Þjóðviljinn - 26.05.1973, Page 7
Laugardagur 26. mal 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Vr smiðju
r
Asmundar
Þessa dagana stendur yfir i
Asmundarsal sýnig á verkum
Asmundar Sveinssonar og 9
nemenda hans, sem stunduðu
nám hjá honum i Myndlistar-
skólanum i Reykjavik á árun-
um 1946-66.
Það er Myndlistarskólinn
sem staöið hefur fyrir þvi að
koma þessari sýningu upp i
tilefni af áttræðisafmæli
Asmundar.
Um Ásmund og verk hans
er óþarfi að fjölyrða, hann er
alþjóð löngu kunnur af verk-
um sinum eins og vera ber.Eitt
er það þó sem þessi sýning
vekur verðskuldaða athygli á,
en sjaldan heyrist nefnt og það
myndlist
er sá hluti af ævistarfi
Asmundar sem hann helgaði
kennslu.
Þessi afmælissýning er þvi
verðugur minnisvarði um
tveggja áratuga starf hans að
menntunarmálum I s 1.
myndlistarmanna.
Verk Asmundar gegnum
timann eru misjöfn að gæðum
og ég álit að nýjasta verk
hans, Ljóö til fjallkonunnar
sem nú stendur úti fyrir
Asmundarsal sé ekki i hópi
þeirra er hann hefur bezt gert.
Innan þess hóps sem nú
sýnir með Asmundi eru flestir
af þekktustu myndhöggvurum
þjóðarinnar i dag, af yngri
kynslóðinni. Þvi má ætla, að
sýningin gefi nokkuð glögga
mynd af stöðu isl.
höggmyndalistar.
Það kann að liggja i eðli
hlutanna að málaralist er
meir áberandi i listalifinu en
höggmyndalist, þar sem mun
umfangsminna er að koma
þeirri fyrrnefndu á framfæri
og væntanlega meiri auravon I
að sýna málverk en högg-
myndir. Hvort það er af sömu
ástæðum sem fleiri leggja
stund á málaralist en
höggmyndalist skal ég ekki
fullyrða um, en ekki er
óliklegt að svo sé.
Af sýningunni i Asmundar-
sal verður þó ekki annaö séð
en ástæðulaust sé að óttast um
framtið höggmyndalistarinn-
ar hérlendis, ef þeir sem þar
sýna nú fá tækifæri til að
stunda sitt verk.
Ég efas ekki um að Asmundi
Sveinssyni hefur ekki verið
færð betri né verðugri
afmælisfjöf en aö sýna með
slikum myndarbrag verk
nemenda hans og eftirkom-
enda i Isl. höggmyndalist.
Asmundi má vera ljóst að
hann hefur ekki unnið til
einskis, akur hans er þegar
sprottinn.
Ingiberg
Upplýsingar um starfið gefnar i sima
12046 til kl. 16 virka daga.
Frá Skólagörðum
Reykjavíkur
Innritun i Skólagarða Reykjavikur fer
fram sem hér segir:
í Aldamótagarða við Laufásveg þriðjudag
29. mai kl. 9—11 fyrir börn búsett vestan
Kringlumýrarbrautar.
i Laugardalsgarða sama dag kl. 1—3 fyrir
börn búsett austan Kringlumýrarbrautar
og norðan Miklubrautar.
í Asendagarða miðvikudaginn 30. mai kl.
9—11 fyrir börn búsett sunnan Miklu-
brautar og austan Kringlumýrarbrautar
ásamt Blesugróf.
i Árbæjargarða sama dag kl. 1—3 fyrir
börn úr Árbæjarsókn.
í Breiðholtsgarða (við Stekkjarbakka)
föstudag 1. júni kl. 9—11 fyrir börn úr
Breiðholtshverfi.
Innrituð verða börn fædd 1961—1964 að
báðum árum meðtöldum. Innritunargjald
kr. 850 greiðist við innritun.
Skólagarðar Reykjavikur.
75 ára
til starfa nú þegar eða eigi siðar en 15. júni
n.k.
Starfið krefst góðrar vélritunarkunnáttu
og stúdentsprófs eða hliðstæðrar mennt-
unar.
Ráðningartimi minnst 1 ár.
Æskilegt er að umsækjandi hafi einhverja
starfsreynslu sem læknaritari.
auk þess hinn skemmtilegasti og
fjölfróðasti viðmælandi um
margvislegustu efni. Ég hef verið
svo heppinn, get sagt hreint og
beint lánsamur, að þekkja hann
bæði lengi og náið. Ótalin eru þau
skipti, er við ráfuðum um fjöli og
firnindi, ýmist masandi um
heima og geima eða þegjandi
þess á milli hugsandi hvor sitt. En
þegar upp á eitthvert gott útsýn-
isfjall var komið, brást það ekki,
að Brynjólfur var búinn að varpa
frá. sér öllum áhyggjum daglegs
amsturs, öllum torræðum vanda-
málum, og sinnti þvi nú einu að
njóta þess, sem fyrir augað bar.
