Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.1994, Page 13
MÁNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1994
13
DV
Fréttir
Aðvörunarkerfin plata lögregluna:
160 hringingar
- eitft innbrot
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum;
„Þetta gjald er sett í þeim tilgangi
að veita þeim sem eru með aðvörun-
arkerfi aðhald svo þeir gangi frá
þeim þannig að þau fari ekki í gang
að óþörfu. Falsútköll eru orðin mjög
tíð og reyndar alltaf að aukast," sagði
Karl Hermannsson, aðstoðaryfirlög-
regluþjónn í Keflavík. Nýja gjaldið
fyrir útkall er 6 þúsund krónur.
Lögreglan í Keílavík hefur í ár
fengið 160 útköll frá aðvörunarkerf-
um sem farið hafa í gang. í aðeins
einu tilfelli var um innbrot að ræða
- 159 voru falsútköll. Lögreglumenn
þurfa að fara á staðina því ekki er
vitað fyrirfram hvað er að gerast.
Rauðinúpur:
200 tonn af
saltfiski úr
Smugunni
Raufarhafnartogarinn Rauðinúpur
hefur verið við veiðar í Smugunni
síðan í júní, og fengið þar um 550
tonn af þorski upp úr sjó. Mestur
hluti aflans heí'ur verið saltaður í kör
um borð en einnig hefur togarinn
komiö með ísfisk til vinnslu í landi
úr hverri veiðiferð.
Saltfiskurinn sem þannig hefur
komið á land á Raufarhöfn síðustu
mánuöi er tæplega 200 tonn en í landi
er fiskinum.pakkað til útflutnings.
Þrátt fyrir að langmestur hluti afla
Rauðanúps hafi verið saltaður um
borð hefur ekki veriö neitt atvinnu-
leysi á Raufarhöfn, og varla fallið úr
dagur í fiskvinnslunni þar í allt sum-
ar. Á Raufarhöfn hafa verið gerðir
út um 20 krókaleyfisbátar og var afli
þeirra mjög góður í sumar og haust
eða allt þar til gæftaleysui tók við
síðustu vikumar.
Raufarhöfn:
Ríkinu lánað
vegna hafnar-
framkvæmda
Raufarhafnarhreppur hefur unnið
að hafnarframkvæmdum fyrir um
21 milljón króna á yfirstandandi ári,
m.a. fyrir hlut ríkisins við dýpkun
hafnarinnar sem ríkið greiðir ekki
fyrr en á næsta ári.
Reynir Þorsteinsson, oddviti Rauf-
arhafnarhrepps, segir að fram-
kvæmdirnar við höfnina hafi utan
dýpkunarinnar verið að koma upp
gijótvamargarði við smábátahöfn-
ina og setja þar niður flotbryggju.
Þetta var stærsta framkvæmd sveit-
arfélagsins á árinu fyrir utan bygg-
ingu íþróttahúss sem nú er fokhelt
en í því var unnið fyrir 24 milljónir
króna.
AUGLYSING AR
Þverholti 11 - 105 Reykjavík
Sími 632700 - Bréfasími 632727
Græni síminn: 99-6272
(fyrir landsbyggðína)
Vegalengdir eru oft miklar því að
Keflavíkurlögreglan sinnir öllum
Suðurnesjum.
Víða eru kerfin í slæmu standi, illa
haldið við og fara í gang vegna bilun-
ar. Eigendur eru allt of kærulausir
og nýja gjaldið á að veita þeim að-
hald.
BIFREIÐASTILLINGAR
ICOLAI
Faxafeni 12, sími 882455
VÉLASTILLING 4.800 kr.
HYunoni
Sonata fyllti ákveðið tómarúm
á íslenska bílamarkaðinum og
höfðaði strax til þeirra sem
vildu eignast bíl sem bæri
merki glæsibifreiðar í útliti og
aksturseiginleikum - án þess að
verðið þyrfti að endurspegla það.
5 gíra
2000 cc - 139 hestöfl
Vökva- og veltistýri
Rafdrifnar rúður
og speglar
Samlæsing
Styrktarbitar
í hurðum
Útvarp, segulband
og 4 hátalarar
á mun betra verði en sambærilegir bílar
Verð frá
1.598.000,-
HYUnDBI
...til framtíðar
kr. á götuna!
ÁRMÚLA 13 • SÍIII: 68 12 00 • BEINN SÍMI: 3 12 36
Hafið samband við sölumenn okkar
eða umboðsmenn um land allt