Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ 42 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 MINNINGAR + Ástkær dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KATRÍN GUÐLAUGSDÓTTIR, Hrafnistu, Reykjavík, áður Frakkastíg 12, lést mánudaginn 2. febrúar sl. Útför hennar fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð. Guðmunda Guðmundsdóttir, Guðlaugur Wium, Sigurhans Wium, Guðmunda Wium, Sigríður Júlía Wium, Gísli Wium, Anna Lísa Wium, Hjördís Jónsdóttir, Ingigerður Magnúsdóttir, Sigurður Höskuldsson, Einar Geir Guðnason, Þorbjörg Gísladóttir, Hjalti Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær sonur okkar og bróðir, BRAGIPÁLSSON, Hæðarbyggð 14, Garðabæ, lést á heimili sínu laugardaginn 14. febrúar sl. Útför verður auglýst síðar. Guðbjörg Hjörleifsdóttir, Páll Bragason, Hinrik Pálsson, Hjörleifur Pálsson, Viðar Pálsson. + HENNÝ BERNDSEN, Búðardal, lést á heimili dóttur sinnar og tengdasonar, sunnudaginn 15. febrúar. Gunnar Óskarsson, Birgir Óskarsson, Hildur Óskarsdóttir, Hilmar Óskarsson, Jakobína Kristjánsdóttir, Jóhanna Birna Sigurðardóttir, Róbert Fearon, Inga María Pálsdóttir. + PÉTUR JÓHANNSSON fyrrv. skrifstofustjóri í Þorlákshöfn og bóndi í Glæsibæ, Sléttuhlíð, Skagafirði, til heimilis í Daltúni 14, Kópavogi, lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. febrúar. Jarðarförin fer fram frá Þorlákskirkju laugar- daginn 21. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans, er þent á Þorlákskirkju og Karitas. Margrét Pétursdóttir, Grétar G. Ingvarsson, Guðríður Pétursdóttir, Guttormur Sigurðsson, Jóhann Pétursson, Þóra Sæunn Úlfsdóttir. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, ANNA JÓHANNSDÓTTIR, Hlíðargerði 5, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtu- daginn 19. febrúar nk. kl. 13.30. Magnús Jónasson, Óskar Magnússon, Kristín Eggertsdóttir, Jónas S. Magnússon, Nanna Ólafsdóttir Edda Magnúsdóttir, Guðmundur Björnsson, Guðrún J. Magnúsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. + Sigríður Soph- usdóttir Blöndal Broberg fæddist á Siglufirði hinn 22. desember 1917. Hún lést á sjúkrahúsi f Gautaborg hinn 24. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Olöf Þorbjörg Hafliðadóttir Blön- dal, húsmæðrakenn- ari, f. 10.12. 1894, d. 26.5. 1976, og Soph- us Auðunn Blöndal, forstjóri, f. 5.11. 1888, d. 22.3. 1936. Sigríður átti eina systur, Svein- björgu Helgu Kjaran, sem lifir systur sína. Sigríður lauk prófi frá Verzlunarskóla Islands árið 1936. Að því loknu starfaði hún hjá bæjarfógetanum á Siglu- firði í eitt ár en fluttist til Sví- þjóðar haustið 1937 með unnusta sínum. Hún var í hús- mæðraskóla í Svíþjóð einn vet- ur en kom heim til íslands á sumrin. Árið 1939 giftist Sigríður All- an Erlandsson, f. 4. júní 1914, sildarkaupmanni í Svíþjóð. Þeirra börn eru: 1) Bryndís Gunnilla Borgen, f. 1. júlí 1941, loftskeytam., skrifstofum. í Gautaborg, giftist Erik Borgen, f. 6. sept. 1939, stýrimaður í Noregi, þau skildu. Þeirra son- ur er Thomas Borgen, f. 21. júni 1969, nemi í Gautaborg. 2) Gunnar Olof Sophus Broberg, f. 5. okt. 1944, framkv.stj. í Mala- ysíu, kvæntist Catharine Bro- berg Wigelius, f. 6. júní 1944, húsm. í Gautaborg, þau skildu. Þeirra börn eru: a) Á fyrri hluta aldarinnar var mikill uppgangur á Siglufirði. Sfldin var þá fyrir Norðurlandi og atvinna næg. Á sumrin iðaði bærinn af lífi og skólafólk leitaði þangað til að sækja sér vinnu. I þessu umhverfi fæddist móður- systir okkar Sigríður Blöndal og ólst upp til 18 ára aldurs. Hún var eldri dóttir hjónanna Ólafar Haf- liðadóttur og Sophusar Blöndal. En yngri dóttir þeirra er Sveinbjörg Helga móðir okkar. Fjölskyldan bjó í Hafliðahúsi sem enn stendur við