Morgunblaðið - 14.07.1995, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
First
Chicago
og NBD
sameinast
Chicago. Reuter.
BANKARNIR First Chicago
Corp. og NBD Bancorp. í Detro-
it hafa sameinazt með samningi
upp á 11 milljarða dollara og
verða 7. stærsti banki Banda-
ríkjanna með eigið fé upp á um
120 milljarða dollara.
Hér er um að ræða þriðja
meiriháttar bankasamrunann á
tæpum mánuði í Bandaríkjun-
um og margir fleiri bankar
verða sameinaðir á næstu mán-
uðum að dómi sérfræðinga.
Gert er ráð fyrir að samein-
ingunni verði lokið á fyrsta
fjórðungi næsta árs og það mun
eyða - að minnsta kosti í bili -
vangaveltum um framtíð First
Chicago bankans, sem lengi
hefur verið talinn feigur.
Hluthafar í First Chicago fá
1,81 hlutabréf í nýja bankan-
um, sem mun kallast First
Chicago NBD Corp., fyrir hvert
hlutabréf, sem þeir eiga nú.
Hvert hlutabréf í NBD verður
jafnvirði eins í nýja fyrirtækinu.
First Chicago mun eiga
50,1% í nýja félaginu og NBD
49,9%.
Sala bíla í
V-Evrópu
eykst um
7.2%
Briissel. Reuter
NÝSKRÁÐUM bílum í Vestur-
Evrópu ijölgaði um 7,2% í júní
995 miðað við sama mánuð í
fyrra samkvsemt upplýsingum
sambands evrópskra bílafram-
leiðenda, ACEA.
Á fyrri árshelmingi jókst
sala nýrra fólksbíla hins vegar
um aðeins 1,4% í 6.500.300.
Um 1.127.000 nýir bílar
seldust í síðasta mánuði og
Volkswagen hélt forystunni
með 17,5% markaðshlutdeild.
Sala VW að Seat og Audi
meðtöldum jókst í mánuðinum
um 12,6% þrátt fyrir styrk-
leika marksins. Sala BMW og
Mercedes minnkaði hins vegar
um 7,5% og 10,1% í júní.
Sala kóreskra bíla jókst
mest í'mánuðinum, um 100,7%
í 18,525. Sala Ford jókst um
15,1 í 129.938 og Renault um
13,9% í 127.188.
Biddu um Banana Boat
sólbrúnkufestandi
Alter Sun el þii vill festa silbrúnkuna til mánaða um leið og þú
nærir húðina með Aloe Vera, E-vítam., kollageni og lanólíni.
■ Sérhannaðar Banana Boat barnasélvarnir #15, #29, #30
og 50#. Krem, úði, þykkur salvi og stifti.
■ Banana Boat nænnoaárem Bnin-án sólar m/sólvöm #8.
■ Hraðgræðandi Banana Boat varasatvi steyptur úr Aloe Vera
m/sólv. #21, E-vítamín m/sólvöm #30; kirstuberjum, vatns-
melónum, blönduðum ávöxtum m/sólv. #15. Bragðgóðir.
Hvers vegna að borga 1200 kr. (yrir kvartlítra af Aloe geli
■ þegar þj getur lengið sama magn af 99,7% hreinu Banana
Boat Aloe Vera geli á 700 kr ? Eða tvötalt meira maon af
Banana Boat Aloe Vera gá á 1000 kr. Án spirulinu, tilbúin-
nalyktarefna eða annarra ertandi ofnæmisvalda.
Biddu um Banana Boat I sólbaðsstofum, apótáum, snyrtiv.
verslunum og ölium heilsubúðum utan Reykjavikur. Banana
Boat E-gel fæst líka hjá Samtökum psoriasis- og exem-
sjúklinga.
_________VIÐSKIPTi_____________________
Hækkun dollars stöðvast
vegna óbreyttra vaxta
London. Reuter.
STAÐA dollars veiktist í gær þegar
hækkun fyrr um daginn snerist upp
í lækkun, þar sem þýzki seðlabank-
inn, Bundesbank, ákvað að breyta
ekki helztu vöxtum.
Gengi dollars hækkaði um morg-
uninn þegar svissneski seðlabankinn
lækkaði forvexti um 1/2% í 2,5%.
Vaxtalækkunin vakti vonir um að
svipuð breyting yrði ákveðin á fundi
í stjóm þýzka seðlabankans.
Dollarinn komst hæst í 1,4143
mörk og 88,45 jen eftir svissnesku
vaxtabreytinguna. Við lokun hafði
dollarinn lækkað í 1,3880 mörk og
87,20 jen.
Þar sem þýzki seðlabankinn
kveðst enn óttast að verðbólga kunni
að aukast ákvað hann að forvextir
skyldu áfram vera 4% og seðlabanka-
vextir 6.% Vonir um þýzka vaxta-
lækkun áttu rætur að rekja til þess
að staða dollars hafði styrkzt frá því
vextir höfðu verið lækkaðir í Japan
og Bandaríkjunum og gripið hafði
verið til aðgerða til stuðnings doll-
aranum.
Staða hlutabréfa í Evrópu veiktist
eftir hækkanir fyrr um daginn vegna
vonbrigða með óbreytta vexti Þjóð-
vetja og veikrar stöðu í lWall Street.
DAX-vísitaian í Þýzkalandi hækk-
aði í 2.217,42 - sem var nýtt met -
en síðan snarlækkaði hún, aðallega
vegna óánægju með ákvörðun þýzka
seðlabankans. Eftir lokun var lækk-
unin um sex stig.
Hlutabréf lækkuðu einnig í París
eftir nokkra hækkun um morguninn.
FÖSTUDAGUR 14. JÚLÍ 1995 15
omRon
sjóðsvélar
... og allar tegundir
af kassarúllum á
hagstæðu verði.
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI 569 7700
All/af skrefi á undan
I Pf ',x PIPII
4RA DYRA
IJ 95.000,
ÁGÖTUNA
Heilsuval - Barónsstíg 20 ® 562 6275