Dagur - 01.12.1987, Síða 9
8 - DAGUR - 1. desember 1987
1. desember 1987 - DAGUR - 9
Helsprengjan
- eftir Alistair MacLean
Iðunn hefur gefið út nýja bók eft-
ir meistara spennusagnanna,
Alistair MacLean og nefnist hún
Helsprengjan. í kynningu útgef-
anda á efni bókarinnar segir:
„Ótrúlegir atburðir eiga sér
stað í Eyjahafi fyrir augum Tal-
bots skipstjóra og áhafnar hans,
sem eru þar í vísindaleiðangri á
skipi sínu. Neyðarkall berst til
þeirra - en of seint. Peir horfa
upp á brennandi snekkju hverfa í
öldurnar - og andartaki síðar
hrapar flugvél í hafið á sömu
slóðum.
Er þetta tilviljun eða býr hér
eitthvað dularfullt að baki? Tvö
stórslys og aðeins ein skipshöfn
til vitnis.
En Talbot skipstjóri er ekki
allur þar sem hann er séður. Með
ýmsum brögðum tekst honum að
afhjúpa sannleikann... skipulagt
sanrsæri hryðjuverkamanna og
eiturlyfjasmyglara sem gæti haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar.11
Bækur Alistair MacLean hafa
notið ótrúlegra vinsælda meðal
íslenskra lesenda og verið sölu-
hæstar spennubóka hér á landi
um árabil.
Andrés Kristjánsson þýddi.
Fjölskyldu-
söngvar
Um þessar mundir kemur fyrir
almennings sjónir safn fimmtán
sönglaga, er bera heitið „Fjöl-
skyldusöngvar". Útgefandi er
Steinn Stefánsson fyrrum skóla-
stjóri á Seyðisfirði og organleik-
ari við Seyðisfjarðarkirkju. Árið
1976 gaf Seyðisfjarðarsöfnuður
út „Tólf sönglög“ eftir Stein.
Munur Fjölskyldusöngva og
fyrri bókarinnar er sá að, að
þessu sinni er meginhluti söng-
laganna saminn af Arnþrúði Ing-
ólfsdóttur, eiginkonu Steins Stef-
ánssonar, en hún andaðist árið
1964. Hefur Steinn raddsett lögin
og búið þau til prentunar. Fjöl-
skyldusöngvar eru þannig öðru
fremur gefnir út í minningu Arn-
þrúðar Ingólfsdóttur.
Jafnframt eru í bókinni nokkur
lög eftir aðra ástvini Steins Stef-
ánssonar svo sem Eyjólf Stefáns-
son, bróður útgefanda og Ingólf
Hrólfsson, tengdaföður hans.
Eyjólfur var framan af ævi bóndi
á Kálfafelli í Suðursveit, en síðar
búsettur á Höfn í Hornafirði, þar
sem hann m.a. var kirkjuorgan-
isti um árabil. Ingólfur Hrólfsson
var upphaflega bóndi á Vakurs-
stöðum í Vopnafirði og eftir það
verkamaður á Seyðisfirði. Loks
má nefna lög eftir börn Steins,
Ingólf, er á sínum tíma söng í
„Þokkabót“ og á þar nokkur lög
á hljómplötum, Iðunni og Heimi.
Steinn Stefánsson hefur raddsett
öll þau lög, sem birtast í Fjöl-
skyldusöngvum. Sjálfur hefur
hann frumsamið fjögur lög í safn-
inu.
Fjölskyldusöngvar bera vitni
uppruna höfundar og æviferli. Er
bókin myndskreytt m.a. með efni
úr Austur-Skaftafellssýslu og frá
Seyðisfirði. Sum þeirra sönglaga,
sem hér liggja frammi, hafa áður
verið flutt af Söngfélagi Skaftfell-
inga og Samkórnum Bjarma á
Seyðisfirði.
