Morgunblaðið - 21.10.1995, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 21
ERLEIMT
Deilur norskra fræðimanna um landa-
fundi og grænlenska landnámsmenn
Kom Kólumbus
til Ameríku
árið 1477?
Norsku fræðimennimir Helge Ingstad off
Thor Heyerdahl deila nú um tilgátur sænsks
fræðimanns, Pers Lillieströms, er telur að
Kólumbus hafí tekið þátt í leiðangri er fund-
ið hafí eyjar í norðausturhluta Kanada þeg-
ar árið 1477. Hann segir Portúgala hafa
rænt norrænum mönnum á Grænlandi um
1500 og selt í þrældóm á Kanaríeyjum
Kólumbus Helge Thor
Ingstad Heyerdahl
NÝLEGA gagnrýndi
norski fræðimaðurinn
Helge Ingstad harka-
lega tilgátur Svíans
Per Lillieström um að
Kristófer Kólumbus
hefði komið til Amer-
íku mörgum árum fyrr
en talið hefur verið.
Norski landkönnuður-
inn Thor Heyerdahl
hefur tekið undir skoð-
anir Svíans og telur
að Kólumbus hafí tekið þátt í dansk-
portúgölskum leiðangri undir leið-
sögn Norðmannsins Johannesar
Scolvusar frá íslandi 1477 til haf-
svæðanna vestan Grænlands og hafi
leiðangursmenn þá uppgötvað aust-
ustu hluta Kanada.
Ingstad segir í grein í Aftenposten
að Heyerdahl noti sem heimild frá-
sögn sonar Kólumbusar af uppgötv-
unum og siglingum föðurins á yngri
árum, hún byggist að sögn á glötuð-
um ritum eftir Kólumbus sjálfan.
ísland var forðum nefnt Thile eða
Thule. Ingstad segir að Heyerdahl
slái því föstu að ferð sem Kólumbus
hafi farið til Thile árið 1477 sé í
reynd sama ferð og leiðangur áður-.
nefnds Scolvusar 1476.
Sjálfur telur Ingstad líklegast að
Kólumbus, sem þá var ungur og
fátækur, hafi tekið þátt í fiskveiðum
sem Englendingar stunduðu af kappi
hér við land um þetta leyti, einkurri
frá Bristol.
Haft er eftir Kólumbusi að á þess-
um slóðum sé ekki hafís og syðsti
hluti landsins sé á 73. breiddar-
gráðu. Ingstad segir að könnuðurinn
hafí verið ungur og óreyndur, aðeins
25 ára gamall, og sonurinn Fern-
ando, reyndur kortagerðarmaður,
hafi lagfært þessa villu síðar, ritað
63. gráðu sem er mjög nálægt lagi
sé átt við ísland.
Til eru frásagnir af ferð Scolvus-
ar, er líklega hét upprunalega Jon
Skolp. Að sögn Ingstad tekur Hey-
erdahl sér það bessaleyfi að slá ferð-
unum saman í eina og fullyrða að
Scolvus og Kólumbus hafi uppgötvað
Ameríku árið 1477, hann vitni í
breiddargráðuna 73 þessu til stuðn-
ings. Engar nothæfar röksemdir séu
fyrir þessum vinnubrögðum og þar
að auki séu sumar tilvitnanirnar í
Kólumbus beinlínis uppspuni. Auk
þess hafi Scolvus verið á ferð í febr-
úar og þá sé útilokað að sigla í
grennd við Norður-Ameríku á 73.
breiddargráðu vegna hafíssins.
Afdrif grænlensku
landnámsmannanna
Áðurnefndur Lillieström hefur
ennfremur sett fram kenningar um
að Portúgalar h'afi numið á brott og
gert að þrælum á Kanaríeyjum nor-
rænu landnemana á Grænlandi um
aldamótin 1500 og sé það skýringin
á hvarfi fólksins sem iengi hefur
valdið heilabrotum.
Heyerdahl styður einnig þessar
niðurstöður er byggjast m.a. á þeirri
kenningu að Portúgalar hafi túlkað
samning frá 1494 um skiptingu
nýrra landsvæða í Ameríku milli
þeirra og Spánveija svo að Grænland
ætti að vera portúgöisk eign. Einnig
telur Lillieström að ljóshært og blá-
eygt fólk á Kanaríeyjum og gamail
tréskurður sem þar hefur fundist
styðji tilgátuna.
Ingstad telur að hér sé um allt
of glannalegar ályktanir að ræða.
Rétt sé að á gömlu korti frá 1502
sé sýndur portúgalskur fáni á suð-
urodda Grænlands en það hafi verið
algengt að sýna með þessum hætti
að siglt hafi verið á staðinn, þetta
þurfi alls ekki að merkja neitt ann-
að. Auk þess hafi sæfararnir ekki
séð neina mannabyggð þarna og
þess vegna talið að um land í Asíu
væri að ræða. Ljóst sé að þetta hafi
ekki verið byggðir norrænna manna
á Grænlandi, þær hafi allar verið á
vesturströndinni.
Bréf Nikulásar páfa
Heyerdahi svarar Ingstad daginn
eftir í Aftenposten og sakar hann
um að misskilja málið, um sé að
ræða skoðanir Lillieströms er hann,
Heyerdahl, hafi fyrst og fremst ver-
ið að kynna.
Sjálfur hafí Heyerdahl aldrei verið
neinn sérfræðingur í Kólumbusi og
byggðum norrænna manna á Græn-
landi eða þóst vera það.
Lillieström hafi kannað vel heim-
ildir sínar og bendi á að umræddur
leiðangur Scolvusar hafi verið farinn
í febrúarmánuði vegna þess að á
þeim árstíma sé minnst um að brot
úr borgarísjökum geri siglingarnar
ótryggar. Margt bendi til þess að
heitið Thile hafi ekki aðeins átt við
ísland heldur allar byggðir norrænna
manna þar og á Grænlandi.
Um afdrif Grænlendinganna
fornu segir Heyerdahl að ekki megi
gleyma bréfi Nikulásar V. páfa á
15. öld til biskupa á íslandi þar sem
hann minnist á herferðir þrælasala
á Grænlandi. „Er hægt að vísa á
bug þeim möguleika að önnur þræla-
ferð hafi verið farin i lok aldarinn-
ar?“, spyr Heyerdahl. Hann segist
aðeins vilja að öll sjónarmið komi
fram en hann beri mikla virðingu
fyrir Ingstad og störfum hans.
Leikur nr. 33 í Lengjunni Chelsea - Manchester United
Leikur nr. 33 í I.engjmnii er
í beinni útsendingu á RÚV í dtig!
STUÐLAR
1 X 2
32 Lau 21/10 13:30 Arsenal - Aston Villa 1,60 2,95 3,50 Kn.
33 Lau 21/10 13:30 Chelsea - Manch. United 2,45 2,60_2,20 RÚV
34 Lau. 21/10 13:30 Coventry - Sheffíeld Wed^-—T9Ó 2J52SR"**
Auktu á spennuna
og tippaðu á leikinn í Lengjunni.
Þú velur hvaða úrslitum þú
spáir í þessum leik.
Stuðlamir sýna möguleikann á
hverjum úrshtum (1, X eða 2)
á tölfræðilegan hátt.
Nú er úr vöndu að ráða, því að jafnar líkur (sömu stuðlar)
eru taidar á heimasigri (Chelsea) og útisigri (Manchester
United). Minnstar líkur (þ.e. hæsti stuðullinn) eru taldar á
því að leiknum ljúki með jafiitefli. En hærri stuðull hækkar
hka upphæð vinningsins sem þú getur átt von á!