Vísir - 11.08.1966, Blaðsíða 5
VÍSIR . Fimmtudagur 11. ágúst 1966.
•morgun útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlönd í morgun
útlön
Brezka stjórnin endurskipulögð
— boðar ekki stefnubreytingu
Brezka stjórnin hefur verið end-
urskipulögð, en það er ekki talið
boða stefnubreytingu. Wilson for-
sætisráðherra Bretlands tilkynnti
endurskipulagningu stjórnar sinnar
fyrr en buizt hafði verið við. Eins
og getið var í Vísi fyrir tveimur
dögum var búizt við, að George
Brown tæki við embætti utanríkis-
ríð'-.erra af Stewart, og reyndist
þr.ð vera aðalbreytingin á stjórn-
inni. Kunnugt er að Brown hafði
þcgar hug á því eftir síðustu al-
mennu þingkosningar, að fá sess
utanríkisráðherra. Hann lætur því
af embætti efnahagsmála, en verð-
ur áfram varaforsætisráöherra.
Stewart utanríkisráðherra verður
. nú efnahagsmájaráöherra tekur viö
! af Brown, og þaö verður því hans
hlutskipti að framfylgja efnahags-
ráðstöfununum nýju. Stewart er 59
i ára og hefur verið utanríkisráð-
: herra frá í janúar 1965.
George Brown er 51 árs. Hann
er í hægri fylkingu flokksins og
: eitt mesta áhugamál hans er aðild
j Bretlands að Evrópu-sammarkað-
inum.
Bottomley lætur af embætti sam
veldismálaráðherra og við tekur
j Herbert Bowden talsmaður flokks-
ins í neðri málstofunni en Cross-
man húsnæöismálaráðherra tekur
við starfi hans, Bottomley verður
ráðherra efnahagsaöstoðarmála.
; Sigraði með aöeins
58 atkvæða meirihluta.
Umræðunni í neðri málstofunni
um kaupbindingar- dg verðlags-
bindingarráðstafanirnar lauk f gær-
I kvöldi með því, að stjómin hélt
velli, en með aðeins 58 atkvæða
meirihluta, því að 20 þingmenn
í flokknum sátu hjá við atkvæða-
greiösluna.
Brown.
Ráðstafanir þær, sem mest hefur
verið um deilt koma ekki til fram-
kvæmda, nema brýn nauðsyn
krefji. Frumvarpið innifelur sem
sé heimild til að grípa til þeirra.
Frumvarpið var samþykkt til
lávarðadeildarinnar.
Somkomulng Indonesiu
og Mulajsíu undimfuð
Stewart.
Westmorekind
vill liðsauku
Westmoreland yfirhershöföingi
Bandaríkjahers í Suður-Vietnam
sagði í gær, að senda yrði fleiri
bandaríska hermenn þangað.
Hann var staddur f Honululu.
— Ekki vildi hann segjr *ive mik-
inn liðsauka Bandaríi^-nenn
þyrftu í S. V. Þeir hafa þar nú
280.000 menn.
Samkomulagið um sættir milli
Indónesíu og Malajsíu hefur verið
undirritaö.
Undirritendur voru Razak utan-
ríkisráðherra og varaforsætisráð-
herra Malajsíu, og Malik utanríkis-
ráðherra Indónesíu. Malik fer brátt
til Kuulu Lumpur höfuðborgar
Malajsíu til þess að treysta hin
nýju vináttubönd.
Það var fyrir þremur árum, sem
Súkarnó forseti hóf fjandskapar-
aðgerðir gegn Malajsíu, eða eftir
að hún varð sambandsríki, og f
átökum á undangengnum þremur
árum hafa 500 menn falliö, flestir
Indónesar og margir særzt, en á
annað þúsund Indónesar voru tekn-
ir til fanga. Fjandskaparbarátta
Indónesíu leiddi til fjárhagslegra
drápsklyfja, en f Malajsíu varð
að fresta ýmissi umbótastarfsemi
vegna útgjalda til landvama.
I fréttum um sættirnar er nafn
Súkarnó forseta ekki nefnt, nema
sem upphafs.iianns illindanna.
nfjo.þiHifi ttt
Orbiter L á loft
Þaö gekk eins og í sögu í gær,
að skjóta geimfarinu Orbiter I út
í geiminn Gert er ráð fyrir, að það
veröl 90 klukkustundir á leiðinni
þar til það kemst á braut kring-
um tunglið, en vegalengdin er 384.
000 km.
Tilgangurinn er aö ná myndum
af tunglinu beggja vegna frá af
líklegum lendingarstööum fyrir
mannaö geimfar. Hin vönduðustu
tæki til myndatöku og sjónvarps
eru aö sjálfsögðu í geimfarinu. —
Geimfarið vegur 386 kg og er vind-
myllulaga. Því var skotið á loft
með Agenaflaug.
heimS'
horna
milli
^ Belgíski flugherinn hefir í bili
hætt notkun allra Thunderstreak-
herþota sinna (um 100) meöan
rannsókn fer fram á flugslysi sem
átti sér stað í fyrri viku. Thunder-
streak-þoturnar eru bandarískar.
^ Eftir samkomulagið í Brussel
um verðlag á landbúnaðarvörum
sem var talið hið mikilvægasta
fyrir sammarkaðinn, bjuggust
franskir ráðherrar ekki við, að
verðlag hækkaði svo að franskar
húsmæður þyrftu að kvarta, en af-
Ieiðingamar komu fljótt í ljós;
Mjólk hefur hækkað um 15% og
nautakjöt um 13% og sykurrófur
um 30 af hundraði, en af þvf mun
leiða að sykurverð hækkar um 13
af hundraði.
