Morgunblaðið - 21.10.1995, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995
MCRGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Slagorð nasista
máluð á kirkjuna
Ibúðarhús á hættu-
svæðum í Súðavík og
Hnífsdal verða keypt
RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið
að íbúðarhús á Súðavík sem eru á
hættusvæði vegna snjóflóða verði
keypt. Öll gamla íbúðabyggðin á
Súðavík er talin á hættusvæði sam-
kvæmt hættumati. Því verður sleg-
ið á frest að reisa vamarmannvirki
fyrir opinberar byggingar og fisk-
verkunarhús Frosta á Súðavík.
Nýtt hættumat er komið fyrir
Hnífsdal og þau hús sem eru á
rauðu hættusvæði verða einnig
keypt.
Yfir 60 hús á Súðavík
Samkvæmt heimildum blaðsins
er ekki búið að ákveða hvemig
húseignirnar verða metnar til
kaupverðs. Það bíður seinni tíma.
Um er að ræða liðlega 60 hús-
Gerð varnar-
mannvirkja við
vinnustaði í
Súðavík frestað
eignir í Súðavík. Af þeim kemur
til greina að hægt verði að flytja
15-20 hús á nýtt byggingarsvæði.
Búið er að úthluta 57 lóðum og
íbúðum, en nú er gert ráð fyrir
64 íbúðum á nýju byggingarsvæði
í Súðavík.
Gert er ráð fyrir því að sveitar-
stjómirnar hafi forgöngu um kaup
húsanna. Þegar fyrir liggur að
byggð sé á snjóflóðahættusvæði
lætur sveitarstjórn vinna áætlun
um varnir eða uppkaup á húsum.
Velja skal þann kost sem hag-
kvæmari er.
Ofanflóðasjóður
greiðir 90%
Ofanflóðasjóði er heimilt að
greiða allt að 90% kostnaðar við
vamir eða uppkaup húseigna en
sveitarstjómimar greiða 10%
kostnaðar.
Þegar niðurstaða liggur fyrir
gerir sveitarstjórn tillögu til ofan-
flóðanefndar sem vinnur úr tillög-
unni í umboði Almannavama.
Nýlega var tekin ákvörðun um
framlag úr Ofanflóðasjóði til bygg-
ingar frekari varnarmannvirkja á
Flateyri.
HAKAKROSSAR og slagorð
nasista voru máluð með rauðri
málningu eftir allri norðurhlið
Háteigskirkju, að líkindum að-
faranótt föstudagsins. Stór
hakakross hafði líka verið
sprautaður á aðaldyr kirkjunn-
ar. Séra Helga Soffía Konráðs-
dóttir aðstoðarprestur telur
ekki óhugsandi að verknaður-
inn sé viðkomandi þeirri starf-
semi í kirkjunni sem tengist
nýbúum.
„Þetta er hreinn og klár nas-
ismi,“ sagði Helga Soffía um
veggjakrotið. „Hérna eru nas-
istatákn og orðatiltæki og setn-
ingar nasista sem eru fræg að
endemum. Það sorglegasta við
þetta er að Háteigskirkja er
eina kirkjan í borginni sem er
með nýbúastarf og nýbúaprest.
Mér finnst ekki líklegt að hérna
hafi verið unglingar á ferðinni
og ég lít þetta mjög alvarlegum
augum,“ sagði Helga Soffía.
Starfsemi var bæði inni í
kirkjunni og sóknarheimilinu
langt fram eftir fimmtudags-
kvöldi og því líklegt að verkn-
aðurinn hafi verið framinn að-
faranótt föstudagsins. Helga
Soffía telur líklegt að mála
þurfi kirkjuna á ný.
Toshiki Toma, eiginmaður
Helgu Soffíu, sem stýrir starf-
inu með nýbúunum, segir að
þeir sem verknaðinn frömdu
séu fjarri því að túlka viðhorf
venjulegra íslendinga. „Það
eru afar fáir með slíkan þanka-
gang. Ef þetta er gert af
gamansemi verður að benda á
það að gamanið er grátt, eink-
um þegar hörmungar nasista-
tímans eru hafðar í huga,“
sagði Toma.
Lögreglan segir að af skó-
förum við vegg kirkjunnar að
dæma hafi fullvaxinn maður
eða menn verið hér að verki.
Ellilífeyrir
Helmingur
hagnaðar
reiknast
sem tekjur
SAMKVÆMT nýjum reglum um
greiðslu ellilífeyris, sem gildi tóku
1. september síðastliðinn, reiknast
helmingur hagnaðar af atvinnu-
rekstri maka sem laun viðkomandi
ellilífeyrisþega og getur því leitt af
sér lækkun lífeyris.
