Dagur - 29.03.1995, Síða 24
Akureyri, miðvikudagur 29. mars 1995
Wmuhúsið
Hafnarstræti 106 - Sími 27422
Akureyri:
Fjölskylduhátíð um páskana
- útivera, skemmtun, afslöppun, menning og listir o.fl. o.fl.
Hagsmunaaðilar í ferðaþjón-
ustu á Akureyri hafa tekið
höndum saman og beita sér fyrir
viðamikilli fjölskylduhátíð í
kringum páskana, Páskar á Ak-
ureyri. Aðal dagskráin stendur
yfir dagana 11.-17. apríl, frá
þriðjudegi og fram á annan í
páskum, en formleg setning há-
tíðarinnar verður nk. föstudag á
Ráðhústorginu á Akureyri. Sú
dagskrá sem í boði verður er af-
ar fjölbreytt og þegar hún er
skoðuð koma best í ljós þeir
nánast óendanlegu möguleikar
til afþreyingar sem standa til
boða í bænum. Er ljóst að allir
geta fundið eitthvað við sitt
hæfi.
„Það er Akureyri sem við erum
aó koma á framfæri fyrst og
fremst, benda á þá möguleika sem
bærinn okkar býður upp á. Sam-
starf vió bæjaryfirvöld hefur verið
afar gott og bærinn tekur þátt í
þessu með okkur,“ sagði Magnús
Már Þorvaldsson, starfsmaður
nefndar sem unnið hefur að skipu-
lagningu Páska á Akureyri. Hann
sagði ástæðuna fyrir þessu fram-
taki kannski helst þá að fá fólk til
bæjarins og fá þaó til að dvelja
lengur á staðnum og notfæra sér
allt það sem bærinn býður upp á.
En hátíðin er ekki síður fyrir
heimafólk og til þess gerð að
virkja þaó í að skemmta sjálfum
sér og öðrum um páskana þannig
að ferðafólk geti átt ánægjulegar
minningar um dvölina. Þess má
geta að sami hópur stóð fyrir dag-
skrá á Akureyri um síðustu versl-
unarmannahelgi sem tókst mjög
vel.
Allt of langt mál yrði að telja
upp allt það sem í boöi verður
þessa daga, en dagskráin verður
rækilega auglýst í fjölmiðlum og
með veggspjöldum. Skíðasvæðió í
Hlíðaríjalli myndar auóvitaó
ákveðna kjölfestu, enda löng hefð
fyrir því að koma á skíði til Akur-
eyrar, og verður Fjallið opið alla
dagana. Ekki má heldur gleyma
gönguskíðasvæðunum og skauta-
svellinu. Líkamsræktarstöðvar
verða opnar, sem og sólbaðstofur.
Rúsínan í pylsuendanum er svo að
enda útveru dagsins i Sundlaug
Akureyrar, sem opin verður
óvenju lengi, eða til kl. 19.00 á
kvöldin.
En lífið er ekki bara útivera. Af
helstu nýjungum í skemmtanalíf-
inu má nefna að nú verða dans-
leikir eftir miðnætti á föstudaginn
langa og páskadag. Veitingahús
bæjarins eru opin alla dagana fram
á kvöld, svo ekkert er því til fyrir-
stöðu að nálgast kræsingar í mat
og drykk.
En kræsingamar sem boðið er
uppá eru líka af öðrum toga. Þar
kemur að þætti menningar og lista
en á því sviði rekur hver stórvió-
burðurinn annan. Leikfélag Akur-
eyrar er eina atvinnuleikhús lands-
ins sem sýnir um páskana og þar
er á ferðinni Döflaeyjan eftir sögu
Einars Kárasonar í leikgerð Kjart-
ans Ragnarssonar. Alls veróa fjór-
ar sýningar um páskana og má t.d.
nefna miónætursýningr. á föstu-
daginn langa.
Kælismiðjan Frost:
Hagnaðurá
fýrsta starfsári
Um síðustu helgi var aðal-
fundur Kælismiðjunnar
Frost hf. og jafnframt var árshá-
tíð fyrirtækisins haldin. Starf-
semin er sem kunnugt er á
tveimur stöðum, Akureyri og í
Kópavogi. SI. ár var fyrsta
starfsár fyrirtækisins og er
óhætt að segja að byrjunin lofl
góðu. Var veltan rúmlega 270
milljónir og hagnaður 5 milljón-
ir. Starfsmenn eru samtals 35,
þar af 14 á Akureyri og er mikið
að gera hjá fyrirtækinu.
