Þjóðviljinn - 26.05.1973, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. maí 1973
RITHÖFUNDAR:
Mikill
meirihluti
vill sam'
einast í
einufélagi
Samstarsnefnd rithöfunda-
félagaganna geröi fyrir nokkru aö
tillögu sinni að fram færi „könnun
á afstööu allra félagsbundinna
höfunda til hugsanlegrar stofn-
unnar allsher jarstéttarf élags
rithöfunda, sem einskoröaöi sig
viö málefni höfunda, en léti önn-
ur mál afskiptalaus,” t nefndinni
eru: Armann Kr; Einarsson og
Þóroddur Guömundsson frá
Félagi Islenzkra rithöfunda,
Siguröur A. Magnússon og Einar
Bragi frá Rithöfundafélagi
islands.
Rithöfundasambandiö hefur nú
gert þessa könnum; fór hún fram
með þeim hætti aö út var sendur
einskonar atkvæðaseöill þar sem
svarað skyldi:
1. Ertu fylgjandi að reynt verði
að sameina islenzka rithöfunda i
einum allsherjarsamtökum?
2. Ef svariö er játandi, telurðu,
þá heppilegra að um sé að ræða
allsherjar samtök er kjósi sér
stjórn á aðalfundi eða
deildaskipt samtök, þannig að
skáldsagnahöfundar, ljóðskáld,
barnabókahöfundar, leikskáld og
þýðendur myndi deildir sem sið-
an eigi fastan fulltrúa i sameigin-
legri stjórn?
Samtals nöfðu I54atkvæðisrétt úr
báðum félögunum. 97 sendu svör,
og skiptust þau þannig: 70
svöruðu fyrri spurningunni ját-
andi. 53 vildu allsherjarsamtök,
en 17 deildaskiptingu. 25 svöruðu
fyrri spurningunni neitandi. Tvö
svör voru ógild.
Þátttaka skiptist þannig milli
félaganna: Úr Rithöfundafélagi
fslands tóku þátt 57 eöa 67 1/2%.
Úr Félagi islenzkra rithöfunda
tóku þátt 38 eða 57 1/2%.
(Fré11ati 1 kynn i ng frá
Rithöfundasambandi lslands.)
Samúðarkveðjur
og stuðningi
heitið frá PEN
í Finnlandi
PEN-félag Finnlands hefur tjáð
PEN-félagi fslands, að á
aðalfundi sinum nú nýverið hafi
félagið ákveðið að verja fé til
söfnunar Rauða Kross Finnlands
i ti'efni af eldgosinu i Heimaey,
jafnframt þvi sem það vottar
Islandi dýpstu samúð sina. Þá
hefur félagið enn fremur skrifað
fjarstöddum félögum sinum og
skorað á þá að stuðla eftir
fremsta megni að nefndri
fjársöfnun.
PEN-félögin (PEN
International) eru alþjóðasamtök
skáida, rithöfunda og útgefenda.
Forseti islenzka PEN-félagsins er
Tómas Guömundsson og heiðurs-
forseti Gunnar Gunnarsson.
(Frá PEN-félagi Islands)
AF UMBURÐARLYNDI
„Það var um nótt þú
drapst á dyr hjá mér
og dyrnar opnuðust af
sjálfu sér".
Hver man ekki eftir
þessum fleygu Ijóðlín-
um? Hverman ekki eftir
þessu unaðslega
dansíagi, sem dunaði um
borg og bý hér á árun-
um, annað hvort við
tregablandið hljómfall
nikkunnar eða á Ijúfum
ástarfundi án undir-
leiks? Lagið varð lag
ársins og Ijóðið var Ijóð
dagsins, Ijóð sem gekk
beint til hjartans og
fjallaði enda raunar um
meira en lítið hugljúft
efni. Allir muna eftir
Ijóðinu. DRAUMUR
FANGANS.
Þegarég horfði á sjón-
varpið á mánudaginn
var, fannst mér ég jafn-
vel eygja þá von, að ef
til vill væri framan-
greindur draumur fang-
ans að rætast, sem sagt
að „dyrnar opnuðust af
sjálfu sér."
