Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 36
52 Tilvera MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 DV Seltjarnarnes er draumasveitarfélagið: Snæfellsbær er stangarstökkvarinn - Reykjavík fellur úr 2. sæti niður í það þrettánda. Lægri meðaleinkunn vegna skuldasöfnunar, aukinnar skattpíningar og fólksflutninga Einkunnir sveitarféiaga - sk*. aSíerðuni Vísbendingar -il Staöa 99 98 1 1 2 8 3 13 4 32 5 9 6 7 7 5 8 20 9 6 10 22 11 23 12 15 13 2 14 1A 15 4 Einhunn Srej SELTJARNARNESKAUPSTAÐUR 7,50 7,20 0,3B; Sveltarfélaglö Olfus Grlndavíkurkaupstaöur Snæfellsbœr Bessastaöahreppur Garöabær Reykjanesbær Slgl uQaröarkaupstaöur 6.10 5,30 ,„Q,80 5,50 4,90 0,60 5,20 1,90 5,20 5,30 5.10 5,50 5,10 5,70*«' 5,00 4,10 ’3m 5,00 5,60 Húsavíkurkaupstaöur _ -v3,70^^fa Sveltarfélagiö Homaflörður Gerðahreppur 4,60 4 Reykjavtkurborg r - ' $.60 ^6 Vlsbending hefur undanfarin ár gert úttekt á rekstri sveitarfélag- anna og einkunnir þeirra fyrir áriö 1999 liggja nú fyrir. Þegar á heildina er litið juku sveitarfélögin skatttekj- ur sinar um 12,6% árið 1999 frá ár- inu á undan. Að mestu leyti er þessi hækkun fengin með hækkun út- svars. Á sama tíma hækkuðu útgjöldin um 12,1%, þar munar mest um auk- in útgjöld til fræðslumála, sem hækkuðu um 58.560 kr. á hvern íbúa (11,9% hækkun frá árinu á undan), félagsþjónustu, sem hækkaði um 33.414 kr. (10,2%) á hvem íbúa, æskulýðs- og íþróttamála, sem hækkuðu um 11.219 kr. (7,4%), og yf- irstjórnar en útgjöld til þess mála- flokks hækkuðu um 9.854 kr. (9,4%) á hvern íbúa. Að teknu tilliti til fjármagnsliða voru rekstrartekjur 7,5 milljarðar umfram rekstrargjöld á siðasta ári sem er um 32% aukning á milli ára. Skattpíning og skuldasöfnun En hvaða sveitarfélög skara fram úr í stjórnun, hvar er best að búa? Vísbending hefur vegið og metið nokkra þætti í rekstri sveitarfélag- anna til þess að svara þessum spurningum en auðvitað verður það mat langt frá þvi fullkomið, ekki frekar en greining á ársreikningum fyrirtækja. Einkunnagjöfin stendur hins veg- ar fyrir sínu sem mælikvarði á draumasveitarfélagið og þó að hún eigi ekki aö gefa mynd af greiðslu- eða lánshæfi einstakra sveitarfélaga gefur hann ágætis vísbendingu um það hvaða sveitarfélögum ber að skoða sinn gang. Á mælikvarða draumasveitarfé- lagsins hafa sveitarfélög verið að fá verri einkunn á milli ára, bæði í ár og á siðasta ári. Árið 1997 var með- aleinkunnin 4,75, í fyrra var hún 4,53 en í ár er hún 4,26. Ástæðan er aukin skuldasöfnun, meiri skattpín- ing og miklir fólksflutningar. Eins og undanfarin ár kemur Seltjarnar- neskaupstaður langbest út úr þess- um samanburði, fær 7,5 í einkunn sem er hærra en á síðasta ári. Sveit- arfélagið Ölfus kemur einnig sterkt út úr þessari einkunnagjöf enda með lægstu skuldabyrði á hvern ibúa allra sveitarfélaga. Sérstaklega má veita þvi athygli að Reykjavík fellur úr öðru sæti listans í það þrettánda og lækkar um næstum tvo heila í einkunn á milli ára. Snæfellsbær á réttri leiö Stangarstökkvari listans er án nokkurs vafa Snæfellsbær sem und- anfarin tvö ár hefur vermt neðsta sæti listans en er nú í því fjórða með 5,2 í einkunn sem er vel yfir meðaltalinu. Það sem veldur er fyrst og fremst stöðugleiki í fólks- fjölda en einnig hefur bæði hlutfall reksturs málaflokka og fjárfestinga af skatttekjum