Þjóðviljinn - 24.03.1977, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 24. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Samningaumleitanir risavelda um
takmarkaöan kjarnorkuvígbúnað:
Sovétmenn
nú fúsir
ta viðræðna
Hyggjast ekki láta mannréttinda-
málin veröa þránd i götu
Háskinn sem stafar af kjarnorkuvlgbánaðarkapphlaupinu fer dagvax-
andi og leiðtogum risaveldanna er væntanlega öðrum fremur ijóst, að d
þeim vettvangi má engan tfma missa.
MOSKVU 23/3 Reuter — Sovésk
stjórnarvöld gáfu i dag til kynna
að þau væru reiðubúin til við-
ræðna við Bandarikin um tak-
markanir á strategiskum kjarn-
orkuvopnum, og eru ummæii
blaðsins Pravda um þetta mál
talin benda til þess, að sovéska
stjórnin sé sammála þeirri
bandarisku um, að hægt sé að
ræða takmarkanir á kjarnorku-
vfgbúnaði án þess að blanda
mannréttindamálum inn i það.
Cyrus Vance, utanrikisráðherra
Bandarikjanna, fer I næstu viku
til Moskvu og verður þar um að
ræða fyrsta fund æðstu manna
risaveldanna frá þvi að Carter-
stjórnin tók við I Bandarikjunum.
I ræðu sem Leónid Bresjnef,
leiðtogi Kommúnistaflokks
Sovétrikjanna, flutti nýverið,
lagði hann áherslu á, að takmörk-
un strategisks kjarnorkuvig-
búnaðar væru mikilvægasta mál-
ið sem risaveldin þyrftu að leysa.
Bresjnef gagnrýndi einnig i ræöu
sinni harðlega ummæli Carters
um mannréttindamál I Sovét-
rikjunum, en I frásögn sinni af
ræðunni gat Pravda þeirrar
gagnrýni aöeins litillega.
Nærri sex
miljónir
atvinnu-
leysingja
í EBE
BRUSSEL 22/3 Reuter — í
febrúar dró úr atvinnuieys-
inu I Efnahagsbandalagi
Evrópu um tvö prósent, en
ennþá eru 5.8 miljónir
manna atvinnuiausar I þess-
um löndum, að sögn
EBE-embættismanna. Um
5.5% vinnuaflsins i banda-
lagslöndunum er nú án at-
vinnu, og atvinnuleysingjar
eru nú 200.000 fleiri en á
sama tíma fyrir ári.
Slðastliðna 12 mánuði hef-
ur atvinnuleysi aukist i öll-
um bandalagsrikjunum
nema Vestur-Þýskalandi,
þar sem úr þvl hefur dregið
um 10% á þessum tlma, og I
Hollandi, en þar hefur at-
vinnuleysi minnkað um átta
af hundraði.
Franskur
Frjálslyndir styðja
Callagham
Fá hlutdeild aö stjórnarákvörd-
unum í fyrsta sinn eftir striö
LUNDCNUM 23/3 Reuter —
Stjórn Callaghans hefur fengið
loforð Frjálslynda fiokksins um
stuðning i atkvæðagreiðslu um
vantraust á stjórnina, sem
Margaret Thatcher, leiðtogi
thaldsflokksins, bar fram og
gengið verður til atkvæða um I
kvöld.Er taliðað með þessu muni
Frjálslyndi flokkurinn, sem hefur
þrettán þingmenn I neðri mál-
stofu breska þingsins, bjarga
stjórn Verkamannaflokksins frá
falli.
Aö launum fyrir þennan stuðn-
ing hét Callaghan Frjálslynda
flokknum þvi, aö flokkurinn yröi
héreftir hafður með 1 ráöum um
ákvarðanir stjórnarinnar. Er
þetta sögulegur atburöur fyrir
Frjálslynda flokkinn, þvi að
þetta er i fyrsta sinn, sem hann
fær einhverja hlutdeild aö
ákvörðunum rikisstjórnar Bret-
lands eftir siðari heimsstyrjöld.
Undanfarna sex áratugi hefur
Frjálslyndi flokkurinn verið held-
ur fáliðaður á þingi, og siðasta
rikisstjórnin, sem hann stóð einn
að, kom til valda 1910.
Ta liö er a ö þetta samstarf verði
til þess, að stjórn Callaghans
verði að leggja að miklu leyti eöa
alveg á hilluna fyrirtælanir um
þjóðnýtingu eða aðrar ráðstafan-
ir i átt til sósialisma, enda tók
vinstri armur Verkamanna-
flokksins tiðindunum kuldalega.
Ihaldsmenn urðu áberandi reiðir
við fréttina um samkomulagiö og
sagði Thatcher að Callaghan
Callaghan — fær stuðning frjáls- heföi skriöið fyrir frjálslyndum
lyndra og reiði vinstrimanna I og fleiri flokkum til þess aö fá
eigin flokki. stuðning þeirra.
