Dagur - 10.11.1995, Qupperneq 3
FRETTIR
Föstudagur 10. nóvember 1995 - DAGUR - 3
Sigurkarl með bikarana sem hann vann á íslandsmeistaramótinu um helg-
ina. Mynd: Halldór.
Með þrjú silfur og eitt gull á
íslandsmeistaramóti í hárskurði:
Ég ætlaöi
mér meira
- segir Sigurkarl Aðalsteinsson
Sigurkarl Aðalsteinsson, eigandi
Hársnyrtistofunnar Passion á
Akureyri og margfaldur íslands-
meistari í hárskurði, keppti um
síðustu heigi á íslandsmótinu
sem haldið var í Reykjavík.
Keppnin samanstendur af þrem-
ur greinum og varð Sigurkarl
tvívegis í öðru sæti og vann eina
grein. í samanlögðu urðu tveir
efstir og jafnir og var Sigurkarl
síðan dæmdur í 2. sæti. Hann
náði því ekki að verja íslands-
meistaratitil sinn en segir að sig-
urvegarinn, Ómar Diðriksson,
hafi verið vel að sigrinum kom-
inn.
Fyrsta greinin er listræn út-
færsla og þar varð Sigurkarl að
sætta sig við annað sæti, einu stigi
á eftir sigurvegaranum. Önnur
greinin er tískulína og þar var röð-
in sú sama. Síðasta greinin, sem
menn kalla skulptui, er að sögn
Sigurkarls sú erfiðasta og hana
vann hann með fullu húsi stiga,
nokkru á undan næsta manni.
„Samanlagt enduðum við Ómar
því jafnir og eftir mikla rekistefnu
var hann dæmdur sigurvegari, sem
ég er mjög sáttur við. Hann stóð
sig betur en ég þennan dag, vann
tvær greinar þannig að mér finnst
þetta mjög sanngjart og ég sam-
gleðst honum með þetta,“ sagði
Sigurkarl, en er langt í frá ánægður
með eigin frammistöðu. „Ég var
að gera óvenjulegar vitleysur sem
ég er ekki vanur að gera í keppni,
en það hlaut að koma að þessu.
Þetta eru kannski ekki stór mistök,
en skipta máli þegar upp er staðið.
Auðvitað á maður að vera sáttur
við þetta, en ég ætlaði mér meira.“
Þrír efstu keppendumir skipa
landsliðið í hárskurði sem keppa
mun á Heimsmeistaramótinu í
Washington næsta sumar. Sigur-
karl er raunar orðinn vanur keppn-
um erlendis sem landsliðsmaður
og er t.d. nýkominn heim frá
Norðurlandamótinu í Gautaborg.
„Þar stóð ég mig best allra íslend-
inga, þó ég hafi verið hundfúll
með minn árangur. Þetta er búin
að vera alveg rosaleg töm og
maður er hreinlega uppgefinn eftir
að þurfa að æfa undir tvö mót
samtímis. Maður reynir að æfa sig
á kvöldin og þetta er því botnlaus
aukavinna og ekkert annað. Ég
hef haft mjög gaman af þessum
keppnum en núna var ég mjög illa
upplagður, kom allt of þreyttur og
hafði ekki náð að æfa mig nóg,
enda var árangurinn eftir því. En
ég ætla ekkert að hætta strax, enda
þyrftu keppendur að vera fleiri ef
eitthvað er,“ sagði Sigurkarl. HA
Steingervingafundur
í Vatnsdalsfjalli
í nýjasta tölublaði Náttúrufræð-
ingsins segir Ólafur R. Dýr-
mundsson, ráðunautur hjá
Bændasamtökum íslands, frá
því að hann hafi fundið stein-
gerving í Vatnsdalsfjalli í Aust-
ur-Húnavatnssýslu.
Steingervinginn fann Ólafur
norðan við Aralæk, um 50 metra
neðan Tvífossa, í um 200 metra
hæð yfir sjávarmáli. Um var að
ræða stein á að giska annan tug
kflóa á þyngd og kom í ljós við
nánari skoðun að þetta var hluti af
steinrunnum viðardrumbi.
