Þjóðviljinn - 26.05.1973, Blaðsíða 15
3 leikir
Framhald af bls. 11.
Fram á Njarövikurvelli kl. 17.
Þessi leikur átti upphaflega að
hefjast kl. 15,en var frestaö svo aö
þeir sem fara á leik Vals og IBK
geti komizt á þennan leik lika.
Þarna er komiö aö þvi sem viö
sögöum þegar leikjabókin kom
út. Leikirnir eru settir á sama
tima hér á Suöurlandinu, en þar
sem verið er aö berjast um sama
fólkið á alla leikina hlaut þetta að
rekast á og breytingar aö koma til
á leiktimanum. Hér kemur sú
fyrsta.
En hvaö um þaö, leikurinn
veröur eflaust jafn skemmtilegur
á hvaöa tima dagsins sem hann
fer fram. Erfitt er að spá um úr-
slit þessa leiks. Eyjamenn ætla
sér sjálfsagt stóran hlut úr honum
og þá ekki siður íslandsmeistar-
arnir, en bæöi þessi liö töpuöu
stigum i sinum fyrsta leik um siö-
ustu helgi.
Asmundur
Framhald af 4. siðu.
veröi til þess aö opna augu ráö-
andi manna fyrir þvi aö við eigum
ekki aö flekka okkur á aö ánetjast
bandalögum erlendra hervelda
og ljá þeim máls á víghreiörum i
okkar fagra landi. Við höfum séð
aö viö eigum meiri samúðar og
hjálpar að vænta ef þörf gerist frá
öörum en frá her aöa hernaðar-
bandalögum. Viö skulum lika
vona að straumhvörf séu að verða
iislenzkum stjórnmálum, það má
helzt marka á róttækni hinnar
uppvaxandi æsku. Nú loksins
hefur þjóðin efni á að mennta sitt
æskufólk og fjöldinn af því er svo
róttækt i skoöunum aö það er
jafnvel róttækara en viö vorum á
unga aldri og það spáir góöu meö
aö það veröi hæfilega róttækt
þegar það kemst til áhrifa I þjóð-
málunum.
Jæja, félagi Asmundur. Það
finnst nú kannski sumum þetta
dálitið skritin afmæliskveðja, en
þar sem ég hef tekið að mér að
senda þér kveðju frá okkur sam-
herjum i pólitíkinni, þá get ég
ekki látið hjá líða að drepa á'það
sem efst er á baugi i þessum mál-
um.
Svo ég minnist aðeins aftur á
lifshlaup þitt, þá er að minna á
það, að leið þin lá héðan frá hin-
um fögru og friðsælu heimahög-
um, úr sveitasælunni á malbikið i
höfuðborginni. Þó að við sæjum
eftir þér, þvi þú hlauzt að slitna úr
tengslum viö þetta hérað eftir að
þú fluttir suður, þá gátum við
samt vel unnt þér þess þar sem
þér um þessar mundir hlotnaðist
sú gæfa að taka saman við ágæta
konu og er það vel þess virði
hverjum manni aö fyrir það sé
einhverju fórnað. Aö endingu
biðjum viö fyrir kveðju til rikis-
stjórnarinnar, og það má segja
henni að hún hefur margt vel gert
miðað við aðrar rikisstjórnir, en
ekki væri nú samt úr vegi að hún
tæki aðeins betur til i ruslakomp-
um þjóðarskútunnar og hreinsaði
hernámslúsina sem allra fyrst af
okkur.
Svo óskum við þér innilega til
hamingju með afmæliö, og megið
þið hjónin lengi lifa.
Benedikt Þorsteinsson.
Utvegsmenn
Framhald af bls. 2.
að það skuli meta fisk, sem land-
að hefur verið i Þorlákshöfn þá
fyrst, er honum hefur verið ekið
til Reykjavikur og viðar.
Skorar fundurinn á hæstvirtan
sjávarútvegsráðherra, að hann
hlutist til um, aö i Þorlákshöfn
risi sérstök matstöö þar sem
fram fari mat á fiskinum strax
eftir honum hefur veriö landað.