verið nær mörkum draumasveitarfélagsins en nokkru sinni áður. -DVÓ €íóúu pxiMi. QJf þuí aÖ þ ú ent &u& þjieyttwt þd gef ég. þéi gjafatyé^tQeð cuuliitómedfe’íci tned fuiþ.iáuuldi o# fétaáÚK, húð og nudd Húðmeðferðar- og nuddstofa World Class Austurstræti 17, 101 Rvík. Sími 562 6200 rt FL(S herðaslá Jólatilboð 6.980 NITESTAR svefnpoki - 5°c lólatilboð 3.990 PHONEX úipa VENTURE Jólatilboð 13.990 S-XXL GONGUSTAFIR Jólatilboð 2.990 —n------1 )URA gönguskór st. 36-48 Jólatilboð 6.900 iðurll.300 Islenska landsliðið í sölu á skíða- og snjóbrettabúnað veldu búnað þar sem fagmennirnir eru Guðmundur Gunnlaugsson verslunarstjóri skíðaþjálfari og sérfraeðingur um svigskíði Þorsteinn Hymer sölumaður landsliðsþjálfari í skíðagöngu Bill Clark sölumaður íslandsmeistari 2000 á snjóbretti 18. desember mánudagur 10.00 - 22.00 19. desmeber þriðjudagur 10.00 - 22.00 20. desember miðvikudagur 10.00 - 22.00 21. desember fimmtudagur 10.00 - 22.00 22. desember föstudagur 10.00 - 22.00 23. tfesember laugardagur 10 00 - 23.00 24. desember sunnudagur 09.00 - 12.00 töppuríAWv í/ úítvcét m ^BLAX Skeifunni 6 • 108 Reykjavík • Sími 533 4450 Einlæg og nærgöngul Ijóö Nína Björk Árnadóttir var án efa ein mikilvægasta röddin í skáldskap síðustu áratuga. Dagskrá í Listaklúbbi Leikhúskjallarans: I minningu Nínu Bjarkar Dagskrá Listaklúþbsins í kvöld er helguð mirmingu skáldkonunnar Nínu Bjarkar Ámadóttur sem lést fyrr á þessu ári. Nína Björk var án efa ein mikilvægasta röddin í skáldskap síð- ustu áratuga. Einlæg og nærgöngul ljóð hennar tjá sterkar tilfmningar og áhrifamikla sýn á ástina, óttann, samfélagið og hlutskipti kvenna. Fyrsta ljóðabók Nínu, „Ung ljóð“, kom út 1965. Nína var fjölhæfur listamaður, fyrir utan ljóðlistina skrifaði hún skáldsögur og viðtalsbækur að ógleymdum leikritum hennar sem hafa verið færð upp hjá at- vinnuleikhúsum ja&t og frjálsum leik- hópum. Einnig var Nína mikilvirkur þýðandi fagurbókmennta. Fjöldi listamanna tekur þátt í dag- skránni á mánudagskvöldið. Flytjend- ur ljóða og óbundins máls eru: Guð- bergur Bergsson, Helga Bachmann, Linda Vilhjálmsdóttir, Elísabet Jökuls- dóttir, Erlingur Gíslason, Hjalti Rögn- valdsson, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Karl Guðmundsson. Jón Proppé, ritstjóri ljóðabókarinn- ar „Blómiö sem þú gafst mér“, sem gef- in er út af JPV forlagi, hefur umsjón með ljóðadagskránni. í seinni hluta dagskrárinnar verða leiklesin brot úr áður óbirtu leikriti eftir Nínu, „Reiki- stjömum", og eru flytjendur þau Edda Heiðrún Backman, Þóra Friðriksdótt- ir, Sigurður Skúlason, Guðrún Gísla- dóttir, Sigurður Sigurjónsson og Her- dís Þorvaldsdóttir. Leikstjóri er Tinna Gunnlaugsdóttir. Einnig verður fluttur kafli úr leik- ritinu „Súkkulaði handa Silju“ í tali og tónum og annast Anna Kristín Am- grímsdóttir, Þórunn Magnea Magnús- dóttir og Egiil Ólafsson, sem tóku þátt í uppfærslu Þjóðleikhússins, flutning- inn ásamt Eddu Björgu Eyjólfsdóttur. Tónlistarmennirnir Carl Möller, Guðmundur Steingrímsson og Birgir Bragason leika lög eftir Carl Möller sem samin vora við ljóð Ninu og hún ásamt fleirum las inn á geisladisk sem væntanlegur er á markað von bráðar. Dagskráin hefst kl. 20.30 en húsið er opnað kl. 19.30. Allir era velkomnir meðan húsrúm leyfír.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.