► Gowon hershöföingi, aðalfor-
sprakki byltingarinnar í Nígeríu
og æðsti maður hemaðarlegu
stjómarinnar, sem nú fer með
völdin hefir tilkynnt að felld
verði úr gildi lög Ironsi-stjómar-
innar um að fella niöur sambands-
ríkjafyrirkomulag og hafa eina
sterka stjóm fyrir allt landið. Veröi
þess í stað tekið upp sambands-
ríkjafyrirkomulag. Norður-Nígería
hefir þegar fallizt á tillögur f þessu
efni, Vestur-Nígeria hefir þær til
athugunar og Austur-Nlgería mun
taka þær fyrir bráðlega. — Gert
er ráð fyrir nýrri stjórnarskrá og
þjóðaratkvæöi um hana.
► Látinn er danski rithöfundurinn
Knud Sönderby 57 ára að aldri.
► Spellvirkjar f Krefeld Vestur-
Þýzkalandi hafa vanhelgað 34 Gyð-
ingaleiði í einum kirkjugarði borg-
arinnar.
► NTB-frétt hermir, að sleppt verði
úr fangelsi í Tyrklandi 50.000 föng-
um samkvæmt náðun, sem rfkis-
forsetinn undirritaði s.l. sunnudag.
Tala fólks í vinnu í Bandaríkj-
unum er nú hærri en nokkum
tíma fyrr eða 76,4 milljónir.
► Wirtz verkalýðsmálaráöherra
Bandaríkjanna sagði í gær eftir
fund með fulltrúum aðila í deil-
unni sem leiddi til flugstjóraverk-
fallsins, að allt stæði fast og sam-
komulagsumleitunum væri frestað
um sinn.
► Bandaríkjamenn biðu mikið
manntjón í orrustu í hálendi um
miðbik Suður-Vietnam í gær
Skæraliðar hörfuðu er Bandaríkja-
menn fengu liösauka.
► í júlí drukknuöu eða er saknaö
f Japan 2000 manns.
► Kanadastjóm hefir beöiö vestur-
þýzku stjómina um skýringu á því
hvers vegna flestar af 90 orrustu-
þotum, sem V. Þ. fékk hjá Kanada
era nú komnar tií Pakistan. Tals-
maður utanríkisráðuneytisins sagöi
að flugvélunum hefði trúlega ver-
ið flogið um Iran til Pakistan og
með þessu rofinn sáttmáli sem
Kanada og Vestur-Þýzkaland geröu
með sér um flugvélarnar.
► Brezki fréttaritarinn Ross Mark
símar frá New York, að það sem
Bandaríkjastjóm hafi mestar á-
hyggjur af nú sé, að almennings-
álitið muni snúast gegn henni ef
menn sannfærast ekki um, að unnt
sé að leiða Vietnam styrjöldina
til lykta bráðlega meö auknum
loftárásum, en menn era þegar
famir að efast um, að sú verði
reyndin.
► Sir Roy Welensky fyrrverandi
forsætisráðherra Rhodesfu sagði í
London nú í vikunni, að tilgangs-
laust væri að reyna aö svelta
Rhodesíumenn til þess aö kúga þá.
Hann kvað tíma til kominn að
bæði núverandi leiðtogar í Rhodes
íu og Bretlandi gerðu sér grein
fyrir hættunum vegna núverandi
ástands. Hann kvað þaö blekkingu,
er menn litu á hvíta menn í Rhod-
esíu sem fasista, eða er menn
héldu, aö Rhodesía gæti ekki selt
mestallt af afurðum sínum þrátt
fyrir viðskiptabanniö. Þaö væri
jafnfávíslegt og að ætla, að Bret-
land væri á hnignunarskeiöi, pund
ið að fara í hundana og ráðherrar
í stjórn Wilsons kommúnistar upp
til hópa.
► Opinber bandarískur talsmaður
segir, að vestur-þýzka stjómin sé
ekki sömu skoðunar og dr. Aden-
auer varðandi Vietnam, en Aden-
auef sagði um helgina í viðtali
við New York Times sem áöur
var getiö, að Bandaríkin ættu að
kalla heim her sinn frá Vietnam.
► Paul Bihin ambassador Belgíu
í Kongó kom heim í vikunni til
þess að ráðgast við stjómina. Sam
búðin milli Belgíu og Kongó, sem
áður var belgísk nýlenda, hefir
versnað í seinni tfð, eða sfðan
belgíska aðalræðismanninum í
Lumumbashi (áöur Elisabethville)
var vísað úr landi. Hann var sak-
aður um afskipti af innanlands-
málum, en þeirri ásökun neitar
Belgfustjóm.
► Rússar hafa skotið á loft 127.
Kosmos-trerviiiviottin.im
Roisja-gistihús
á Rauða torgir i
Rússar eru stöðugt að reisa
ný gistihús til þess að hæna aö
sér erlenda ferðamenn, ekki sizt
þá sem bezt auraráðin hafa, þ.
e. bandarfska, og þess vegna
leggja Rússar áherzlu á að reisa
stór gistihús þar sem fullnægt
er nútímakröfum, og meðal 40
gistihúsa, sem beir eru að koma
upp er Roisja gistihús í Moskvu.
En bygging þess eða öllu heldur
staðsetning ve.dur miklum deil-
um f Sovétríkjunum, þvf að
margir eru sárgramir yfir að
spillt skuli vera þeim sögulega
biæ, sem er á Rauða torginu og
kirkjunum í Kreml, með þvf að
reisa þetta gistihúsbákn aðelns
spölkom frá kirkjunum. Meðal
þeirra, sem.hafa gagnrýnt þetta
er sovftM Bstamaðurinn Pavel
Korin.
feSiSSSSHS