Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 28

Morgunblaðið - 17.02.1998, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 LISTIR MORGUNB LAÐIÐ Nýjar bækur • MEIRI gíiuvngangiir er eftir Ólaf Hauk Símonarson og er end- urútgefin í kilju, en hún kom fyrst út árið 1991. Pjóðleikhúsið sýnir nú um mundir leikgerð byggða á bókinni. Meiri gauragangur er sjálf- stætt framhald Gauragangs og „nú hittum við fyrir gamla kunn- ingja, þá Orm og Ranúr. Þeir taka stefnuna á Kaupmannahöfn í leit að nýjum ævintýrum og þau finna þeir! Við kynnumst mörgum bráðfyndnum persónum og verð- um vitni að óborganlegum uppákom urn “, segir í fréttatil- kynningu. Útgefandi er Bókaútgáfan Forlagið. Meiri gauragangur er 159 bls. Verð 990 kr. Kiljan er prentuð í Danmörku og kápu gerði Guðjón Ketilsson. Ólafur Haukur Símonarson BÓKASALA í janúar RöðVar Titill/Hófundur/Útgefandi 1 ALMANAK HÁSKÓLA ÍSUNDS// Háskóiaútgáfan 2 EINAR BENEDIKTSSON/Guðjón Friðriksson/lðunn 3 LJÓÐAMÁL/ Bragi Halldórsson og Knútur S. Hafsteinsson/Mál og menning 4 NÆRINGARGILDI MATVÆLA/Ólafur Reykdal/Námsgagnastofnun og Rannsóknastofnun landb. 5 GRANDAVEGUR 7/VigdlsGrímsdóttir/lðunn 6 ALMANAK HINS ÍSLENSKA ÞJÓÐVINAFÉUGS//Hið íslenska þjóðvinafélag 7 SALKA VALKA/ Halldór Kiljan Laxness/Vaka-Helgafell 8 ENGUR ALHEIMSINS/ Einar Guðmundsson/Mál og menning 9 PANORAMA - ÍSUND/ Páll Stefánsson/lceland Review 10 LAXDÆU SAGA//Mái og menning Einstakir flokkar: ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK 1 GRANDAVEGUR 7/ Vigdís Grímsdóttir/lðunn 2 SALKA VALKA/ Halldór Kiljan Laxness/Vaka-Helgafell 3 ENGUR ALHEIMSINS/ Einar Guðmundsson/Mál og menning 4 LAXDÆU SAGA// Útg. Mál og menning 5 SNORRA EDDA/ Snorri Sturluson/Mál og menning 6 LIFSINS TRE/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning 7 HÍBÝLIVINDANNA/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning 8 BRENNU NJÁLSSAGA//Mál og menning 9 HÍBÝLI VINDANNA/LÍFSINS TRÉ/ Böðvar Guðmundsson/Mál og menning 10 ANDSÆLIS Á AUÐNUHJÓLINU/ Heigi Ingólfsson/Mál og menning ÆVISOGUR OG ENDURMINNINGAR 1 EINAR BENEDIKTSSON/Guðjón Friðriksson/lðunn 2 ÚTKALL TF-LÍF/ Óttar Sveinsson/fslenska bókaútgáfan 3 DÍANA - ÆVI HENNAR OG ARFLEIFÐ/ Anthony Holden tók saman/Bókaútgáfan Vöxtur 4 GUÐMUNDUR FRÁ MIÐDAL lllugi Jökulsson/Ormstunga 5 KJARVAL - MÁURI UNDS OG VÆTTA/ Aðalsteinn Ingólfsson/Almenna bókafélagið fSLENSKAR OG ÞÝDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR 1 TÓTA OG TÍMINN/ Bergljót Arnalds/Skjaldborg 2 SAGAN AF SKESSUNNI SEM LEIDDIST/ Guðrún Hannessdóttir/Forlagið 3 BÖRNIN í SKARKALAGÖTU/Astrid Lindgren/Mál og menning 4 KYNLEGUR KVISTUR Á GRÆNNI GREIN/ Sigrún Eldjárn/Forlagið 5 HVAR ER TOMMI?/ Lieve Baeten/Mál og menning 6-7 FÖTIN HENNAR NÍNU/ Lieve Baeten/Mál og menning 6-7 STAFAKARURNIR/ Bergljót Arnalds/Skjaldborg 8-9 RISARNIR í GULLSKÓGAUNDI Hildur Hermóðsdóttir endursagði/Mál og menning 8-9 SOSSA SKÓLASTÚLKA/ Magneafrá Kleifum/Mál og menning 10-11 EVA OG ADAM - AÐ VERA EÐA VERA EKKI SAMAN/ Mons Gahrton og Johan Unenge/Æskan 10-11 GÆSAHÚÐ/ Helgi Jónsson/Bókaútgáfan Tindur ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR 1 ALMANAK HASKOU