Morgunblaðið - 19.07.1998, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 19.07.1998, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR SUNNUDAGUR 19. JÚLÍ 1998 39 v* FRÁ úthlutun námsstyrkja SPRON 1998. SPRON úthlutar 10 námsstyrkjum NÁMSSTYRKIR SPRON voru af- hentir fyrir nokkru í höfuðstöðv- um SPRON á Skólavörðustíg. Veittir voru 10 styrkir, hver að upphæð 50 þúsund krónur. Markmið SPRON með þessum styrkjum er að veita námsmönn- um viðurkenningu fyrir frábæran árangur og ennfremur að veita þeim stuðning í náminu. Fjöldinn allur af umsóknum barst að þessu sinni en þetta er í annað sinn sem SPRON úthlutar styrkjum til námsmanna. Við úthlutun var reynt að velja námsmenn af sem flestum sviðum og voru þessir styrktir í ár: Mar- lín Birna Haraldsdóttir, nemandi í fatahönnun og verklegri tækni við London College of Fashion; Einar Páll Guðlaugsson, nemandi í rafeindavirlyun við Iðnskólann í Reykjavik; Birgir Andri Briem, nemandi í læknisfræði við Há- skóla íslands; Bjarni Hauksson lögfræðingur, nemandi í meist- aranámi við lagadeild Cambridgeháskóla i Englandi; Sif Einarsdóttir sálfræðingur, nem- andi i doktorsnámi i ráðgefandi sálfræði við University of Illinois; Eva Hlín Dereksdóttir, nemandi í verkfræði við Háskóla íslands; Sesselja Kristjánsdóttir, söng- nemi við Tónlistarháskólann í Berlín; Hlín Helga Guðlaugsdótt- ir heimspekingur, nemandi í Evr- ópufræði við Institut des Hautes Etudes Européennes Strasbourg Frakklandi; Jón Valgeirsson í meistaranámi í lyQafræði við Há- skóla íslands og Margrót B. Jó- hannsdóttir í iðnrekstrarfræði við Tækniskóla fslands. Kúariðan kostar 400 milljarða London. Reuters. ÚTGJÖLD Breta vegna kúariðunnar stefna í að verða um 400 milljarðar ísl. kr. Kemur þetta fram í skýrslu óháðrar endurskoðunarstofn- unar, nokkurs konar ríkis- endurskoðunar í Bretlandi. Kúariðukreppan kom upp í mars 1996 þegar vísindamenn tilkynntu, að samband gæti verið milli kúariðunnar og nýs afbrigðis af Creutzfeldt- Jakob-sjúkdómi í mönnum. Evrópusambandið bannaði þá útflutning á bresku nauta- kjöti og krafðist þess, að öll- um nautgripum í sýktum hjörðum yrði slátrað. Þeir eru nú orðnir 1,35 milljónir tals- ins. Nautsskrokkunum verður að brenna en stöðvarnar, sem annast það, afkasta ekki nema 10-20.000 tonnum á ári. Birgðirnar hlaðast því upp, aukast um 65.000 tonn á ári, og hugsanlegt, að ekki verði búið að eyða þeim fyrr en árið 2003. Það getur þó breyst ná- ist samningar við nokkrar kolakyntar raforkustöðvar um að brenna skrokkunum. UMSJÓNARMAÐUR TÖLVUKERFIS Tölvu- og upplýsingasvið Kaupþings hf. vinnur að uppbyggingu og viðhaldi á upplýsingakerfi fyrirtækisins. Upplýsingakerfið er byggt á nýjustu tækni frá Microsoft og felur m.a. í sér beinlínutengingar við alla helstu markaði heims og upplýsingaflæði frá viðskiptagólfi til bókhalds. Byggt er á skilgreindu verkflæði sem vinnur í Microsoft BackOffice umhverfi og NT-stýrikerfi. Nú leitar Kaupþing hf. að umsjónarmanni á Tölvu- og upplýsingasviðið. Um er að ræða starf þar sem miklar kröfur eru gerðar um áhuga á að nota nýjustu tækni frá Microsoft við upplýsingamiðlun. Starfið felur í sér forritun á COM-hlutum sem vistaðir eru undir MTS og notaðir með aðstoð DCOM fyrir viðmótslag sem getur verið vefskoðari jafnt sem Microsoft Outlook Form, ásamt gagnavinnslu í gegnum