Þjóðviljinn - 26.08.1981, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 26. ágúst 1981
MiOvikudagur 26. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Hér á isiandi er nú staddur
danskur myndhöggvari, Tove
Ólafsson, sem á margan máta er
tengd landi okkar og þjóö. Tove
er fædd 5. október 1909 i Kaup
mannahöfn. Hún Iauk námi i tré-
skuröi 1931 og var I mynd-
höggvaradeild Listaháskólans i
Kaupmannahöfn 1933—1938.
Tove giftist islending, Sigurjóni
ólafssyni myndhöggvara, og
bjuggu þau I Reykjavík á timabil-
inu 1945—1953. Síöan fluttist Tove
aftur til Kaupmannahafnar og
hefur búiö þar siöan.
Nú er þessi merka listakona
komin hingaö aftur noröur undir
heimskautsbaug eftir 28 ára fjar-
veru til þess aö halda sýningu á
fáeinum verka sinna i Listmuna-
húsinu I Reykjavík.
Þvi miöur gerir Tove hér
stuttan stans aö þessu sinni, þvi i
dag snýr hún aftur til Danmerkur
eftir viku dvöl I Reykjavfk.
Þó hver stund i lifi þessa sjötiu
og eins árs gamla listamanns
viröist gullsigildi og timinn
naumur til þess aö heilsa vinum
út um borg og bl þá lét hún svo
litiö aö taka á móti biaöamanni og
ljósmyndara Þjóöviljans, þar
sem hún var stödd I kaffiboöi hjá
Sigriöi ólafsdóttur, fyrrverandi
mágkonu sinni, vestur i bæ.
Braggalíf
Við spurðum Tove fyrst aö þvi
hvaö henni hefði fundist um
Reykjavik, þegar hún kom hingaö
i fyrsta sinn fyrir hartnær fjórum
áratugum siöan.
Tove: Fyrir striö höföum viö
Sigurjón komiö hingaö um nokk-
urra ára skeið annað hvert ár og
feröast um landiö. Viö fórum á
Mývatn og upp um fjöll og firn-
indi. Þaö var yndislegt.
Svo þegar striöinu lauk ákváö-
um við að bregöa undir okkur
betri fætinum og setjast hér aö.
Viö komum hingað I nóvember-
mánuði. bað var hræðilegt. Ég
uppgötvaöiað nóvembermánuður
á Islandi er sá alversti mánuöur,
sem þekkist um heim allan, það
var látlaust rok og rigning svo
ekki sá út úr augunum.
Viö fluttumst inn i kofa úti á
Laugarnesi og braggahreysi sem
var fjarri þvi aö vera íbúöar-
hæft var vinnustofan okkar. Ég
,,Ég hef alltaf þóst greina einhvern kjaran bakviö hismiO”
Viðtal við
Tove
Ólafsson
„Þetta gerOi ég fyrir löngu slOan og er kannski ekki þaO versta, sem ég hef gert”.
„Svona asnalega má ekki spyrja”
,ÆINS OG DROTTNIN GIN AF SABA”
veit aö þú getur ekki imyndað þér
hversu kalt var þar ipni á vet-
urna.
Þarna bjuggum við i átta ár.
Fyrstu mánuöirnir voru vægast
sagt dapurlegir. Ég fór aldrei af
Laugarnesinu og hitti engan utan
fjölskyidu Sigurjóns. Svo var það
dag nokkurn rétt eftir áramótin,
aö Sigurjón fann stóran , sæbar-
inn grágrýtisstein niöri viö
flæðarmálið og viö fengum hann
fluttan uppi braggann. Og ég
byrjaði aö höggva og þá gufaöi
armæöan upp eins og dögg fyrir
sólu. Þannig baröi ég mig út úr
leiðindunum og þótti aftur gaman
að lifa.
tJtkoman var myndastytta sem
ég kallaði Laugarnesvenusinn, en
heldur þótti ibúum staöarins litiö
til hennar koma og voru jafnvel
sármóögaöir yfir þvi aö ég skyldi
leyfa mér aö kenna ósköpin við
Laugarnesiö. Seinna gaf ég
bróöur minum styttuna svo
Laugarnesvenusinn hafnaði I
Kaupmannahöfn.
Sama nafla-
skoðunin
Uppfrá þessu vann ég svo til
eingöngu i grágrýti hér á ísiandi
og undi mér ágætlega.
