Dagur - 26.03.1987, Blaðsíða 10
STRIK
10 - DAGUR - 26. mars 1987
Slanslaust ffflr
og ómtar oggMmr
í Ibizaferðum Polaris er stanslaust fjör allan sólar-
hringinn enda eru ferðirnar miðaðar við þarfir þeirra
hressu og Iffsglöðu. Farið er í ökuferðir og siglingar, á
sjóskíði og seglbretti, í fótbolta og hjólatúra og ævin-
týraþorstanum er svalað á diskótekum og nætur-
klúbbum.
Skrautlegur hópur sóidýrkenda þyrpist til Ibiza á
sumri hverju því þar er rigning nánast óþekkt fyrirbæri
og svalandi hafgolan dregur úr mesta hitanum.
Gististaðir Poiaris, Jet Bossa og Migjorn, eru við
hina frægu Playa d’en Bossa strönd, rétt við sjálfa
Ibizaborg, einhverja litríkustu ferðamannaborg Evrópu.
Og það besta við Ibizaferðir Polaris er verðið, sem
er ákaflega hagstætt. Dæmi: 17 dagar og fjórir f íbúð
á Migjorn kosta aðeins frá kr. 30.700,-
FERÐASKRIFSJOFAN
POLARIS
Kirkjutorgi4 Sími622 011
Askrifendagetraun Dags
Vinningur: Sólarlandaferð til Mallorca og Ibiza með ferðaskrifstofunni Polaris
að verðmæti kr. 50.0000.
Þátttakendur þurfa að svara einföldum spurningum er birtast
tíu sinnum í blaðinu. Nóg er að svara einni spurningu og senda okkur, en svari
menn 10, þá sendi menn hvert svar sér, þá tífaldast vinningsmöguleikarnir.
Dagur, Strandgötu 31, box 58 602 Akureyri. - Merkt: Ferðagetraun.
Þátttakendur þurfa að hafa sent inn svör fyrir 15. maí n.k.
Spurning:
■ Á hvaða sólarströnd Spánar er fjörið mest?
i
i
X ...............................................................
i
■
• Nafn
Heimilisfang Símanúmer
Umboðsmenn: Ferðaskrifstofa Akureyrar hf. Björn Hólmgeirsson, Húsavík.
Verslunin Sogn, Dalvík. Ingibjörg Kristjánsdóttir,
Birgir Steindórsson, Siglufirði. Hólabraut 2, Skagaströnd.
Akureyrarmótið í skák:
Amar og Gylfi
efstir og jafnir
- Tefla fjögurra skáka einvígi um titilinn
Síðasta umferðin í opnum
flokki á Akureyrarmótinu í
skák var tefld á mánudags-
kvöld. Að henni lokinni voru
þeir Arnar Þorsteinsson og
Gylfi Þórhallsson efstir og
jafnir, með 7 vinninga af 9
mögulegum. Þeir félagar þurfa
því að heyja fjögurra skáka
einvígi um Akureyrarmeistara-
titilinn. í opna flokknum voru
keppendur 18 talsins og var
teflt eftir Monrad-kerfi.
í 3. sæti varð Bogi Pálsson með
6 vinninga og í 4.-5. sæti urðu
jafnir með 5'/2 vinning, þeir Rún-
ar Sigurpálsson og Sigurjón Sig-
urbjörnsson. Arnar Þorsteinsson
tók forystu á mótinu strax í upp-
hafi, leiddi mótið lengst af og var
kominn með aðra höndina á
bikarinn. En Gylfi Þórhallsson
tók góðan endasprett, vann síð-
ustu 5 skákirnar og komst upp að
hlið Arnars í efsta sætinu í
mótslok. Þrír efstu menn eftir 6
umferðir, þeir Arnar, Bogi og
Sigurjón töpuðu allir í 7. umferð
og er það mjög óvanalegt á svona
móti að þrír efstu menn tapi allir
í sömu umferðinni.