Stefán Jónsson:
Að breyta fjalli
Nýverið sendi bókaforlagið Svart
á hvítu hf. frá sér bókina „Að
breyta fjalli" eftir Stefán
Jónsson. Stefán var vinsæll
fréttamaður og dagskrárgerðar-
maður á Ríkisútvarpinu í um það
bil aldarfjórðung en á þeim tíma
sendi hann frá sér allmargar
bækur. Fyrsta bók Stefáns kom
út árið 1961 og síðan nánast ein á
ári til ársins 1971 er veiðihand-
bókin „Með flugu í höfðinu"
kom út. Þekktustu og vinsælustu
bækur Stefáns eru sennilega „Jó-
hannes á Borg“, ævisaga Jóhann-
esar Jósefssonar, vertíðarsagan
„Mínir menn“ og „Þér að segja",
veraldarsaga Péturs Hoffmanns
Salómonssonar.
í bókinni „Að breyta fjalli"
rekur Stefán mismunandi sann-
sögulegar minningar frá uppvaxt-
arárum sínum á Austur- og
Norðurlandi á árunum fyrir síð-
ari heimsstyrjöld en skírskotar
víða til nútímans. í þessari bók
koma fram bestu eiginleikar Stef-
áns sem rithöfundar: Óborgan-
legur húmor og frásagnargleði
sem hvort tveggja helgast af því
að honum þykir einfaldlega svo
vænt um þetta fólk sem útbjó
nestið sem hann lagði upp með
og „hrífst ekki síður af löstum
þess en kostum“. Þetta eru ekki
venjulegar bernskuminningar,
nær væri að segja að hér sé um
„einskonar bernskuminningar“ að
ræða, skrifaðar að hætti Stefáns
Jónssonar, en í inngangskafla
bókarinnar segir hann m.a.:
„Ég hef skrifað bernsku-
minningar í þetta kver án nokk-
urra vilyrða um sannindi, bein-
línis í þeirri mynd sem þær hafa
þyrlast upp úr rykugu hugskoti
mínu... Én skáldsaga er þetta
ekki, nema þá að bernska mín
hafi verið það og ég þá að sára-
litlu leyti höfundur hennar."
Þetta er háalvarleg bók og
pólitísk á sinn hátt og hún er
framúrskarandi skemmtileg. Og
vissulega var gerð merkileg til-
raun til að breyta einu form-
fegursta fjalli á íslandi, sjálfum
Búlandstindi. Reyndar stóð líka
til að breyta ýmsu öðru en margt
fer öðruvísi en ætlað er.
Ráðgátan á
Rökkurhólum
- eftir Enid Blyton
Komin er út hjá Iðunni fyrsta
bókin í nýjum, spennandi flokki
eftir höfundinn sívinsæla, Enid
Blyton. Nefnist hún Ráðgátan á
Rökkurhólum. Allir krakkar
þekkja Ævintýrabækurnar, Dul-
arfullu bækurnar og bækurnar
um félagana fimm, en hér kynn-
umst við nýjum söguhetjum.
Krakkarnir í Ráðgátan á Rökk-
urhólum lenda í æsispennandi
ævintýrum.
Fimm og leyni-
hellirinn
- eftir Enid Blyton
Komin er út hjá Iðunni ný bók
eftir Enid Blyton um félagana
fimm og nefnist hún Fimm og
leynihellirinn. Þetta er sjálfstæð
saga en söguhetjurnar eru þær
sömu og í fyrri bókum þessa vin-
sæla flokks. Um efni bókarinnar
segir: „Félagarnir fimm ætla sér
ekki að lenda í neinum ævintýr-
um í páskaleyfinu. Þau fá það
hlutverk að líta eftir Vilmundi,
ungum dreng sem hefur einstakt
lag á dýrum, og hann og Tomnii
verða góðir vinir, Georgínu til
mikillar gremju. En ævintýrin
virðast elta félagana fimrn uppi.
Þau taka á leigu bát... og lenda á
Hvískurey. Þar eru gamlar kast-
alarústir og þar hafa orðið dular-
fullir atburðir. Brátt kemur í Ijós
að enn er eitthvað undarlegt á
seyði á eynni. Það er meira að
segja skotið á Tomma... Fyrr en
varir komast krakkarnir að því
að hér eiga þau í höggi við hættu-
legan glæpaflokk sem einskis
svífst."
Bókina þýddi Sævar Stefáns-
son.
