Dagur - 01.12.1987, Side 16
DACHJR
Akureyri, þriðjudagur 1. desember 1987
eiEMEkie
Rakatæki Útvarpsvekjarar Eldhúsútvarp með klukku Gufugleypar Vöfflujárn Mínútugrill Djúpsteikingarpottar SIR HF. Reynishúsinu ■ Furuvöllum 1 600 Akureyri ■ Sími 27788 Opið á laugardögum frá kl. 10-12.
Rúnturinn:
Verður hliðið
sett upp aftur?
- Var tekið niður vegna „viðgerðar“
„Hliðið var sett upp sam-
kvæmt eindregnum tilmælum
íbúanna í Miðbænum og ég
held að það breyti ekki miklu
þótt lokun umferðar um hring-
inn verði frestað þar til torgið
verður hellulagt,“ sagði Finnur
Birgisson, skipulagsstjóri
Akureyrarbæjar. A föstudag-
inn var hliðið fræga við Ráð-
hústorg tekið niður og kom því
ekki til frekari mótmæla um
helgina.
Á föstudaginn hafði bæjar-
stjóri Akureyrar samband við
bæjarfógetann og fóru þeir sam-
an til fundar ásamt yfirlögreglu-
þjóni. Á fundinum var rætt um
hvað réttast væri að gera því allir
væru sammála um að í óefni
stefndi þá um kvöldið í miðbæ
Akureyrar. Niðurstaðan varð sú
að fyrirskipun var gefin um það
til bæjarverkstjóra að taka skyldi
hliðið niður og færa það til við-
gerðar. Óvíst er um hvenær það
verður sett upp aftur.
kvöldið, og kveikja í því. Þá ætl-
uðu fjórir kraftakarlar að rífa
hliðið upp en þetta mun þó alger-
lega óstaðfest.
Rúntarar héldu fund á sunnu-
dagskvöld þar sem samþykkt var
að hefja aðgerðir að nýju ef hiið-
ið yrði aftur sett upp. Nauðsyn-
legt væri að halda fund með
bæjarstjórn og íbúum Miðbæjar-
ins. Þá var þeirri spurningu velt
upp hvers vegna torginu hafi ver-
ið lokað kl. 22.00 frekar en á öðr-
um tíma.
Yfirvöldum bæjarins höfðu
borist hótanir frá einstaklingum á
Akureyri um að þeir myndu
sparka í bíla á rúntinum og jafn-
vel skjóta á þá með haglabyssum
á föstudagskvöldið ef ökumenn
héldu áfram að aka flautandi um
bæinn. Vegna þessara yfirvofandi
átaka þótti ráðamönnum ábyrgð-
arleysi að forðast ekki vandræði
og var því hliðið tekið niður.
EHB/ET
í gær sögðum við frá því að tíkin Katla hefði verið með 5 rétta í lottóinu. Nú
hefur Degi borist mynd af þessari getspöku tík og með henni er ung vinkona
á Sauðárkróki. Mynd: -há.
Dræm
aðsókn að
Lokaæfingu
„Ég verð að viðurkenna það
að við bjuggumst við betri
aðsókn. Sýningin fékk nijög
góða krítík og ég held að yfir-
gnæfandi meirihluti þeirra sem
kom á sýninguna hafi verið
mjög hrifinn,“ sagði Pétur
Einarsson leikhússtjóri, en
aðeins um 1000 áhorfendur sáu
hina stórbrotnu sýningu Leik-
félags Akureyrar á Lokaæf-
ingu Svövu Jakobsdóttur.
Pétur sagðist ekki geta fundið
einhlíta skýringu á þessari dræmu
aðsókn. Samkeppnin við sjón-
varpið og ýmsar skemmtanir væri
vissulega alltaf fyrir hendi, „en
maður veit ekki hvers vegna
aðsóknin varð ekki betri.
Skýringanna hlýtur að vera að
leita hjá fólkinu sjálfu, en það
kostar skoðanakönnun,1' sagði
Pétur.
Hann sagði að vitanlega væri
ekki hægt að draga fólk nauðugt í
leikhús, það yrði að koma af
áhuga. Ef þetta væri sjónvarpið
sem héldi fólki frá leikhúsinu þá
sagðist hann vona að þróunin
yrði svipuð og í Reykjavík, en
fólk þar væri farið að gera sér
grein fyrir því að sjónvarpið væri
ekki ómissandi, enda hefði
aðsóknin í leikhúsin þar verið
mjög góð. SS
Þeir, sem fyrir mótmælunum
stóðu ætluðu, að sögn, að draga
bílhræ að hliðinu á föstudags-
Hliöiö sem deilt er um.