Ég kynntist ótalmörgum is-
lenskum listamönnum. Á þessum
árum byrjaöi hreyfing lista-
manna sem kallaöi sig Septem
og meöal þeirra átti ég marga
vini og kunningja. Suma þekkti
ég reyndar frá gamalli tiö i Kaup-
mannahöfn svo sem Svavar og
Þorvald.
Ég kenndi líka við myndlistar-
skólann i Reykjavik i fimm ár og
kynntist þannig mörgu ungu og
hæfileikamiklu fólki. Hvort is-
lenskir listamenn hafi verið ólikir
þeim dönsku? Æ, ég held aö lista-
maðurinn sé samur viö sig alis
staðar og eigi hvarvetna viö sömu
naflaskoöunina aö striöa.
Blm: Nú, þegar þú kemur
hingaö aftur eftir 28 ára fjarveru,
hvernig virkar Reykjavik á þig?
Tove: Hún hefur stækkaö hreint
ótrúlega. A miövikudaginn var
fékk ég aö sjá hana i sparifötun-
um. Það var yndislegt veöur og
miklu fleira fólk á ferli heldur en
hér I eina tið.
Siðan ég kom hefur fólk látlaust
leitaö mig uppi. Borgin hefur
breyst svo mikið, en gömlu vin-
irnir sem hafa leitaö til min eru
samir viö sig og óbreyttir. Ég
held, aö tryggö sér þjóðardyggð
meöal Islendinga.
Og vinirnir, sem allir komu á
sýninguna, tóku mér eins og ég
væri drottningin af Saba. Mér leiö
eins og ég heföi bara rétt brugðiö
mér frá.
Efniviðurinn sjálf-
ur ræður ferðinni
Blm: Hafa einhver ákveðin viö-
fangsefni átt öörum fremur
greiöan aögang aö listsköpun
þinni?
Tove: Það er fyrst og fremst
fólk, sem mér er hugleikiö,
annars er þaö efniviöurinn
sjálfur, sem ég vinn úr, er ræöur
feröinni. Ég reyni alltaf aö láta
upprunalega formiö halda sér,
þaö er stemmningin i hlutunum,
sem skiptir máli.
Hlýja og mannúö eru mikils-
veröust, því aö jafn vel þó ekki
megi gleyma ógnum liðandi
stundar þá eru fallegri hliöar
mannlifsins nauösynleg upp-
spretta.
En ég er einnig mjög upptekin
af þvi jaröbundnasta, félagsleg-
um veruleika. Svo hef ég ímugust
á smörtum hlutum, þeir hafa
alltaf yfirboröskennd áhrif á mig.
Blm: Hvaöa efniviö likar þér
best við?
Tove: Aöur fyrr hélt ég mest
upp á steininn en nú er hamarinn
oröinn of þungur og úthaldið ekki
þaö sama og fyrr.
Ætli tréö sé mér ekki kærast nú
oröiö enda er tréskuröur sú sér-
grein, sem ég lærði fyrst. En nú
er oröiö svo erfitt aö ná i góöan
viö i Danmörku. Annaö hvort er
efniö of nýtt eöa þaö er illa til
skorið. Þegar öllu er á botninn
hvort, þá held ég að ég kunni mest
fyrir mér i tréskuröi og ef þú litur
grannt á hlutina mina á sýning-
unni þá held ég, aö þaö leynist þér
ekki aö þar er fagmaður á ferð.
Blm: Þú hefur veriö kennd viö
danska listamannahreyfingu,
sem kallast „Kammeraterna”.
Hver er saga hennar?
Tove: Viö vorum tiu listamenn,
sem tókum aö vinna saman fyrir
45 árum og vildum vinna i þágu
sósialisma og betra mannlífs. Ég
var eina konan og umleið eini
myndhöggvarinn I hópnum. Enn
þann dag i dag, þá trúi ég þvi, aö
allir listamenn séu eöa ættu að
vera einhvers konar sósialistar.
Nú er svo komiö, aö ég er ein
„Ég held aö enginn meö fullu viti geti leyft sér bjartsýni’\
„.Viltu ekki svolltiö meira kaffi
vinurinn?”
„Æ, er ekki komiö nóg af þessu
ljósmyndaveseni?”
eftir af þeim er stofnuðu til þessa
samstarfs, þótt hreyfingin lifi
ennþá góöu lifi og hafi enn tölu-
verö áhrif á danskt listalif.