Að sögn Fanneyjar Úlfarsdóttur,
deildarstjóra lífeyrisdeildar Trygg-
ingastofnunar, segir í nýju reglunum
að með tekjum ellilífeyrisþega sé átt
við skattskyldar aflatekjur hans og
helming af tekjum sem myndast við
atvinnurekstur hjóna, þ.e. þegar
hjón búa við venjulegt fjárfélag og
atvinnustarfsemi er ekki skattlögð
sérstaklega. Til dæmis að ekki hafi
verið stofnað sérstakt firma um at-
vinnureksturinn sem hafi sjálfstæð-
an fjárhag og sé lögaðili gagnvart
skattarétti.
Samkvæmt þessum nýju reglum
fær einstaklingur sem t.d. hafði
12.139 kr. í ellilífeyri fyrir 1. sept-
ember nú 8.234 kr. ef hagnaður af
atvinnurekstri hjóna er 136 þúsund
krónur á árinu 1994.
Morgunblaðið/RAX
TOSHIKI Toraa, sem stýrir nýbúastarfi í Háteigskirkju, gengur þungt hugsi frá útkrotuðum vegg kirkjunnar.
Nýr samningafundur um Smuguna boðaður í lok nóvember
Þokaðist I samkomu-
lagsátt í Moskvu
VIÐRÆÐUM embættismanna frá íslandi, Noregi
og Rússlandi um veiðar íslenzkra skipa í Barents-
hafi lauk í Moskvu í gær án samkomulags. Stjórn-
völd í ríkjunum þremur telja þó að árangur hafi
náðst á fundinum og þokazt í samkomulagsátt.
Nýr samningafundur hefur verið boðaður í lok
nóvember og er áfram stefnt að því af allra hálfu
að ná samningum fyrir áramót.
Rætt var um kvótatölur, en ekki er samkomu-
lag um hversu mikinn kvóta ísland fái í Smug-
unni. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
ber þó ekki mikið á milii. Skipti íslendinga og
Norðmanna á veiðiheimildum voru einnig rædd.
Jafnframt er deilt um hvort íslendingar fái að
veiða kvóta sinn á Svalbarðasvæðinu og í lögsögu
Noregs og Rússlands. Þá gera Noregur og Rúss-
land þá kröfu að komið verði í veg fyrir að skip
i eigu íslendinga sigli undir hentifána og komist
þannig framhjá kvótaákvörðunum.
Styttra á milli en áður
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra segist
ekki endilega hafa átt von á samkomulagi í
Moskvu. „Eg tel að þessi fundur hafi verið gagn-
legur og að margt hafi skýrzt á honum. Það var
árangur út af fyrir sig að samningaviðræður voru
hafnar á nýjan leik, því að það hefur tekið aillang-
an tíma að koma þeim á,“ segir Halldór. „Það
er líka árangur að menn skilja sáttir eftír þennan
fund og hafa ákveðið að halda nýjan.“
Aðspurður hvort styttra sé á milli ríkjanna
hvað varðar til dæmis kvóta og veiðisvæði eftir
fundinn, segir Halldór: „Það er styttra á milli
eftir þennan fund en áður var og það er árang-
ur.“ Halldór telur að með góðum samningsvilja
verði hægt að ljúka málinu fyrir áramót. „Það
voru þau tímamörk, sem ég taldi eðlilegt að setja."
Jákvæðar viðræður
„Við lítum svo á að viðræðurnar hafi verið
jákvæðar og gagnlegar," segir Ingvard Havnen,
talsmaður norska utanríkisráðuneytisins. „Við
erum nær lausn en áður.“
Havnen segir að norsk stjórnvöld hafí áfram
von um markmið ríkjanna þriggja, um að ná sam-
komulagi fyrir áramót, geti náðst. Hins vegar séu
samningaviðræðurnar flóknar og brugðið geti til
beggja vona.
Lík fannst
í Vest-
manna-
eyjahöfn
SJÓFARENDUR í Vest-
mannaeyjahöfn fundu í gær
lík á floti í höfninni.
Samkvæmt upplýsingum
lögreglu er talið að um sé
að ræða lík Steinunnar Þóru
Magnúsdóttur, 14 ára gam-
allar stúlku, sem mikil leit
hefur verið gerð að, en síð-
ast sást til Steinunnar Þóru
í Vestmannaeyjum aðfara-
nótt sunnudagsins 1. októ-
ber. Samkvæmt upplýsing-
um rannsóknarlögreglu er
eftir að bera formleg kennsl
á líkið.