Sambúð manns
og sjávar
- eftir Gísla Pálsson
Bókaútgáfan Svart á hvítu hefur
sent frá sér bókina Sambúð
manns og sjávar eftir Gísla
Pálsson.
Efni þessarar bókar varðar
okkur öll af þeirri einföldu
ástæða að fáar þjóðir eru eins
háðar fiskveiðum og íslendingar.
í bókinni er m.a. fjallað um
landskunna aflaskipstjóra eins og
Binna í Gröf, Eggert Gíslason
o.fl. og leitað skýringa á frægð
þeirra. Þeirri kenningu er varpað
fram að aflasæld ráðist ekki af
hæfileikum einstakra skipstjóra
en sú staðhæfing hefur vakið
miklar deilur.
Ennfremur er leitað svara við
ýmsum öðrum áleitnum spurn-
ingum, t.d. hvaða augum líta
sjómenn á starf sitt? Fjölskyld-
una? Hvernig er framleiðslunni í
landi og verkaskiptingu kynjanna
háttað? Verður kvótakerfið þess
valdandi að aflakóngurinn skipar
ekki lengur þann sess sem hann
hafði í vitund þjóðarinnar?
Sambúð manns og sjávar
markar þáttaskil í allri umræðu
manna á meðal um fiskveiðimál
íslendinga.
1. janúar nálgast með staðgreiðslu
opinberra gjalda. Það er afar mikilvægt að
allir launamenn og launagreiðendur þekki
rétt sinn og skyldur í hinu nýja kerfi. Menn
eru því hvattir til að kynna sér málið vel og
leita upplýsinga séu þeir í óvissu.
HVAÐ FELSTÍ STAÐGREÐSLU?
I staðgreiðslu eru skattar dregnir af öllum
launum við hverja útborgun. Þar með talið
eru hvers konar greiðslur, hlunnindi og orlof.
Staðgreiðslan tekur yfir alla skatta og gjöld,
sem áður voru álögð á launamenn, nema eign-
arskatt sem áfram verður innheimtur eftir á.
ÚTREIKNINGUR OGINNHEIMTA
STAÐGREÐSLU
Launagreiðandi annast útreikning stað-
greiðslu starfsmanna sinna, innheimtir hana og
skilar til innheimtumanns mánaðarlega, einnig
af eigin launum. Sama skatthlutfall er notað við
afdrátt af öllum launum óháð upphæð þeirra.
FRÁDRÁTTUR í STAÐGREÐSLU
Allir launamenn fá árlegan persónuaf-
slátt sem dreginn er af staðgreiðslunni. Að öllu
jöfnu er persónuafslátturinn sá sami hjá öllum
launamönnum. Persónuafslættinum er skipt
jafnt á alla mánuði ársins.
Sjómenn og hlutráðnir landsmenn fá sér-
stakan sjómannaafslátt. Námsmenn fá hærri
persónuafslátt yfir sumarmánuðina.
Vaxtafrádráttur verður afnuminn en til
bráðabirgða verður þó veittur afsláttur til þeirra
er festu kaup á íbúðarhúsnæði eða hófu bygg-
ingu þess til eigin nota 1987 eða fyrr og hefðu
að óbreyttu notið vaxtafrádráttar. Þessi afsláttur
verður veittur í allt að 6 ár, frá og með 1988.
BÆTUR
Barnabætur með hverju bami innan 16
ára aldurs verða greiddar á 3ja mánaða fresti
og skiptast jafnt á milli hjóna (sambýlisfólks).
Húsnæðisbætur eru greiddar þeim sem
kaupir eða hefur byggingu íbúðarhúsnæðis
1988 eða síðar í fyrsta sinn eða til eigin nota
einnig þeim sem keyptu eða byggðu í fyrsta
sinn 1985-1987 ef þeir nutu ekki vaxtafrádrátt-
ar á þeim tíma. Réttur til bótanna varir í 6 ár, frá
og með upphafsári.
SKATTKORT
Allir, sem verða 16 ára og eldri á stað-
greiðsluári, fá sent skattkort fyrir upphaf stað-
greiðsluárs. Þar er mánaðarlegur persónuaf-
sláttur tiltekinn og einnig það skatthlutfall, sem
draga á af launum, auk helstu persónuupplýs-
inga, svo sem nafns, heimilis og kennitölu
launamanns.
