Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2000, Qupperneq 15
„Ámi Rögnvaldsson, kunnur bíl- stjóri hér á Króknum, sagði mér að ég hefði ekki verið nema átta ára gamall þegar ég tók vörubíl fyrst af stað, og gerði það alveg skammlaust við erfiðar aðstæður. Það var í mal- argryfjum héma skammt frá staðn- um, laus möl var í botninum og því ekki auðvelt að fara af stað án þess að drepa á bílnum, en stráksa tókst það nú samt,“ segir Bjarni Haralds- son, bílaútgerðarmaður og kaup- maður á Sauðárkróki, en Bjarni, sem verður sjötugur þann 14. mars nk., fékk snemma mikinn áhuga á bílum og þessi árátta hefur fylgt honum alla tíð. Bjami er enn með vöruflútningaútgerð sem hann stofnaði 1954 og lætur engan bilbug á sér fmna. Þá er hann með eina elstu krambúð landsins, Verslun Haraldar Júlíussonar, sem faðir hans stofnaði árið 1919. Byrjaði að suða í bfl- stjorunum Bjami segist snemma hafa setið um það að fá að sitja í hjá vörubíl- stjórunum í bænum og mjólkurbíl- arnir úr sveitinni vöktu líka óskipta aðdáun hans, en þannig háttaði til að Verslun Haraldar Júl- íussonar var alltaf nokkurs konar umferðarmiðstöð en þar var starf- rækt bílastöð. Og hinum megin göt- unnar var svo mjólkursamlagið svo að umferð var þama mikil um göt- una. En var Bjami þá að suða í bíl- stjórunum að fá að keyra. „Nei, ég var ekki að því, en sumir lofuðu mér að stýra og aðrir sögðu mér að fara undir stýrið og keyra, en þeir náttúrlega fylgdust með mér þannig að öllu var óhætt. Þetta voru mikl- ir vinir mínir, vörubílstjóramir, og ég man t.d. vel eftir Sveini heitnum frá Árnesi og Svavari Péturssyni frá Laugarbökkum, mjólkurbílstjórun- um úr Lýtó og fleirum." Beðið eftir Nallanum „Svo var auðvitað bara beðið eft- ir þeim degi sem ég fengi ökurétt- indin og það var á 18 ára afmælis- daginn, 14. mars 1948. Þann dag gáfu foreldrar mínir mér vörubíl, Intemational ‘46-módelið. Ég var náttúrlega óskaplega hamingjusam- ur með þennan bíl og fannst mikið til hans koma, enda voru þetta góð- ir bílar í þá daga. Fór ég á afmælis- daginn með fóður minn til Reykja- víkur þar sem hann var að kaupa ýmsar vörur fyrir verslun sína.“ 18 ára í vegavinnu Og komstu strax í vinnu á vöru- bílnum 18 ára unglingurinn? „Já, það gátu allir sem áttu bíla komist í vegavinnuna á þessum tima, en hún gat nú verið stopul. Stundum voru þetta ekki nema 1-2 mánuðir í einu yfir sumar og svo var óskaplega lít- ið að gera yfir veturinn, hending ef maður fékk vinnu einn og einn dag við uppskipun og einn og einn túr í flutning til Reykjavíkur.“ Fyrsti veparspottinn - Manstu fTivaða vegarspotta þú keyrðir fyrsta hlassið? „Já, þá var mölin tekin einhvers staðar fyrir sunnan Víðimel við Varmahlíð og verið var að laga veginn fram Blönduhlíð og verkstjóri þar var einmitt Rögnvaldur Jónsson, faðir Áma Rögnvaldssonar vörubílstjóra sem ég nefndi áðan, eða Valdi Kota eins og hann var gjarnan kallaður." - Nú hafði maður það á tilfinning- unni héma áður fyrr að vörubíl- stjóramir væm moldríkir menn, sérstaklega þegar þeir voru að end- urnýja bílakostinn annað slagið? „Nei, ég held að það hafi nú verið Emsi strembið hjá þeim sumum. Á þessum tíma kostaði t.d. 2,5-3 tonna bíll sem menn voru mikið á um 20 þúsund krónur, en tímakaupið var 24,75 kr. og vinnan oft stopul, þannig að menn voru ansi lengi að vinna upp í útlagðan kostnað. Fólk sem er á ferðinni En ég var reyndar skamman tíma í vegavinnunni og harkinu á vöru- bílnum. Veturinn 1950 fer ég í fólks- flutninga, fer þá í samstarf við Norðurleið og ek farþegum milli Sauðárkróks og Varmahlíðar. Um vorið tek ég svo Siglufjarðarleiðina líka og þurfti þá að leggja af stað út á Siglufjörð um hálfsjö á morgnana og keyrði þá hingað út á Krók, það- an fram i Varmahlíð og var kominn til baka á Krókinn rétt fyrir hádeg- ið. Tvö ár þama næst keyri ég svo rútu milli Akureyrar og Reykjavík- ur og þá var það Búddi á Sleitustöð- um sem sá um