ISUNDS//Háskóiaútgáfan 2 LJÓÐAMAL/ Bragi Halldórsson og Knútur S. Hafsteinsson/Mál og menning 3 NÆRINGARGILDI MATVÆLA/ Ólafur Reykdal/Námsgagnastofnun og Rannsóknastofnun landbúnaðarins 4 ALMANAK HINS ÍSLENSKA ÞJÓÐVINAFÉUGS//Hið íslenska þjóðvinafélag 5 PANORAMA - ÍSUND/ Páll Stefánsson/lceland Review 6 BÓKIN UM WINDOWS 95/ Sigvaldi Óskar Jónsson/Fölvufræðslan 7 GEGNUM LJÓÐMÚRINN/lngi Bogi Bogason, Sigurður Svavarsson og Vigdís Grímsdóttir sáu um útgáfuna/Mál og menning 8 ÞÆTTIR ÚR SÖGU VESTRÆNNAR MENNINGAR/ Guðmundur j. Guðmundsson/Hið islenska bókmenntafélag 9-10 LÉTTA LEIÐIN TIL AÐ HÆTTA REYKINGUM/ Allen Carr/Fjölvi 9-10 SÍÐUSTU DAGAR SÓKRATESAR/ Platón/Hið íslenska bókmenntafélag Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni Höfuöborgarsvæðið: Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla Bóksala stúdenta v/Hringbraut Penninn-Eymundsson, Austurstræti Eymundsson, Kringlunni Penninn, Hallarmúla Penninn, Kringlunni Penninn, Hafnarfirði Utan höfuðborgarsvæðisins: Bókabúð Keflavíkur, Keflavík Bókval, Akureyri Kaupfélag Héraðsbúa, Egilsstöðum KÁ, Selfossi Samantekt á sölu bóka í janúar 1998 Unnið fyrir Morgunblaðiö, Félag íslenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar með þær bækur sem seldar hafa verið á mörkuðum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur. * Islenskur fíðluleikari í Carnegie Hall EVA Mjöll Ingólfsdótt- ir, fíðluleikari, og rússneski píanóleikar- inn Svetlana Gorok- hovich eru að hefja tónleikaferð um Kanada og Bandaríkin um næstu lielgi, sem lýkur með tónleikum í Camegie Hall í New York. textiFyrstu hljóm- leikana halda þær í Calgary á vegum há- skólans þar og fyrir atbeina Islendingafé- lagsins. Þaðan liggur leiðin til Seattle í Bandaríkjunum, þar sem þær spila 26. febr- úar og eruþeir fyrir milligöngu sendiráðs Islands. Fleiri staðir 1 Bandaríkjunum og Kanada hafa sýnt áhuga á að njóta listar þeirra, en í lok þessarar Iotu eru aðaltón- leikarnir í Camegie Hall f New York. Þar leika þær tónlist eftir Prokofiev, Shostakovich, Cesar Franck, Jón Leifs og Johann Sebastian Bach að kvöldi sunnu- dagsins 8. mars næstkomandi. Eva Mjöll Ingólfsdóttir stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykja- vík í sex ár, þar sem Rut Ingólfs- dóttir var aðalkennari hennar. Síð- an var hún nemandi nokkurra frægustu núlifandi kennara af Austur-Evrópu- og rússneska skól- anum, fyrst við Tónlistarháskól- ann í Brussel, siðan í Genf og Am- sterdam. Segja má að hefðir þess stfls hafi sett mark sitt á leik henn- ar fyrst og fremst, en einnig hefur hún stundað nám í Banda- ríkjunum, þar sem hún hefur verið búsett undanfarin ár, fyrst í Boston við nám í Har- vard, en nú í New York. Hún leikur á frægt hljóðfæri, smíð- að í Feneyjum af lista- smiðnum Goffriller um 1730. Svetlana Gorok- hovich er margv'erð- launaður píanóleikari frá Rússlandi, sem lauk námi sínu við rík- istónlistarskólann í St. Pétursborg, og hefur haldið tónleika í Japan eins og Eva Mjöll og víða um heim. I kynningu segir, að tónleika sína í Camegie Hall hinn 8. mars tileinki Eva Mjöll föður sínum, tón- listarmanninum Ingólfi Guð- brandssyni til heiðurs og í þakk- lætisskyni fyrir þá fræðslu og upp- örvun sem hann hafi veitt henni og mörgum öðmm sem brautryðjandi í íslensku tónlistarlífi, og í tilefni afmælis hans. Heimsklúbbur Ingólfs mun efna til tónlistarhelgar í New York dag- ana 5.