Breytingar eru framundan á
húsnæðismálum, en fest hafa ver-
ið kaup á húsnæöi að Fjölnisgötu
4b á Akureyri. „Þetta er fyrsta
skrefió í endurskipulagningu á
húsnæðismálum. Við höfum verið
í leiguhúsnæði hér við Draupnis-
götuna en kaupum nú vió Fjölnis-
götuna. Þar höfum vió jafnframt
möguleika á að byggja við. Síóan
seldum við húsnæðið okkar í
Kópavogi og ætlum í staðinn aó
leigja í Reykjavík,“ sagði Elías
Þorsteinsson hjá Kælismiðjunni
Frost. Hann býst við að flutt verði
í nýja húsnæóið við Fjölnisgötuna
í byrjun júní.
Að sögn Elíasar eru næg verk-
efni hjá fyrirtækinu. Stærstu verk-
efnin um þessar mundir er niður-
setning á frystikerfi sem Frost
seldi í togarann Ólaf Jónsson frá
Sandgerói, en breytingar á honum
fara fram í Stálsmiðjunni í
Reykjavík. Þá seldi fyrirtækið ný-
lega fyrsta íslenska ammoníak-
kerfið um borð í skip og fer það í
togarann Engey. Einnig eru menn
frá fyrirtækinu að setja upp tækja-
búnaó í frystigeymslu Eimskips í
Reykjavík. Annars eru verkefnin
víða, t.d. í verslunum, frystihús-
um, mjólkursamlögum og slátur-
húsum, auk viðgeróa á ísskápum
og frystikistum fyrir heimili.
Ein þeirra sem unnið hefur að undirbúningi Páska á Akureyri cr B. Unnur
Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Umferðarmiðstöðvarinnar á Akureyri.
Hún heidur hér á veggspjaldi þar sem þessi fjölbreyta fjöiskylduhátið er
auglýst. Mynd: Halldór.
í listamiðstöðinni í Grófargili
verður margt á döfinni og þá eru
ótaldir stórtónleikar Kristjáns Jó-
hannssonar og Sigrúnar Hjálmtýs-
dóttur í KA-heimilinu. Þá má ekki
gleyma söfnum bæjarins.
Af einstökum dagskrárviðburó-
um er t.d. vert að minnast á úti-
vistardagskrá fyrir alla fjölskyld-
una á Súlumýrum á föstudaginn
langa. Að henni standa Hjálpar-
sveit skáta, Landssamband ísl.
vélsleðamanna og 4x4-klúbbur-
inn. Þar geta allir mætt, hvort sem
þeir hafa yfir farartæki að ráða
eða ekki, en hægt verður að fá far
með bílum .eða láta draga sig á
skíðum. Bautabúriö verður með
grillveislu við Súlurætur kl. 15.00.
Daginn eftir verður svokölluð
Matthíasarganga, tileinkuó þjóð-
skáldinu, úr miðbænum og að
Lystigarðinum. Þar verður fjölda-
söngur og endaó á flugeldasýn-
ingu.
Hér hefur aðeins fátt eitt verið
nefnt, en sem fyrr segir verður
dagskráin rækilega auglýst og um
að gera fyrir jafnt heima- sem að-
komufólk að nýta sér það sem í
boði er. HA
Húsavík:
Hefill á bíl
Bíll skemmdist í Laugar-
brekku á Húsavík í gær-
morgun er snjóruðningstæki
bakkaði á hann.
Víða eru snjógöng á götum
Húsavíkur sökum fannfergisins og
blindhom og beyjur þar sem
venjulega er góð útsýn á gatna-
mótum. Snjóruðningstæki em að
störfum og eins gott fyrir öku-
menn að hafa andvara á og stöðva
bíla sína ekki rétt aftan við þau.
