Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 21

Morgunblaðið - 17.02.1998, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 21 VIÐSKIPTI Hagnaður Sony eykst um 46% Tókýó. Reuters. Þýzk tillaga um 30 tíma vinnuviku Frankfurt. Reuters. LEIÐTOGI félags opinberra starfs- manna í Þýzkalandi hefur lagt til að vinnuvikan verði stytt í 30 tíma til að draga úr atvinnuleysi og tillagan hefur hlotið stuðning hins volduga verkalýðsfélags IG Metall. Herbert Mai, formaður OeTV verkalýðsfélagsins, sagði í viðtali við blaðið Bild að stórt átak væri nauð- synlegt til að draga úr atvinnuleysi, sem hefur ekki verið meira í Þýzka- landi frá stríðslokum og nær til um 4,8 milljóna manna. Mai sagði að með 30 tíma vinnu- viku yrði stigið stórt skref að því marki að minnka atvinnuleysi um helming. Mai sagði að ef 38,5 tíma vinnu- vika opinberra starfsmanna yrði stytt um aðeins einn tíma yrðu til 135.000 ný störf. Ríkið, fylkin og bæjar- og sveitarstjórnir hefðu fækkað störfum um 500.000 1992- 1996. Vinnuvikan er 40 tímar í Aust- ur-Þýzkalandi. Talsmaður Bonn-stjórnarinnar kvað tillöguna „geggjaða". Stytting vinnuvikunnar hefði í för með sér hækkun vinnulauna. ----------------- Renaultjók sölu um 12,9% París. Reuters. FRANSKI bílaframleiðandinn Renault segir að sölutekjur í fyrra hafl aukizt um 12,9% í 207,91 millj- arð franka. í tilkynningu segir að þar með hafi sala í fyrsta skipti farið yfir 200 milljarða franka. Velta bíladeildar nam 165,788 milljónum franka og jókst um 13.6% frá 1996. Fyrirtækið segir að sala utan Frakklands hafi vegið á móti minni sölu innanlands og meira en það. Fyi'ir ári boðaði Renault mikla endurskipulagningu og síðan hefur keppinauturinn PSA Peugeot- Citroen verið undir þrýstingi. HAGNAÐUR Sony Corp. jókst um 46% á þremur mánuðum til desem- berloka vegna veikara jens og góðrar sölu á PlayStation leikja- tölvunni. Fyrirtækið spáir áfram- haldandi velgengni til loka fjár- hagsársins í Japan 31. marz og að árshagnaðurinn mundi aukast um meira en 50% og slá met annað ár- ið í röð. „Jákvæð áhrif jensins höfðu miklu meiri áhrif en okkur hafði órað fyrir,“ sagði talsmaður Sony. Hann kvað alla framleiðslu fyrir- tækisins hafa selzt vel. Gengi dollars gegn jeni hækkaði um 12,7% 1997, þannig að Sony og önnur japönsk fyrirtæki gátu selt varning sinn á lægra verði en er- lendir keppinautar. Hagnaður Sony jókst í 110,38 milljarða jena á tímabilinu, sem er bezta útkoma á einum ársfjórð- ungi frá upphafi og 46,4% meiri hagnaður en á sama tíma árið á undan. Kodak kaupir stafrænt fyrirtæki New York. Reuters. EASTMAN Kodak Co. hefur sam- þykkt að kaupa PictureVision Inc., fremsta fyrirtækið á sviði stafrænnar ljósmyndaþjónustu. Þar með snýr Kodak sér í vaxandi mæli að stafi’æn- um ljósmyndum, en áhugi á þeim hef- ur aukizt vegna alnetsins. Tilgangur- inn er að auka umsvif Kodaks á al- netinu og á sviði stafrænnar ljós- myndagerðar á sama tíma og fyrir- tækið mætir harðri samkeppni á hefðbundnum ljósmyndafilmumörk- uðum. Bæði Kodak og PictureVision bjóða þjónustu sem gerir neytendum kleift