Podgorní í Tansaníu
Fyrstur sovéskra ráðamanna
í heimsókn í sunnanverðri Afriku
DAR ES SALAAM 23/3 Reuter —
Nikolai Podgorni, forseti Sovét-
rikjanna, er nú i opinberri heim-
sókn i Tansaniu og er hann sá
fyrsti af æðstu valdamönnum
Sovétrikjanna sem heimsækir
sunnanverða Afriku. Frá Tans-
aniu fer hann til Mósambik og
Sambiu.
Podgorni ræddi i dag i tvær
klukkustundir við Julius Nyerere,
forseta Tansaniu, og er taliö að
þeir hafi einkum fjallað um mál
sunnanverörar Afriku. Sovétrikin
njóta talsverðrar viröingar og
vinsemdar i Tansaniu og fleiri
löndum suöur þar vegna stöðugs
stuðnings þeirra við afrískar
Skákkeppni
framhaldsskóla 1977
hefst laugardaginn 26. mars kl. 14 að
Grensásvegi 46'.
ATH: Athygli'er vakin á, að hver sveit
skal skipuð FIMM AÐALMÖNNUM, en
ekki fjórum eins og misritast hefur I
dreifibréfi.
Taflfélag Reykjavikur,
Grensásvegi 46, R. simi 83540.
sjálfstæðishr., sem sovétmenn
hafa meðal annars hjálpað um
vopn. 1 fréttatilkynningu, sem
gefin var út af hálfu Podgornis
við komuna til Tansaniu, lagði
hann áherslu á aö Sovétrikin
sæktust hvorki eftir herstöðvum
né öðrum friðindum i þessum
löndum.
M ikill mannfjöldi fagnaði Pod-
gornl viö komuna til höfuöborgar
Tansaniu, en fréttamenn þóttust
þó merkja að fólkiö heföi ekki
fagnað honum jafn innilega og
Fidel Castro, forsætisráðherra
Kúbu, sem kom til Tansanlu I sið-
astliðinni viku. Var Castro við
það tækifæri hylltur sem hetja og
Yfir 80
fórust i
jarðskjálfta
TEHERAN 23/3 Reuter — Vitaö
er að yfir 80 manns að minnsta
kosti fórust I jarðskjálftum I gær I
nágrenni hafnarborgarinnar
Bandar Abbas á suðurströnd
trans. Munu mörg sveitaþorp
hafa hrunið og er enn unnið að þvi
að grafa látna og lifandi upp úr
rústunum. Nýir jarðskjáifta-
kippir urðu á svæðinu i dag, en
samkvæmt fréttum ollu þeir ekki
manntjóni.
Podgornf — góður gestur I Tan-
saniu, Castro þó enn betri.
tansanlsk blöö sögðu aö engum
erlendum leiðtoga hefði nokkru
sinni veriö tekið meö meiri fögn-
uði en honum.
Vestrænir fréttaskýrendur telja
að með heimsókn Podgornis séu
Sovétrikin að vega upp á móti
viðleitni Vesturveldanna til þess
að hafa áhrif á gang mála I þess-
um heimshluta og að tryggja við-
ingu og áhrif Sovétrikjanna þar.
• r
njosna-
hringur
afhjúpaður
PARtS Reuter — Franskir em-
bættismenn hafa tilkynnt að
gagnnjósnaþjónusta iandsins
hefði afhjúpað njósnahring, sem
starfað hefði I 14 ár og á þeim
tima komiö margskonar háleyni-
legum upplýsingum um herbúnað
Frakklands og Nató til Sovétrikj-
anna. Fimm menn hafa veriö
handteknir vegna njósnamáis
þessa og er foringi þeirra sagður
vera Serge Fabiew, fæddur I
Júgóslaviu en nú franskur rikis-
borgari.
Yfirvöld telja að tveir hinna
handteknu hafi njósnað vegna
pólitiskrar samúöar með Sovét-
rikjunum, en hinir i gróöaskyni.
Þeir eru sagðir hafa aflað sovét-
mönnum upplýsinga meðal ann-
ars um gerð orrustuflugvélarinn-
ar Mirage 2000, sem frakkar eru i
þann veginn að hefja framleiðslu
á, og er sögð mjög fullkomin, svo
og öryggisráðstafanir kringum
herflugvelli og eldflaugastöðvar
og varnar- og eldflaugakerfi
Nató.
Stjórnar-
kreppa í
Hollandi
Haag 22/3 Reuter — Hoílenska
stjórnin hefur sagt af sér vegna
ósamkomulags stjórnarflokka
um umbætur I jarðeignamálum.
St jórnin kom til valda 1973 og eiga
fimm flokkar ráðherra I henni.
Kosningar hafa verið ákveðnar i
Hollandi 23. mai og verður stjórn-
in sennilega beðin aö sitja áfram
þangaö til. Forsætisráðherra er
sósialdemókratinn Joop den Uyl.
Auglýsinga
síminn
er 81333