Vísir - 11.08.1966, Síða 8
8
VÍSIR . Fimmtudagur 11. ágúst 1986.
VÍSIR.
Utgefandi: BlaöaOtgatan VISIR
Rltstjöri: Gunnar G. Sctaram
A8stoðarrltst}órl: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Jónas Kristjðnsson
Auglýsingastj.: Halldór Jónsson
Auglýsingar Þingholtsstræti 1
Afgreiðsla: Töngötu 7
Ritstjðm: Laugavegi 178. Simi 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 100.00 á mánuði tnnanlands.
1 lausasölu kr. 7,00 elntakið
Prentsmiðja Visis — Edda ta.f
Batnandi hagur bænda
Qrð formanns Búnaðarfélags íslands og framsóknar-
mannsins Þorsteins Sigurðssonar á Stéttarsambands-
þingi bænda voru hæfileg ráðning þeim, sem skrifa
um búnaðarmál í Tímann. Þorsteinn sagði í ræðu
sinni að bændur hefðu aldrei haft það betra á íslandi
en nú. Hér er annað hljóð í strokknum en hið sífellda
kvart og kvein, sem í málgagni Framsóknarflokksins
má lesa um ástandið í þessum stóra atvinnuvegi.
Formaðui^ Búnaðarfélagsins trúir greinilega ekki á
móöuharðindavæl Tímans og mun enginn lá honum
það. '
£nn ein raunarollan birtist í forystugrein Tímans í
gær. Þar er reynt að telja bændum og öðrum trú um
að erfiðleikar í landbúnaðinum stafi eingöngu af verð
bólgunni. Hér er farið allsendis skakkt með hlutina.
Sannleikurinn er sá að bændur hafa fram að þessu
fengið hækkanir á afurðir sínar sem eru talsvert
meiri en almennar kauphækkanir í landinu. Þannig
hefur verið betur gert í þeirra málum, eins og sjá
má af því að á síðustu fimm árunum hefur kaup-
gjaldsliðurinn í verðgrundvellinum hækkað um
141% en Dagsbrúnarkaupið hefur ekki hækkað nema
um 83% á sama tíma. Hér hefur bóndinn fengið
gamalt misrétti leiðrétt, undir núverandi landbún-
aðarstefnu, sem Ingólfur Jónsson hefur haft svo
ágæta forustu um.
það er vitanlega einnig eintómur þvættingur að það
sé verðbólgunni að kenna ef útflutningsuppbætumar
duga ekki á þessu ári. Það sem gerzt hefur er það,
sem formaður Stéttarsambandsins, Gunnar Guð*
bjartsson, benti réttilega á, að aukning framleiðsl-
unnar hefur orðið geysimikil og þá helzt í mjólkur-
afurðunum, en ekki í þeim afurðum, sem hægt er að
fá hærra verð fyrir á erlenda markaðinum. Ekki eru
nema 2—3 ár síðan bændur töldu ekki annað fært
en framleiða mjólk á ræktuðu landi. Það olli fram-
leiðsluaukningunni á mjólkurvörunum. Nú er reynsla
hins vegar fengin fyrir því að betur borgar sig að
hafa sauðfé á ræktuðu landi. Þó ekki hefði nema helm-
ingur framleiðsluaukningarinnar orðið í sauðfjáraf-
urðum væri hér ekki í dag um neinn vanda að ræða.
Þetta er forystumönnum Stéttarsambandsins eins og
Gunnari í Hjarðarholti ljóst, þótt forystumenn Tím-
ans og framsóknarmanna hafi ekki enn megnað að
skilja þessa einföldu staðreynd. Sannleikurinn er sá
að hagur bænda hefur sífellt farið batnandi undan-
farin ár vegna réttrar stefnu í landbúnaðarmálum.
Þeir erfiðleikar sem í bili steðja að munu verða yfir-
stignir, sagði Ingólfur Jónsson á þinginu. Bændur
landsins munu taka undir þau orð ráðherra, því sem
betur fer eru þeir, eins og hann, bjartsýnir á framtíð
landbúnaðarins.
Breyting á brezka kvið-
dómafyrirkomiiittgimi
Tilkynningu Roy Jenkins um hunu
fugnuð í neðri múlstofunni
Roy Jenkins innanríkisráð-
herra Bretlands boðaði í vik-
unni breytingu á brezka kvið-
dómafyrirkomulaginu (jury syst
em) og er breytingin f því fólg-
in, að hverfa frá því að allir
kviðdómendur verði að vera
sammála um þaö hvort sak-
bomingur sé „sekur“ eða „ekki
sekur“, — og þess í stað ráöi
úrslitum 10.2 atkvæöa meiri
hluti í kviðdómi úrslitum. Jenk-
ins kvað breytinguna greiða fyr-
ir þvf að komið yrði löigum yfir
ntarga sem annars kynnu að
sleppa.