Launamanni ber að afhenda launagreið-
anda sínum skattkortið fyrir upphaf stað-
greiðsluárs. Ef launagreiðandinn hefur ekki
skattkortið við útborgun launa, má hann
ekki draga persónuafsláttinn frá stað-
greiðslunni og launamaðurinn greiðir þar
með mun hærri fjárhæð. Þess vegna er mikil-
vægt fyrir launamann, að sjá til þess að launa-
greiðandinn fái skattkortið í tækatíð.
Þegar maki launamanns er tekjulaus get-
ur launamaðurinn einnig afhent launagreið-
anda sínum skattkort makans og þar með nýtt
80% af persónuaíslætti hans til viðbótar
sínum. Bam innan 16 ára fær ekki skattkort.
Skatthlutfall þess er 6% og það fær ekki per-
sónuafslátt.
STAÐGREÐSLAN ER EINFÖLD
OGAUÐSKILIN
Bæklingur með ítarlegum upplýsingum
um staðgreiðsluna hefur verið sendur inn á
hvert heimili landsins. Það er mikilvægt að lesa
þennan bækling vel og varðveita, þar sem
hann geymir nauðsynlegar upplýsingar um
staðgreiðslu. Launamenn fá skattkort sitt sent
næstu daga. Með því fylgja skýringar sem þeir
eru beðnir um að lesa vel, gera viðeigandi ráð-
stafanir og afhenda skattkortið síðan launa-
greiðandasínum.
Staðgreiðsla opinberra gjalda er breyt-
ing, sem beðið hefur verið eftir. Aðdragandi
hefur verið langur en nú er undirbúningur-
inn á lokastigi. Þetta er róttæk breyting til
einföldunar og hagræðis og snertir alla
skattgreiðendur. Þessi breyting verður
mun auðveldari ef allir skattgreiðendur
þekkja stöðu sína.
Staðgreiðslan ereintöld
- efþú þekkir hana
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI
AUKASKATTKORT
Launamaður getur fengið aukaskattkort ef
hann vinnur á fleiri en einum stað og vill skipta
persónuafslætti sínum til þess að nýta hann
betur. Einnig getur hann fengið aukaskattkort ef
hann vill afhenda maka sínum þann persónu-
afslátt, sem hann nýtir ekki sjálfur. Umsóknir
um aukaskattkort fást hjá skattstjómm.
ÁLAGNING OG FRAMTAL
Skattframtali ber að skila í staðgreiðslu
með hefðbundnum hætti. Að loknu stað-
greiðsluári fer fram álagning og síðan uppgjör
staðgreiðslu. Þegar sú fjárhæð, sem stað-
greidd hefur verið er borin saman við endan-
lega álagningu tekjuskatts og útsvars, kemur í
Ijós, hvort þessi gjöld hafi verið of eða van-
greidd. Verði um mismun að ræða er hann
endurgreiddur i einu lagi í ágúst eða innheimt-
ur eð jöfnum greiðslum í ágúst-desember að
viðbættri lánskjarav í sitölu.
SJÁLFSTÆÐIR REKSTRARAÐILAR
Sjálfstæðum rekstraraðilum er skylt að
reikna sér endurgjald af starfseminni og miða
staðgreiðslu sína við það og skila henni mán-
aðariega. Ríkisskattstjóri ákveður lágmark
endurgjalds.
SKATTLAGNING TEKNA
ÁRSINS 1987
Öllum ber að skila framtali á árinu 1988
vegna ársins 1987 eins og endranær. Inn-
heimta fellur hins vegar niður af öllum
almennum launatekjum. Undantekningar
eru þó gerðar
• eflaunhafaveriðyfirfærðáárið1987.
• ef hækkun launa verður hvorki rakin til auk-
innar vinnu, ábyrgðar né stöðuhækkunar.
• ef menn í eigin atvinnurekstri reikna sér
meira en 25% hærri laun fyrir 1987 en 1986
(með verðbótum).
• ef menn fá meira en 25% hærri laun fyrir
eignarhlutdeild en var árið 1987 (með verð-
bótum).
í þessum tilvikum verður aukningin skattskyld.