Landheigin
Fundur i Otvegsbændafélagi
Vestmannaeyja, haldinn i
Reykjavik sunnudaginn 20. mai
1973, lýsir stuðningi sinum við
aðgerðir i landhelgismálinu, og
skorar á stjórnvöld landsins að
hvika hvergi frá settu marki i
þessu lifshagsmunamáii þjóöar-
innar. Jafnframt sendir fundur-
inn starfsmönnum Lar.dhelgis-
gæzlunnar kveðju fundarins og
þakkar þeim aðstoð og samstarf á
liðnum áratugum. ,
Aftur til Eyja
Fundurinn telur, að markvisst
beri að stefna að þvi, að vinnsla
sjávaráfurða geti aftur hafizt i
Vestmannaeyjum þannig, að
bátafloti Vestmannaeyinga geti
sem fyrst farið að landa afla sin-
um þar, eftir þvi sem frekast eru
tök á.
Halldór
Framhald af bls. 11.
og slappaði ‘af og fagnaði með
uppréttar hendur. Þetta notfærði
Agúst sér og kastaði sér fram úr
Halldóri á marklinunni og var
dæmdur sigurvegari, en timinn á
þeim var sinn sami.
Menn voru hreint ekki á einu
máli um hvor hefði sigrað. Und-
irritaður var ekki i aðstöðu til að
sjá það og treystir sér ekki til að
dæma um hvor sigraði, og senni-
lega verður það aldrei gert með
öruggri vissu, til þess hefði þurft
kvikmyndavél þvert á marklin-
una. Timi þeirra var mjög góður
á islenzkan mælikvarða, 8:54,5
min. Sigfús var nokkuð langt á
eftir þeim og hreppti 3ja sætið, en
aðrir keppendur i hlaupinu komu
ekki nærri 3 efstu sætunum.
Annars var árangur á þessu
Vormóti IR nokkuð góður i mörg-
um greinum. Lilja Guðmunds-
dóttir ÍR sigraði i 400 m hl.
kvenna á 62,2 sek., Vilmundur
Vilhjálmsson sigraði 200 m hl. á
23,1 sek. Arndis Björnsdóttir i
Islandsmótið I. deild
Njarðvikurvöllur kl. 17,00
Í.B.V. - FRAM
Komið og sjáið spennandi leik.
Í.B.V.
0 Laugardalsvöllur m
I. Deild
Yalur — Í.B.K.
Leika i dag kl. 14
Valur
Laugardagur 26. mai 19731 ÞJÓÐVILJINN — StÐA is
spjótkasti kvenna, kastaði 35,24
m. Lára Sveinsdóttir sigraði i 100
m hl. kvenna á 13,3 sek. Hreinn
Halldórsson sigraði i kúluvarpi,
kastaði 17,30 m. Friörik Þór Ósk-
arsson sigraði i langstökki, stökk
7,10 m , sem verður að teljast
mjög góður árangur á fyrsta úti-
móti ársins. Erlendur Valde-
marsson sigraði i kringlukasti
57,38 m. Erlendur sigraði einnig i
sleggjukasti, kastaöi 53,98 m. Ste-
fán Hallgrimsson sigraði i 110 m
grindahl. á 16,2 sek. Einar Ósk-
arsson sigraði i 800 m. hlaupi á
2:02,4 min. Karl West Fredriks-
son sigraði I hástökki, stökk 1,96
m.
Ræða Lúðviks
Framhald af 5. siöu.
þau liöa Bretum að beita okkur
hervaldi. Viö eigum aö ákæra
Breta frammi fyrir öllum heimin-
um fyrir hernaðarlega ihlutun um
okkar mál.
Og láti Nató Bretum liöast að
hafa herskipin á okkar lögsögu-
svæði, þá getum við ekki heimilað
Nató áfram afnot af okkar landi.
Við eigum aö tilkynna Bretum,
að fyrri tilboð okkar um bráða-
birgða samkomulag i deilunni
sér hér með afturkallað, og styðji
Vestur-Þjóðverjar hervaldsbeit-
ingu Breta, semjum við ekki
heldur við þá.
I landhelgisdeilu okkar við
Breta árið 1958 gerðu forystu-
menn Nató-samtakanna marg-
itrekaðar tilraunir til þess að fá
okkur íslendinga til að fallast á,
að samið yrði um lausn landhelg-
ismálsins innan Nató-samtak-
anna. Þessu var algjörlega neitað
1958. Ég vil enn vara við óllum til-
lögum i þessa átt.
Nató-rikin eru okkur fjandsam-
leg i landhelgismálinu og þangað
má landhelgismáliö ekki fara
sem slikt.
Hervaldsbeiting Breta er annað
mál og tvimælalaust brot á Nato-
samningnum. Það brot ber Nató
að stöðva, ella hljóta tslendingar
að taka til sinna ráða.