Hvað finnst þér
sjálfum
um stúlkur?
Blm: Hvaö finnst þér um ný-
list?
Tove (Baöar út höndunum og
lyftist upp i stólnum): Svona
asnalega má ekki spyrja. Hvaö
finnst þér sjálfur um stúlkur?
Hvaö finnst þér um fólk? I gær-
kveld var ég i húsi með átta öör-
um og viö ræddum fagrar og ó-
fagrar listir og enginn var sömu
skoöunar um hvaö væri list.
Ég er á móti öllu isma-tali og ég
trúi þvi aö á öllum timum hafi
verið til gott og vont I list, þess
sama geldur nýlistin svokallaöa.
Mér finnst einhvern veginn, að
góö list sé sú, sem kemur þvi til
leiöar, aö maöur hefur þaö á til-
finningunni, að listamaðurinn
hafi ekki komist hjá þvi aö skapa
það sem hann skapaöi.
Blm: Hefuröu fylgst meö starfi
ungra listamanna i Danmörku i
seinni tiö?
Tove: Ég var einu sinni i
Akademiuráöinu og þá átti maöur
aö sækja sýningar lon og don. I
dag fer ég þvi miöur alltof litiö á
sýningar annarra listamanna. Þó
leyfi ég mér aö segja, aö gegnum
allar þær umbreytingar listsköp-
unar, sem ég hef verið vitni aö,
hef ég alltaf þóst greina kjarna
bakviö hismið.
Ef þú fengir lifað
öðru sinni?
Blm: Ef þú fengir lifað lifi þinu
ööru sinni helduröu að þú legöir
aftur út á listamannsbrautina?
Tove (meö leiftrandi augu og
breitt bros): Já og aftur já, ég
gæti aldrei lifaö ööru lifi.
Einu sirtni spuröi ungur maður
viö listaakademiuna I Kaup-
mannahöfn roskinn kennara sinni
i trúnaði, hvort hann héldi aö
hann gæti orðið góöur listamaöur.
Kennarinn svaraöi: ,,Ef þú
heldur aö þú getur oröið eitthvaö
annað skaltu snúa þér aö þvi”.
Blm: Aö lokum Tove.ert u bjart-
sýn eöa svartsýn á framtið manns
og heims?
Tove: Heiminum er ógnaö úr
ótal áttum og heimskingjar halda
viða um stjórnartaumana. Ég
held aö enginn meö fullu viti geti
leyft sér aö vera bjartsýnn á
okkar dögum. Hvaö sjálfa mig
varöar, þá óttast ég ekki, ég hef
runnið mikiö af minu skeiöi. En
ég á börn og barnabörn og þeirra
vegna óttast ég.
Að lokum spuröum viö Tove
hvernig sýningin hennar gengi i
Listmunahúsinu. Hún sagði
okkur, aö allar stytturnar hennar
heföu selst upp eins og skot. Þaö
kom henni með öllu á óvart og
hún var hreint ekki undir það búin
að skiljast viö öll verkin svona
fyrirvaralaust, „þetta er ekki
ólikt þvi að láta frá sér börnin
sin”, sagöi hún. „Ég held ég komi
viö i galleriinu á morgun áður en
ég fer út á flugvöll og kveöji þessa
vini mina”.
Þýska kirkjan í Hafnarfirði
Spurningarmerki gleymdist
Slæm mistök urðu við lokafrágang fréttar á baksíðu
Þjóðviljans í gær um hugsanlegan fund rústa fyrstu
lúthersku kirkjunnar hérlendis. Það yar í engu ætlun
blaðamanns að láta líta svo út, að rústirnar væru
fundnar, heldur féll niður spurningarmerki í lok aðal-
fyrirsagnar, fyrir handvömm við lokavinnslu blaðsins.
Saga ,,þýsku kirkjunnar" í Hafnarfirði er forvitnileg
á margan hátt og hér verður rif jað upp IítiIsháttar um
það sem samtímaheimildir hafa að segja okkur frá
ibyggingu kirkjunnar snemma á 16. öld.
Kirkjan líklega byggð um 1534 og
rifin 1608 samkvæmt konungsboði
Koparþak og
naglar iyrir
16 mörk 1543
„Ith. noch hebbe ick uth gheven Frerick dem
tymmerman vor dat hus tho makkenn,dat in yslant
quam in de Hanenforde summa 50 mk”.