Sú breyting sem hér um ræð-
ir, er merkur viðburður í
brezkri Iagasögu, þvf að lög
háfa aidrei fyrr leyft meiri-
hlutaúrskurði kviðdóms. Þá er
gert ráð fyrir í frumvarpinu,
að kviðdómur fái nægan tíma
til þess að íhuga og taka á-
kvörðun f máli. Þá er fyrirhuguö
sú breyting að girt verði fyrir
að menn sem dæmdir hafa ver-
ið fyrir afbrot skipi sæti kvið-
dómara. Frumvarp um það o.
fl. tii breytingar á hegningar-
lögunum verður lagt fyrir þing-
ið á hausti komandi.
Málstofan fagnaði þessum
breytingum. En hvers vegna var
frumvarpiö um meirihluta í
jkvjðdóm^Jfigt fram nú —r svo
til rétt áöur en sumarleyfi þing-
manija? Hvað lá á?
Þaö kom fram við umræð-
una. Jenkins sjálfur sagði, að
það væri komið í ljós, að of
margir kæmust undan við nú-
verandi skipulag — og meðal
þeirra eru, sagði hann:
— „stórhvelin“, mennimir,
að baki þeirra sem sendir eru
á mörkina til fanga, koma
hverg' nærri sjálfir, skipuleggja
allt og hirða bróðurpartinn af
ránsfengnum. Og Jenkins kvað
ekkert eitas niðurdrepandi fyr-
ir lögregluna og það, að reyna
það, aö þegar hún við mikla
fyrirhöfn, eftirgrennslanir og á-
hættu héfur komizt að hver
er aðalmaður að baki glæpa-
manns — eða ef til vill glæpa-
hrings — að sá hinn sami slepp-
ur vegna ágalla laganna, J)ar
sem þau eru næg vörn gegn
því, að slíkum mönnum takist
að spilla (corrupt) vitnum og
kviðdómendum.
Meöal þeirra, sem fagnaði
breytingunni var Quentin Hogg
úr flokki íhaldsmanna, og kvaö
hann svo að orði, að menn hefðu
gert of lítið úr „þessari starf-
Roy Jenkins.
Quentin Hogg.
semi atvinnuglæpamanna."
Hann hvatti m. a. til strarigara
eftirlits með starfsemi alls kon-
ar klúbba, sem væru „miðstööv-
ar glæpastarfsemi"
113 metra stáSþil
y
rekið niður í Reyðar
fjarðarhöfn í sumar
Á Reyðarfirði er nú verið að
hefjast handa við annan áfanga
hafnarinnar, 113 mctra stálþil,
sem á að reka niður fyrir haust
ið. Framkvæmdir við höfnina
hafa nú staðið síðan 1962 og
var í fyrra lokið smíði stórrar
hafskipabryggju, kostuðu þær
framkvæmdir 11 milljónir.
Undanfama mánuði hefur
verið unnið við að botnrannsaka
Fjarðarleirumar, þar sem höfn-
inni er ákveðinn staður. Reikn-
að er með að dýpi við væntan-
legt stálþil verði um 7 metrar
og ætti þvf að koma að gagni
sem viðlegupláss allstórra
skipa. Efni á þilið er þegar
komið á staðinn.
í framhaldi af botnrannsókn-
unum verður gerð gangskör að
kortlagningu háfnarinnar og er
sá þáttur málanna í höndum
Vita- og hafnamálastjórnar. Að
skipulagi hafnarinnar verður
unnið í samráði við Skipulag
ríkisins, þar eð jafnframt verð-
ur komið skipulagi á næsta um-
hverfi hafnarinnar. Framhald
þessara hafnarmannvirkja,
verður inn með firðinum þeim
megin sem þorpið er.
„Lucy-skemmtunin" í Hvitn húsinu
Blaðlð New York Herald Tribune birtir þessa mynd undir ofangreindri fyrirsögn, en á myndinni
segir sá, sem talar vlð Johnson forseta: — Verið ekki að hafa áhyggjur af að missa dóttur, gleðj-
Izt heldur yfir, að yður hefir bætzt nýr kjósandi. (Eiginmaður Lucy er repúblikani).