Það er eins og fanga-
mál séu að verða eitt-
hvert tizkufyrirbrigði nú
uppá síðkastið. Þessu
ber að fagna,því hér er á
ferðinni merkilegt mál. í
sjónvarpinu á mánudag-
inn var sýnt íslenzkt
sjónvarpsleikrit, sem
fjallaði um nokkra ofsa-
töffara við iðju sína,
daglegt amstur þeirra á
letigarðinum og fleira.
Ég ætla ekki að f jölyrða
um leikrit þetta, sem var
mjög þokkaleg útfærsla
á ofurhversdagslegum
frumtexta, en staldra
heldur við umræðuþátt,
sem á eftir fór, þar sem
málið var „krufið til
mergjar" af nokkrum
sérfræðingum.
Það kom fljótlega i
Ijós að mikið vantar á,
að nærri nóg sé gert f yrir
íslenzka glæpamenn, og
maður hlýtur að taka
undir það og segja eins
og kellingin „Hverseiga
mennirnir eiginlega að
gjalda?"
Maður, sem ræðst á
rúmlega áttræða konu á
Rauðarárstígnum, lem-
ur hana niður í götuna og
rænir hana ellilifeyrin-
um og tvennum gleraug-
um,á að eiga heimtingu
á því að þjóðfélagið sýni
honum fuilan skilning.
Blessuðum drengjun-
um, sem vaða um borg-
ina ruplandi og rænandi í
skjóli næturinnar á að
sýna meira umburðar-
lyndi. Það á ekki að erfa
það við unga vaska
menn, þótt þeir ástundi
þá iðju að ráðast á aldr-
aða vegfarendur aftan
frá, hálfdrepi þá, ræni
þá og skilji þá eftir i
blóði sínu, því hvað segir
ekki í Hávamálum:
„Þagalt og hugalt
skyli þjóðans barn
og vígdjarft vesa.
Glaðr og reifr
skyli gumna hver
unz sinn bíður bana."
Mér er nær að halda,
eftir sjónvarpsþáttinn á
mánudaginn var, að ís-
lenzkir afbrotamenn séu
á góðum vegi með að
verða einskonar óska-
börn íslenzku þjóðarinn-
ar. Hún var ekki lítil
vandlætingin yfir því, að
atvinnurekendur skyldu
ekki vera ólmir i að ráða
íslenzka afbrotamenn í
vinnu, og maður verður
að taka undir þá vand-
lætingu. Að vísu hefur
verið reynt að fela þeim
störf,samanber drengina
í Hraðf rystihúsinu á
dögunum, en þeir brut-
ust fljótlega inn á vinnu-
stað sjálfsagt af gömlum
vana og munaði minnstu
að þeir dræpu einn skrif-
stofumann fyrirtækisins
með hamri, sem þeir
lustu í höfuðið á honum.
Ég er persónulega þeirr-
ar skoðunar að þarna
hafi komið í Ijós að pilt-
arnir hafi verið á rangri
hillu. Þeim ertamara að
handleika hamra,
meitla, tengur og tól en
flatningshnífa, og þess
vegna ættu smíðaverk-
stæði og bygginga-
meistarar að leitast við
að fá þá í lið með sér.
Hins vegar ætti að leyfa
þeim sem tamt er að
reka fólk á hol með hníf-
um að svala sér á þorsk-
inum, en skotglaðir af-
brotamenn ættu að fá
vinnu í sláturhúsum, eða
eins og máltækið segir:
„Rétturglæpon á réttum
stað". Það er full ástæða
til að taka undir þá skoð-
un, sem fram kom í sjón-
varpinu á mánudaginn,
að réttast væri að fang-
arnirgengju lausir með-
an þeir eru að afplána,
til þess að þeir geti
„samlagazt þjóðfélag-
inu". Auðvitað eiga þeir
að vera á fullu kaupi á
meðan þeir eru að ,,taka
út", því annars er svo
hætt við að þeir ,,hitti
aftur gömlu félagana"
og ,,detti aftur í sama
farið" eins og það var
orðað.
Þeir fjölmörgu, sem
búa við ævilöng örkuml
af völdum þessara dáða-
drengja, verða að sýna
skilning, ef þeir hafa lif-
að líkamsárásina af, því
er það ekki skylda hvers
kristins manns að „rétta
hinn vangann"?
Sú skoðun er löngu úr-
elt að sumir menn séu
fæddir drullusokkar en
aðrir ekki. Þó er talið að
uppeldi og heimilishald
geti haft nokkur áhrif á
hegðan manna.