-9. mars, þar sem kostur gefst á að heyra Evu Mjöll þreyta framraun sfna í Weil salnum í Camegie Hall, en jafnframt sækja óperasýningar í Metropolitan, þar sem Lohengrin eftir Wagner er á dagskrá daginn eftir fiðlutónleik- ana, mánudaginn 9. mars. Eva Mjöll Ingólfsdóttir Lokið við síðustu sym- fóníu Elgars London. Reuters. HINSTA ósk breska tónskáldsins Edwards Elgars hefur verið að engu höfð og lokið hefur verið við symfóníuna sem honum lánaðist ekki sjálfum að ljúka fyrir andlátið og var hún frumflutt á sunnudag. Elgarfræðingar segja fjölskyldu tónskáldsins hafa „lagst á lík“ eins mesta tónskálds þessarar aldar, en gagnrýnendur segja hina fullunnu symfóníu vera mikið listaverk. Það var tónskáldið Anthony Pa- yne sem tók að sér að ljúka verk- inu. Afkomendur Elgars veittu leyfi þrátt fyrir að hann hafi sagt við dóttur sína, Clarice, þegar hann lá banaleguna: „Láttu engan fara að fikta í þessu. Líklega væri réttast að brenna þetta.“ Payne sér ekki eftir neinu. „Ég er hræddur um að mér finnist með öllu fráleitt þegar miklir lista- menn vilja að verk þeirra séu brennd. Ef það var virkilega það sem Elgar vildi þá hefði hann átt að brenna þetta sjálfur." Payne segir ennfremur fráleitt að ekki sé hægt að ljúka verki sem þessu. „Það var komið á þetta form að mestu leyti en ég þurfti að líma saman á nokkrum stöðum," sagði hann. Verkið verður flutt í Royal Festival Hall í London á sunnudag undir stjóm Andrew Davis. Hann segir um verkið: „Þetta er ekta Elgar. Þar sem þetta hefur verið gert svona vel þá var þetta hárrétt ákvörðun.“ Dágóður dreifbýliskór TÓM.IST Gerðuberg KÓRTÓNLEIKAR M.a. ættjarðarlög, þjóðlög og lög eftir Loft S. Loftsson. Vörðukórinn u. slj. Margrétar Bóasdóttur. Einsöngv- ari: Loftur Erlingsson barfton. Agnes Löve, píanó; Grétar Geirsson, harmónikka; Loftur S. Loftsson (jr.), kontrabassi. Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, sunnudaginn 15. febrúar kl. 16. AFLA þurfti aukasæta þegar Vörðukórinn frá uppsveitum Ar- nessýslu efndi til tónleika í Gerðubergi á sunnudaginn var, því menningarmiðstöðin fylltist fljótt út að dyrum. Kórinn kvað að uppistöðu til stofnaður úr menjum Arneskórsins sem Loftur S. Loftsson stjórnaði um aldarfjórð- ungs skeið, að því er undirritaður komst að á þessum firnavel sóttu tónleikum. Það var auðheyrt strax á fyrstu strófum „ættjarðarlaganna" Hin ljúfa sönglist og Ó fögur er vor fósturjörð eftir Gluck og Schiöth, að hér fór dreifbýliskór fyrir ofan meðallag. Þó að kórinn sé aðeins fjögurra ára gamall var söngurinn stöðugur og látlaus, inntónun hrein, gliss milli tónbila hverfandi, innkomur samtaka og jafnvægi milli radda ótrúlega gott miðað við landlæga karlaeklu (S.A.T.B = 20.10.8.6.). Ef að líkum lætur skrif- ast sá árangur að mestu á reikning Margrétar Bóasdóttur kórstjóra, enda þrautreynd söngkona og raddþjálfari, sem ætti mörgum fremur að vera fær um að byggja upp góðan kór á skömmum tíma. Flutningur kórsins