Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.06.1995, Blaðsíða 40
40 LAUGARDAGUR 24. JÚNÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ( Gtz&m& neFuk, / HveKbUG LisrþÉRÍ) ( a/o eelfðA (pANN LEIPA UANA-J J. A VBÐfHÐ? VJjPyKlR Méfty' rz^c 8 i m v \ L \ )\ lH . .// y ", ^ J rrrrííflTV / J fj \\ íl x\ ^ » JfM PAVÍS 7-16 Tommi og Jenni Magga, hvaða bækur bað Hún lét okkur Við getum lesið „Stríð og Eg vaki í alla nótt við að kennarinn okkur að Iesa velja, herra ... friður“ eða „Ef maður gefur reyna að ákveða mig ... fyrir morgundaginn? mús smáköku" BREF ITL BLAÐSINS Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 E g ætlaði að fara að hringja til þín Frá Auðuni Braga Sveinssyni: VIÐ hittumst eitt sinn, og þá talað- ist þannig til, að ég sendi þessari konu brag, sem ég hafði ort. Ég gerði þetta alveg strax eftir að fundum okkar bar saman, því að ég vil ekki draga hlutina á lang- inn. Veit, að þannig kemst ég hjá því að hlutimir safnist saman og valdi mér áhyggjum. Nú leið og beið og ég gat ekki stillt mig um að hringja í konuna, því að ég óttaðist, að hún hefði ekki fengið braginn í hendur. Það er alltaf leiðinlegt, ef hlutir misfar- ast eða týnast. Ekki síst ef um hugverk er að ræða, þótt ei sé eftir neitt þjóðskáld. ' Konan tók símtali mínu mjög vingjarnlega, og þegar ég spurði hana, hvort hún hefði móttekið brag minn, svaraði hún því til, að hann hefði hún fengið og væri stór- hrifinn af honum. Hann væri mjög vel ortur, og hún hefði sagt það vinum sínum og kunningjum ... Ekki að spyrja að hagmælskunni hjá mér, hún væri alveg einstök. Nú spurði ég konuna að því, hvers vegna hún hefði ekki slegið á þráðinn til að láta mig vita, að hún hefði tekið á móti hinum marg- lofaða brag eftir mig, og þakkað mér ef til vill með nokkrum völdum orðum, svona í leiðinni. Hún sagð- ist ekki geta svarað því, en hún hefði ætlað að fara að hringja í mig, svona hvað úr hverju. Þetta þótti mér mjög gleðilegt að heyra. Oft heyrum við svar eins og það, sem að framan er eftir haft. Alltaf er hægt að segja sem svo, að maður sé að því kominn að framkvæma eitt og annað. Það er auðvelt að segja, að við ætlum að gera eitthvað, en galdurinn er bara sá að það hefur ekki enn verið gert! Slík framkoma og að ofan greinir, er því miður allt of al- geng. En hver er orsök þess, að fólk lætur þögnina eina um sam- skiptin við annað fólk? Ég held að þar sé hugsunarleysi mest um að kenna, svo og leti. Hugsunar- leysi er ekki bara eitthvað mein- laust. Það er löstur. Sem kennari las ég stundum fyrir krakka sög- una um hann Villa viðutan. Hann var raunar besti strákur, en einn galla hafði hann, því miður: Hann nennti aldrei að hugsa! Gera fleiri hið sama? AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, Reykjavík. Upplýsingar um Intemettengingu við Morgunblaðið Tenging við heimasíðu Morgunblaðsins Til þess að tengjast heimasíðu Morgunblaðsins, sláið inn slóðina http://www.centrum.is/mbl/ Hér liggja ýmsar almennar upp- lýsingar um blaðið, s.s netföng starfsmanna, upplýsingar um hvernig skila á greinum til blaðs- ins og helstu símanúmer. Morgunblaðið á Internetinu Hægrf: er að nálgast Morgun- blaðið á Intemetinu á tvo vegu. Annars vegar með því að tengj- ast heimasíðu Strengs hf. beint með því að slá inn slóðina http://www.strengur.is eða með því að tengjast heimasíðu blaðsins og velja Morgunblaðið þaðan. Strengur hf. annast áskriftar- sölu Morgunblaðsins á Internet- inu og kostar hún 1.000 krónur. Sending efnis Þeir sem óska eftir að senda efni til blaðsins um Internetið noti netfangið: mbl@centrum.is. Mikilvægt er að lesa vandlega upplýsingar um frágang sem má finna á heimasíðu blaðsins. Það tryggir öruggar sendingar og einnig að efnið rati rétta leið í blaðið. Senda má greinar, fréttir og myndir eins og fram kemur á heimasíðu blaðsins. Mismunandi tengingar við Internet Þeir sem hafa Netscape/Mos- aic-tengingu eiga hægt um vik að tengjast blaðinu. Einungis þarf að slá inn þá slóð sem gefin er upp hér að framan. Þeir sem ekki hafa Netscape/ Mosaic-tengingu geta nálgast þessar upplýsingar með Gopher- forritinu. Slóðin er einfaldlega slegin inn eftir að forritið hefur verið ræst. Mótöld Heppilegast er að nota a.m.k. 14.400 baud-mótald fyrir Netscape/Mosaic tengingar. Hægt er að nota afkastaminni mótöld með Gopher-forritinu. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast eamþykkja þetta, ef ekki fylgir-fyrirvari þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.