Þjóðviljinn - 11.11.1987, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Miðvikudagur 11. nóvember 1987 252. tölublað 52. órgangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Afvopnun
Friðlýsing tímabær
SteingrímurJ. Sigfússon mœlti fyrir frumvarpi umfriðlýsingu íslands.
Utanríkisráðherra staðfestir að markmið frumvarpsins sé sér að skapi.
Kjartan Jóhannsson og Þorsteinn Pálsson andvígir
Eg get með ánægju staðfest að
markmið frumvarpsins er að
mínu skapi, sagði Steingrímur
Hermannsson, utanríkisráðherra
i umræðum á Alþingi í gær um
frumvarp Steingríms J. Sigfús-
sonar og Kristínar Einarsdóttur
um að Island verði gert að frið-
lýstu svæði, bæði hvað varðar
kjarnorkuvopn og eiturvopn.
Utanríkisráðherra kvaðst
mjög hlyntur efni og markmiði
frumvarpsins en taldi rétt að at-
huga nánar hvort skynsamlegt
væri að setja hér einhliða lög þar
sem íslendingar væru aðilar að
Atlantshafsbandalaginu.
Steingrímur J. Sigfússon mælti
fyrir frumvarpinu og sagði helstu
rökin fyrir frumvarpinu vera þau
að með því væri lögfest yfirlýst
stefna þjóðarinnar í þessu máli,
samanber ýmsar yfirlýsingar ráð-
herra og niðurstöður úr skoðana-
könnunum sem sýna að um 90%
þjóðarinnar vill að ísland verði
lýst kjarnorkuvopnalaust svæði.
Þá væri umhverfisþátturinn ekki
síður mikilsvirði en með frum-
varpinu er dregið úr hættu slysa
vegna kjarnorkuvopna eða
kjarnorkuknúinna farartækja.
Guðmundur G. Þórarinsson
sagði tímabært að sett væru lög
um þetta og sagðist samþykkur
meginmarkmiði frumvarpsins,
að staðfesta að hér á landi séu
hvorki kjanorkuvopn né eitur-
efnavopn. Hinsvegar gerði hann
nokkrar athugasemdir við ein-
staka liði frumvarpsins. „Frum-
varpið er góðra gjalda vert og
þarft framlag á Alþingi.“
Kristín Einarsdóttir áréttaði
stefnu Kvennalistans, að unnið
væri að því að ísland yrði lýst
kjarnorkuvopnalaust. Albert
Guðmundsson var einnig já-
kvæður í garð frumvarpsins.
Kjartan Jóhannsson sagði
hinsvegar að ekki væri skynsam-
legt að gefa út einhliða yfirlýsing-
ar einsog þessa. Þessi yfiriýsing
Kjartans varð til þess að Hjör-
leifur heimtaði skýr svör frá utan-
ríkisráðherra um hvort Kjartan
talaði þarna fyrir hönd allrar
stjórnarinnar og lýsti utanríkis-
ráðherra þá þeirri skoðun sinni
að hann gæti með ánægju staðfest
að markmið frumvarpsins væri
sér að skapi.
Þorsteinn Pálsson, forsætisráð-
herra, sagði Alþingi hafa tekið þá
afstöðu að gagnkvæmir samning-
ar væru áhrifamestir og einhliða
yfirlýsingar einsog hér væri mælt
fyrir, varhugaverðar.
-Sáf
Annað veröur að vfkja, bíll eða hross. Um síðir létu hrossin undan, eftir að bíllinn var stöðvaður og
mannfólkið stigið út. Myndin var tekin skammt austan við Laugarvatn en þar er hvítt yfir öllu og hált á vegum.
Mynd E.ÓI.
Stórmeistaraskák
Þetta verður langsterkasta mót
sem haldið hefur verið á ís-
landi, og mér er sagt að það verði
annað sterkasta skákmót í
heiminum frá upphafi vega, sagði
Páll Magnússon, skákáhugamað-
ur og fréttastjóri Stöðvar tvö, en
sjónvarpsstöðin hefur ákveðið að
standa fyrir einu af sex heimsbik-
armótum Alþjóðasambands stór-
meistara. Mótið hefst 2. október á
næsta ári.
Mótsstaðurinn hefur ekki ver-
ið ákveðinn, en það er Ijóst að
það verða engin blávötn sem
mæta til leiks, en keppendurnir
verða þessir, í styrkleikaröð:
Kasparof, Kortsnoj, Júsúpof,
Timman, Beljavskí, Portisch,
Spasskí, Tal, Solokof, Anderson,
Nunn, Ribli, Sax, Speelman, Jó-
hann Hjartarson og Sovétmaður-
inn Ehlvest.
Helsti hvatamaður þess að
stofnað var til Alþjóðasambands
stórmeistara er heimsmeistarinn,
Garrí Kasparof, en sambandið er
stofnað til höfuðs FIDE. Á veg-
um þess verða haldin sex
skákmót á næstu tveimur árum,
og verður mótið hér á landi ann-
að í röðinni; hið fyrsta fer fram í
Brussel í apríl.
