Þjóðviljinn - 11.11.1987, Blaðsíða 6
íbúð óskast
2ja - 3ja herbergja íbúö óskast á leigu í Hafnar-
firöi eða nágrenni.
Upplýsingar í síma 53444 hjá Kolbrúnu.
Laus staða
Staða bókavarðar í Landsbókasafni er laus til umsóknar.
Æskilegt er að umsækjendur hafi próf í bókasafnsfræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil
skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 2. desember
næstkomandi.
5. nóvember 1987
Menntamálaráöuneytið
Frá fjárveitinga-
nefnd Alþingis
Fjárveitinganefnd vill árétta aö skrifleg erindi
þurfa aö hafa borist nefndinni í síöasta lagi 20.
nóvember n.k. Ekki verður tekiö viö erindum eftir
þann tíma.
Barnaheimili í
Vogahverfi
Dagheimilið Sunnuborg, Sólheimum 19, óskar
eftir fóstrum, uppeldismenntuöu fólki og aðstoð-
arfólki til starfa í 100% og 50% stööur.
Upplýsingar í síma 36385.
NÚ líður mér vel!
o
leggja drög að því að samræma
það fjölbreytta virðisaukakerfi
sem þeir búa að. Eru þeir að
stefna að einni og sömu prósent-
unni yfir alla línuna? Svarið er
ösköp einfaldlega nei. I þeim
samræmingarhugmyndum sem
þar eru uppi er beinlínis við það
miðað að það verði ekki sama
prósentan yfir alla línuna. Það er
beinlínis við það miðað að það
verði ein prósenta fyrir nauðsynj-
ar og önnur og hærri fyrir aðrar
vörur og þjónustu. í þessu efni er
þess vegna greinilegt að ríkis-
stjórnin er kaþólskari en páfinn.
Hún tekur trúarbrögðin alvar-
legar en þeir sem trúarbrögðin
boða.
Fjórðungs hækkun
tekjuskatts
Mig langar aðeins að víkja að
þeim orðum hæstvirts fjármála-
ráðherra hér fyrr í dag að það sé
illt í efni að sveitarfélögin hækki
útsvar sitt svo nemi 20% á milli
ára, 20% að raunvirði. Ég er satt
að segja alveg sammála fjármála-
ráðherra í því efni. Ég held að
það skipti miklu þegar stað-
greiðslukerfi verður tekið upp
eins og hann réttilega minnti á,
að það verði gætt ítrasta aðhalds
þannig að kerfið nái fram að
ganga á sem mildilegastan hátt.
En það er eðlilegt þá um leið að
spyrja: Hver er fyrirætlan fjár-
málaráðherra sjálfs með það sem
lýtur að tekjuskatti? Og þá vil ég
með leyfi forseta fá að lesa hér
örstutta tilvitnun í ræðu fjármála-
ráðherra á bls. 34, en þar segir
svo:
„í fjárlagafrumvarpi er gert
ráð fyrir að skattbyrði af tekju-
skatti verði áþekk því sem áform-
að var að hún yrði á árinu 1987
við afgreiðslu fjárlaga fyrir það ár
og þegar ákveðnar voru breyting-
ar á tekjuskattslögum."
Þetta eru ákaflega falleg orð og
þeim er snyrtilega raðað saman,
en mér sýnist af því sem ég hef
heyrt af umræðunni hér í dag, að
mönnum sé satt að segja ekki
fullljóst hvað orðin þýða. Ég brá
mér því í dag hér út í horn og
ráðfærði mig við þá tæknimenn
sem þar sátu til að reyna að kom-
ast að því hver merking orðanna
væri. Ég mundi í rauninni bara
það tvennt að tekjur höfðu orðið
minni í ár heldur en upphaflega
var búist við og ég mundi einnig
að tekjurnar hjá einstaklingun-
um, tekjur ríkissjóðs hefðu sem
sagt orðið minni, tekjur einstakl-
inganna hins vegar hefðu orðið
allmiklu meiri.
Og hver er niðurstaðan? Nið-
urstaðan var ósköp einfaldlega sú
að það sem að væri stefnt í fjár-
lögum væri um það bil fjórðungs-
hækkun á tekjuskatti, sem sagt,
að tekjuskattur á næsta ári yrði
um fjórðungi hærri en hann er í
ár, það var reiknað sem hlutfall af
tekjum.
Hvað er það þá raunverulega
sem verið er að bjóða? Það er
verið að bjóðast til þess að ein-
hverju leyti að hætta við að
hækka skv. fyrstu áformum. Það
standa eftir áformin um að hækka
söluskattinn. Það er hugsanlegt
að þar komi aðgerðir á móti að
hluta. Það standa eftir áform um
að hækka ekki bara útsvarið eins
og fjármálaráðherra minnti á,
heldur einnig tekjuskattinn og
það er hugsanlegt skv. því sem
fylgir að það megi nota hluta af
söluskattshækkuninni til þess að
milda afleiðingarnar þar af. Hér
þarf að mínu viti að tala öðruvísi
og það þarf líka að sjá til þess að
vinnubrögðin og aðgerðirnar
verði með öðrum hætti.
Húsnæðiskerfið
Herra forseti. Ég ætia ekki að
fjalla hérítarlega um útgjaldahlið
frumvarpsins en mig langar til að
nefna tvö atriði. í fyrsta lagi segir
í frumvarpi eða er gert ráð fyrir
því í frumvarpinu að framlagið til
Atvinnuleysistryggingasjóðs
verði skert. Ég held að það þurfi
ekki að rekja þá áherslu sem lögð
hefur verið á það af hálfu verka-
lýðssamtakanna á liðnum árum
að tryggja að það sé staðið að
með traustum hætti. Áform af
þessu tagi hafa verið uppi áður,
voru uppi við undirbúning síð-
ustu fjárlaga, en þau áform voru
þá lögð til hliðar og ég treysti því
að svo verði einnig að þessu sinni.
