Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.1996, Page 2
fréttir LAUGARDAGUR 17. FEBRÚAR 1996 Enginn farvegur fyrir meöferð á klögumálum á hendur biskupi: Ég er búin að gera það sem ég ætlaði mér - segir Sigrún Pálína Ingvarsdóttir sem sakar biskup um tilraun til nauðgunar Sigrúnar er líka orðið of gamalt til „Tilgangur minn var fyrst og fremst að ná sáttum við séra Vigfús og að leggja í hendur siðanefndar ábyrgðina af þessari vitneskju. Ábyrgðin hefur legið þungt á mér lengi," segir Sigrún Pálína Ingvars- dóttir þroskaþjálfi sem sakað hefur Ólaf Skúlason biskup um tilraun til nauðgunar fyrir 17 árum. Ólafur var þá prestur í Bústaðasókn en Sig- rún sóknarbarn hans. Drengur fær gervihönd Ríkisstjómin hefur ákveðið aö bjóða sjö ára dreng frá Bosníu hingaö til lands tii aö gangast undir læknisaðgerð og kemur hann líklega í næstu viku ásamt móður sinni. Drengurinn fékk sprengjubrot í höndina fyrir þremur árum og missti hana við úlnlið. Hér leggst hann inn á Landspítalann og fær gervihönd. Þórir Haraldsson,' aðstoðar- maður heilbrigðisráðherra, segir að drengurinn eigi skyldmenni, sem komu hingað til lands fyrir ári síðan, og hafi þau mæðginin bækistöðvar hjá þeim meðan á dvölinni stendur. Kostnaðurinn nemur einni milljón króna og verður upphæð- in tekin af ráðstöfúnarfé rikis- stjórnarinnar. -GHS Götumarkaður í Kringlunni í tileöii af því að útsölum í Kringlunni er að ljúka hafa um 40 verslanir þar staðið að götu- markaði síðan á miðvikudag og lýkur honum á morgun, sunnu- dag, en þá verða nokkrar versl- anir opnar. Verslanir verða opn- ar til kl. 18 í dag, laugardag. Vörurnar eru á borðum úti á ganginum og verðið fer niður úr öllu valdi. Það verður því ósvik- in götumarkaðsstemning, sölu- fólk hrópar til að auglýsa vörur sínar og jafnvel er hægt að prútta. í Ævintýra-Kringlunni á þriðju hæð er bamagæsla. -ÞK Sigrún sagði prestunum séra Pálma Matthíassyni og séra Vigfúsi Þór Ingvarssyni frá reynslu sinni og ætlaðist til að þeir ræddu mál sitt í hópi presta. Svo fór ekki og nú um síðustu mánaðamót kærði Sigrún séra Vigfús til siðanefndar Prestafé- lagsins íyrir að hafa ekki beitt sér í málinu. Sættir hafa tekist í máli Sigrúnar og séra Vigfúsar en hið upphaílega vandamál Sigrúnar, þ.e. meintar misgjöröir biskups gagnvart henni, var af hálfu siðanefndar vísað til stjómar Prestafélagisns og biskups. Öllum sem DV hefur rætt við ber saman um að enginn farvegur sé innan kirkjunnar eða félags presta til að greiða úr máli Sigrúnar. Þá mun stjórn Prestafélagsins ræða það á fundi eftir helgina en hefur ekkert úrskurðarvald í málinu. Mál aö þaö verði tekið upp fyrir dóm- stólum. Ólafur Skúlason biskup mun gefa út yfirlýsingu um málið frá sinni hlið. Mál Sigrúnar er og þannig vaxið að þar standa orð hennar á móti orðum biskups. Hann hefur vísað áburði Sigrúnar á bug og sagði við DV í gær að hann væri ósannur. -GK 6ær voru kampakátar, stjórnarþhlgkZImarSivFriðleifsdóttir og Lára Margrét Ragnarsdóttir, Þegar Ijósmyndari DV rakst á þær niðri í þinghúsi á dögunum. Lára Margrét vakti mikla athygli þegar hun 9reldd'atk^' 9^" ‘ nri GS Rússa í Evrópuráðið. Meira að segja vitnaði stórblaðið Le Figaro i ummæli hennar vegna þess mals. DV mynd GS Frumvarp Qármálaráðherra um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins mætir andstöðu. Hugsun sem byggist á forsendum forstjóranna ....oQCTir ncnrmnHiir .TrmíiQQnn fnrmaðnr RSRB - sem við sættum okkur ekki við, segir Ögmundur Jónasson, formaður BSRB „Þarna er verið að taka á öllum ingar á allri uppbyggingu kjara- ”-K U"K 4 u”"" h’,nrln’' kinr spm harna er okkar réttindum og skyldum. Auk samninga. Þarna er verið að fara þess sem verið er að leggja til breyt- með kjarasamning út í stofnamr Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö ,r ö d d \ hringja í síma 904-161)0. 