Björn Þórhallsson varaforseti ASÍ:
Samningar gagnslausir ef
ríkisvaldið er ábyrgöarlaust
- Siðleysi að tala um verkfall nú
í gær var haldinn sambands-
stjórnarfundur ASI. Björn
Þórhallsson varaforseti sagði
i fyrir fundinn að kjaramálaum-
ræða yrði þar ofarlega á
dagskrá. Björn sagði aðspurð-
ur um stöðuna í samningavið-
ræðum, að hún hafi verið að
breytast síðustu vikur. Menn
hafi ekki búist við að sú staða
kæmi upp að samningar milli
VMSÍ og vinnuveitenda
myndu stöðvast.
„Persónulega finnst mér að
það hljóti að stefna að því að
menn taki saman höndum á
breiðari grundvelli, um að átta
sig á meginatriðum sem ganga
þarf frá í kjaramálum." Björn
sagði að ekki hefði verið rætt um
þetta formlega meðal forystu-
manna verkalýðsfélaganna.
„Ég tel óhugsandi að áreiðan-
leg niðurstaða kjarasamninga
náist nema með þátttöku stjórn-
valda. Það er ekki hægt að semja
um verðtryggingu eða efnahags-
stefnu við einstök félög. Samn-
ingar verða gagnslausir ef ríkis-
valdið er ábyrgðarlaust í þeim og
getur komið inn hvenær sem er
og gert þá ógilda." Björn sagði
að viljayfirlýsingu þessa efnis
Gámaútflutningurinn frá Dalvík:
„Kannast ekki við samkomulagsbrof
-segir Valdimar Bragason, útgerðarstjóri Útgerðarfélags Dalvíkinga
„Ég kannast ekki við að það
hafi verið gert neitt samkomu-
lag sem hægt sé að tala um að
hafi verið brotið,“ sagði Valdi-
mar Bragason, útgerðarstjóri
Útgerðarfélags Dalvíkinga hf.
vegna ummæla Gunnars Aðal-
björnssonar frystihússtjóra á
Dalvík í blaðinu í gær þess efn-
is að samkomulag fiskvinnslu
og útgerðar um hráefni til
frystihússins hafi verið brotið.
Valdimar sagði að í haust hafi
verið ákveðið að ekki yrði mark-
að hlutfall sem færi í gáma heldur
mundu menn ekki hunsa að
landa í heimahöfn og það liafi
fiskiskipin ekki gert. Hann sagði
að í samkomulaginu í haust hafi
Gunnar óskað eftir að frystihúsið
fengi 50-70 tonn af fiski á viku
sem lágmark og við það hafi ver-
ið staðið. „Við getum eins sagt að
við höfum staðið við þær kröfur
sem gerðar voru á þeim tíma en
frystihúsið sé bara að færa sig
upp á skaftið í kröfum," segir
Valdimar.
Valdimar sagði að vissulega
ráði áhafnir skipanna einhverju
!um hvort aflanum er landað í
Landað í gám. Mynd: et
gáma eða ekki. Nú fáist gott verð
fyrir fiskinn erlendis, allt upp í
þrefalt verð á við hér heima.
Áhafnanna sé því hagurinn ekki
síður en útgerðarinnar.
„Skipin eru nú að verða búin
með kvóta sinn og eru því að
veiða fisk sem lítið fæst fyrir hér
heima en mikið erlendis. Það er
erfitt að veiða þennan fisk, bæði
lítill afli og kostnaðarsöm útgerð.
Því reynir útgerðina að nýta sér
hversu hátt verð fæst fyrir fiskinn
erlendis og flytur hann á erlenda
markáði,“ segir Valdimar Braga-
son. JOH
mætti lesa úr niðurstöðum víða
t.d. eftir þing verslunarmanna,
hjá rafiðnaðarmönnum og fleir-
um. „Hjá Verkamannasam-
bandinu eru hins vegar vandamál
því þar er fólk misjafnlega statt
og launaskrið hefur verið minna
en annars staðar. En það græðir
enginn á að hlaupa frá vandamál-
inu og bíða eftir einhverju sem
þeir vita ekki hvað er.“
Aðspurður um hvort hann
teldi að önnur aðildarfélög ASÍ
færu hugsanlega í verkfall með
VMSÍ sagði hann: „Það getur
komið til verkfalla ef engar
undirtektir verða við því sem
verkalýðshreyfingin vill fá fram,
en tala um verkfall áður finnst
mér hreint ekki siðlegt. Ég hef
ekki séð þeirra kröfur en mér
skilst að vinnuveitendur vilji ekki
fara í samninga nema á breiðari
grundvelli en þeim sem þar er
settur fram.“ VG