Morgunblaðið - 19.07.1998, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.07.1998, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 35 vanheilsu að stríða síðustu æviárin. Það vai' alltaf margt um mann- inn hjá frænku minni og stundum engu líkara en þar væri umferðar- miðstöðin. En hún tók öllum sem heim til hennar komu af gestrisni og höfðingsskap. Við systkinin minnumst Guggu með hlýhug, því hjá henni voru vinir og vandamenn alltaf velkomnir. Þótt líf hennar hafí með köflum verið ei-fitt var hún alltaf glaðlynd og bar sig vel. Mumma, Ola, Stínu og fjölskyldum þeirra vottum við innilega samúð. Blessuð sé minning hennar. Anna Guðiiin Sigurðardóttir. Elsku Gugga frænka. Það er skrítin tilhugsun að þú sért nú horfín svo skömmu á eftir Dóru systur þinni. Þegar komið er að kveðjustund hrannast upp hafsjór minninga um þig hlæjandi og glaða alltaf varstu glöð og í góðu skapi hvemig sem heilsan plagaði þig og píndi. A æsku- og unglingsárum þínum vestur á Rauðasandi hjálp- uðust þið systkinin og amma að við það að sjá ykkur farborða eftir ótímabært andlát afa og þið börnin fenguð það veganesti úr móður- garði að nægjusemi og umhyggja ykkar fyrir velferð hvors annars og fjölskyldna ykkar væri það mikil- vægasta í lífinu. Samband ykkar systkinanna hefur alla tíð verið óvenjulega náið. Þið hafíð dyggi- lega miðlað okkur afkomendunum ykkar af þeim lífsskoðunum, sem amma lagði rækt við að innræta ykkur og kennt okkur að taka þátt í sorgum og gleði hvers annars. Þú hefur verið hluti af lífínu og fastur punktur í tilveranni sem elsta móðursystir okkar frændsystkina þinna í meira en fjörutíu ár og alltaf verið til staðar tilbúin að gera allt sem þú hefur getað til að létta okkur lund með lífsgleði þinni hvað sem á bjátaði. Þín mesta gleði í lífinu var að gera eitthvað fyrir aðra og alltaf varstu tilbúnin að hjálpa þeim sem bágt eða erfítt áttu á lífsgöngunni og miðla öðrum af þvi sem þú áttir. Þú hafðir svo stórt hjarta og sást alltaf björtu hliðamar á lífinu, þrátt íyrir það að lífið hafí ekki far- ið mildum höndum um þig sem fékkst á barnsaldri staurfót og þurftir í mörg ár að berjast við heilsuleysi. Það hafa verið margar ánægju- stundir sém við höfum átt með þér í eldhúsinu á Skúlagötunni, þar sem alltaf var jafngott að koma og hitta þig, drekka með þér kaffisopa og rabba um lífið og tilveruna. Laugardagskvöld hjá þér með ykk- ur Dóru frænku eru nú afar dýr- mæt í minningunni þegar þið eru báðar horfnar. Þú varst snillingur í höndunum og saumaðir fallegustu jólakjólana á Sigrúnu Maríu, Dóru og Maríu Guðrúnu þegar þær voru litlar. Þú framleiddir listilega út- prjónaðar peysur og teppi af hinni mestu snilld, enda fékkstu snemma æfingu við að útbúa fínustu fót handa yngri systrum þínum, sem þú aðstoðaðir ömmu við uppeldið á vestur í Stakkadal og ekki var úr miklu að spila á þeim árum. Þú átt dýrmætan fjársjóð þar sem eru bömin þín þrjú, bamabörnin sex og barnabamabömin tvö, sem þú hefur alla tíð borið svo mikia um- hyggju fyrir. Þitt hlutverk í lífinu var að vera móðir með stórt hjarta, en það er hlutverk sem nútímafólk- ið gerir sér ekki alltaf grein fyrir að er mikilvægasta hlutverkið í hverri fjölskyldu. Elsku frænka okkar við emm rík að hafa átt þig fyrir frænku og minningarnar um þig munum við geyma eins og dýrmætan fjársjóð í hugum okkar um ókomin ár. Við sendum Mumma, Óla, Stínu og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúarkveðjur. Ástarþakkir fyrir samfylgdina og allt það sem þú gerðir fyrir okkur og okkar fjöl- skyldur, vertu ætíð guði falin. Guðrún, Anna og Halldóra Guðmannsdætur. + Ástkær eiginmaður minn, GUÐMUNDUR JÓNSSON, Skeljagranda 5, Reykjavík. lést á Landspítalanum miðvikudaginn 15. júlí. Lovísa Jóhannesdóttir, börn, tengdabörn, tengdamóðir