að senda myndir um alnetið og geyma þær í heimilistölvum sínum. Sala Sony á ársfjórðungnum jókst í 2,01 billjón jena, sem er einnig met, úr um 107 milljónum jena vegna lækkunar jensins. Sony spáði því að hagnaður fyr- irtækisins til marzloka 1998 mundi slá met og aukast í 210 milljarða jena í stað 185 milljarða eins og spáð hefði verið. A fjárhagsárinu 1996/1997 nam hagnaður 139,46 milljörðum jena. Sony á kvikmyndaverið Sony Pictures Entertainment í Hollywood og tónlistardeildina Sony Music Entertainment. Miða- sölutekjur af kvikmyndum eins og Men in Black, My Best Friend’s Wedding og Air Force One slógu öll fyrri met í Bandaríkjunum og heiminum öllum. Talsmaður fyrirtækisins sagði einnig að fjármálakreppan í Asíu mundi líklega draga úr tekjum fyrirtækisins vegna aukins rekstr- arkostnaðar í verksmiðju fyrir- tækisins í Suðaustur-Asíu. Japanskt banka- hneyksli breiðist iít Tókýó. Reuters. TVEIR aðrir úr röð stærstu banka Japans hafa verið bendlaðir við mútuhneyksli, sem starfsmenn jap- anska fjármálaráðuneytisins eru viðriðnir og verður æ víðtækara. Nýjar handtökutilskipanir hafa verið gefnar út á hendur tveimur eftirlitsmönnum fjármálaráðuneyt- isins, sem þegar eru í gæzluvarð- haldi, vegna gruns um að þeir hafi þegið ríkulega risnu af Sumitomo banka og Tókýóbanka Mitsubishi (BTM) fyrir leynilegar upplýsing- ar. Þar með hafa sex af tíu stærstu bönkum Japans flækzt í hneykslið. Embættismennimir voru teknir höndum í síðasta mánuði, grunaðir um að hafa þegið mútur frá fjórum öðrum bönkum - Asahi, Dai-Ichi Kangyo, Sanwa og Hokkaido Takushoku. Þeir hafa nú verið ákærðir fyrir mútuþægni. Stjórnendur fyrirtækja Erum að endurnýja fyrirtækjaskrána hjá okkur eins og venjulega um áramót. Allar upplýsingar meðhöndlaðar sem trúnaðarmál hjá okkur eins og fyrr. Höfum fjársterka kaupendur að eftirtöldum fyrirtækjum: 1. Góðum heildverslunum, litlum og stórum. 2. Lítil framleiðslufyrirtæki. 3. Matvöruframleiðslufyrirtæki. 4. Útflutnings- eða þjónustufyrirtæki fyrir sjávarútveg. 5. Þjónustufyrirtæki sem getur verið úti á landi. 6. Rekstrarlega hagstæð fyrirtæki. 7. Ýmis önnur fyrirtæki. F.YRIRTÆKIASALAN SUÐURVE R I SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. 233 mæ • **<« • Hr . :■***:. tm ■■■ 300 Mhi Pentium 2 Stór Targa turn Targa IX möðurborð 64MB SDRAM vinnsluminni 4MB I28bíta skjákort 15" Targa skjár 4320 MB UltraDMA harður diskur Soundblaster 64AWI 280W hátalarar 33.6 mðtald með faxí og símsvara 24 hraða Samsung geísladrif Win95 lyklaborð PS/2 mús Windows95 uppsett Windows95 geisladiskur og bðk 6 íslenskir leikir Tðhnir Grensásvegi 3-108 Reykjavík - Sími: 5885900 - Fax : 5885905 muAiiA CAFFE' ESPRESSO Jonathan Ricketts er gestur okkar í eldhúsi La Primavera næstu vikurnar. Hann er yfirkokkur á veitingastaðnum Aiistair Little í London. Matseðill Jonathans verður að hætti „nýja ítalska eldhússins". Okkurværi það sönn ánægja ef þú sæir þér fært að koma og snæða hjá okkur og Jonathan. r PRIMAVERA RISTORANTE AUSTURSTRÆTI 9 - SÍMI 561 8555

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.