Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 Fréttir DV Slagsmál og ólæti um helgina í miðbæ Reykjavíkur: Maður vopnaður hnífi rændi fólk Mikið bar á ofbeldi í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags- ins og gistu fjölmargir fangageymsl- ur lögreglunnar vegna þessara mála en ekki var mikið um útköll lögregl- unnar vegna annarra mála. Um klukkan 23.30 á laugardags- kvöldið var lögreglunni gert viðvart um mann, vopnaðan hnífi, sem gekk um og rændi fólk í miðborg Reykjavíkur. Tvær ránstilraunir hans tókust en sú þriðja á innan viö hálftíma misheppnaðist og var ræn- inginn flæmdur af vettvangi. Lög- reglan handtók svo meintan ræn- ingja skömmu eftir miðnætti og var hann fluttur í fangageymslur lög- reglunnar. Lögreglan í Reykjavík er með málið í rannsókn. Skömmu fyrir klukkan eitt var lögreglu gert viðvart um líkamsárás í Ármúla, þar sem maður hafði verið sleginn í andlitið á Hótel íslandi með þeim afleiðingum að tönn brotnaði. Árásarmaðurinn var þekktur og er málið í rannsókn. Um klukkan hálftvö var óskað eft- ir aðstoð lögreglu vegna slagsmála í anddyri veitingahúss á Laugavegi. Að sögn lögreglunnar hafði ölvaður maður náð tökum á dyraverði þegar lögreglu bar að. Hinn ölvaði var handtekinn og fluttur í fangageymsl- ur. Tæpum klukkutíma síðar var aft- ur óskað eftir aðstoð lögreglu vegna Bílvelta í Borgarfirði Fólksbíll með þremur mönnum innanborðs valt á móts við Hamar, um þrjá kílómetra norðan við Borgames, í gærdag. Ökumaður bílsins, sem var á suðurleið, missti stjóm á bílnum vegna krapa á veg- inum meö þeim afleiöingum að bíllinn valt út í skurö. Að sögn lög- reglunnar i Borgamesi slapp allt fólkið án teljandi meiðsla. Bíllinn skemmdist nokkuð en var þó öku- fær þegar búið var að draga hann upp á veg aftur. Færð á vegum víða um land var slæm í gær vegna hlýinda í kjölfar töluverðrar snjókomu. -SMK Lionsmenn verka Þorláksmessuskötu Síðastliðinn laugardag komu félag- ar í Lionsklúbbi Önundarfjarðar sam- an á Suðureyri til að roðrífa og snyrta skötubörð sem hafa kúrt í fiskikössum undanfarnar vikur og voru orðin vel kæst. Er þetta helsta fjáröflunarleið klúbbsins að verka og selja skötu. Klúbburinn er sameigin- legur vettvangur Lionsmanna í Ön- undarflrði og Súgandaflrði. Er Lions- skatan svokallaða almennt talin með bragðsterkari skötu hér á Vestfjörð- um og er 2000-árgangurinn engin und- antekning frá þeirri reglu. Voru soð- in nokkur börð að verkun lokinni til prufu. Súmaði mönnum í augum við matarborðið og fengu sumir hóstakast í miðjum klíðum. Er það til sönnunar á gæðum skötunnar. Geta Önfirðingar og Súgflrðingar hlakkað til bragðmikillar og góðrar skötu á Þorláksmessu nú sem áður. líkamsárásar á Tryggvagötu. Þar hafði maður verið laminn 1 höfuðið með glerflösku. Tuttugu mínútur yfir þrjú handtók lögreglan tvo menn í tengslum við slagsmál. Þegar reynt var að stilla til friðar létu mennimir ekki segjast og vom þeir þá handteknir. Skömmu fyrir klukkan fjögur barst lögreglu tilkynning um firnm menn í slagsmálum fyrir utan Þórskaffi I Brautarholti. Mennimir höfðu allir viljað taka sama leigubílinn og upp- hófust slagsmálin út frá því. Einn mað- ur var handtekinn í framhaldi af þeim slagsmálum. Auk þessa var tilkynnt um dyravörð sem hafði hent manni út af veitinga- stað í Hafnarstræti skömmu fyrir klukkan flmm um morguninn og barið hann illa svo maðurinn lá óvígur eftir. Aðalvarðstjóri lögreglunnar í Reykja- vík tók það fram að tilkynningin hefði hljóðað svo en lögreglan er með málið i rannsókn. Maðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild með lítils háttar höfuðáverka. Skömmu fyrir klukkan níu í gær- morgun var óskað eftir aðstoð lögregl- unnar vegna slagsmála í Hafnarstræti. Að sögn lögreglunnar var þar ölvaður maður til vandræða hjá dyravörðum veitingahúss sem þar er. Maðurinn var handtekinn og fluttur í fanga- geymslur lögreglunnar. -SMK Skötuþefur Skatan á Suöureyri er nú um þaö bil aö veröa tilbúin. m. k A Röskir karlar Áhöfnin á Höfrungi III frá Akranesi er meöal röskustu áhafna landsins. Höfrungur HI: Togari með álíka veltu og bærinn DV, AKRANESt: : Togarinn Höfrungur III er meðal þeirra frystitogara sem berjast um toppinn í ár. Jólin nálgast og hið ár- lega kapphlaup er nú í algleymingi um það hvaða frystiskip nær að skila á land mesta aflaverðmætinu. Það eru 3 togarar sem virðast skera sig úr að þessu sinni: Arnar frá Skagaströnd, Baldvin Þorsteinsson frá Akureyri og Höfrungur III frá Akranesi. Fyrir síðustu veiðiferð ársins voru þeir Arnar og Baldvin nokkuð jafnir i efsta sæti, með afla- verðmæti upp á ca 850-360 milljónir króna, næstur kom Höfrungur III með um 840 milljónir og þar á eftir Júlíus Geirmundsson með 800 millj- ónir. Reiknað er með að efstu skip- in muni skila um 920-930 milljóna aflaverðmæti þegar upp verður staðið. Til að setja verðmæti Höfr- ungs í samhengi þá má geta þess að þetta fer nærri veltu Akraneskaup- staðar á þessu ári. Það þarf því röska áhöfn og gott skip til að ná slíkum árangri. -DVÓ Húsavík: Kviknaði í út frá rafmagnstæki Að sögn lögreglunnar á Húsavík bendir allt til þess að upptök elds í sportvöruverslun á Húsavík i síð- ustu viku hafi verið í rafmagnstæki í búðinni. Eldurinn kviknaði síðast- liðið miðvikudagskvöld í verslun- inni Tákn sem er í verslunarmið- stöð við Garðarsbraut. Rannsókn á upptökum eldsins stendur enn yfir en að sögn lögreglunnar er orðið ljóst að kviknað hafi í út frá raf- magnstæki sem var í sambandi. -SMK Reykjavíkurhöfn: Innbrot í bát Tilkynnt var um innbrot í bát við Reykjavíkurhöfn á níunda tímanum í gærmorgim. Að sögn lögreglunnar í Reykjavík var báturinn innsiglað- ur vegna þrotabúsmáls og gat vakt- maður hafnarinnar ekki séð að neinu hefði verið stolið. -SMK Rigning með köflum sunnan- og austanlands Búist er viö austanátt, 8-13 m/s, 13-18 allra syöst. Rigning meö köflum sunnan- og austanlands en að mestu þurrt annars staðar. Hiti 0-7 stig, mildast suövestanlands. Solargangur og sjavarföll REYKJAVIK AKUREYRI Sólarlag i kvöld 15.23 14.44 Sólarupprás á morgun 11.20 11.34 Síödegisflóö 24.58 16.49 Árdegisflóö á morgun 00.58 05.31 Skýringar á veöurtáknum ^■‘'•.VINDÁTT 10°<— HITI -10° ^VINDSTÝRKÚR VmntT í metriim á sekúmfu rKU'>l HEIOSKfRT e>o LÉTTSKÝJAÐ HÁLF- SKÝiAÐ SKÝJAÐ ALSKÝJAO •v? \ ö RIGNING SKÚRIR SLYDDA SNJÓK0MA W [ h | == • ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA 'Wmmw Eftir góða tíö fram eftir vetri hefur snjórinn nú loks falliö á suövesturhorninu. Þaö veröur ekki of oft ítrekaö aö fólk ætti aö aka eftir aöstæöum og flýta sér hægt þar sem hálka og slabb gerir akstur varhugaveröan. Snjórinn virðist hins vegar ekki ætla aö staldra lengi þar sem rignt hefur mikiö í hann. Það er bara vonandi aö þetta þýöi ekki rauð jól. Austanátt á landinu Austan 5-10 m/s, en 10-15 verða syðst á landinu. Rigning meö köflum en aö mestu þurrt norðanlands. Hiti verður 2 til 7 stig, en í kringum frostmark I innsveitum á Noröurlandi. Vindur: Et-13 m/s Hiti 1° til 6° Fiiiuiittidíigif Vindur: 5-13 m/» Hiti 1* til 6° Austlæg átt. Rlgnlng eða slydda veróur meö köflum, einkum suöaustan- og austanlands, og fremur mllt veöur. Austlæg átt. Rlgning veröur eöa slydda meö köflum, elnkum suðaustan- og austanlands, og fremur mllt veöur. Fosludagiifj Vindun 5—13 m/s Hiti 1« tii 6* Austlæg átt verður og rlgning eöa slydda meö köflum, elnkum suöaustan- og austanlands, og fremur mllt veður. AKUREYRI hálfskýjaö -4 BERGSSTAÐIR skýjaö -3 BOLUNGARVÍK alskýjað 2 EGILSSTAÐIR -2 KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 2 KEFLAVÍK súld 3 RAUFARHÖFN alskýjaö 0 REYKJAVÍK rigning 3 STÓRHÖFÐI úrkoma í grennd 6 BERGEN léttskýjaö 0 HELSINKI snjókoma 0 KAUPMANNAHOFN skýjaö 3 OSLO skýjaö 2 STOKKHÓLMUR 2 ÞÓRSHÖFN úrkoma í grennd 4 ÞRÁNDHEIMUR skýjað 1 ALGARVE skýjaö 14 AMSTERDAM hálfskýjað 6 BARCELONA BERLÍN rigning 3 CHICAGO alskýjaö -12 DUBLIN alskýjaö 5 HALIFAX súld 3 FRANKFURT skýjaö 3 HAMBORG rigning 4 JAN MAYEN léttskýjað -1 LONDON mistur 5 LUXEMBORG skýjaö 3 MALLORCA léttskýjaö 15 MONTREAL 6 NARSSARSSUAQ heiöskírt -14 NEWYORK rigning 14 ORLANDO rigning 21 PARÍS skýjaö 6 VÍN skýjaö 13 WASHINGTON skýjaö 6 WINNIPEG léttskýjaö -29 esiEsasza: . 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.