og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, bróðir, tengdafaðir, tengdasonur og afi, ÖRN INGÓLFSSON, Grundarlandi 15, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðju- daginn 21. júlí kl. 13.30. María Thoroddsen, Björg Rúnarsdóttir, Sigurður Örn Hektorsson, Þórður Örn Arnarson, Ingunn Björg Arnardóttir, Goði Gunnarsson, Vilhelm Ingólfsson, Auður Kristjánsdóttir, Tómas Ingólfsson, Björg Thoroddsen og barnabörn. + Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir, afi, langafi og langalangafi, SIGURBERGUR PÁLSSON fyrrverandi kaupmaður, áður til heimilis á Háteigsvegi 50, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 20. júlínk. kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim, sem vilja minnast hins látna, er bent á líknarstofnanir. Sigríður Sigurbergsdóttir, Björn Pálsson, Páfína Sigurbergsdóttir, Stefán Kjartansson, Bára Sigurbergsdóttir, Ragnar Leví Jónsson, Daníel Pálsson, Þóra Pálsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. + Útför GUÐRÚNAR BRYNJÓLFSDÓTTUR kennara, sem lést á Landspítalanum hinn 14. júlí sl., fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 21. júlí kl. 15.00. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Krabbameinsdeild Landspítalans. Brynjólfur Sveinn Birgisson, Sigurbjörg Helgadóttir, Ragnheiður Brynjólfsdóttir og börn, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Jón Gauti Jónsson, Sigrún H. Guðjónsdóttir og börn. + Ástkær dóttir mín, KOLBRÚN MARÍA EINARSDÓTTIR, Furugerði 9, Reykjavík, lést laugardaginn 11. júlí. Hún verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju þriðjudaginn 21. júlí kl. 3. Fyrir hönd aðstandenda, Hólmfríður Gröndal. + Útför okkar elskulegu, SVEINBJARGAR EDDU GUÐMUNDSDÓTTUR GERBRACHT, fer fram frá Fossvogskapellu mánudaginn 20. júlí kl. 10.30. Don Gerbracht og fjölskylda. + Elskuieg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, HELGA GUÐRÚN EIRÍKSDÓTTIR, Bóli í Biskupstungum, sem lést þriðjudaginn 7. júlí, verður jarðsung- in frá Skálholtskirkju miðvikudaginn 22. júlí kl. 14.00. Hinrik Ó. Guðmundsson og fjölskylda. Hugheilar þakkir færum við öllum þeim sem auðsýnt hafa okkur samúð og hlýhug við and- lát og útför okkar ástkæru móður, tengda- móður, ömmu og systur, JANE PETRU GUNNARSDÓTTUR, Kirkjuvegi 11, Keflavík. Sérstakar þakkir fyrir góða umönnun og vinar- hug til starfsfólks kvennadeildar Landspítalans og Sjúkrahúss Suðurnesja. Gunnar Þór Jónsson, Theodór Guðjón Jónsson, Guðbjörg Irmý Jónsdóttir, Örn Stefán Jónsson, Rúnar Már Jónsson, Erna Gunnarsdóttir Inga María Ingvarsdóttir, Ragnheiður St. Thorarensen, Róbert Þór Guðbjörnsson, Ása Kristín Margeirsdóttir, og barnabörn. + Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför móður okkar, tengda- móður og ömmu, JÓRUNNAR S. GRÖNDAL, síðast til heimilis í Hæðargarði 35. Sigurlaug Gröndal, Hörður Arason, Steingrímur Þ. Gröndal, Sigríður Ásgeirsdóttir, Benedikt Þ. Gröndal, Drífa Björgvinsdóttir, Ólafur Þ. Gröndal, Margrét Guðbjörnsdóttir og barnabörn. + Við sendum hjartans þakkir og kveðjur til allra vina okkar sem sýndu okkur ómetanlegan hlýhug við fráfall ÁSTU GUÐRÚNAR EYVINDARDÓTTUR. Guð blessi ykkur öll. Sjöfn Halldórsdóttir, Eyvindur Eriendsson, Heiðrún Dóra Eyvindardóttir, Reynir Þór Eyvindarson, Rún Halldórsdóttir, Heimir Eyvindarson, Sólrún Auður Katarínusardóttir, Erlendur Eyvindarson. + Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför DAVÍÐS V. SIGURÐSSONAR frá Miklaholti. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Innilegar þakkir færum við öllum er sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar, SIGRÍÐAR BJÖRNSDÓTTUR frá Presthvammi, Aflagranda 40. Björn, Friðgeir og Helga. t*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.