Vísir - 11.08.1966, Page 1
;
ABBA EBAN á
Þingvöllum í dag
Abba Eban utanríkisráðherra
ísraels, frú hans og fylgdarlið
fóru í' morgun til Þingvalla í
fylgd með Emil Jónssyni utan-
ríkisráðherra, Agnari Kl. Jóns-
syni ráðuneytisstjóra og Páii
Agnari Tryggvasyni deildar-
stjóra. Var lagt af stað kl.
10.30 og er til Þingvalla var
komið var gengið á Lögberg og
ráðherranum sögð saga Þing-
valla. Síðan var haldið til Val-
hallar og hádegisverður snædd-
ur.
Frá Þingvöllum var farið
austur að Sogi og virkjanimar
við Sogið skoðaðar og ætlunin
var að koma við í Hveragerði
í heimleiðinni og skoða hveri og
gróðurhús.
Síðdegis í dag heldur Abba
Eban fund með blaðamönnum
og í kvöld býður hann gestum
til kvöldverðarveizlu. Héðan
heldur Abba Eban í fyrramálið.
Emil Jónsson, Abba Eban, frú hans og fylgdarliö á tröppum Ráö
herrabústaðarins i morgun áður en Iagt var af stað tll Þingvalla.
Flest síldveiðiskipanna eru
nú komin á syöri slóðir og
fengu mörg þeirra ágæt köst
um 230 mílur SA af Gerpi í
nótt og í gær. Aðeins fáein skip
halda sig enn á Jan Mayen mið
um. Þar er nú kaldi og ekki
veiðiveður, en veður hefur hald-
izt sæmilegt á suðurslóðum enn
þá þó að aðeins sé tekið að
kula þar. Má því búast viö að
síldin skemmist eitthvað á leið
til lands og verði ekki eins hæf |
til söltunar og skyldi.
Vitað var um 38 skip sem
fengið höföu afla síðasta sólar
hring, fram til klukkan 8 í
morgun samtals 4798 lestir.
Engin flutningaskip voru ná-
lægt flotanum, og voru þvx flest
skipanna á leið til lands með afl
ann. Eitthvað hefur veriö saltaö
Framh. á bls. 6.
„SAS virðist keita blekkingum
flugfélaginu óbætanlegt tjón.
Vísir hafði í morgun tal af
Kristjáni Guðlaugssyni, stjórn-
arformanni Loftleiða út af
þessu máli.
Kristján sagði m. a.: „SAS
hefur sig mjög í frammi þessa
stundina, og virðist beita blekk
ingum í málinu. Forráðamenn
þess taka t.d. töluna um allan
farþegafjölda Loftleiða á öllum
flugleiðum félagsins og segja
að allir þessir farþegar séu
fluttir frá Norðurlöndum með
vélum Loftleiða, þessi staðhæf-
ing er nánast sagt móðgun
við yfirvöldin og hrein blekking.
SAS-menn gleyma þvf, alveg að
Island er eyja í miðju Atlants-
hafi og einu samgöngutæki okk
ar eru skip og flugvélar og við
notum þau eins og okkur er
framast xmnt. Landfræðilegri
legu landsins geta þeir SAS-
menn ekki breytt.
Við tökum minna gjald fyrir
að fljúga með farþega í skrúfu-
vélum, heldur en félög sem
flytja farþega með þotum, og
þetta finnst mönnum eðlilegt.
Þess má geta, að í framtíðinni
verða teknar í notkun farþega-
þotur/sem fara hraðar en hljóð-
ið og allir forstjórar stærstu
Framh. á bls. 6.
— segir Kristján Guðlaugsson, stjórnarformað-
ur Loftleiða. Stabhæfingar jbess eru móðgun
við opinbera aðila
Umræður út af flugi yfir
Norður Atlantshafið eru nú
komnar af stað á nýjan leik.
Nýlokið er í Kaupmannahöfn
fundi flugmálastjórna og full-
trúa utanríkisráðuneyta SAS-
Iandanna, sem haldinn var til
að móta sameiginlega afstöðu
opinberra aðila í þessum lönd
um á væntanlegum fundi með
íslenzkum aðilum. Þar verður
rætt um Iendinearíevfi Loft-
leiða í SAS-Iöndunum. Sá
fundur verður haldinn í Kaup
mannahöfn síðar í þessum
mánuði.
Ýmis dönsk blöð hafa tekið
mjög illa í þá umsókn Loftleiða
að fá að lenda RR-400 vélum
félagsins í SAS-löndunum og
segja aö með því muni farþega-
fjöldi félagsins til þessara landa
stóraukast og sé hann nógur
fvrir og félaeið hafi bakað SAS
Fimmtudagur 11. ágúst 1966. — 180.
Sumar í Reykjadal
Þessi glaðlcgu böm. sem hér
brosa til lesenda Vísis eru í
sumardvöl í Reykjadal í Mos-
fellssveit og er myndin var
tekin voru þau að syngja há-
stöfum „Það er leikur að læra“.
— í Myndsjánni á bls. 3 eru
fleiri myndir og frásögn frá
heimsókn í Reykjadal. (Ljósm.:
Bj. Bj.),
Lögbanns beiðst gegn
sjónvarpsmóttöku ■ Eyjum
Þau tíðindi hafa gerzt í sjón-
varpsmálinu í Vestmannaeyjum
að Ríkisútvarpiö fór þess á leit
vlð bæjarfógetann í Vestmanna
eyjum í fyrradag að lögbann
yrði sett gegn starfrækslu end
urvarpsstöövarinnar í Vest-
mannaeyjum, þar sem hún sé
ólögleg. Útvarpsráð hafði fyrr
samþykkt með öllum atkvæðum
aö láta banna þessar sendingar
þar sem þær væru ólöglegar.
1 framhaldi af þessari beiðni
GÓÐ VEIÐi
Ríkisútvarpsins hefur Póst og
símmálastjórnin sent bæjarfó-
getanum í Eyjum beiöni um að
meint ólögleg tæki, þ.e. mastur
og magnari, verði fjarlægð af
leigulóð Póst og símamálastjórn
arinnar á Stóraklifi með útburð
argjörð svo fljótt sem unnt er.
Lögbannsbeiöni útvarpsins
ins mun byggjast á þeirri lög-
fræðilegu niðurstööu að útvarp
ið hafi einkarétt á sjónvarps og
útvarpssendingum hér á landi.
Hafa nú línumar mjög skýrzt
í málinu og má búast viö aö fó
geti Eyjamanna bregði skjótt
við og framkvæmi lögbanniö.