var nokkuð jafn yfir heildina, en nefna mætti sérstaklega ágætt lag Sigurðar Agústssonar, Sveitin mín og út- setningu Hallgríms Helgasonar á Ég að öllum háska hlæ. Tíminn líð- ur (úts. Arna Harðarsonar) og Bartók-lögin Nöldrað fyrir dansi/Belgpípuvísa voru hlutfalls- lega daufari og kölluðu á meiri þrótt en hér gat að heyra. Fyrir utan að styðja fáliðaðan kórþassann söng Loftur Erlings- son einsöng í þremur af fjórum lögum eftir Loft S. Loftsson eldri, Heyrði ég í Hamrinum, hinu glettna Vinsamleg tilmæli við ör- uggan undirleik Agnesar Löve og Gamla gryfjan við kórandirsöng, auk sænsku laganna Jag unnar dig ándá (þjóðl.) og Tonerna eftir Sjöberg við píanóundirleik. Loftur hefur óvenju fallega og vel fók- useraða barítonrödd og er augljós- lega efni í ljóðasöngvara, þó að enn vanti upp á textatúlkun sums stað- ar, t.a.m. í sænsku lögunum. Und- irtektir voru að sama skapi hlýjar, og var af því tilefni bryddað upp á styttum „niðurlags-ítrekunum" (á Vinsamleg tilmæli og Tonerna) eftir uppklöppun sem undirritaður man varla eftir á hérlendum tón- leikum, en sem kunna að vera praxís sunnar í löndum. Tókust tónleikarnir hið bezta, enda viðfangsefnin við hæfi að- standenda. Þó ber ekki að leyna, að fyrir óbreyttan áheyranda utan úr þæ mynduðu dægurlögin þrjú eftir Loft í lokin (Hvað dreymir þig, Ljósar nætur og Húmljóð), sem kórinn söng við harmónikku- og kontrabassaundirleik í e.k. tangó- eða beguine-stíl, hálfgerðan andklímax við undangengna dag- skrá, og hefðu sennilega hentað betur á þorrablóti eða á sveitaballi en á almennum tónleikum sem þessum. Ríkarður Ö. Pálsson Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum í Gerðubergi Dimmalimm og önnur ævintýri SÝNINGIN Myndskreytingar úr íslenskum barnabókum verður opnuð í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í dag, þriðjudaginn 17. febrúar, klukkan 14. Af því tilefni verður frumflutt dagskrá fyrir börn sem byggist á ævintýri Guð- mundar Thorsteinssonar, Muggs, um litlu prinsessuna Dimmalimm við tónlist eftir Atla Heimi Sveins- son. Nýverið var haldin sýning á ís- lenskri barnamenningu í kaþólsku akademíunni í Hamborg þar sem sýndar voru myndskreytingar úr íslenskum barnabókum ásamt verkum úr safni Listasmiðju barna í Gerðubergi, Gagn og gam- an. Þessi sýning hefur nú verið sett upp í Gerðubergi og gefst gestum kostur á að sjá úrval af myndum íslenskra myndskreyta. Ævintýrið um Dimmalimm er eitt elsta myndskreytta ævintýrið fyrir börn á íslensku. A barnatón- leikum um Dimmalimm verða frumfluttir fimm þættir í útsetn- ingu íyrir flautu og píanó úr tón- verkinu Dimmalimm eftir Atla Heimi Sveinsson. Dimmalimm sjálf birtist og leiðir börnin inn í ævintýraheim tónlistarinnar og flytur þeim sögu sína. Flytjendur dagskrár eru Guðrún Birgisdóttir flautuleikari, Peter Máté píanó- leikari og Harpa Arnardóttir leik- kona. Barnadagskráin um Dimma- limm verður einnig flutt sunnu- daginn 22. febrúar kl. 16 og sunnudaginn 1. mars kl. 14. Sömu daga kl. 15 verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna. Sýningin á myndskreytingum úr barnabók- um stendur til 29. mars.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.