Vísir - 03.12.1963, Page 2
VISIR . ÞriBjudagur 3. desember 1963.
'f
M B* TSL *W .
liíir«ffl|l%itEi-Síteiií!;iíiiiiwíilÍ
JÓN BIRGIR PÉTURSSON
rffiœiWs
iiii BHW
ijl 81
iiiiiaifBsfesiiðiíssei
Frá aðalfundi KR:
Bezti árangur knattspynw-
deildar KR frá upphafí
Sautjándi aðalfundur Knatt-
/rnudeildar KR, var hajdjnn I
agsheimilinu við Kaplaskjóls-
veg mánud. 25. nóv. 1 upphafi fund
arins minntist form., Sigurður
Halldórsson, tveggja félaga er lét-
ust á árinu, þeirra Magnúsar Más-
sonar og Guðmundar Ólafssonar,
en hann var einn af stofnendum
Storklubbens KR eins og Danir
Orslit í ensku knattspyrnunni
Jaugardag urðu þessi:
1. deild:
V;ton Villa —Ipswich
’: ackburn Rovers—Arsenai
lackpool—Leicester
"'ielsea — Bolton Wanderers
' iverpool — Burnley
'ottingham F,—W. Bromwich 0:3
iieffield U.—Manchester U. 1:2
íoke City—Birmingham
ottenham —Sheffield W.
/est Ham —Fulham
/olverhampton — Everton
2. deild:
V ury—Newcastle 1—2
Cardiff City-Plymouth Argyle 3:1
T,eeds — Swansea 2:1
Manchester City —Huddersfield 5:2
' iorthampton—Middlesbrough 3:2
' lorwich — Charlton 1:3
'’ortsmouth —Preston 1:2
'.otherham—Leyton Orient 2:4
cunthorpe — Grimbsy 2:2
"underland —Southampton 1:2
' indon Town — Derby County 0:0
nefna KR oftast.
Fundarstjóri var kosinn Einar
Sæmundsson, og stýrði h»nn fund-
inum sem var vel sóttur af hinum
fjölmörgu félagsmönnum deildar-
innar.
KR tók þátt í 33 knattspyrnumót
um af 34 sem keppt var í á árinu,
þeir unnu 14 þeirra, eða fleiri
en nokkurt annað félag, þeir urðu
Islandsmeistarar í þrem fiokkum,
í 5. fl., 2. fl. og í mfl., en þar
sigruðu þeir nú í 18. sinn. Bikar-
keppni KSÍ unnu þeir nú f 4.
sinn í röð, en ekkert annað félag
hefur hlotið þann heiður að verða
bikarmeistari, anna? en KR. Þessi
árangur er sá bezti er félagið hef-
ur náð frá því það var stofnað.
Á vegum KR fór utan í sumar til
Danmerkur og Þýzkalands, 80
manna hópur í vel heppnaða keppn
isferð. Þessi hópur var stærsti í-
þróttaflokkur er farið hefur utan,
héðan frá íslandi, enda sögðu
dönsku blöðin um komu KR þang-
að að innrásin værin hafin. Allan
vanda af þessari miklu för hafði
formaðurinn Sigurður Halldórsson
og honum til aðstoðar var Sigur-
geir Guðmannsson. 8 KR-ingar
léku með Landsliði Isiands á móti
Englendingum, og hafa aldrei
fleiri KR-ingar leikið með lands-
liðinu í einu.
Á fundinum var afhentur af-
reksbikar 2. flokks KR, en hann
er vejttur þeim leikmanni 2.
flokks, er skarar fram úr við á-
stundun og æfingar á árinu. Að
þessu sinni var bikarinn veittur
Þórði Jónssyni, fyrirliða 2. flokks,
og ieikmanns f 1. deild.
Skýrsla gjaldkera var lesin upp og
sýndi, að fjárhagur deildarinnar
er sæmilegur. Á næstu ári á KR
65 ára afmæli, svo búast má við,
að ýmislegt verði gert til eflingar
fjárhagnum, en hann er eins og
aliir vita versti óvinur allra íþrótta
félaga. Hagnaður af leikjum Mfl.
£ Reykjavík og íslandsmótinu varð
um 30.000 kr. og af Bikarkeppn-
m T
i m i iC'
iáhiBmtiaimáliéifmi jmlii
inni um 9000 kr. Þá var og 500
kr. hagnaður af Landsmóti 2.
flokks.
KR lék þrjá gestaleiki á árinu,
afmælisleik við Fram, sem endaði
með sigri afmælisbarnsins Fram
3-2. Þá lék KR við þýzka iiðið
Holstein Kiel og tapaði 0—2, síð-
an við finnsku meistarana Haka,
en þann leik vann KR, 6 — 2. Með
KR lék hinn vinsæli knattspyrnu-
maður Þórólfur Beck.
Leikir 1. deildar voru vel sóttir
af áhorfendum á árinu, og kann
KR öllum þeim er studdu félagið
utan vallar sem innan beztu þakk-
ir.
Á fundinum urðu miklar um-
ræður út af þjálfaramáli félagsins,
en enginn hefur enn fengizt til
þjálfunar M-flokks og verða KR-
ingar nú líklega I fyrsta sinn að
leita út fyrir raðir félagsmannanna
með það vandamál.
