Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 19
MORGUNB LAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 19 Kvenfélagskonur í tölvunámi Elsti nemandinn á níræðisaldri Borgamesi - Konur úr Sambandi borgfirskra kvenna stunda tölvu- nám af kappi um þessar mundir. Að sögn formanns SBK leitaði fé- lagið til Farskóla Vesturlands er hugmyndin að námskeiðinu kviknaði. Áhugi reyndist mikill og um þrjátíu konur era skráðar í námskeiðið. Kennslan fer fram einu sinni í viku í Borgaraesi og stendur í fimm vikur. Tíu komast að hverju sinni svo um þrjú nám- skeið er að ræða. Konumar eru víðs vegar að úr héraðinu, úr flestum kvenfélögunum innan SBK. Formaður Sambands borg- firskra kvenna er Ragnheiður Ásmundsdóttir á Sigmundastöð- um í Þverárhlíð. Elsti þátttakandinn 87 ára Elísabet Guðmundsdóttir á Skiphyl á Mýrum er elsti nem- andinn á tölvunámskeiðinnu, en hún er 87 ára. Þegar hún var spurð að því hvað hefði fengið konu á þessum aldri til að heija tölvunám sagði hún: „Ég get ekki annað sagt en að mig langaði á þetta námskeið. Ég hef aldrei lært neitt, nema það litla sem Iífið hefur kennt mér. En ég hef stundum verið að taka saman ýmislegt gamalt en á orð- ið bágt með að skrifa. Svo er auðveldara að vinna að ættfræð- inni í tölvunni," segir Elísabet. Kristín systir hennar lést í Morgunblaðið/Ingimundur ELÍSABET Guðmundsdóttir Skiphyl á Mýrum er 87 ára en stundar tölvunámið af kappi. október á sfðasta ári en hún vann mikið að ættfræðirannsóknum. Elísabet fékk tölvuna hennar og sá sig tilneydda að fara í tölvu- nám. Hún sagðist aldrei hafa stutt fingri á ritvél, en hefði góða von um að tölvan kæmi sér að góðum notun. Hún hefði verið stirð í fyrstu, en væri farin að skrifa og hefði góða von um það að tölvan gagnaðist henni í fram- tíðinni. LANDIÐ Morgunblaðið/Sig. Fannar ÁSBORG nýtir sér Netið til kynningar á verkefninu. Hér er hún ásamt stjórnarmönnum Atvinnuþróunarsjóðs Suðurlands. ÁSBORG Arnþórsdóttir, ferðamálafulltrúi uppsveita Árnessýslu, ásamt börnum úr Reykholtsskóla. Uppsveitir Árnessýslu Góð sam- vinna í ferða- þjónustu Selfossi - Eitt ár er liðið frá því að átta sveitarfélög í uppsveitum Ár- nessýslu skrifuðu undir samning ásamt Atvinnuþróunarsjóði Suður- lands um stefnumótun í ferðaþjón- ustu á svæðinu. Ásborg Amþórs- dóttir var ráðin til starfa sem ferða- málafulltrúi uppsveitanna ásamt því að starfa sem verkefnisstjóri að stefnumótunarverkefninu. Samvinnan góð Ásborg segir árið 1997 hafa verið gott ár í uppsveitunum. „Við höfum fundið fyrir miklum samvinnuvilja hjá ferðaþjónustuaðilum og ekki síst á milli sveitarfélaganna á svæðinu." Ásborg hefur mörg jám í eldinum og eitt er að halda utan um sameiginleg kynningarmál sem bæði sparar sveitarfélögunum peninga og sam- hæfir markaðssetningu svæðisins. Ásborg hefur ásamt Rögnvaldi Guð- mundssyni ferðamálafræðingi unnið veigamikla skýrslu um stöðu ferða- mála í uppsveitunum. Skýrslan kemur út á næstunni og að sögn Ásborgar gefur hún sveitarfélögunun glöggar vísbendingar sem þau geta nýtt sér til árangurs í ferðaþjónustunni. Mikil vinna framundan Gísli Einarsson, oddviti Biskups- tungnahrepps, er afar ánægður með verkefnið og framgang þess. Hann telur þó að menn megi ekki missa sjónar á tilgangi verkefnisins. „Það er ekki nóg að búa til skýrslur og móta stefnuna, það verður einnig að framkvæma það sem betur má fara,“ segir Gísli. Hann telur að halda beri áfram því góða starfi sem Ásborg hefur unnið fyrir uppsveitirnar og hann leggur áherslu á að verkefnið sé sett af stað með það í huga að auka störf í ferða- þjónustu á svæðinu. Frábært tilboð á vorferðum SAS Vorfargjöld SAS „Super Jackpot" hafa sjaldan veriö hagstæöari en núna og gilda þau frá 4. apríl til 30. maí. Flogiö er meö SAS á laugardögum. Hámarksdvöl er einn mánuöur. Fáðu allar nánari upplýsingar á næstu ferðaskrifstofu eöa hjá SAS. Kaupmannahöfn 22.250 Álaborg 22.920 Árósar 22.530 Karup 22.550 Malmö 20.710 Gautaborg 23.510 Osló 24.860 Stokkhólmur 23.540 París 29.500 Brussel 29.740 m/sns Laugavegi 172 Sími 562 2211 Lágmarksfyrirvari á bókun er 14 dagar. Síöasta heimflug 30. maí. Rugvallarskattar eru innifaldir í veröi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.