í öðru lagi vil ég nefna fram-
lagið til almenna húsnæðiskerfis-
ins. Ég vil byrja á því að nefna að
framlagið úr ríkissjóði til félags-
lega kerfisins er á þessum fjár-
lögum aukið verulega og sú
aukning skiptir auðvitað mjög
miklu máli því að þar er ástandið
erfitt og þar þarf að gera mikið.
En almenna kerfið blasir hins
vegar við að skera á fjárveitingu
enn frekar niður. Það er áætluð
til almenna kerfisins 1150 millj.
kr. Af því er áformað að 150
millj. kr. gangi til fólks í greiðslu-
erfiðum, sem sagt ekki til hinna
almennu útlána sem kerfinu er
ætlað að sinna þannig að til þeirra
standa þá í rauninni aðeins eftir
1000 millj. Það er athyglisvert að
þessi tala, 1000 millj., er sama
tala og hæstvirtur forsætisráð-
herra notaði þegar hann var fjár-
málaráðherra. Þá var ekki tekið
tillit til verðbólgu frá því sem
miðað hafði verið við við undir-
búning fjárlagafrumvarpsins, því
að forsætisráðherra sem þá var
fjármálaráðherra, greip tölu úr
skjölum þeirra sem undirbjuggu
frumvarpið um húsnæðismál.
Þeir höfðu áætlað að a.m.k.
þyrfti 1000 millj. í ríkisframlag á
ári hverju til að kerfið gengið
miðað þá við aprílverðlag 1986,
og reyndar ekki miðað við þá
fjölgun eða þann mikla fjölda
umsókna sem síðan kom í ljós að
bárust kerfinu. Þáv. fjármálaráð-
herra tók ekki tillit til verðbólg-
unnar og hann tók ekki tillit til
þess að umsóknir voru fleiri en
ráð hafði verið fyrir gert. Núv.
fjármálaráðherra hegðar sér með
sama hætti. Hann tekur mið af
sömu krónutölunni greinilega og
heldur henni til streitu hvað sem
verðbólgu líður, hvað sem sókn-
inni á kerfið líður.
Ég vil bæta því við að 1000
millj. kr. á verðlagi apríl 1986 eru
væntanlega eitthvað yfir hálfur
annar milljarður, eitthvað yfir
1500 millj. kr. á komandi ári.
Nirðurskurðurinn sem við stönd-
um þarna frammi fyrir er þess
vegna í grófum dráttum Vi. f
reynd er niðurskurðurinn í þessu
efni þó stærri því það kemur líka
fram í fjáriagafrumvarpinu, að
það er ætlun þeirra sem ráða að
taka helminginn af því ríkisfram-
lagi sem ég þarna nefndi, því sem
eftir stæði, 500 millj. að láni frá
lífeyrissjóðunum, að láni af því fé
sem lífeyrissjóðirnir kaupa af
Húsnæðisstofnun til þess að efla
það kerfi. Það er sem sagt í stuttu
máli ætlunin að tryggja að það
fjármagn verði ekki nýtt í hús-
næðiskerfinu, því að raunveru-
legt framlag ríkissjóðs til húsnæð-
iskerfisins, þess almenna, er þar
með orðið 500 millj.
Ég held að það þurfi ekki að
rökræða að hér er rangt að stað-
ið. Ég vil taka það fram, kannske
að gefnu tilefni að ég er ekki í
deilu við félagsmálaráðherra um
það að það sé rétt að takmarka
sókn í lán frá Húsnæðisstofnun,
þó við deilum þar nokkuð um að-
ferðir. Þær umræður eiga heima
undir öðrum lið. En ég vil leggja
áherslu á það og ég held að öllum
sé það ljóst að húsnæðiskerfið
þarf sitt ríkisframlag og ég vil
kannske sérstaklega minna á að
félagslega kerfið getur þá
auðveldlega tekið við. Þar eru
verkefnin stór og þar er þörfin
brýn.
Röng leið
Herra forseti. Ég skal stytta
mál mitt. Ég ætla ekki að fara hér
í umræðu um kjarasamninga á
næsta ári, en ég vil þó leyfa mér
að minna á tvennt: í fyrsta lagi er
öllum ljóst, væntanlega líka þeim
sem semja fjárlagafrumvarp, að
þær forsendur, sem þar eru settar
um hækkanir kaups á næsta ári
munu tæpast standast. Ég ætla
ekki að fara frekar í rökræður um
það efni, en ég held að öllum sé
íjóst að það sem í fjárlagafrum-
varpinu stendur hvað þetta snert-
ir er einföld reiknitala og það þarf
auðvitað að taka tillit til þess þeg-
ar frumvarpið er metið.
í öðru lagi vil ég minna á að þau
skattheimtuáform sem nú eru
uppi eru ekki í samræmi við yfir-
lýsingar þær sem stjórnvöld gáfu
við gerð kjarasamninga á síðasta
ári. Þau áform hljóta að auka
traustið á ríkisstjórninni og þeim
áformum þarf að breyta þannig
að þau komi ekki til fram-
kvæmda. Þeim þarf að breyta
ekki aðeins til þess að auðvelda
kjarasamninga heldur og fyrst og
fremst til að vernda hagsmuni
þeirra sem minnst hafa.
Ríkisstjórnin viðurkennir að
fjárlagagatið þarf að fylla, en hún
velur ranga leið til að leysa málið.
Ég mælist til þess að úr því verði
bætt, herra forseti. Ég hef lokið
máli mínu.
Allar fyrirsagnir eru Þjóðviljans.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvlkudagur 11. nóvember 1987