Vísir - 14.08.1964, Blaðsíða 4

Vísir - 14.08.1964, Blaðsíða 4
4 V í S I R . Föstudagur 14. ágást MM KVENNAS'IÐA Undravökvinn, sem fjarlægir allar hrukkur „MAGIC SECRET“ er litlaus vökvi, 'búinn til úr eggjahvítu- efnum og gersamlega skaðlaus. Það má nota hann eins oft og nauðsyn krefur, og sé hann bor- inn á daglega, endast hin undra verðu áhrif hans að minnsta kosti átta klukkustundir. Notk- unarreglur eru mjög einfaldar — þú þværð þér í framan eða hreinsar andlitið með kremi, berð síðan nokkra dropa af ,,Magic Secret" á staði, þar sem hrukkur eru, strýkur létt ýfir andlitið og leyfir vökvanum að þoma í ema eða tvær mínútur. Eftir það bíðurðu tfu mínútur og varast að brosa, tala, gretta þig eða hreýfa andlitið á annan hátt á meðan. Líttu svo í spegil- inn! Þar blasir við þér slétt og hrukkulaus ásjóna, þú hefur yngzt um mörg ár og finnst þú vera eins og ný manneskja. Aldrei framar þarftu að óttast hrukkumar, hina hvimleiðu boð- bera ellinnar. * ^lltaf rætast fleiri og fleiri draumar, eftir því sem tækni nútímans fleygir fram. Ef til vill hugsa ungu stúlkurnar lítið um það, en hvaða kona, sem kom- in' er af léttasta skeiði, hefur ekki einhvern tíma látið sig dreyma um að endurheimta æskublóma sinn með töfralyfj- um og undrasmyrslum? Á mið- öldum flykktust bæði fagrar og ófrfðar konur til galdranoma og seiðkarla, sem byrluðu þeim hvers kyns ólyfjan til að auka, varðveita eða endurheimta feg- urðina, og nú á dögum úir og grúir af snyrtivömverzlunum á hverju götuhorni svo að segja. Því er oft haldið fram, að engin kona þurfi lengur að vera ljót. Kona, sem klæðir sig smekk- lega, snyrtir sig eftir öllum kúnstarinnar reglum og — síð- ast en ekki sízt — kemur elsku- lega og kurteislega fram, er allt- af aðlaðandi, þótt eitthvað megi kannske að andlitsdráttum eða vaxtariagi finna. Með kunnáttu- En hrukkurnar hafa löngum reynzt erfiðar viðureignar. Þau eru ekki fá lyfin og smyrslin, sem notuð hafa verið til að út- rýma þessum óvelkomnu merkj- um aldursins, en flest hafa ver- ið algerlega gagnslaus. Það var fyrst núna fyrir nökkrum mán- uðum, sem undravökvinn „MAGIC SECRET“ kom á mark aðinn, og þá uppgötvuðu millj- ónir kvenna — og karla — sér til ósegjanlegrar gleði, að hmkk ótt andlit, gömul fyrir aldur fram, tilheyrðu heimi fortíðar innar. Undan og eftir — sjáið þið bara muninn? Til vinstri sést frúin eins og hún lítur út f sínu eðlilega ástandi, til hægri sjáið þið hana átta mfnútum eftir að hún bar á sig undravökvann „MAGIC SECRET“. Hmkkurnar eru horfnar, hún hefur yngzt um mörg ár og húðin er slétt eins og á ungri blómarós.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.