Vísir - 03.12.1963, Síða 16
Litll sfldveiði var í nótt, en veiði
skilyrði hin beztu, ef náðst hefði
til sfldarinnar, en hún var yfirleitt
á 50 faðma dýpi eða dýpra.
Síldveiðiflotinn mun nær allur
hafa verið úti, en aðeins. 11 skip
tilkynntu afla .samtals 295 tunnur.
Kslenzkir nylonsokkar að koma á markaðinn: K Éf <mjmSÆT mrn mmrnrnk am m AMM IBifll IBLm \1Rl M Ai étStBj jSt SJBtr ^ nTVTk jffir mu am mwsi -i
Þriðjudagur 3. desember 1963. wemsmimm tvo ú Aktmesi setiit
Lítil síldveiði í nótt framleitt 450 þásund pör á ári
Upp úr næstu áramótum geta
íslenzkar konur klæðzt nylon-
sokkum framleiddum á íslandi.
Það er nýtt fyrirtæki á Akra-
nesi, Sokkaverksmiðjan Eva,
sem þá mun senda frá sér fyrstu
framleiðslu sína.
Sokkaverksmiðjan á Akranesi
hefur verið í undirbúningi nokk
urn tíma og er nú verið að Ijúka
við innréttingu á húsnæði verk
smiðjunnar að Suðurgötu 126,
en þar hefur verksmiðjan 270
ferm. húsnæði á efri hæð húss-
ins.
Fyrsta sending véla til verk-
smiðjunnar kom í gær og er nú
unnið við uppsetningu þeirra.
Siðar koma fleiri vélar og munu
þær verða alls 10 til að byrja
með. Framleiðslugeta verksmiðj
unnar með þeim vélakosti verð-
ur ekki minna en 450.000 pör á
ári, en íslenzkar konur nota
alls eitthvað hátt á 2. milljón
para árlega. EVU-sokkarnir eru
„micromess", eins og fagmenn
kalla þá sokka, sem rekja má
aðeins upp eða niður.
1 þessum mánuði munu verk-
smiðjurnar reyndar, en fram-
Framh. á bls. 6.
SAMNINGAFUNDUR UM
AÐALKRÖFURNAR ÍDA G
I dag verður haldinn samn-
ingafundur um aðalkröfur verk-
lýðsfélaganna í launadeilunum.
Er ráðgert, að í þeim fundi taki
þátt samstarfsnefnd verklýðs-
félaganna, samninganefnd vinnu
veitenda og sáttanefnd ríkisins.
Verður rætt um aðalatriðin en
um helgina var rætt um sérkröf
ur. Á morgun er ráðgert, að
haldinn verði samningafundur á
ný um sérkröfurnar. Fullskipuð
stjórn Alþýðusambands íslands
hélt fund s.l. laugardag. Var þar
rætt um samningana samþykkt
ályktun um þau mál. 1 henni er
lýst fyllsta stuðningi við kröfur
verklýðsfélaganna í kaupgjalds-
málum. Fagnað er víðtækri sam
stöðu, er náðst hafi í samning-
unum. Segir i ályktuninni, að
aðalkröfur verklýðsfélaganna í
yfirstandandi kjaradeilu séu j vinnutími og verðtrygging
þessar: Hækkað kaup, styttur | launa.
Stérhætta á göt-
um vegna hálku
Mikið hefur borið á árekstrum
í Reykjavík undanfarna daga, mest
á m-orgnana, en þá hefur oft verið
ísing á götunum og flughálka.
Mesti árekstradagurinn um nokk
urt skeið varð sl. fimmtudag, en
þá var lögreglan kvödd út 20 sinn
um vegna bifreiðaárekstra. Á
sunnudaginn urðu 12 árekstrar,
flestir á tiltölulega skömmum
tíma. Á laugardag urðu 15 árekstr
ar og 7 á föstudaginn. Þannig hafa
orðið 54 árekstrar á aðeins fjórum
dögum, en það telur lögreglan
Framh á ols. 6
micrmir i ivcyKjaviKurnum
Hafskip færþriðja skip sitt
og Rúrik Haraldsson.
Selá, nýtt 1745 tonna fiutninga-
skip sem er 3. skip Hafskips h.f.
kom til landsins i gær. Seiá er
smíðúð hjá D. W. Kremernsohn í
Vestur-Þýzkalandi, og var afhent
15 nóvember s.I. Henni er ætlað
að sigla: Hamborg, Rotterdam,
Huil, Reykjavík eins og Laxá, sem
er fyrsta skip félagsins.
Selá er eingöngu ætluð til vöru-
flutninga, og er með fullkomnasta
útbúnað sem fáanlegur er til slíks. |
Þannig eru lestarhlerarnir af Mc
Gregor gerð, en slíkir hlerar eru
sérstaklega auðveldir í meðförum,
og miklu fljótlegra að eiga við þá
en venjulega hlera. Brinkham skipa
Framh. á bls. 6.
Geir Hallgrímsson ræðir
frsmkvæmdir og fjár-
mál Reykjavíkur
á Varðarfundinum í kvöld
Geir Hallgrímsson, borgarstjóri
verður frummælandi á almennum
fundi, sem Landsmálafélagið Vörð-
ur heldur í kvöld kl. 20.30 um fram
kvæmdir og fjármál borgarinnar.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar er nú í undirbúningi svo að
þessi mál eru ofarlega á baugi, hjá
Reykvlkingum um þessar mundir.
Mun borgarstjóri skýra m. a. frá
helztu framkvæmdum Reykjavíkur
borgar t. d. hitaveituframkvæmdum
og gatnagerðinni. Án efa mun
marga fýsa að heyra um fram-
vindu þessara þýðingarmiklu hags
munamála borgarbúa.
Eftir ræðu borgarstjóra verða
frjálsar umræður.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri.
Sunnar Eyjólfss. æfir Hamlet
Æfingar hafa nú staðið yfir
í langan tíma í Þjóðieikhúsinu
á Hamlet eftir William Shake-
speare, en þetta fræga leikrit
verður jólasýning Þjóðleikhúss-
ins að þessu sinni og /erður
frumsýningin á annan i jólum.
Leikstjóri er Benedikt Árnason,
en leiktjöldin eru gerð af Dis-
ley Jons, en hann gerði leik-
tjöldin fyrir Nashyrningana fyr-
ir þremur -- um í Þjóðleikhús-
inu.
Á næsta ári eru liðin 400 ár
frá fæðingu W. Shakespeares
og er þess minnzt í flestum leik
húsum heimsins á þessu ári.
Gunnar Eyjólfsson leikur
Hamlet, en aðrir, sem fara með
stór hlutverk eru: Róbert Arn-
finnsson, Herdís Þorvaidsdóttir,
Lárus Pálsson, P.úrik Haralds-
son, Jóhann Pálsson, Árni
Tryggvason, Þórunn Magnús-
dóttir o.fl.
Þýðingin, sem notuð er að
þessu sinn ier þýðing Matthías-
ar Jochumssonar, en hann þýddi
sem kunnugt er nokkur helztu
leikrit Shakespeare á íslenzku.
/