Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.02.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ERLENT PRIÐJUDAGUR 17. FEBRÚAR 1998 25 Hvatt til viðræðna á Kýpur RAUF Denktash, leiðtogi Kýpur-Tyrkja, hvatti í gær til beinna viðræðna milli Grikkja og Tyrkja á eynni en um helgina var Glafcos Cler- ides endur- kjörinn for- seti Kýpur- Grikkja. Virðist sem hann hafi dregið nokk- uð í land með þá kröfu, að tyrkneski hlutinn verði viður- kenndur sjálfstætt ríki áður en viðræður geti hafíst. Cler- ides var endurkjörinn með að- eins 50,8% atkvæða og mun það ekki gera honum auðveld- ara fyrir í væntanlegum við- ræðum um aðild gríska hlut- ans að Evrópusambandinu. Alþjóðlegir sáttasemjarar von- ast til, að hugsanleg Evrópu- sambandsaðild gríska hlutans geti greitt fyrir sáttum milli Grikkja og Tyrkja á Kýpur. Clerides Ný rannsókn barnsmorðs FJÖLDI manna hefur boðist til að veita frönsku lögreglunni upplýsingar eftir að hún birti teiknaða mynd af hugsanleg- um morðingja 13 ára gamallar breskrar stúlku, Caroline Dickinson. Var hún myrt fyrir rúmlega hálfu öðru ári þegar hún var á skólaferðalagi í Frakklandi. Er myndin byggð á lýsingu skólafélaga Dickin- son og sýnir kraftalegan, órak- aðan mann á fertugsaldri. Fyrri rannsókn snerist aðal- lega um DNA-rannsókn á 422 karlmönnum á aldrinum 15 til 60 ára í þorpinu þar sem Dick- inson var myrt en hún bar engan árangur. Verður haldið áfram með þá rannsóknarað- ferð en hún er ekki heimil nema menn gefi samþykki til. Handtökur í Georgíu LÖGREGLAN í Georgíu hef- ur handtekið nokkra menn, sem grunaðir eru um aðild að morðtilræðinu við Eduard Shevardnadze, forseta Georg- íu, fyrir viku. Sagði innanríkis- ráðherra landsins, að vitað væri hverjir hefðu staðið að baki því en meðal hinna hand- teknu eru stuðningsmenn Zvi- ads Gamsakhurdia, fyi'rver- andi forseta, en honum var steypt 1992. Ekki sátt um lýðveldi ÞÓTT meirihluti Ástralíu- manna sé hlynntur því að slíta tengslin við bresku krúnuna, þá virðist lítil ánægja ríkja með það lýðveldisfyrirkomulag, sem samþykkt var á nýafstöðnu stjórnlagaþingi. Hún lagði til, að forsætisráðherra, leiðtogi stjórnarandstöðunnar og þing- ið kysu væntanlegan forseta til fímm ára í senn. I nýrri skoð- anakönnun kemur fram, að að- eins 43% geta fellt sig við þetta fyrirkomulag og 45% vilja heldur óbreytt ástand. Hörð gagnrýni á Starr Washington. Reuters. WILLIAM Ginsburg, lögmaður Monicu Lewinsky, gagnrýndi sér- skipaða saksóknarann Kenneth Stan’, sem fer með rannsókn Whitewater-málsins, harðlega í viðtali á sjónvarpsstöðinni CNN. Stan- hefur krafíst þess að Lewinsky beri vitni um meint ást- arsamband hennar og Bills Chnt- ons Bandaríkjaforseta og sagði Ginsburg að stjórnarskrárbundin réttindi hennar væru að engu höfð. Hún myndi þó mæta fyrir kvið- dóm, þegar þar að kæmi, og bera vitni. Ginsburg sagði að þrátt fyrir