Norðurgötuna. Húsið var kennt við Hafliða Guðmundsson hreppstjóra afa þeirra. í næsta nágrenni bjuggu systkini Ólafar, Helgi, Kristín, Guð- mundur og Andrés. Mikill sam- gangur var milli fjölskyldna þeirra. Bræður Sophusar, þeir Magnús og Gunnlaugur Blöndal, dvöldu einnig langdvölum á Siglufirði og áttu þá sitt annað heimili hjá Olöfu og Sophusi. Gunnlaugur málaði á þess- um árum margar sínar bestu mynd- ir. Þær systur sátu oft fyrir hjá hon- um sem börn. Heimili Ólafar og Sophusar var mikið tónlistarheimili. Hjónin sungu bæði í kirkjukórnum og auk þess söng Sophus í karlakórnum Vísi og fóru raddæfingar kórsins fram á heimilinu. Þannig varð tónlistin snemma ríkur þáttur í lífi þeirra systra. Þær léku báðar á gítar og sungu. Á Siglufirði átti frænka okk- ar góða bernsku og æsku. Hjá ást- Charlotte Sigríður Broberg, f.19. jan. 1971. b) Camilla Margarethe Bro- berg, f. 27. feb. 1974. c) Sophus Carl Christer Bro- berg, f. 9. ág. 1980. 3) Sigrún Agnes María Gustavsson, f. 6. mars 1946, iðju- þjálfi í Gautaborg, gift Anders Gust- avsson, f. 2. sept. 1946, verslunarm. í Gautaborg. Þeirra börn eru: a) Agnes Jessica Gustavsson, f. 21. júní 1975. b) Joel Andreas Gustavs- son, f. 17. mars 1978. Árið 1950 slitu þau Sigríður og Allan samvistir og árið 1951 giftist hún eftirlifandi manni sínum Carl Joel Broberg, f. 18. jan. 1918, lækni í Gautaborg, þeirra börn eru: 1) Ulla Kristina Skogsberg, f. 10. maí 1951, tannsmiður í Gautaborg, gift Lars Jerker Skogsberg, f. 11. júní 1947, tannlækni í Gauta- borg og eru þeirra börn: a) Carl Mikael Skogsberg, f. 14. okt. 1975. b) Anna Ulrika Skogs- berg, f. 26. apríl 1979. 2) Kerstin Annika Broberg, f. 18. feb. 1953, d. 5. okt. 1955. 3) Ingela Marg- areta Petterson, f. 5. sept. 1957, verslunarm. í Gautaborg, gift Thomas Petterson, f. 15. maí 1953, viðskiptafr. í Gautaborg. a) Erik Carl Gustav Petterson, f. 22. júlí 1987. b) Carl Gustav Per Petterson, f. 2. mars 1991. Útför Sigríðar fer fram frá Orgrytakirkju í Gautaborg hinn 18. febrúar. ríkum foreldrum á heimili þar sem allir voru velkomnir. Sigga var góð- ur námsmaður og eftir að skóla- göngu lauk í Bamaskóla Siglufjarð- ar fór hún suður til Reykjavíkur og stundaði nám í þrjá vetur við Verzl- unarskóla íslands. Þau ár bjó hún hjá foðursystrum sínum Kristjönu og Sigríði Blöndal og ömmu sinni og nöfnu. Þær leigðu fyrst í Bernhöfts- bakaríi og síðan hjá frú Petersen í Skólastræti 3. Á þessum árum eign- aðist Sigga vinkonur sem bjuggu í næsta nágrenni, þær Bimu Peter- sen, dóttur frú Petersen, Ágústu Ahrens, sem bjó líka Skólastræti, Gerðu Herberts, sem bjó í Banka- stræti, og Ágústu Gísladóttur sem bjó við Miðstræti. Þessar konur hafa verið bestu vinkonur þeirra systra æ síðan en þær tóku mömmu okkar opnum örmum er hún kom nokkm síðar í Verzlunarskólann. Síðasta ár Siggu í Verzlunarskól- anum dó faðir hennar skyndilega langt fyrir aldur fram. Var hann öll- um mikill harmdauði og þurfti móð- ir hennar nú að sjá fyrir sér og dætrum sínum. Hún hóf hannyrða- kennslu við bamaskólann og á sumrin seldi hún aðkomufólki fæði og húsnæði eða hafði „kostgangara" eins og hún sjálf kallaði það. Margt ungt skólafólk sem sótti vinnu til Siglufjarðar á sumrin bjó þá á heimili þeirra mæðgna. Einnig bjuggu þar oft erlendir síldarkaup- menn. Einn þeirra var ungur Svíi, Allan Erlandson. Hann og Sigga frænka trúlofuðu sig og flutti hún með honum tii Gautaborgar haustið 1937 og giftust þau vorið 1939. Þau eignuðust þrjú börn en skildu árið 1950. Árið 1951 giftist Sigga eftirlif- andi manni sínum Carli Joel Bro- berg lækni í Gautaborg og var það hennar mesta gæfa í lífinu. Calle tók börnin hennar þrjú að sér sem sín eigin og saman eignuðust þau þrjár dætur. Eina