars leiðtoga- kjörs með haustinu. Stefnan í Evr- ópumálum kann að ráða úrslitum IHBHiFRINCE POLO stundum koma Prínce Polo pásur! Lífið snýst ekki bara um vinnustundir og vísitölur, stundum eru það pásurnar sem Iffga mest upp á sálartetrið; Prince Poio pásurnar. Nú er Prince Polo komið í nýjar og betri umbúðir. Mundu það næst þegar þú vilt slappa af!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.