Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 Fréttir DV Ólafsfirðingar óhressir með dómsmálaráðherra: Fá ekki sýslumann Ólafsfirðingar eru allt annað en ánægðir með að sú ákvörðun skuli hafa verið tekin að sýslumannsemb- ætti verði ekki áfram þar í bæ. Reynd- ar hafa Ólafsfirðingar ekki haft sýslu- mann frá haustinu 1999 þegar sýslu- maður þeirra fór í timabundið leyfi og gegndi störfum á Siglufirði. Hann hef- ur nú hætt störfum þar og flutt suður á land og ljóst er að Ólafsfirðingar eiga ekki að fá arrnan sýslumann til bæjar- ins eins og þeim hafði verið talin trú um. Samkvæmt heimildum DV hefúr verið talsvert „þras“ milli forráða- manna bæjarins og dómsmálaráðu- neytisins vegna þessa máls að undan- fómu en niðurstaðan virðist liggja ljós fyrii'. „Það er langur timi liðinn ffá því að sýslumaður fór og við höfum heyrt undir sýslumann- inn á Akureyri á meðan. Svör við því hver fyrirætl- unin væri hafa ekki verið á lausu og það er fyrst og ffemst það sem hefur valdið þess- um núningi," seg- ir Ásgeir Logi Ás- geirsson, bæjar- stjóri á Ólafsflrði. Hann segir að vissulega þurfl tvo til þegar deilt sé en leggur áherslu á að hann telji Ólafsfirðinga ekki hafa farið Asgeir Logi Ásgelrsson Viö höfum ekki fariö fram meö ósanngirni í þessu máli. fram með ósanngimi í þessu máli. „Það hefur áður staðið til að leggja niður embætti sýslumanns hér en ekki orðið af því fym en nú. Reyndar höfum við ekki fengið formlega tilkynningu um að embættið hafi endanlega verið lagt niður. Við getum í framhaldinu spurt okkur þess hvort ekki eigi að leggja niður þessi embætti yfirleitt og flytja bara vinnuna, sem þar er unnin, til Reykjavíkur eins og dæmi era um,“ segir Ásgeir Logi. Ásgeir Logi segir að það fari ekki alltaf hátt þegar verið sé að flytja opin- ber störf frá landsbyggðinni til Reykja- víkur þvert ofan í yfirlýsta stefnu en ef flytja eigi eitt eða tvö störf frá Reykja- vík út á land sé blásið í herlúðra. Við vorum ósáttir þegar sýslumað- urinn fór héðan tímabundið en nú, þegar ljóst er að embættið verður lagt niður, hafa menn sett í herðamar. Við viljum hins vegar fá að sjá einhver önnur opinber störf hér i staðinn. Hér á Ólafsfirði skila menn miklum pen- ingum í þjóðarbúið. Hér em hæstu meðaltekjur á einstakling á landinu, menn skila miklu til samneyslunnar og við getum gengið uppréttir. Við vonum bara að þessi mál fái farsælan endi sem hægt er að sætta sig við.“ Sýslumannsembættið á Akureyri hefur þjónustað Ólafsfirðinga frá því sýslumaðurinn fór þaðan og áform em um að svo verði áfram. Ásgeir Logi sagði að í sjálfú sér væri sú þjónusta góð og ekkert út á hana að setja. -gk Skortur á heimilislæknum í Vestmannaeyjum: Búið að ráða fjórða lækninn Búið er að ganga munnlega frá ráðningu læknis í Vestmannaeyjum en ein af fjórum stöðum heimilis- lækna í Eyjum hefur verið laus síð- an í vor. „Það er nokkum veginn búið að ganga frá ráðningu en sá sem tekur við er bundinn fram yfir áramót," sagði Gunnar Gunnarsson, fram- kvæmdastj óri He ilbrigðisstofnunar- innar i Vestmannaeyjum. Gunnar sagði ekki vera búið að setja dag- setningu á fyrsta starfsdag nýja læknisins þar sem enn er ekki ljóst hvenær hann fær sig lausan úr því starfi sem hann gegnir núna. Jafn- framt vildi Gunnar ekki greina frá nafni hans. Afleysingafólk var fengið til að- .. . ■ ■• ->■.. , ' Vestmannaeyjar Læknaekla hefur veriö í Vestmannaeyjum síðan í vor en nú sér fyrir endann á henni þar sem búiö er aö ráöa í fjóröu stööu heimilislækna í Eyjum. stoðar í Vestmannaeyjum í sumar en þar sem afleysingafólkið er yfir- leitt læknanemar á fimmta ári eru erfiðleikar í vetur þegar nemarnir eru aftur komnir í skóla. Gunnar sagði að þess vegna yrðu læknarnir bara þrír fram yfir áramótin. Ein- ungis tveir heimilislæknar hafa ver- ið í Eyjum mikinn hluta haustsins þar sem þeir hafa verið að ljúka við frí sín. „Öll neyðartilvikum og slysum er sinnt strax, neyðarmóttakan er alltaf opin, en fólk sem er að leita læknis vegna veikinda hefur stund- um þurft að bíða óhóflega lengi vegna þess hve læknar eru fáir,“ sagði