Morgunblaðið - 21.10.1995, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1995 37
sagði umbúðalaust það sem henni
fannst, fals og hræsni var ekki til
hjá henni. Við vissum að hún meinti
vel með þessu og oftast gat maður
ekki annað en hlegið að þessari
hreinskilni hennar. Hún hrósaði líka
fólki óspart ef henni fannst ástæða
til og aldrei heyrðum við hana tala
illa um nokkurn mann.
Amma var mikil fjölskyldumann-
eskja og hún vildi fylgjast vel með
öllum afkomendum sínum sem eru
geysimargir. Hún naut sín best
þegar hún var umvafin fólkinu sínu
og þegar fjölskyldan kom saman,
sem var ansi oft, var amma alltaf
miðdepill athyglinnar. Þá sat hún í
stólnum sínum við eldhúsborðið og
var eins og drottning í ríki sínu.
Það var alltaf jafnnotalegt að
sitja hjá ömmu í eldhúsinu í Héðó.
Það voru margar góðar stundimar
sem við áttum með henni enda leið
okkur alltaf vel í návist hennar og
mikið var spjallað og hlegið. Stund-
um þegar við sátum með henni einni
fór hún að rifja upp hvernig Iífið
var í gamla daga. Hún sagði frá
því hvemig hún og afi kynntust í
sveitinni og það var allt mjög róm-
antískt, hann bauð henni í útreiðar-
túr og upp frá því vom þau saman.
Hún ljómaði öll þegar hún talaði
um afa og sveitina sína og það var
mjög skemmtilegt og fróðlegt að
heyra hana lýsa þeim aðstæðum
sem hún ólst upp við.
Við kvöddum þig, elsku amma,
í ágúst síðastliðnum áður en við
fómm til Reykjavíkur, með orðun-
um sjáumst síðar og við trúum því
að nú séuð þið afi á góðum stað
með börnunum ykkar og við hitt-
umst þar öll síðar.
Takk fyrir allt, elsku amma okk-
ar.
Sólrún og Ingólfur.
Úr ljóði Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi „Konan sem kyndir ofn-
inn minn“ má lesa mannlýsingu sem
um margt svipar til hennar ömmu
okkar í Vestmannaeyjum.
Þó svo að við systkinin höfum
aldrei verið búsett í Vestmannaeyj-
um og þvi ekki haft stöðug sam-
skipti við hana í gegnum árin fann
maður samt alltaf fyrir nálægð
hennar, að ekki sé nú talað um
þegar ættingjar komu saman. Þá
var líkt og einhver læddist inn með
eldhúslampann sinn og maður vissi
að amma var efst í hugum allra.
í lífi allra skiptast á skin og skúr-
ir en þó að stundum hafi ekki bara
verið um skúrir að ræða í lífi ömmu
heldur hreint og klárt úrfelli þá
sagði hún samt aldrei neitt, þó
væri hún dauða þreytt, en gladdist
frekar yfir sólskinsstundunum. Hún
fór að engu óð, var öllum mönnum
góð og vann verk sín hljóð.
Ekki lagði amma mikið upp úr
veraldlegum auð, henni þótti mest
um vert að hafa húsaskjól og dag-
legt brauð. í þeim efnum sem og
öðrum setti hún ekki sjálfa sig efst
á forgangslistann, þar gengu af-
komendurnir ávallt fyrir og ef það
var einhverntíma nefnt að hún
þyrfti að hugsa svolítið um sjálfa
sig mátti alltaf finna einhvem sem
hafði það verra.
í lífsgæðakapphlaupi nútímans
er hveijum manni hollt að hugsa
um það hvernig kona sem eignast
hefur 15 börn og 73 barna- og
barnabarnabörn gat alltaf sett
sjálfa sig aftast í forgangsröðina
og hafði alltaf næga mildi og kær-
leik handa öllum.
Alltaf var það amma sem kynti
ofn hlýjunnar, henti út öskunni og
blés í glæðurnar, þannig að öllum
leið vel í návist hennar og þegar
lokastundin tók að nálgast var hún
svo sátt við lífið og dauðann að það
var eins og hún læddist út um dyr
þessa heims og lokaði á eftir sér.