IM
Nýr kjarasamningur kennara og ríkisins á grundvelli sáttatillögu ríkissáttasemjara:
Skiptar skoðanir meðal kennara
VEÐRIÐ
Veóurstofan spáir hlýnandi
veðri og suðlægum áttum
næstu daga. Á Norðurlandi
verður sunnan og suðaust-
an kaldi eða stinningskaldi í
dag og víða slydda eóa
rigning. Úrkomulítió ætti aó
vera norðanlands á morgun
og a.m.k. 5 stiga hiti. Á
föstudag frystir aftur um
land allt en áfram verða
suðlægar áttir.
Gildistími nýs kjarasamnings
kennarafélaganna og ríkis-
ins er til 31. desember 1996.
Kjarasamningurinn byggir á
sáttatillögu Þóris Einarssonar,
ríkissáttasemjara, sem hann
lagði fram sl. mánudag og báðir
deiluaðilar samþykktu. Sam-
kvæmt viðtölum sem blaðið átti
í gær við kennara er ljóst að
meðal þeirra eru afar skiptar
skoðanir á þessari lendingu, en
meirihluti fulltrúaráða kennara-
félaganna mat það svo í fyrra-
kvöld að rétt væri í stöðunni að
fallast á sáttatillögu ríkissátta-
semjara.
Samkvæmt tillögu ríkissátta-
semjara hækka laun kennara strax
um 3,1% og önnur 3% hækkun
tekur gildi 1. janúar nk. I kaflan-
um um launabreytingar vegna
skipulagsbreytinga kemur fram að
laun kennara hækki um einn
launaflokk eftir eins árs kennslu-
feril frá og með gildistöku samn-
ingsins og frá og með 1. mars
1996 hækki laun kennara eftir
tveggja ára kennsluferil um einn
launaflokk.
1 kaflanum um skipulagsbreyt-
ingar á skólastarfmu kemur eftir-
farandi fram:
- Kennslu- og prófadagar í
framhaldsskólum skulu vera 175.
- Kennslu- og prófadagar í
grunnskólum og aðrir starfsdagar
nemenda skulu vera 170 en
bundnir vinnudagar kennara 5 að
auki.
- Bundnir vinnudagar kennara
í grunnskólum skulu í ágúst og
júní vera sex.
- Bundnir vinnudagar kennara
í framhaldsskólum skulu í ágúst
og júní vera fjórir.
Almenn kennsluskylda
grunnskólakennara verði 28
stundir á viku.
- Kennsluskylda grunnskóla-
kennara með 15 ára kennsluferil
lækki um eina stund á viku.
- Kennsluskylda grunnskóla-
kennara sem er orðinn 55 ára
verói 24 stundir á viku enda hafi
hann 10 ára kennsluferil.
- Kennsluskylda grunnskóla-
kennara sem er orðinn 60 ára skal
vera 19 stundir á viku enda hafi
hann 10 ára kennsluferil.
- Almenn kennsluskylda fram-
haldsskólakennara verði 25 stund-
ir á viku.
- Kennsluskylda framhalds-
skólakennara með 15 ára kennslu-
feril verði 23 stundir á viku.
- Kennsluskylda framhalds-
skólakennara sem orðinn er 55 ára
verói 22 stundir á viku.
- Kennsluskylda framhalds-
skólakennara sem orðinn er 60 ára
verði 17 stundir á viku.
Sett verður á stofn samstarfs-
nefnd kennarafélaganna og ríkis-
ins til ákvörðunar um önnur efnis-
atriði sem ágreiningur kann að
verða um. Þetta eru; greiðsla dag-
peninga á námskeiðum, hámark
yfirvinnu, álag í öldungadeildum,
meistaraskóla og sambærilegu
námi, kennsluskylda og yfirvinna
skólastjómenda, málefni sérhópa
og tilrauna- og þróunarstarf í skól-
um. Gert er ráð fyrir að samstarfs-
nefndin hafi afgreitt ágreinings-
efni sín fyrir 15. maí nk. Takist
nefndinni ekki að komast að sam-
komulagi um einhver ágreinings-
efni skal vísa þeim til sérstakrar
úrskuróamefndar. óþh
Innanhúss-'1
mólning
10 lítrar
kr. 4.640.-
KAUPLAND
a. Kaupangi • Sími 23565 B
L...............J