Gunnar. -SMK Nýtt hlutverk gamla Bedfordsins: Slökkvibíll með jólaljósum DV, VÍK: Gamli Bedfordlnn er hln skemmtilegasta jóiaskreyting. Slökkviliðsstjórinn í Vik í Mýr- dal, Einar Hjörleifur Ólafsson, sem jafnframt er rafverktaki á staðn- um, er búinn að finna gamla slökkvibílnum nýtt hlutverk í allri jólaljósadýrðinni fyrir jólin. Bíll- inn stendur við gatnamót Austur- vegar og Suðurvíkurvegar í Vík og blasir við öllum sem aka um Suö- Sígræna }éíatréð -eJo///té á/i e/i/r á/' Síðustu ár hefur skátahreyfingin selt sígræn eðaltré, í hœsta gœðaflokki og prýða þau nú mörghundruð íslensk heimili urlandsveg. Slökkvibíllinn er af gerðinni Bedford, trúlega árgerð 1958, en var fluttur til landsins 1971. Er hann búinn að þjóna Mýr- dælingum, Álftveringum og fleir- um frá þeim tíma og hefur staðið sig vel. Mýrdalshreppur hefur tek- ið í notkun nýinnfluttan notaöan slökkvibíl sem er nokkrum áratug- um yngri en Bedfordinn sem hefur þar með lokið hlutverki sínu sem slökkvibíll. Hann er aftur á móti hin skemmtilegasta jólaskreyting og þörf áminning um að fólk fari varlega með eld um jól og áramót sem og á öðrum tímum. -SKH DV-MYND Risakrani Fyrirtækiö GP kranar hefur flutt til landsins 300 tonna skotbómukrana sem er sá stærsti sem fluttur hefur veriö til landsins. Sá stærsti Hann er heldur betur vígalegur, nýjasti kraninn í kranaflota fyrirtæk- isins GP kranar. Um er að ræða stærsta skotbómukrana sem fluttur hefur verið til landsins og er hann alls þijú hundmð tonn að þyngd. Að sögn Péturs Jóhannssonar, eiganda GP krana, telur fyrirtækið að full þörf sé fyrir krana af þessari stærð og þegar em komin verkefni fyrir hann, til að mynda uppi á Grundartanga. Pétur segir að þróunin sé að tækin era að verða stæmi. „Fyrir þremur árum keyptum við 150 tonna krana sem núna em orðnir of litlir. Það kem- ur því eflaust að því að þessi krani verði of lítill," segir Pétur. Hann segir að fyrirtækið ætli sér eitt til eitt og hálft ár að vinna upp markað fyrir svona tæki. Kraninn kemur frá Þýska- landi og kostar 115 milljónir króna með flutningunum til landsins. -MA Ellingsen og Sandfell sameinast: Engum sagt upp - segir Bjami Th. Bjamason framkvæmdastjóri 10 ára ábyrgð 12 stærðir, 90 - 500 cm ► Stálfóturjylgir Þ- Ekkert barr að tyksuga ► Truflar ekki stofublómin >• Eldtraust Þarfekki að vökva íslenskar leiðbeiningar Traustur söluaðili Skynsamlegjjáifesting \Q Bandalag íslenskra skáta 'tré! -" °9 nú faerðu FJARSTYRÐUR PORSCHE 911 TURBO Magnað leikfang sem nær allt að 25 km hámarkshraða. Verð kr. 10.900 TAKMARKAÐ MAGN! K7a/jolatréð Kn'y^f n9lunnn gjafavöruverslun bilaáhugafólks mM Bílabúð Benna • Vagnhöfða 23 & Kringlunni • Sími 587 O 587 • www.benni.is Fyrirtækin Ellingsen ehf. og Sand- fell ehf. hafa verið sameinuð. Tilkynnt var um þetta fyrir helgi, en sameining- in gekk í gildi 1. desember og heitir sameinað fyrirtæki Ellingsen-Sandfell ehf. Ellingsen var stofnað í Reykjavík 1916 og Sandfell á ísafirði árið 1964. Bæði fyrirtækin hafa stundað sölu á útgerðarvörum og ýmsum rekstrarvör- um til sjávarútvegs. Gert er ráð fyrir að samlegöaráhrifa af sameiningunni fari að gæta strax á næsta ári. Þá er áætlað að velta fyrir- tækisins verði rúmar 500 milljónir króna. Markmiðið er að bjóða upp á breiða vörulinu og öfluga þjónustu við sjávarútveginn með starfsstöðvar í Reykjavík og á ísafiröi. Auk þess mun fyrirtækið áfram stunda verslunar- rekstur á Grandagarði, 1 hinni þjóð- þekktu verslun Ellingsen. Aðaleigandi hins sameinaða fyrir- tækis er Oliuverslun íslands hf., en framkvæmdastjóri er Bjami Th. Bjamason og Samúel Guðmundsson er stjómarformaður. Bjami sagði i samtali við DV að eng- um yrði sagt upp vegna þessarar sam- einingar, hvorki í Reykjavík né á ísa- firði. „Reksturinn verður með óbreyttu sniði á báðum stöðum og okk- ur veitir ekkert af því fólki sem hjá okkur starfar núna. Það era um 25 manns. Með sameiningunni getum við samnýtt ýmsa þætti fyrirtækjanna tveggja. Við það sparast í bókhaldi, skrifstofú- og stjómunarkostnaði." -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.