þessar leiðir hérna heima. Þetta gekk ágætlega og var mikið að gera í fólksflutningum á þessum tíma. Erfiðir vegir Ég stoppaði þó ekki lengi við í rútukeyrslunni og fór út í leigubíla- akstur hérna á Króknum veturinn 1954. Þá var mikiö að gera í svoleiðis bisn- iss héma, enda lítið um bíla í bænmn. Ég sá þó ágæta mögu- leika í öðrum flutn- ingum og það varð til þess að ég stofnaði vöruflutningafyrir- tæki þama næsta haust, Vöruflutninga Bjama Haraldssonar. Ég byrjaði með fimm tonna Benz með 90 hestafla vél, sem kost- aði með bogum yfir pallinn og segli rúm- lega hundrað þúsund krónur. Á þessum bíl fór ég tvær. ferðir í viku milli Sauðár- króks og Reykjavíkur í nokkur ár og ætli láti ekki nærri aö þá hafi nær helmingi lengur verið að keyra á milli staðanna en er í dag. Vegakerfið hef- ur tekið svo miklum stakkaskiptum og gæði bílanna hafa líka aukist mikið. Þá Bjarni f krambúöinni þar sem kennir margra grasa. Bjarni viö vöruflutningabílinn sem fyrirtæki hans er meö í notkun í dag. voru þetta niðurgrafnir og krókóttir vegir og það kom oft og iðulega fyr- ir að þeir urðu ófærir á vetuma vegna sjóa og veðurs. Og það tók miklu lengri tima að opna þá held- ur en núna. Þá voru þetta oft jarðýt- ur sem voru í snjómokstrinum, en nú em fljótvirkari tæki, snjóblásar- ar og moksturstæki." Draugarnir í Fornahvammi Var þetta þá ekki oft nokkuð spennandi, hvort þú mundir komast heim þennan daginn eða hinn? Gist- irðu kannski oft i Fomahvammi i Borgarfirði, var ekki sagt að þar væri draugagangur? „Jú, það má kannski segja þaö. Jú, það kom oft fyrir að ég gisti í Fomahvammi og stundum á Blönduósi. Mér leið ágætlega í Fornahvammi og varð aldrei var við neitt reimt þar, en fé- lagi minn Guðmundur Helgason frá Tungu, sem ég keyrði mikið með, hann vildi alls ekki sofa í ákveðnu herbergi í Fornahvammi. Jú, það kom oft fyrir aö maður tepptist vegna ófærðar og lengsta ferðalagið sem ég man eftir tók hálfan mánuð. Það var veturinn 1956 þegar ég flutti Torfa Bjamason lækni frá Sauðár- króki til Akraness. Ferðin suður gekk frekar fljótt fyrir sig, en það gekk ekki eins vel að komast norð- ur. Einhverja daga var ég veður- tepptur í Reykjavík og þegar lagt var af stað norður varð ekki lengra komist en á Blönduós, þar sem ég þurfti að halda kyrru fyrir i ansi marga daga.“ Alltaf í samkeppni Bjami fór svo að minnka við sig keyrsluna um 1960 og má segja að hann hafi farið aðeins ferð og ferð eftir það, enda var nóg að gera við verslunina og ýmis störf í kringum flutningana. Bjarni fékk því bíl- stjóra til að keyra fyrir sig. Hreinn Þorvaldsson keyrði hjá Bjama í mörg ár, en mörg síöustu árin hefur Jón Dalmann Pétursson keyrt hjá honum. En hefur ekki verið mikil samkeppni í flutningunum? „Jú, ég hef alltaf verið í mikilli samkeppni og það hefur ekki minnkað síöustu árin. Ég var einn af þeim sem stofn- uðu Landflutninga á sínum tíma, en svo var mér sagt upp fyrir nokkrum ámm þar sem að ég passaði ekki lengur inn i kerfið. Við tókum okk- ur þá til nokkrir hagsmunaaöilar og stofnuðum flutningafyrirtækið Að- alflutninga að Héðinsgötu 2 í Reykjavík. Sú starfsemi gengur bara vel miðað við aðstæður og það er greinilegt að fólk hefur góða trú á einstaklingsfrelsinu enn.“ Þú seg- ir að allt þitt líf hafi snúist í kring- um bílana. Ef þú gætir byrjað upp á nýtt, hvað þá? „Ég held ég hefði ekki viljað hafa þetta öðruvísi. Ég hef kynnst mörgu góðu fólki sem ég vil þakka gott samstarf í gegnum árin. Þessi tími er búinn að vera ómetanlegur, góður og skemmtileg- ur,“ segir Bjami Haraldsson. -ÞÁ Bjarni á kontórnum, inn af krambúöinni viö Aöalgötuna. Fyrir ofan hann er mynd af fyrsta vörubílnum hans, Nalla ‘46-módelinu. LAUGARDAGUR 4. MARS 2000 viðtal Bjarni Haraldsson, vörubílstjóri og kramkaupmaður á Sauðárkróki: Átta ára undir stýri á vörubfl - sjötugur bílstjóri og kaupmaður segir frá
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.