Skírnir - 01.01.1841, Side 56
58
helst þótti umbúta purfa raeð Svium. Var þab
iirst og fremst fulltrúaþíujrjið sjálft, |<ar sem við
búið var, að irði það fært í lag, mundi þar fleiri
endurbætur eptir fara. Enn það sem mest þótti
ábótavant við alþíugjisskjipan Svía, var fulltrúa-
kosningjin, þar sern þjóðinni var skjipt í fjóra
flokka, lenda raenn, klerka, borga búendur og
sveíta, enn hvur flokkur kaus menn úr sinn liði
til þingsins. Var mönnum þannig opt og einatt
firirmunað að kjósa þá til fulltrúa, er þeír hefði
lielst viljað, og þar á ofan varð ekkji all-lítiII fiokk-
ur þjóðarinnar útundan, er hvurkji mátti kjósa nje
kosinn verða til fulltrua. Voru það ótignir em-
bættismenn og allskonar iþróttamenn, og jarðeíg-
endur sem hvurkji voru lendir inenn nje bændur.
Eiiii þegar á þingjið kom, voru fulltrúarnir enn
sundur greíndir í fjóra flókka, eptir því sera áður
er talið, og urðu að mestu leiti að ræða mál þau
livur firir sig, er firir þá voru lögð. Enn þó að
menn biggist við uokkrum endurbótum á þíng-
sköpum Svía, höfðu menn þó naumast vænst ann-
ars, enn að sú skjipan sem á var mundi verða í
uokkru löguð, og þeim mönnum mundi gjefinn
atkvæðarjettur, er cingan höfðu, enn aldreí höfðu
menn gjört sjer i hugarlund, aðhinnifornu skjip-
an mundi verða gjörsamlega umturnað, og önnur
gjörð í stað hennar; því menn töldu þess vísar
vonir, a& klerkar og einkuin lendir menn mundi
verða því með öllu mótfalluir, vegna þess að sú
lögun er á var fjekk þeím mest ráðin í hendur.
j>ó er nú so komið, að því hefir orðið framgjeíngt
á fulitrúaþíugjinu, að hjer eptir skuli hvurkji full-