Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Side 9
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994
9.
Útlönd
Enn ein bókin um Díönu prinsessu:
Þráir fleiri börn
og nýjan mann
Díana prinsessa á sér þá von heit-
asta aö gifta sig einhvern tíma aftur
og eignast fleiri böm. Hún vill þó
ekki stiga fyrsta skrefið og fara fram
á lögskilnað við Karl ríkisarfa. Þá
dreymir hana um að Karl verði aldr-
_ei konungur.
Þetta kemur fram í nýrri bók um
prinsessuna, „Díana, nýtt líf‘, sem
blaðið Sunday Times birti kafla úr í
gær. Höfundur bókarinnar er
Andrew Morton, sá hinn sami og
skrifaði bók um prinsessuna í fyrra.
Sunday Times fullyrðir að Díana
líti á sig sem „mestu vændiskonu í
heimi“ sem komist hvergi frá kon-
ungsfjölskyldunni sem hún kallar
„holdsveikranýlenduna".
í útdráttunum úr bókinni kemur
fram að Díana þjáist enn af átröskun-
inni búlimíu, eða sjúklega mikilli
matarlyst, og að hún taki hið nýja
„undralyf ‘ Prozac við sjúkdóminum.
Þá segir blaðið að hún sæki huggun
í alls kyns meðferð á borð við nála-
stungur, djúpnudd og líkamsrækt,
auk þess sem hún tali klukkustund-
um saman í símann.
Diana var bæði svo heilluð og
hneyksluð á sambandi Karls við
Camillu Parker Bowles að hún
merkti alla fundarstaði þeirra inn á
kort og fékk stjörnuspekinginn sinn
til að lesa stjörnukort Camillu.
Díana prinsessa merkti fundarstaði Karls og Camillu Parker Bowles inn á
kort og lét lesa stjörnukort Camillu. Simamynd Reuter
í Buckinghamhöll eru menn lítt „slúður sem Morton hafi sett saman
hrifnir af bókinni og kalla hana til eigin ávinnings". Reuter
á
BROSUM
í umferðinni
- og ailt gengor betnr!
tfas™"
na
Stillholti 16 Mjallargotu 1
Akranesi ísafirði
Mjodd og Lynghalsi 10 Furuvollum 1
Reykjavík Akureyri
AUKABUNAÐUR A MYND: AIFELGUR.
I 20 AR HEFUR VOLKSWAGEN GOLF NOTIÐ FADÆMA VINSÆLDA VÍÐA UM HEIM. HANN HEFUR
MARGA HEILLANDI KOSTI, SVO SEM FALLEGT ÚTLIT, EINSTAKT ÖRYGGI, GÓÐA AKSTURSEIGINLEIKA,
RÍKULEGAN STAÐALBÚNAÐ, GOn FARÞEGA- OG FARANGURSRÝMI. ÞETTA ALLT ÁSAMT LÁGUM
VIÐHALDS- OG REKSTRARKOSTNAÐI ER ÁSTÆÐA ÞESS AÐ HANN ER í HÁVEGUM HAFÐUR...
SAMT ER VERÐIÐ NIÐRI A JORÐINNI !
HEKLA
Y///e///a óersl/
Volkswagen
Öruggur á alla vegu!
Laugavegi 170-174, slmi 69 55 00
•2 DYRA FRÁ KR 1.133.000.- «4 DYRA FRÁ KR. 1.237.000.- • LANGBAKUR FRA KR. 1.288.000,
■ ;