Þess vegna hefur sú
hugmynd fengið byr
undir báða vængi að ef
til vill væri rétt að taka
hestamannafélögin í
landinu til fyrirmyndar
og hafa afkvæmasýn-
ingu, sem sagt sýna for-
eldra íslenzkra pörupilta
opinberlega með af-
kvæmum, því með
hreinræktun mætti tví-
mælalaust auka hæfni
þeirra og athafnaþrá.
Prestar, félagsráð-
gjafar, varðstjórar,
ráðuneytisstjórar, leik-
stjórar og samborgarar.
Takið nú höndum saman
og sýnið innbrotsþjófum,
ofbeldismönnum, svik-
urum, fölsurum og
morðingjum fullan
skilning og umburðar-
lyndi og takið ykkur í
munn orð skáldsins:
„Vesalings vesalings
angar,
ég veit hversu sárt
ykkur langar".
P.S.
Ég get ekki látið hjá
líða að senda þeim sem
ástunda það að ráðast á
vegfarendur með rán í
huga nokkur varnaðar-
orð:
Ráðizt ekki aftur á
Sverri vin minn
Kristjánsson. Bæði er, að
hann gengur nú til
öryggis við gildan staf,
og þá er einnig ólíklegt
að þar sé feitan gölt að
flá.
Þetta segja útvegsmenn frá Eyjum
Um hafnir, landhelgi,
fiskmatið - og Eyjar
Á aðalf undi sínum nýver-
ið gerði Útvegsbændafélag
Vestmannaeyja sam-
þykktir um ýmis mál.
Eru þær birtar hér á eftir.
Hafnarmál á SuðurlandT
Almennur fundur i Útvegs-
bændafélagi Vestmannaeyja,
haldinn i Reykjavlk 20. mai 1973,
vill benda á, að ef svo illa fer, að
ekki verði hægt að gera út frá
Vestmannaeyjum á næstu vetrar-
vertið, og um engar hafnarbætur
verður að ræða i Þorlákshöfn
fyrir þann tima, þá mun útgerð
Vestmannaeyja dragast verulega
saman. Fyrir þvi skorar fundur-
inn á hæstvirtan samgönguráð-
herra og vita- og hafnarmála-
stjórn landsins, að nú þegar verði
hafizt handa um stórauknar hafn-
arframkvæmdir i Þorlákshöfn,
með það fyrir augum, að þegar á
næstu vetrarvertið verði um
verulega bætta aðstöðu að ræða
fyrir bátaflotann.
Fundurinn minnir á, aö á nýlið-
inni vertiö lönduðu Vestmanna-
eyjabátar 14 þúsund lestum af
fiski i Þorlákshöfn, og að sérstak-
lega góð veðrátta átti stærstan
þátt i þvi, að ekki hlauzt stórtjón
af hinni miklu örtröð fiskiskipa i
höfninni.
Fundurinn telur, aö nú þegar
verði að bæta vinnuaðstöðu
þeirra ágætu manna, er starfa á
hafnarvog Þorlákshafnar, og
skorar á hafnaryfirvöld landsins,
að starfsmönnum hafnarvoga i
landinu verði sköpuð til að skila
vigtarnótum með útreiknuðu
aflamagni til skipta hverju sinni.
Fundurinn fagnar þingsályktun
og samþykkt Alþingis hinn 13.
april s.l., um aö íela rikisstjórn-
inni að láta nú þegar hefja
athugun á staðsetningu nýrrar
hafnar á suðurströnd landsins.
Jafnframt telur fundurinn að
framkvæmdir við nýja höfn megi
ekki verða til þess að draga úr
framkvæmdum i þeim höfnum,
sem fyrir eru á svæðinu.
Mótmæla fiskmatinu
Almennur fundur i Útvegsbænda-
félagi Vestmannaeyja, haldinn i
Reykjavik 20. mai 1973. Vill
benda á að á nýliðinni vertið var
töliuvert magn af fiski sem
landað var i Þorlákshöfn, ekki
metiö samkvæmt gildandi reglu-
gerð um mat á ferskum fiski.
Fundurinn mótmælir þeim
vinnubrögðum Ferskfiskmatsins,
Framhald á bls. 15.