Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Page 5
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994
5.
Fréttir
Skipulagsnefnd líst ekki á útlit fyrirhugaðrar sendiráðsbyggingar að Laufásvegi 31:
Oskar eftir nýrri tillögu
Skipulagsnefnd Reykjavíkurborg-
ar hefur hafnað tillögu breska og
þýska sendiráðsins að skrifstofu-
byggingu á lóðinni númer 31 við
Laufásveg í Reykjavík og óskað eftir
nýrri tillögu þar sem gert er ráð fyr-
ir tveimur tveggja hæða húsum með
léttri tengibyggingu á lóðinni. Sam-
kvæmt tilmælum nefndarinnar er
ætlast til að húsin verði færð aftar í
lóðina í takt við önnur hús í nágrenn-
inu og skal gengið frá aðkomunni við
Laufásveg þannig að ekki verði til
lýta. Öll bílastæði fyrir skrifstofu-
bygginguna eiga að vera neðanjarö-
ar. Óformlegar viðræður eru hafnar
en ný tillaga hefur ekki veriö lögð
fram.
„Skipulagsnefnd samþykkti að
hafna tillögunni alfarið því að allir í
nefndinni voru á móti þessari tillögu.
Ég var sett í viðræður til að kanna
meðal annars hvað sendiráðin teldu
ófrávíkjanlegt og hverju mætti
breyta í húsinu án þess að í því felist
samþykkt eða synjun á þessu stigi.
Þetta er meira spurning um að kom-
ast að samkomulagi,“ segir Guðrún
Jónsdóttir, fulltrúi Reykjavíkurhst-
ans í skipulagsnefnd borgarinnar.
Skipuiagsnefnd hefur skipað
óformlega viðræðunefnd til að kom-
ast að samkomulagi við fulltrúa
þýska og breska sendiráðsins og er
búist við að fljótlega skýrist hvort
sendiráðin telji sig geta gengið að
skilyröum borgarinnar. í viðræðu-
hópnum eru: Guðrún Jónsdóttir og
Gunnar Jóhann Birgisson úr skipu-
lagsnefnd og Helgi Hjálmarsson úr
byggingarneftid.
Skipulagsstjórn ríkisins. hefur
hafnað umsókn borgaryfirvalda um
að samþykkja breytta landnotkun á
lóðinni án auglýsingar og má því
búast við aö tillaga um breytta land-
notkun verði auglýst íljótlega. Bygg-
ingafyrirtækið ístak fjármagnar
bygginguna og leigir sendiráðunum.
Erró um Hafnarhúsið:
Sniðugt að
blanda saman
f ínu og gróf u
„Hér á landi er starfandi fagfólk
sem veit hvað það er að gera og ger-
ir það sem nauðsynlegt er. Það er
kannski betra fyrir alla að safnið
verði ekki á Korpúlfsstöðum því að
það kreppir að víöa, ekkert síður hér
en í Frakklandi. Erlendis eru mörg
söfn í sláturhúsum, járnbrautar-
stöðvum, sementsverksmiðjum og
bílaverksmiðjum sem líta mjög vel
út,“ segir Erró um ákvörðun menn-
ingarmálanefndar að kanna mögu-
leika á því að fá vörugeymslur á
neðstu hæðum Hafnarhússins við
Tryggvagötu undir Listasafn Reykja-
víkur og Errósafn.
„Það skiptir mig engu máli hvort
safni verður komið upp á Korpúlfs-
stöðum eða í Hafnarhúsinu. Fagfólk-
ið sér um það og ég skipti mér ekki
af því. í japanskri byggingarlist er
oft blandað saman hráum og fínum
efnum sem hefur tekist mjög vel. Það
væri kannski hægt að hafa bæði hráa
og fínpússaða veggi í nýju safni,"
segir hann.
Erró er staddur hér á landi til að
vera viðstaddur opnun myndlistar-
sýningar á verkum sínum á Kjar-
valsstöðum í dag og í tilefni nýrrar
bókar sem kemur út um þessar
mundir. Hann segist ætla að skoða
Hafnarhúsiö í næstu viku ef tími
gefíst til.