Svo segir i bræðralagsbók kaupmanna og skip-
stjóra i Hamborg sem lögðu stund á íslands-
siglingar, en þessi tilvitnun sem er frá 1534 er elsta
skriflega heimildin um þá kirkju íslandsfaranna i
Hamborg sem þeir reistu á 16. öld i Hafnarfirði.
Á næstu siðu reikningsbókarinnar, sem eins og
önnur varðveitt skjöl bræðralagsins eru geymd i
rikisskjalasafninu i Hamborg, er færð greiðsla
handa „smed” fyrir allmörg „par henggen” fyrir
„slot” á „Karken in yslant”.
Þessar upplýsingar um fyrstu
lúthersku kirkjuna á Islandi er aö
finna i grein eftir þýska fræöi-
manninn Kurt Piper, en Kristján
Eldjárn þýddi greinina sem birt-
ist i árbók hins islenska fornleifa-
félags 1969.
t greininni segir aö um stærö og
útlit kirkjunnar i Hafnarfiröi
verði ekkert sagt meö áreiðan-
legri vissu þar eö islenskar
heimildir þegi um það efni. Hins
vegar er vitaö hve lengi kirkjan
stóð og hvers konar hús hún var.
Arið 1539 greiöir bræðra-
sjóöurinn fyrir 34 borö i kirkju-
bygginguna og nagla. 1541 eru
keyptar 8 álnir lérefts til bygg-
ingarinnar og 1543 var samkvæmt
bræðralagsbókinni sett koparþak
á kirkjuna, sem kostaöi rúm 16
mörk ásamt nöglum.
Þeir kennimenn sem þjónuöu i
þýsku kirkjunni I Hafnarfirði
komu ár hvert i byrjun kauptiöar
og voru i landinu þar til siðustu
skip léttu akkerum á haustin. t
grein Piper segir m.a.:
„Ekkert er vitaö um þau
embættisstörf sem þessir
embættismenn unnu i Hafnar-
firði. Einungis vitum við um
predikarann Andreas (Antwan)
Hoffmann, að hann jafnaði mis-
sætti milli tveggja Hamborgar-
kaupmanna áriö 1599. Auk venju-
legrar guðsþjónustu fyrir kaup-
mennina og skipstjórana og
þjónustuliö þeirra, hafa þeir
sjálfsagt jarðsungiö þá Þjóðverja
sem i Hafnarfirði dóu. Stundum
hafa ef til vill einhverjir
tslendingar, sem búsettir voru i
Hafnarfirði, sótt þessar guös-
þjónustur, þvi að þá var engin
kirkja i Hafnarfiröi.”
Þá eru einnig heimildir fyrir
þvi að kirkjan hafi veriö notuö
sem samkomuhús eða samninga-
salur.
Arið 1603 rann út leigumáli
Hamborgarkaupmannanna um
Hafnarfjarðarhöfn og samtimis
tók Danakonungur fyrir tslands-
feröir og Islandsverslun Þjóð-
verja. t april 1608 gaf Kristján 4.
út þá fyrirskipun aö allar bygg-
ingar Þjóðverja á tslandi sem
stóðu á lóðum konungs eöa kirkju
skyldu rifnar. Allar likur benda
þvi til þess aö kirkjan hafi veriö
Kirkjurústirnar, aö þvl er Capella
telur, eru á byggingarlóö nýs
Fiskvinnsluskóla, og stutt er i
næstu ibúöarhús viö Hólabraut og
Asbúðartröö. — Mynd — Keth.
rifin samkvæmt konungsboði á
þvi ári.
t sögu Hafnarfjarðar hallast
Sigurður Skúlason aö þvi aö
kirkjan hafi staðiö á Óseyri. Gisli
Sigurðsson hefur leitt sterk rök aö
þvi i grein i Sögu 1961, aö versl-
unarstaður Þjóöverja I Hafnar-
firði, Fornubúöir, hafi verið á
Háagranda innst á Grandanum,
utan við ósinn andspænis Óseyri
og Flensborg. A þessum stöðum
hafa staðarhættir breyst mikið á
siðustu öldum vegna sjávar-
ágangs og ekki sist vegna hafnar-
framkvæmda á fimmta ára-
tugnum, en 1943 komu upp
mannabein við dýpkunarfram-
kvæmdir innst á Grandanum.
Eru þau talin koma frá kirkju-
garöinum sem fylgdi þýsku
kirkjunni.
-lg-