að honum „byði við“ og að hann væri „hneykslaður" á aðferðum Starrs myndu hann og Lewinsky eiga samvinnu við saksóknarann. Lewinsky reið Hann sagði að í viðræðum hans og Starrs hefði þegar komið fram hvað Lewinsky væri reiðubúin að segja í ft-amburði sínum. Eina ástæða þess, að Starr hefði þrátt fyrir það í hyggju að kalla hana fyr- ir kviðdóm, hlyti að vera að hann vildi láta reyna á hvort hann gæti þrýst á Lewinsky að breyta fram- burði sínum. Hann sagði Lewinsky hafa náð að byggja sig upp aftur á síðustu dög- um og væri hún mjög reið vegna þess hvemig málið hefði þróast. I nýjasta hefti Newsweek segist tfmaritið hafa heimildir fyrir því að Lewinsky hafí greint vinkonu sinni Lindu Tripp frá því að hún hafi „falið sig“ í hliðarherbergi er Clint- on átti fund með Ernesto Zedillo Mexíkóforseta. Þá hafi hún kvartað yfir því að Clinton „vildi ekki kyssa hana lengur". Segir tímaritið Tripp einnig hafa afhent Starr afrit af tölvupóstssendingum frá Lewinsky þar hún vísar til hins meinta sam- bands við forsetann. [ FIMET Rafmótorar Eigum til á lager alhliða rafmótora í 9,25-90 Kw Utfærslur: ♦IP55 ♦Með fót og í Spilverk Sími 544-5600 Fax 544-5301 Kynnstu töfrum Suzuki Njóttu lúxusþœginda í millistœrðarbtl Baleno Sedan er fullkomíð svar Öryggisbúnaður eíns og Baleno 4x4 hefur eínstaklega við þörfum fjölskyldunnar hann geríst bestur góða aksturseígínleika Ml ■ ogöll stjómtækí við hendina Rxrllix,ajrifnir Ralenn Viafa RRfj Baleno Sedan vekur ekki aðeins aðdáun fyrir fallegar línur og vand aðan frágang. Mælaborðið er sér- lega vel hannað. Loftpúðar, kippi- belti og krumpusvæði að framan og aftan stórauka árekstursöryggi. ABS hemlalœsivöm fáan- iVSfSI leg sem aukabúnaður. faSeSfeðl 96 eða 85 hestafla, 16 ventla vél með fjölínnsprautun Baleno Sedan er hagkvæmur í rekstri og sameinar mikið afl og litla eyðslu. Suzuki hönnun tryggir bestu elds- neytisnýtingu við allar aðstæður. Rýmið er óvenju mikið, bæði jyrir bíl- stjóra ogfarþega. Nýjasta tœkni er nýtt til að bjóða upp á það besta í þessum stærðarflokki. Ahersla er lögð á þægindi og öryggi, hljóðlátan og hagkvæman akstur og ekki síst, stílhreint ogglæsilegt útlit. Og Uttu á verðið. 1,3 GL, 4-d í ,6 GLX,4-d 1,6 GLX, 4-d 4x4 1.265.000 KR. 1340.000 KR. 1,495.000 KR. SUZUKI AFL OG ÖRYGGI SUZUKI SÖLUUMBOÐ: Akranes: Ólafur G. Ólafsson, Garðabraut 2, slmi 431 28 00. Akureyri: BSA hf., Laufásgötu 9, slmi 462 63 00. Egilsstaðir: Bíla- og búvélasalan hf„ Miðási 19, simi 471 20 11. Hafnarfjörður: Guðvarður Eliasson, Grænukinn 20, simi 555 15 50. Isafjörður: Bílagarður ehf. Grænagarði, simi 456 30 95. Keflavik: BG bilakringlan, Grófinni 8, slmi 421 12 00. Selfoss: Bilasala Suðurlands, Hrismýri S, simi 482 37 00. SUZUKI BILAR HF Skeifunni 17. Sími 568 51 00. ALLIR SUZUKI BlLAR ERU MEÐ 2 ÖRYGGIS- LOFTPÚÐUM.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.