Fyrsta skákin í einvígi Arnars
og Gylfa var tefld í fyrrakvöld,
hún fór í bið og var staðan í
henni mjög óljós. Önnur skákin
verður tefld á laugardag kl. 16.30
en síðustu tvær skákirnar verða
tefldar á mánudags- og þriðju-
dagskvöld í næstu viku.
Hraðskákmót unglinga fer
fram í kvöld og hefst kl. 19.
Hraðskákmót Akureyrar fer
fram á sunnudaginn kemur og
hefst kl. 13.30.
Mars 15 mínútna-mótið verður
haldið á morgun föstudag og
hefst kl. 20. Öllum er heimil þátt-
taka f þessum mótum. KK
Auglýsing
um aðalskoðun ökutækja á Akureyri,
Dalvík og Eyjafjarðarsýslu 1987
Samkvæmt umferðarlögum hefir verið ákveðið að >
aðalskoðun skoðunarskyldra ökutækja 1987 hefjist
1. apríl n.k. og verði sem
1. apríl A- 1 til A- 300
2. apríl A- 301 til A- 600
3. apríl A- 601 til A- 900
6. apríl A- 901 til A-1200
7. apríl A-1201 til A-1500
8. apríl A-1501 til A-1800
9. apríl A-1801 til A-2100
10. apríl A-2101 til A-2400
13. apríl A-2401 til A-2700
14. apríl A-2701 til A-3000
15. apríl A-3001 til A-3300
21. apríl A-3301 til A-3600
22. apríl A-3601 til A-3900
24. apríl A-3901 til A-4200
27. apríl A-4201 til A-4500
28. apríl A-4501 til A-4800
29. apríl A-4801 til A-5100
30. apríl A-5101 til A-5400
4. maí A-5401 til A-5700
5. maí A-5701 til A-6000
hér segir:
6. maí A- 6001 til A- 6300
7. mal A- 6301 til A- 6600
8. maí A- 6601 til A- 6900
11. maí A- 6901 til A- 7200
12. maí A- 7201 til A- 7500
13. maí A- 7501 til A- 7800
14. maí A- 7801 til A- 8100
15. maí A- 8101 til A- 8400
18. maí A- 8401 til A- 8700
19. maí A- 8701 til A- 9000
20. maí A- 9001 til A- 9300
21. maí A- 9301 til A- 9600
22. maí A- 9601 til A- 9900
25. maí A- 9901 til A-10200
26. maí A-10201 til A-10500
27. maí A-10501 til A-10800
29. maí A-10801 til A-11100
1. júní A-11101 til A-11300
2. júní A-11301 og hærri
númer.
Skoðun léttra bifhjóla fer fram 4. til 8.
maí n.k.
Skoðun ökutækja á Dalvík og nágrenni fer fram
við Víkurröst, Dalvík dagana 9., 10. og 11. júní
n.k. kl. 08.00 til 16.00 alla dagana.
Eigendum eða umráðamönnum skoðunarskyldra öku-
tækja ber að koma með þau að skrifstofu Bifreiðaeftirlits-
ins í Lögreglustöðinni við Þórunnarstræti, og verður skoð-
un framkvæmd þar á áðurnefndum dögum frá kl. 08.00 til
16.00. Festivagnar og tengivagnar skulu fylgja bifreiðum til
skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn leggja fram fullgild öku-
skírteini, kvittun fyrir greiðslu bifreiðaskatts 1987 og að
lögboðin vátrygging fyrir hvert ökutæki sé í gildi. Hafi gjöld
þessi ekki verið greidd, verður skoðun ekki framkvæmd og
ökutækið stöðvað, þar til gjöldin eru greidd.
Athygli skal vakin á því að skráningarnúmer skulu
vera vel læsileg, og í skráningarskírteini skal vera árit-
un um að aðalljós bifreiðar hafi verið stillt eftir 31. júlí
1986.
Vanræki einhver að koma skoðunarskyldu ökutæki
sínu til skoðunar á réttum degi, verður hann látinn
sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og lögum um
bifreiðaskatt og ökutækið tekið úr umferð hvar sem til
þess næst.
Þetta tilkynnist öllum sem hlut
eiga að máli.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Daivík
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu
24. mars 1987.