Handan við þær dyr hefur afi ör-
ugglega beðið í fríðum hópi þeirra
sjö afkomenda sem farnir voru á
undan henni ogþar hafa tvö yngstu
systkini okkar Asdís og Magni tek-
ið fagnandi á móti ömmu.
Við systkinin og fjölskyldur okk-
ar kveðjum ömmu með hlýhug og
virðingu.
Halldór, Bergrós og Gísli.
MINNINGAR
BRYNJAR
EYDAL
-I- Brynjar Eydal
' fæddist á Akur-
eyri 22. október
1912. Hann lést á
hjúkrunarheimil-
inu Eir 9. október
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
hjónin Ingimar og
Guðfinna Eydal.
Ingimar var kenn-
ari og síðar ritsljóri
Dags á Akureyri.
Brynjar kvæntist
Brynhildi Ingi-
marsdóttur frá
Húsavík árið 1940.
Þeim varð fimm barna auðið
og lifa fjögur: 1) Anna Iijger,
f. 1940, d 1942. 2) Anna Inger,
fædd 13.3. 1942, kvensjúk-
dómalæknir í Lundi í Svíþjóð,
gift Jóhannesi Magnússyni. 3)
Guðfinna, f. 27.2. 1946, sál-
fræðingur í Reykjavík, gift
Agli Egilssyni. 4) Matthías, f.
24.5. 1952, líffræðingur í
SJÁLFUM honum hefði verið líkast
að standa hjá áhorfandi að dauða-
stríði sínu og setja fram ígrundaða
athugasemd um uppgang lífsins og
niðurleið þess. En erfitt dauðastríð
gaf ekki tök á slíku. Heimspekin í
athugasemdinni hefði getað verið
í þá átt, að engum beri að telja sig
ómissandi. Hann minntist einhveiju
sinni á að suður í kirkjugarði á
Akureyri lægju menn sem hefðu
talið sig ómissandi, en taldi veröld-
ina engu að síður hafa bjargast án
þeirra. Það var yfir honum þessi
sjaldgæfa ró þeirra fáu sem hafa
komist að niðurstöðu um tilhögun
mannfélagsins og sætt sig við hana
með kostum hennar og göllum.
Brynjar Eydal var eins eyfirskur
og nokkur getur verið, með það þó
í huga að hafa komist í þetta heims-
hornaflakk sem menn þurfa í ung-
ir til að öðlast víðara sjónhorn á
tilveruna. Hann er fæddur á Akur-
eyri, en heilsuleysi innan fjölskyldu
hans varð til að það þurfti að koma
honum fyrir á bæjum frammi í
Eyjafirði. Þótt hann hafí lent hjá
góðu bændafólki, er slíkt afar hörð
raun svo ungu barni sem hann var
þá. Sextán ára átti að koma honum
Reykjavík, kvænt-
ur Bergþóru Vil-
hjálmsdóttur. 5)
Margrét, félagsráð-
gjafi í Reykjavík, f.
8.7. 1958, gift Frið-
riki Sigurðssyni.
Brynjar hafði áður
eignast dóttur, Hel-
en Báru, f. 1938,
sem býr í Reykja-
vík, gift Eyjólfi
Jónssyni.
Brynjar fluttist
ungur til Kanada
og átti þar heima
um nokkurt árabil
og vann einkum við landbúnað-
arstörf í byggðum íslendinga
þar og víðar. Eftir heimkom-
una gerðist hann iðnverkamað-
ur á Akureyri og vann lengst
af í efnaverksmiðjunni Sjöfn.
Hann lét af störfum þar um
sjötugt.
Utför Bryiyars fór fram í
kyrrþey.
til dvalar meðal skyldmenna í
Kanada. Sendingin misfórst, og
enginn kom til að taka við honum
mállausum í framandi heimsálfu.
Eftir langa bið á járnbrautarpalli
sendi forsjónin honum gott fólk,
sem tók hann að sér á staðnum,
Mrs. Pearson og fjölskylda hennar,
sem hann minntist ætíð með þakk-
læti. Öll sú reynsla hefur þegar
orðið til að gefa honum þá lífsaf-
stöðu sem hefur verið tæpt á, að
taka tilverunni með ró stóistans.