þeirra, Aniku, misstu þau aðeins tveggja ára úr hvítblæði. Á heimili Siggu og Calle var alltaf mikill gestagangur. Vinir barnanna komu þar mikið og vinir og ættingj- ar frá Islandi komu í heimsókn. Síð- ast en ekki síst stóð heimili þeirra opið íslenskum námsmönnum í Gautaborg. Eiga þau marga vini þeirra á meðal sem haldið hafa tryggð við þau alla tíð. Calle lagði á sig að læra íslensku og les hann hana og skilur ágætlega í dag. Þau hjónin voru samhent í að koma sér upp góðu safni íslenskra listaverka og ber þar hæst myndir Gunnlaugs föðurbróður Siggu en hann heim- sótti þau og málaði á Billdal. Við systur höfum allar ásamt fjöl- skyldum okkar notið gestrisni Siggu og Calle á Billdal en þar áttu þau sér sumarbústað í skerjagarðinum rétt utan við Gautaborg. I fyrstu dvöldu þau þarna bara á sumrin en síðar gerðu þau húsið að heilsársbústað og bjuggu þar alla tíð. Þama vildi Sigga helst vera, því þar sá hún sjó- inn eins og heima á Siglufii-ði. I bamsminni okkar er Gautaborg mesta heimsborg alh-a staða. Þar vom keyptir á okkur jólakjólar og fermingarkjólar. Þar bjó hún sól- brúna, failega frænka okkar sem fyllti stofumar með gleði og söng þegar hún kom í heimsókn. Sigga og Calle heimsóttu ísland eins oft og þau gátu og frá árinu 1960 komu þau næstum árlega. I þessum heim- sóknum kynntumst við systur þeim best því þau bjuggu þá á heimili for- eldra okkar. Heimsóknum þeirra fylgdi jafnan mikil gleði og kátína og var þá sungið og spilað á gítar á hverju kvöldi jafnt íslensk sönglög, söngvar Hjálpræðishersins á Siglu- firði og Glúntarnir, Bellmann og Evert Taube. Einnig vom rifjaðar upp minningar frá Siglufirði. Allt frá því við vorum smábörn hefur lífið á Siglufirði og bernsku- og æsku-minningar þeirra systra staðið í miklum ljóma í hugum okk- ar. Við minnumst lýsinga á skraut- sýningum þar sem pabbi þeirra lék álfakónginn og þær fengu að vera með sem smábörn. Sfldarböllin og klúbbböllin tóku svo síðar við. Við þekkjum engan sem kunni annað eins af íslenskum og erlend- um söngvum og Sigga frænka. Þó hún hafi verið búsett í Svíþjóð í sex- tíu ár kunni hún íslenska texta bet- ur en flestir aðrir og söng þá á lýta- lausri íslensku enda var það henni kappsmál að halda móðurmálinu. Þegar heilsan var farin að gefa sig og hún ekki fær um að koma til ís- lands endaði hún gjarnan símtöl við okkur á spurningunni „Er ég nokk- uð farin að tala með hreim?“ I þau rúmlega sextíu ár sem Sigga bjó í Svíþjóð höfðu hún og mamma mjög náið samband. Fyrstu áratugina skrifuðust þær á vikulega en eftir að símsamband batnaði töl- uðu þær minnst vikulega saman og síðustu árin miklu oftar. Söknuður mömmu er því mjög mikili. Þann 29. október síðastliðinn fékk Sigga heilablæðingu. Hún missti mál og mátt og var á sjúkra- húsi síðan. Þennan tíma var fjöl- skylda hennar henni mikill styrkur. Calie vék ekki frá henni og þegar hann varð fyrir því óhappi að fót- brotna rétt fyrir jól bað hann um að fá að vera á sama sjúkrahúsi og hún og var hann hjá henni þegar hún dó. Dætur Siggu og tengd -idóttir vöktu yfir henni, sungu fyrir hana og gerðu allt sem í þeirra valdi stóð til að létta henni veikindin. Sonur hennar, sem býr í Malasíu, kom til Svíþjóðar þegar hann frétti af veik- indum móður sinnar. Við og fjölskyldur okkar sendum Calle og börnum þeirra okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Ólöf, Soffía og Helga Kjaran. + Fóstra min, INGIBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR, Droplaugarstöðum v/Snorrabraut, lést föstudaginn 13. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd ættingja og vina, Steindór Guðmundsson og fjölskylda. SIGRIÐUR SOPHUSDÓTTIR BLÖNDAL BROBERG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.