Fyrir nokkrum ámm fannst
lófastórt brot af steinrunnum trjá-
berki á svipuðum slóðum í Vatns-
dalsfjalli, en Leifi Sveinbjömssyni
á Hnausum er ekki kunnugt um að
aðrir steingervingar hafi fundist á
þessum slóðum. „Steingervingam-
ir sýna að á tertíertímabilinu, lík-
lega fyrir 5-6 milljón árum, hefur
vaxið skógur með gildum trjám á
þessum slóðum," sagði Ólafur R.
Dýrmundsson m.a. í grein sinni í
Náttúrufræðingnum. óþh
Söngfólk leggst í víking:
Fjórir kórar á Norður-
landi utan í júní
A.m.k. fjórir norðlenskir kórar
hyggja á söngferðalög erlendis á
vori komanda. Þetta eru Karla-
kór Akureyrar/Geysir, Kór Ak-
ureyrarkirkju, kvennakórinn
Lissý og karlakórinn Heimir.
Allir stefna kórarnir á júní,
þannig að á þeim tíma verður
óvenju lítið um söngfólk á Norð-
urlandi.
Karlakór Akureyrar/Geysir
hefur sett stefnuna á Noreg og er
ætlunin að fara út um 19. júní og
vera í hálfan mánuð. „Við ætlum
að fara um svæðið frá Bergen til
Þrándheims og halda þar nokkra
tónleika. Við eigum þama ágætis
heimboð frá kómm eins og í Ala-
sundi. Við tókum á móti þeim í
sumar og ætlum nú að herma upp
á þá heimboð," sagði Tryggvi
Pálsson, formaður kórsins. Hann
sagðist gera sér vonir um að milli
30 og 40 söngmenn fæm, þannig
að hópurinn í heild gæti talið 70-
80 manns.
„Við ætlum okkur að fara í júní
og koma við í Danmörku, Svíþjóð
og Noregi,“ sagði Svanhildur Her-
mannsdóttir, formaður kvenna-
kórsins Lissý. Hún sagði stefnt á
að halda 6-8 tónleika. Við syngj-
um alla vega á þremur stöðum í
Danmörku, einum í Svíþjóð og
tveimur í Noregi og fleiru gætu
bæst við. Síðan ætlum við halda
tónleika hér heima áður en við
förum.“ Hún bjóst við að hópur-
inn í allt myndi telja um 60
manns. Æfingar á dagskránni eru
þegar hafnar og innan skamms
hefjast æfingar á nýju verki, sem
skrifað hefur verið sérstaklega
fyrir kórinn.
Kór Akureyrarkirkju stefnir á
að fara til Kanada í júnímánuði.
Að sögn Elínar Stephensen, for-
manns kórsins, er nákvæmur
áfangastaður ekki ákveðinn, en
tveir staðir lcoma til greina. Hún
sagði að gert væri ráð fyrir
tveggja vikna ferð, en sagði að
öðm leyti erfitt að fara út í smáat-
riði, þar sem enn em tveir mögu-
leikar í gangi sem fyrr segir.
Karlakórinn Heimir í Skaga-
firði hyggur einnig á Kanadaferð í
júní, en endanleg ákvörðun hefur
þó ekki verið tekin, að sögn for-
manns kórsins, Þorvaldar G. Ósk-
arssonar. „Það hefur nefnd manna
úr kómum verið að vinna af krafti
í málinu og það er komin sæmi-
lega góð umgörð utanum þetta allt
saman. Ég á von á að lokaákvörð-
un liggi fyrir innan skamms,“
sagði Þorvaldur. HA
AKUREYRI«ODDI*A«AKUR.EYRI'
#okkuttæröþútölvupapp/f)/yo^
%
Íddi
► A • A K U lí-E V P 1 • O D D I • A • A K U li E V lí 1 • O D D 1 ■
‘Nii Imeðjum
mðgatt óiimar
og pöntum inn iyrir veturinn.
Hjá umboðsaðila okkar á Akureyri,
Límmiðum Norðurlands, bjóðum við
allar vörur fyrir skrifstofuna á frábæru
verði. Komið og skoðið úrvalið (eða
pantið vörulista).
Límmiðar Norðurlands
á Afeureyri Strandgötu 31 • Sími 462 4166 • Fax 461 3035
• ti n m v » y »i (] ci O'iti á a a n » v » v »10 (i o 11 ti a -I d ii )i v «v «i q (i o »iti.\ a n n m v • v • i ci u o • i a a 3 a n m v • y • i a a o •
ODDl«Á«AKUBEYMI*ODD