í sex ár var hann í Kanada, eink-
um við landbúnaðarstörf, og færði
sig hægt vestur á við, líkt og hvíti
maðurinn hefur alltaf gert í þeirri
álfu, og endaði við Kyrrahaf. Hann
hafði yndi af að tala um þessi ár,
þar sem hann var í samneyti við
fólk af ýmsu þjóðerni Evrópu, sem
gat verið ættað eða flutt úr jafn-
furðulegum skúmaskotum tilver-
unnar og við Brynjar erum úr sjálf-
ir, og hafði jafnóborganleg sér-
kenni og eyfírskir kotkarlar eða
þingeyskir sérvitringar. Hann sá
þar sömu sérkenni og sama marg-
breytileik mannlífsins og þrífst enn
hér norður í landi. Hann gat þulið
sögur af einkennilegum Pólveijum
GUÐRÚN OLGA
STEFÁNSDÓTTIR
+ Guðrún Olga
Stefánsdóttir
fæddist á Akureyri
12. mars 1926. Hún
lést á Landspítalan-
um 24. september
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Hulda Clausen f. 3.
apríl 1898, d. 23.
ágúst 1970, og Stef-
án Karl Sigurðsson,
f. 18. maí 1897, d.
26. september
1951. Systur Guð-
rúnar Olgu eru:
Pálína sem nú er
látin og Ragnheiður, gift
Patrick A. Castellano, sem er
látinn. Ragnheiður býr í Ariz-
ona. Eiginmaður Olgu var
Ólafur Sigfússon, f. 29. septem-
ber 1923, d. 18. apríl 1991, frá
Ey í V-Landeyjum. Börn þeirra
eru: 1) Guðni Þór, f. 6. apríl
1952, prófastur á Melstað í
Miðfirði, kvæntur Herbjörtu
Pétursdóttur frá Kirkjubæ í
Vestmannaeyjum. Börn þeirra
HÚN Olga vinkona mín og frænka
er dáin, farin úr þessari jarðlífs-
vist. Hún var búin að stríða lengi
hetjulegri baráttu við skæðan sjúk-
dóm og var löngu orðin þreytt og
þráði það eitt að mega að fá að
eru Ólafur Teitur,
Pétur Rúnar, báðir
háskólanemar,
Árni Þorlákur,
Lilja frena og Ey-
steinn Guðni. 2)
Stefán, f. 9. október
1952, umsjónar-
maður, kvæntur
Ólafíu Þórdísi
Gunnarsdóttur.
Börn þeirra eru:
Guðrún Olga, Ólaf-
ur Þór, hann átti
áður soninn Birgi.
3) Sigurður Rúnar,
f. 4. apríl 1955,
pípulagningamaður í Reykja-
vík, kvæntur fV^jöll Gunnars-
dóttur, þeirra dóttir er Sunna.
Hann var áður kvæntur Hrönn
Sturlaugsdóttur, dóttir þeirra
er Sara. Guðrún Olga og Ólaf-
ur ólu einnig upp Bettý Stef-
ánsdóttur, systurdóttur Guð-
rúnar Olgu.
Útför Guðrúnar Olgu fór
fram frá Dómkirkjunni 3. októ-
ber síðastliðinn.
sofna. Hvað þráir annað helsjúk
manneskja en að fá frið, sofna laus
úr þessum viðjum.
Eg vil minnast hennar frá því
ég sá hana fyrst. Hún var glæsileg
kona bæði í sjón og reynd. Hún
við búbasl vestur í Alberta eða af
Vestur-íslendingi við kornskurð að
brýna lata syni sína, innan um sög-
ur af akureyrskum sértrúarsöfnuð-
um eða af skrítnu sambýli erlends
setuliðs við Akureyringa. Brynjar
þekkti auk þess nóg til heimspeki-
legra og bókmenntalegra rita engil-
saxneskra til að hann sá bæði
meðaltöl mannlífsins og frávik frá
þeim í heimspekilegu ljósi. Það var
þess vegna að hann gerði ekki
greinarmun á og tók varla eftir
því, hvort sá sem hann var að segja
frá var skrítinn Ungveiji fluttur inn
til Kanada og sambýlismaður sko-
skrar ekkju eða rófuræktandi að
elta rófur á floti niður Glerá í vexti.