Góðir fundarmenn.
Við höfum unnið mikla sigra á
stuttum tima i landhelgismálinu.
Margar þjóðir hafa viðurkennt
stefnu okkar.
Allar þjóðir, sem stunduöu hér
veiðar hafa viðurkennt iandhelgi
okkar I reynd, nema Bretar og V,-
Þjóöverjar. Þróun iandhelgis-
málanna i heiminum er okkur i
hag.
Reynslan hefur sannaö, aö
Bretar geta ekki haldiö hér áfram
veiöum i fjandskap viö alla lands-
menn.
Sigur okkar i landhelgismálinu
er i sjónmáli.
Það, sem máli skiptir er, að viö
stöndum saman, sýnum stefnu-
festu, látum ekki ginna okkur
undir úrskurö útlendinga i þessu
lifshagsmunamáli, og að viö sýn-
um það i verki, að við vitum, að
úrslit málsins eru örugglega i
okkar höndum. Einurð okkar
gagnvart þeim, sem sýna okkur
yfirgang, mun styrkja okkur, —
þeir eiga að fá aö reyna, aö viö
svörum fyrir okkur. Viö látum
ekkert skjall um bandalagsþjóð
og vinaþjóð villa okkur sýn — viö
greinum á milli vina og óvina, á
milli bandamanna og ekki banda-
manna, sanjkvæmt þvi, hvernig
að málum er staðið, hvernig fram
er komið við okkur. t dag stönd-
um við tslendingar allir sem einn,
fullvissir um, að við sigrum i
landhelgismálinu.
Sá dagur, að siöustu brezku
togararnir gefist hér upp við ár-
angurslitlar veiöar, marghala-
stifðir af varðskipum okkar og
ósköp aumkunarlegir eftir þá út-
reið, er ekki langt undan.
Þá munu herskip hennar há-
tignar drottningarinnar af Bret-
landi einnig halda heim skömm-
ustuleg eins og lúbarðir rakkar,
eftir að hafa tapað striði við vopn-
lausa smáþjóð.
Ólafur
Kramhald af bls. 16.
og urðum við þá að tefla 9 skákir
til að fá fram úrslit. Siðan hef ég
talsvert átt við þetta og einkum
eftir heimsmeistaraeinvigiö i
fyrra. Þá tók ég þátt i olympiu-
mótinu i Skopje, að visu sem 2.
varamaður i sveitinni, en fékk þó
hæsta vinningshlutfallið.
Ólafur kvaðst engu vilja spá um
framhaldið, skákin væri fyrst og
fremst dægrastytting og ef hug-
urinn myndi'stefna til þess að ná
lengra kostar slikt feikna vinnu
og fyrirhöfn.
Ingvar Asmundsson, sem er 38
ára gamall, á svipaðan skákferil
og Ólafur. Hann hefur verið fjarri
mótum og keppni langtimum
saman. Þetta er i fyrst skipti sem
hann keppir til úrslita um Is-
landsmeistaratitilinn. sj
Hneyksli
Framhald af bls. 1.
menn væru flæktir i málið og þaö
kom af stað miklum bollalegging-
um,að fleiri háttsettir menn væru
flæktir i net kynsvalls og eitur-
lyfjaneyzlu. Einn þeirra er
sagður vera velstæöur aðals-
maður.
Lávarðarnir tveir sem sögöu af
sér hafa þvertekið fyrir að hafa
stofnað þjóðarhagsmunum i
hættu með framferöi sinu.
Heath hefur gefiö skipun um aö
þær hliðar málsins sem snerta
öryggi rikisins verði rannsakaðar
til fulls svo ihaldsstjórnin missi
ekki traust fólksins. Einn þing-
manna verkamannaflokksins,
James Wellbeloved
(Heittelskaði!) sagði i dag að
setja þyrfti mikinn hraða á
rannsóknir öryggish 1 i ðar
málsins.
Þá er talið öruggt aö eftirlit
með háttsettu fólki verði aukið að
mun og að einkalif fjölda manns
verði rannsakað ofan i kjölinn.
Einnig hefur verið fullyrt að upp-
ljóstranir þær sem gerðar hafa
verið séu liður i viötækri
rannsókn á klámi, eiturlyfjum og
morðtilræðum.
EF
PÚ
REYKIR
EINN PAKKA Á DAG
MESTAN HLUTA
ÆVINNAR eru líkurnar fyrir því
að þú látist af völdum
lungnakrabbameins