SQL-fyrirspurnir með hjálp forritunar/ADO, Access eða Crystal Reports. Við leitum að sjálfstæðum einstaklingi sem vill starfa á reyklausum vinnustað, hefur metnað í starfi og mikinn áhuga á nýjustu tækni. Menntun: Tæknifræði, verkfræði, tölvunarfræði eða kerfisfræði TVÍ. Við bjóðum tæknilegt umhverfi með NT-stýrikerfi fyrir þjóna (Server) og vinnustöðvar. Gagnagrunnar eru SQL Server - NT Enterprise Cluster „Wolfpack" útgáfa, Exchange Server. Aðrir þjónar eru IIS (Internet Information Server), MTS (Microsoft Transaction Server) og MSSQL (Microsoft Messagequeue Server). Verkfæri eru Visual Studio, Visual Basic, Office PRO, Crystal Reports og FrontPage. Tækni: COM/DCOM, ASP, MTS og MSSQL ADO/OLEDB. Umsóknir berist til Ásgríms Skarphéðinssonar, forstöðumanns Tækni- og upplýsingasviðs, fyrir 4. ágúst n.k. Öllum umsóknum verður svarað og þær meðhöndlaðar sem trúnaðarmál. Kaupþing hf. Ármúla 13A, Reykjavík sími 515 1500 fax 515 1509 www.kaupthing.is KAUPÞING HF Fyrirtæki í Mosfellsbæ Til sölu er gott fyrirtæki með góða veltu og mikla möguleika. Langtíma leigusamningur á besta stað í bænum. Frekari uppl. veittar í síma 586 8080. TJHKICHJHHL41 [flOiUttiMJflji Kjarna Pverholti 2, 5. hæð, 270 Mosfellsbæ, FASTEIGNAMIDSTOÐIN SKIPHOUISOB - SÍMI552 6000 - FAX 552 6005 Opið hús Kambsvegur 16 — bílskúr Glæsileg 3ja herb. íbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli asamt rúm- góðum bílskúr. Geymsla á götuhæð sem hefur verið nýtt sem herbergi. Frábær staðsetning. Hús byggt 1980. Góð sameign. Áhvílandi veðdeild 3,5 millj. Verð 9,3 millj. Sigurjón og Magnea sýna á milli kl. 14 og 18 í dag. Verið velkomin. 2950. Hverfisgata 14 " glæsihús Vorum að fá í sölu þetta glæsilega steinhús sem er u.þ.b. 400 fm og er tvær hæðir, risloft og kjallari. Húsið hefur allt verið standsett og málað að utan og er tilbúið undir tréverk að innan. Hentar vel undir ýmiskonar atvinnustarfsemi eða íbúðir. Góð baklóð með bílastæðum. Eigandi eignarinnar hefur falið þessum fasteignasölum að annast sölu hennar. M EIGNAMBÐIXMN (ph FASTEIGNA if IP MARKAÐURINN ÓOWSOÓTUi 4. SlMAR 561-1640, 862-1700, FAX 862-0640 Ármúli í þessu mjög vel staðsetta húsi á horni Vegmúla og Ármúla er til leigu eða sölu 380 fm skrifstofuhæð, 2. hæð. Mjög vel hönnuð hæð sem gef- um möguleika á allt að 17 stórum skrifstofuherbergjum. Til afhendingar nú þegar. Einnig kemur til greina að húsnæðið verði sérhannað og inn- réttað fyrir tilvonandi starfsemi. Kringlan í aðalbyggingu Kringlunnar er til sölu mjög vel staðsett 200 fm húsnæði sem skiptistí 120fm jarðhæð og 80 fm milliloft. Húsnæðið ertil afhendingar mjög fljótlega en einnig kemur til greina að núverandi starfsemi verði áfram í leigu. Hagstæð áhvílandi lán. Hverfisgata Tll sölu er mjög gott verslunarpláss sem skiptist í tvö bil hlið við hlið, annað 118,6 fm og hitt 92,1 fm bæði með rými aðhluta í kjallara. Ágæt vörumóttaka og bílastæði á bakvið. Hagstæð lán og greiðslumöguleikar. Smiðjuvegur Tll sölu eða leigu mjög áhugavert 560 fm atvinnuhúsnæði á jarðhæð sem hægt er að nýta sem verslunarhúsnæði eða undir annars konar atvinnu- starfsemi, 200 fm á 2. hæð. Auðvelt að skipta í minni einingar. Góð aðkoma og góðir merkingarmöguleikar út að Breiðholtsbrautinni. Húsakaup Suðurlandsbraut 52 Súni 5682800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.