Honum var ljóst að sérleiki mann-
lífsins er alþjóðlegur, og að engin
þjóð getur því verið merkilegri ann-
arri.
Þó varð Akureyri honum allt sem
heimabyggð getur verið einum
manni. Þar bjó hann samfellt frá
heimkomunni árið 1934 til þess að
hann flutti suður til þess að heyja
þar það stríð sem allir eru dæmdir
til að tapa og tók fjögur ár. Á
Akureyri bjó hann lungann úr lífínu
og kom upp fjórum mannvænlegum
börnum, ásamt Brynhildi konu
sinni.
Akureyri hefur fram undir þetta
haft sérstöðu meðal íslenskra bæja
um að búa mönnum rólegt mannlíf
aðlaðandi umhverfis árið um kring,
og lítið hefur verið framan af um
aðflutning fólks nema úr nálægum
byggðum. Aðrir þéttbýlisstaðir
hafa tekið við gegnstreymi að-
komumanna, vegna öðruvísi at-
vinnumynsturs. Þetta hefur bæði
skapað kyrrlátara mannlíf og vald-
ið að vissu marki fordómum gagn-
vart íbúum bæjarins. Þeir hafa lifað
í nokkuð lokuðu samfélagi, af því
að það nægði þeim. Brynjar til-
heyrði kjarna þessa verndaða
mannlífs.
Megnið af tímanum á Akureyri
vann hann í sápusuðunni í Sjöfn
með mönnum sem voru líkt og
hann sjálfur sprottnir beint úr ey-
firsku moldinni. Meðal þeirra gekk
mannlífið fram með rónni og
streituleysinu sem einkenndi Brynj-
ar, áratug eftir áratug, og menn
þekktu allt gjörla, skiptust á sama
góðlátlega spauginu, sem var ekki
til meiðsla, en var aðferð þeirra
manna við að taka tilveru sinni.
Brynjar átti til að draga fjöður yfir
það hvort hann væri að spauga eða
tala í alvöru, og gat tekið aðkomu-
er heilsteypt manneskja, maður
getur ef til vill einu sinni á ævinni
hitt svona manneskju, að vera allt-
af tilbúin að gera öðrum greiða og
standa við allt, hvort það var smátt
eða stórt. Bæði fyrir bömin sín og
vandalausa.
Hún ræktaði líka garðinn sinn,
það var hennar metnaður að hafa
hann fallegan. Bæði á Suðurgöt-
unni þar sem hún átti síðast heima
og fyrir austan í Hjarðartúni í
Hvolhreppi, sem var sannkallað
listaverk, sem fékk margoft viður-
kenningu.
Einnig var hún fyrir sígilda tón-
list, það var auðséð að hún hafði
næman fegurðarsmekk og tilfinn-
ingu fyrir því listræna því öll henn-
ar verk voru unnin af listfengi.
Ég minnist kvikmyndarinnar
Draumar eftir Akira Kurosawa sem
við vöktum hálfa nótt yfir. Sérstak-
lega þeirrar fegurðar og þeirra
áhrifa sem við urðum fyrir. Dreng-
ur hleypur út í regnið til að sjá
staðinn þar sem ferskjutréð vex og
blómum skrýdd jörðin glitrar af
regninu og blámóðan sýnist blárri
í næturhúminu. Það var þessi mikla
fegurð og gróður sem hún unni
mest.
Ólafur og Olga hófu búskap í
Reykjavík en stofnuðu fljótlega
nýbýlið Hjarðartún í Hvolhreppi og
fluttu þangað haustið 1953. Olafur
var búfræðingur frá Hólum og
hafði einnig lokið námi í málaraiðn.
Búið var ekki stórt og allt vélvætt
og stundaði hann málarastörf jafn-
framt og með árunum í vaxandi
mæli uns þau hættu búskap 1965.
mönnum með dálítið útsmoginni
fyndni sem þræddi svo nákvæm-
lega mörkin á milli alvöru og
spaugs að einungis gerkunnugir
þekktu. Hann gat tekið fræðimanni
í leit að eyfirskum málsháttum með
því að blanda málshættina á staðn-
um á svo sannfærandi veg að að-
komumaðurinn fór burt með not-
hæfan feng að hann hélt, en allir
sem til þekktu vissu að allt var
búið til tækifærisins vegna.