Öli stjórn knattspyrnudeildar-
innar var einróma endurkosin með
lófaklappi, en hana skipa:
Formaður: Sigurður Halldórsson.
Varaform.: Sigurgeir Guðmanns-
son. Ritari: Hörður Óskarsson.
Gjaldkeri: Hörður Felixson.
Meðstjórnendur: Hans Krag,
Helgi Jónsson, Ellert Schram og
Bjarni Felixson.
Tvöfaldur íslandsmeistari
og Bikarmeistari á árinu
Þórður Jónsson,
með verðlaunabikar KR.
Mánudaginn 25. nóv. var afhentur
verðlaunabikar 2. flokks KR. Þessi
bikar, sem er gefinn til minningar
um Sigurjón Steindórsson, er
ABC — RAFMAGNSTÆKI
Suðuplötur
m
Ofnar
Straujám
ABC-rafmagnstækin eru gæðavörur frá Vestur-Þýzkalandi. Fást í
helstu raftækjaverzlunum. Allir varahlutir fáanlegir.
G Marteinsson h.f.
HEILDVERZLUN Bankastræti 10. Sími 15896
MÁLVERK AKAUPENDUR
Athugið að þau málverk sem ekki seldust á uppboðinu í Breiðfirðingabúð s. 1. laugárdag verða til sýnis og sölu fyrir sanngjarnt verð í sýningardeild /5- 'jfsk'
Málverkasölunnar
Týsgötu 1 næstu daga. Fallegar jólagjafir.
Semja ber við uppboðshaldarann. Kristján Fr. Guðmundsson í MÁL-
VERKASÖLUNNI Týsgötu 1. Sími 17602 frá kl. 2~6 e. h.
veittur þeim pilti, sem mestan á-
huga, framför og skyldurækni
sýnir á leikjum 2. flokks KR á
árinu. Með bikarnum, sem er far-
andbikar, er einnig verðlaunapen-
ingur, er leikmaðurinn fær til
eignar.
Þetta er í 7. sinn sem bikarinn
er veittur, og hafa margir þekkt-
ustu leikmenn KR og Iandsliðsins
hlotið hann, t.d. Garðar Árnason,
Sveinn Jónsson, Ellert Schram,
Örn Steinsen og Þórólfur Beck.
Að þessu sinni var bikarinn veittur
hinum unga og bráðefnilega Ieik-
manni Þórði Jónssyni. Þeir, sem
sáu leiki Mfl. KR í ár, tóku áreið-
anlega eftir duglegum og snjöll-
um unglingi sem !ék í stjöðu hægri
framherja í nokkrum_, leikjum
Reykjavikurmótsins og lslands-
mótsins og einnig stöðu innherja
í bikarkeppni KSÍ, en þar var
leikur Þórðar á móti Keflavík eft-
irminnilegur. Þórður hefur einnig
átti mjög góða leiki með 2. flokki
félagsins og átti drjúgan þátt í
ieiknum er KR varð íslandsmeist-
ari á móti ÍBK, en Þórður hefur
verið fyrirliði þess flokks f sumar,
og á enn eftir eitt keppnisár þar.
Þórður er sonur Jóns Oddssonar,
verkstjóra f Héðni, sem margir
muna eftir úr hópi KR hér áður
fyrr. Þórður á þvf ekki langt að
sækja sína skemmtilegu tækni og
dugnað, sem fram hafa komið í
sumar.
Hann hóf æfingar með KR, enda
fæddur Vesturbæingur, í 4. flokki,
undir handleiðslu Guðbjarnar Jóns
sonar og sýndi strax mikla hæfi-
Ieika sem ekki hafa minnkað á
liðnum árum. Hann h£fur tvisvar
orðið Reykjavíkur og haustmeist-
ari með 3. flokki, og f ár íslands-
meistari í tveim flokkum og bik-
armeistari aðeins 18 ára gamall.
Hvað framtíðin ber f skauti sér
getum við ekki sagt um, en við
spáum því, að nafn hans eigi eftir
að ,verða vel þekkt í íslenzkri
knattspyrnu, og geri garðinn fræg-
an fyrir KR og Iandsliðið.
Jólafundur Húsmæðra-
félags Reykjvíkur
JÓLAFUNDUR Húsmæðrafélags
Reykjavikur verður haldinn í Sig-
túni miðvikudaginn 4, þ.m. kl. 8 og
hefst með jólaspjalli.
Jólafundur Húsmæðrafélagsins
er orðinn árviss skemmti- og
fræðslufundu, reykvískra hús-
mæðra fyrir jólin, þar sem þær
fá tækifæri til að sjá og heyra ým-
islegt nýtt f matargerð og bakstri.
Þórunn Pálsdóttir húsmæðrakenn-
ari sýnir ýmsar skemmtilegar nýj-
ungar og gefur góð ráð. Til dæmis
sýnir hún föndur, sem börn og fuíl
orðnir geta gjört til sparnaðar fyr-
ir jólin.
Tízkusýning á barnafatnaÖi und-
ir stjórn frú Sigríðar Gunnarsdótt-
ur skólastjóra Tízkuskólans. Okkar
skemmtilegi Ringeberg mætir.
Uppskriftir fást af mat og kök-
um. Happdrætti. Konur velkomnar
meðan húsrúm leyfir. Veitingar á
staðnum.