Ég held ég hafi aldrei kynnzt
nokkrum, sem i jafnrikum mæli
gat orðið gagntekinn af stðrfeng-
leik islenzkrar náttúru á góðum
degi. Ég minnist þess eitt sinn —
ég má segja, að við höfum verið
staddir á Langjökli i skafheiðu
veðri, en þaðan þótti honum feg-
urst útsýni — þá fór hann eins og
við sjálfan sig með þessi orð Ein-
ars Benediktssonar, og mér finnst
það táknrænt fyrir þennan bar-
áttumann, oft kappsfullan:
,,Nú finnst mér það allt svo litið
og lágt,
sem lifað er fyrir og barist er
móti.
Þó kasti þeir grjóti og hati
og hóti
við hverja smásál eg er i sátt”.
Að lokum, kæri Brynjólfur,
óska ég þér langra lifdaga og
Handlæknisdeild
Fjórðungssjúkrahússins
á Akureyri vantar
LÆKNARITARA
fyrrum ráðherra
Brynjólfur Bjarnason, fyrrum
menntamálaráðherra og alþing-
ismaður, er 75 ára i dag. — Hann
er staddur á heimili dóttur sinn-
ar: Kornerup — 4000 Roskilde —
Danmörk.
Það verður hlutskipti furðu-
margra, vist óhætt að segja
flestra, að gleymast fljótlega,
þegar þeir eru gengnir eða at-
hafnasemi þeirra i samfélaginu
að minnsta kosti farin að þokast i
skugga. Þetta á þó ekki við um
alla. Og einn þeirra fáu er Brynj-
ólfur Bjarnason fyrrum ráðherra.
Ég held, að mynd hans I hugum
samtiðarmanna sé litt eða ekki
tekin að mást, enda þótt nokkuð
sé umliðið, siðan hann var i
sviðsljósi opinberra mála. Þar
ber margt til: óvenju sérstæður
persónuleiki, stórbrotinn stjórn-
málamaður og siðast en ekki sizt
hugsuður, sem lesinn verður um
langa framtið.
Eigi að siður er það ekki ó-
merkur áfangi manns, áfangi,
sem vert er að minnast, að hafa
lifað þrjá aldarfjórðunga, þ.e.a.s.
alla þessa stormasömu og um-
rótsmiklu öld. Til þess held ég
þurfi sterk bein, þegar um er að
ræða mann, sem tekið hefur eins
mikinn og röggsamlegan þátt i
framvindu mála og Brynjólfur.
Engan áberandi mann okkar
samtiðar hef ég vitað kunna siður
við sig i sviðsljósinu en Brynjólf,
en hann leit alltaf á það sem heil-
aga skyldu sina að fylgja hjart-
ansmálum sinum eftir sem hann
mátti, þó að margt hafi snúizt á
annan veg en hann hefði kosið og
hann hafi vist mátt stundum þola
sár vonbrigði. En ég hygg þó, að
hann liti til hins liðna með heim-
spekilegri rósemi og án alls kala.
Þegar hann tók að draga sig i
hlé úr mestu orrahrið stjórnmál-
anna, þá maður kominn yfir
miðjan aldur, sneri hann sér að ó-
Ilku viðfangsefni, sem mun hafa
staðið huga hans nær á æskuárum
en stjórnmálin, sem sé heimspek-
inni. Eftir hann liggja nú margar
bækur unnar af slikum skarpleik,
sliku sjálfstæði i hugsun, að kall-
ast mætti fullgilt ævistarf og mik-
ilsvert, þótt ekki kæmi annað til.
En Brynjólfur hefur auðvitað á
löngum stjórnmálaferli sinum
samið sæg af ræðum og ritgerð-
um, sem ekki var heldur kastað
höndunum til. Ég má segja, að
úrval úr þessum verkum sé vænt-
anlegt á bókamarkaðinn innan
skamms. Þar fær ung kynslóð og
um margt óráðin sögulegar heim-
ildir og stjórnmálalegar útlistan-
ir, sem hún vonandi kann að hag-
nýta sér og læra af.
Annars er það ekki ætlun min
að skrifa neina itarlega afmælis-
grein að þessu sinni, það hefur
verið gert við fyrri tækifæri, og
þaðan af siður nein eftirmæli, ég
vona, að enn liði langur timi, þar
til að sliku kemur.
En mig langar til að hnýta i lok-
in fáeinum persónulegum orðum.
Brynjólfur hefur fleiri hliðar en
að vera stjórnmálamaður og
heimspekingur. Hann hefur mikið
yndi af fögrum bókmenntum,
einkum ljóðum, og framar öllu er
hann mikill náttúruskoðari, enda
lærður i náttúrufræði. Hann er
góðrar heilsu og þakka margar ó-
gleymanlegar samverustundir.
GIsli Asmundsson.
Heldur
fyrirlestur
um Kína
Verðandi, Fylkingin og Stú-
dentaráð HI gangast fyrir fundi
sunnudaginn 27. mai klukkan 14 i
mötuneytissal Félagsstofnunar
stúdenta við Hringbraut. Þar
mun Lin Hua frá sendiráði Kin-
verska alþýðulýðveldisins halda
fyrirlestur um þróun mála i Kina
nú siðustu árin. Fundurinn er op-
inn almenningi.
Brynjólfur
Bj arnason