Grindvíkingar:
Stofna
fyrirtæki á
Suðureyri
„Við stofnuðum fyrirtæki á Suður-
eyri sem heitir Markhóll hf. og ætlun
okkar var að kaupa vélbátinn Sigur-
von ÍS. Lög um stjórn fiskveiða gera
okkur ókleift að kaupa skip með öðr-
um hætti,“ segir Eiríkur Tómasson,
framkvæmdastjóri Þorbjarnarins hf.
í Grindavík.
Eiríkur segir að þeir Þorbjarnar-
menn hafi gert tilboð í Sigurvon sem
er í eigu Freyju hf. og því hafí verið
tekið. Síðan hafí þeir gripið til þess
ráðs að stofna fyrirtækið á Suður-
eyri.
„Við erum ekki að gera neitt annað
en Vestfirðingarnir sem nú eru í stór-
um stíl að færa skip sín á sunnavert
landið til að geta veitt rækju við
Kolluál,“ segir Eiríkur.
Sigurvon er stærsta skip Súgfirð-
inga og henni fylgja yfir 80 prósent
af kvóta staðarins. Hún var auglýst
til sölu í sumar og gerðu þá Þorbjarn-
armenn tilboð í skipið upp á 119 millj-
ónir. Eftir að tilboðinu var tekið
sendi sveitarsjóður annað tilboð í
eigin nafni þar sem hann býður 120
milljónir.
Þanmg stendur málið nú og Þor-
bjamarmenn bíða svars um þaö
hvort þeir fái Sigurvon eða ekki. Að
sögn Eiríks eru áform þeirra þau að
gera skipið út á línu og net og það
kæmi til með að leggja upp hjá salt-
fiskvinnslu Þorbjamarins.
ábur:
9n
* W í* 5«
m m m m
Thomson 36 MP 12 er vandað 14" sjónvarpstæki
með fjarst., inniloftneti, aðgerðastýr. á skjá, tíma-
rofa, Scart-tengi, 40 stöðva minni, sjálfv. stöðvaleit,
tengi fyrir heyrnartól og sjónvarpsmyndavél o.m.fl.
Já, nú stendur
þér til boöa úrval
af vönduöum og
góöum tækjum á sérlega
hagstæöu veröi.
En athugaöu aö þaö er
takmarkaö magn til...
og þeir sem koma fyrst
gera góö kaup!
Thomson 55 MS 11 PSM
er vandað 21" fjölkerfa sjónvarp
með flatskjá, fjarst., aðgerðastýr. á skja,
tímarofa, Scart-tengi, 40 stöðva minni,
sjálfv. stöðvaleit, tengi fyrir heyrnartól o.m.fl.
Goldstar RQ 20 HP er vandað QuickStart-
myndbandstæki með 2 siálfhreinsandi mynd-
hausum, stafrænni myndsfterpu, aðgerðastyringum
á skjá, Scart-tengi, barnalæsingu o.m.fl.
BS
M
fJOí i
Goldstar MA-680 er 17 lítra örbylgjuofn, 800 W,
með snúningsdiski og tölvustýringu. 99 mín.
klukka, 10 hitastillingaro.rn.fi.
F-SS
Goldstar FFH-101 erhentug hljómtækjasamstæða
með 100W magnara, tónjafnara, FM/MW/LW útvarpi,
30 stöðva forvali, kassettutæki, 16 bita geislaspilara
méö fjölda stillinga, tímarofa, vekjara, fjarst. o.m.fl.
Athugið að þetta er abeins
sýnishorn afþeim fjölmörgu vörum
sem eru á vetrartilboðinu okkar.
Takmarkað magn...
Gríptu gæsina meðan húngefst!
Sendum um allt land!
Samkort
tcnosiar sk-/uu siereo-gervinnauamottak
þráðlausri fjarstýringu, ásamt 1.2 m diski,
0.6-7 dB LNB. Tilvaíinn til móttöku á ASTRA-
gervihnattastöðvum.
,ciii meu
munIlán
Frábær greiöslukjör
við allra hæfi !
SKIPHOLTI 19
SÍMI29800
■■■■■