Lífsafstöðu, sem einkennist fyrst
og fremst af húmor, fylgdi alger
slökun gagnvart því veraldlega
vafstri sem hann lét aðra um, að
klifra upp þrep þjóðfélagsstigans
eða auka efnaleg gæði umfram það
að eiga sæmilega til hnifs og skeið-
ar. Hann virti menn í engu eftir
því hvað þeir höfðu náð upp eftir
þeim stiga. Ég þekki engan sem
fór nær því en hann að meta menn
einungis eftir viðmóti þeirra eða
þeim gerðum sem að honum sneru.
Hann varð eins og aðrir að taka
því sem á bjátaði, en gerði það á
þann veg að hann komst nokkuð
hjá því að það gengi nærri honum.
Honum voru streitueinkenni nú-
tímaþjóðfélags framandi, einkum
fyrir það að hann hafði meðvitað
og yfirvegað komist að því að þau
þyrftu ekki að hijá hann. Mér er
nær að halda að maður eins og
hann hefði haft sömu persónuein-
kenni og viðhaft sömu hegðun,
hvaða menningu sem hann hefði
komið upp í. Atferli hans hefði
verið við hæfí í öllum löndum og á
öllum tímum.
Mér veittist sú gæfa að geta lok-
ið upp fyrir Brynjari skríni með
nokkrum stórdjásnum norðlenskrar
náttúru. Ég kom honum yfir
Kambsskarð sextíu og þriggja ára
gömlum. Öllu heldur komst hann
það sjálfur, þennan háfjallaveg úr
Óxnadal í Éyjafjörð, á annan kíló-
metra upp og niður, með foraðs-
vöxt í vötnum. Það komst hann á
rólegri seiglunni. Við gengum Flat-
eyjardalsheiðina alla og óðum vötn.
Við fórum í Fjörðurnar þegar hann
var 76 ára, þar sem var haldinn
söngkonsert með þingeyskum
frændum. Af þessu er ég stoltur
nú. Hann gaf mér meira í staðinn,
sem er blæbrigðaríkari sýn á mann-
lífíð. Fyrir það er ég honum djúpt
þakklátur, sem og fyrir alla hina
tuttugu og átta ára löngu sam-
fylgd.
Egill Egilsson.
Stundum hafði hann vinnuflokk
sem oft bjó á heimili þeirra. Ólafur
var í hreppsnefnd og hlóðust brátt
á hann störf í þágu sveitarfélagsins
fyrst sem oddviti, síðan sveitar-
stjóri. Þessu fylgdi mikið álag á
heimili og húsmóðurina sem studdi
hann vakin og sofin í starfí.
Olga útskrifaðist frá hjúkrunar-
skóla íslands sem hjúkrunarkona
29. maí 1950. Þegar Ólafur veikt-
ist varð hann að vera í hjólastól
og hugsaði Olga algjörlega um
hann, og þegar hann fór á spítala
fór hún á hverjum degi til að hjúkra
honum á spítalanum og kom ekki
heim fyrr en á kvöldin.
Ég kveð þig, kæra vina mín. Guð
leiði þig að vötnunum þar sem þú
munt næðis njóta. Vitringur hefur
sagt að lífið sé aðeins daggardropi
á lótusblómi (Tagore).
Nú ríkir kyrrð í djúpum dal
þótt duni foss í gljúfrasal.
I hreiðrum fuglar hvíla rótt,
þeir hafa boðið góða nótt.
Nú saman leggja blómin blöð,
er breiddu faðm mót sólu glöð.
í brekkum Qalla hvíla hljótt
þau hafa boðið góða nótt.
Nú hverfur sól við segulskaut
og signir geisli hæð og laut,
en aftanskiiíið hverfur hljótt,
það hefur boðið góða nótt.
(Magnús Gíslason)
Ég vil votta börnunum og öllum
þeirra niðjum innilega samúð mína.
Matthildur Þ. Matthíasdóttir.