24 sterkustu skákmenn heims
eiga þátttökurétt, en mega sleppa
tveimur mótum, enda verður hér
um að ræða sextán manna mót.
Sigurvegarinn í þessari nýju
Manndrápsgrunur
Dánarorsök
enn ógroind
Játning um átök liggur
fyrir
Krufningarskýrsla hefur enn
ekki borist rannsóknarlögregl-
unni vegna mannsláts í Skipholti í
Rcykjavík á laugardag og er dán-
arorsök því enn ekki kunn, en 31
árs karlmaður hefur játað að
hafa átt í átökum við hinn látna.
Sá hefur verið dæmdur í gæslu-
varðhald frammí febrúar og úr-
skurðaður í geðrannsókn. Jó-
hann Halldór Pétursson hét sá
sem lést og var vörubílstjóri að
atvinnu. Af orðum lögreglu má
ráða að sennilegast sé að hinn
handtekni hafi orðið Jóhanni að
bana í átökunum, en Þórir Odds-
son vararannsóknarlögreglu-
stjóri vildi þrátt fyrir „ákveðnar
vísbendingar“ ekkert segja um
með hvaða hætti, hvenær eða
hversvegna, fyrren rannsókn
væri lengra komin. Nafn þess sem
inni situr verður ekki gefið upp
að sinni.
Lögregla fékk upphringingu
um sexleytið síðdegis á laugardag
og fann hinn látna með áverka á
höfði í íbúð í Skipholti ásamt
þeim sem grunaður er og var
hann þá undir áfengisáhrifum.
Allir sterkustu nema Kaipof
Stöð tvö heldur eitt heimsbikarmótið. Allirþeir sterkustu með nema Karpof. Hefst
í októberbyrjun að ári
Grand Prix keppni skákheimsins
verður svo sá sem flesta vinninga
hefur hlotið á fjórum mótum.
HS
Fiskvinnslufólk
Konur verr
settar
Hávaði, kuldi, sleip gólf
dragsúgur, óloft
Launakjör fiskvinnslufólks
hafa verið mjög á dagskrá að
undanförnu og ekki að ástæðu-
lausu. En það er því miður fleira
en launakjörin, sem fiskvinnslu-
fólk hefur ástæðu til að vera óá-
nægt með.
Tíðustu umkvörtunarefni fisk-
vinnslufólks eru hávaði, kuldi,
hál gólf, dragsúgur, ólykt, hita-
sveiflur, léleg loftræsting, og
sitthvað fleira mætti nefna sam-
kvæmt upplýsingum frá Vinnu-
eftirlitinu.
Þeir atvinnusjúkdómar sem
fólk leitar helst til læknis með eru
vöðvabólga, hálsbólga, slæmt
kvef, bakverkur, sköddun á baki
og hækkun blóðþrýstings. Helstu
sjúkdómseinkennin eru vöðva-
bólga í herðum, æðahnútar, bak-
verkur, fótakuldi, vöðvabólga í
hnakka, skert heyrn, verkur eða
þreyta í augum.
Sjúkdómarnir eða sjúkdóms-
einkennin eru mun algengari hjá
konum en körlum, sérstaklega
vöðvabólga. Þar sem saman fer
hávaði, kuldi og sleip gólf er
heilsufar fiskvinnslukvenna lak-
ast. Heilsufar þeirra kvenna, sem
verða að vinna í „blóðspreng“
eða í miklum skorpum er lakara
en hjá hinum með jafnari vinnu-
hraða. - mhg j
Skák
H
Karpof tapaði biðskákinni
eimsmeistarinn Kasparof
vann í gær 11. skák
heimsmeistaraeinvígisins í Sevilla
sem fór í bið, og er staðan þá 6-5
Kasparof í vil.
Karpof gafst upp eftir aðeins
níu leiki í biðskákinni. Biðstaðan
var þessi: Karpof (hvítt); Ke2,
Rfl, a2, d5, e4, g2, g5, h4.
Kasparof: Kg7, Hd7, Ra5, a7,
b5, e5, g6, h4.
Biðleikur Kasparofs var Hc7
og skákin hélt svona áfram: 42.
Bd6, Hc2+, 43. Kb3, Hxa2, 44.
Re3, Kf7, 45. Rg4, Rc4, 46.
Rxe5+, Rxe5, 47. Bxe5, b4, 48.
e6+,
Bf6, b3, 49. e5, Hxg2, 50.
Kf8 og hvítur gaf.
„Ef d5 þá b2 og unnið á svart“
sagði Helgi Ólafsson í gær og
bætti því við að biðstaðan ha(i
hvorteðer verið vonlaus fyrir á-
skorandann. Tólftu skákina á að
tefla í dag. - m/reuter