39,90 kr. mínútan. Já 11 FOLKSINS- Nel2j 904-1600 k að afnema skylduáskrift að RUV? með það í huga að forstjórar stofn- ana verði nær alls ráðandi um launakjörin," segir Ögmundur Jón- asson, formaður BSRB, um þau frumvarpsdrög sem fjármálaráð- herra hefur lagt fram til kynningar. I þessum drögum er gert ráð fyr- ir því að fyrst verði gerðir einhverj- ir grunnsamningar milli stéttarfé- laga og ríkisins en síðan verði ein- staklingsbundnir samningar á for- sendum forstjóranna hjá ríkisfyrir- tækjum. Ögmundur segir þetta vera hugsrm sem byggi á forsendum for- stjóranna. „Öll réttindin sem menn hafa byggt á og er að finna í lögum og reglugerðum, sem sprottin eru upp úr kjarasamningum, eru nú í upp- námi Þetta eru sem sé hin lög- bundnu kjör sem þarna er verið að setja í uppnám. Menn hafa setið vik- um og mánuðum saman í kjara- samningum og þjarkað um minni háttar breytingar á réttindum al- mennt. Ef menn ætla síðan að dengja hér fram lagafrumvarpi til breytinga á því öllum saman, þar sem öllu réttindakerfmu er umturn- að, þá hafa menn hlaupið inn í hina hrikalegu nýsjálensku mistaka- smiðju sem orðin er víti til varnað- ar um allan heim,“ sagði Ögmundur Jónasson. Hann segir ennfremur aö það sé ekki að furða þótt opinberir staifs- menn kalli frumnvarpsdrögin „leift- ursókn gegn launafólki" og mót- mæli þeim af öllum kröftum. -S.dór Stafnes KE: Veiðibann fyr- ir að landa fram hjá Sjávarútvegsráðuneytið hef- 1 ur svipt Stafnes KE hefur veiði- rétti í hálfan-mánuö frá og með deginum í dag vegna löndunar : á afla framhjá vigt. Þann 8. desember í haust var f þorski landað á tveimur bílum | úr bátnum í Sandgerði. Öðrum bílnum var ekið framhjá hafn- 1 arvoginni með rúmlega fimm I tonnum af þorski. Eftirlits- ; menn sáu hvað gerðist og var ; málið kært. Lörgeglan hefur og rannsak- | að má lið en enn er óákveðið hvort það verður sent ríkissak- sóknar til meðferðar. -GK stuttar fréttir Samkomulag ekki rofið Menntamálaráöherra telur að t samkomulag við kennara hafi ekki verið rofið í frumvarps- i drögum um réttindi kennara. ■ Kennarafélögin eru hætt sam- starfi við stjórnvöld. Útvarpið | sagðifrá. Landsfundur í október Landsfundur Sjálfstæðis- | flokksins verður haldinn 10.-13. október. Þá verða þrjú ár frá því síöasti fundur var haldinn. RÚV greindi frá. Hús frá 1902 Hfið Hús í Reykjavík frá 1902 var rifið og sett á áramótabrennu um áramótin án samráðs við borgarminjavörð og umhverfis- málaráö. Útvarpið sagði frá. Viðræður um síldina Norðmenn hafa boðið íslend- ingum til Óslóar um mánaða- mótin til viðræðna um skipt- ingu síldarkvótans, að sögn Bylgjunnar. 43% á móti bankasölu Meirihluti í skoðanakönnun telur að einkaaðOar séu hæfari til atvinnureksturs en ríkið, eða 54%, en 43% eru mótfallin því aö ríkið selji Búnaðarbanka og Landsbanka, skv. Vísbendingu. TAESA fær aftur leyfi TAESA hefur aftur fengið leyfi til að fljúga til Islands þar sem skýrt hefur verið hvers vegna vél frá öðru flugfélagi hafi verið send hingað. Útvarp- ið sagði frá. Reglur um gjaldskrá Landbúnaðarráðherra fær heimild til að setja reglur um gjaldskrá fyrir dvöl dýra í ein- angrunarstöð, samkvæmt frum- varpi um innflutning dýra. Út- varpið greindi frá. Verðlækkun á ýsu Verð á heilli ýsu og nýjum ýsuflökum hefur lækkað um 3% að meðaltali, skv. verðkönnun Samkeppnisstofnunar í febrúar, miðað við sama tíma í fyrra. Meiri aukning en áður Atvinnulausum hefúr fjölgaö um 23,2% frá því í desember og hefur atvinnuleysi aukist um tæp 28% frá desember til janúar I síðustu 10 árin. Aukningin nú : er meiri en síðustu þrjú ár. Bowie kemur hingað? David Bowie kemur hugsan- lega á Listahátíð í sumar, skv. RÚV. Miðstjórn í Kópavogi Miöstjórnarfundur Alþýöu- bandalagsins verður haldinn í I Kópavogi um helgina. -GHS B.—.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.