Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 45
61 i I MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 I>V Britney ekki boöid í brúö- kaup Madonnu Táningastjarnan Britney Spears er sögð mjög vonsvikin yfir því að hafa ekki verið boðið í brúðkaups- veislu Madonnu í Skotlandi í næstu viku. Illar tungur segja að Madonna sé hrædd um að unga stúlkan steli senunni og dragi athyglina frá henni sjálfri. Britney hefur kippt í marga spotta til að komast á gesta- listann en án árangurs. Það kemur hins vegar á óvart að bamsfaðir Madonnu og fyrrverandi ástmaður hennar, Carlos Leon, skuli vera meðal þeirra sem boðið hefur verið til veislunnar. Kevin Spacey skúrkur í James Bond-mynd Þó svo að tvö ár séu þar til næsta James Bond-mynd verður frum- sýnd er þegar orðrómur á kreiki um hver muni leika skúrkinn. Kevin Spacey er oftast nefnd- ur í því samhengi. Skúrkarnir í Bond-myndunum eru eins og kunn- ugt er svolítið sérstakir, bæði tryllt- ari og viltari en skúrkar í öðrum myndum. Verði Spacey fyrir valinu verða aðdáendur Bond-myndanna ekki fyrir vonbrigðum. Þó svo að nú muni menn fyrst og fremst eftir Spacey sem fóðurnum í American Beauty hefur hann langa reynslu af því að leika bófa. Hann lék til dæm- is fjöldamorðingja í kvikmyndinni Seven. 18. desember Huröaskellir gengur um og skellir huröum svo fast aö fólk hefur varla svefnfriö. Hurðaskellir Sjöundi var Hurðaskellir - sá var nokkuð klúr, ef fólkið vildi í rökkrinu fá sér vænan dúr. Hann var ekki sérlega hnugginn yfir því þó harkalega marraði hjörunum í. Tilvera Becker reyndi að ræna börnunum Forræðisdeila tennishetjunnar Bor- is Beckers og eiginkonu hans, leikkon- unnar Barböru, er á síðum allra þýsku blaðanna. Nú er Boris sakaður um að hafa reynt að ræna bömunum sínum. Boris og Barbara, sem bæði er 33 ára, hafa ákveðið að skilja og er málið komið fyrir dómstól í Miami. Ástæðan er sú að Barbara og bömin, Noah Gabriel, 6 ára, og Elias Balthasar, 1 árs, em í lúxusvillu fjölskyldunnar við strönd Flórída. Þar hefur Barbara leit- að til lögmanna vegna skilnaðarins. Þýskir fiölmiðlar fullyrða að Boris Becker hafi nýlega komið til heimilis síns í Flórída til þess að halda jólin há- tíðleg. Honum hafi hins vegar ekki verið hleypt inn. Við það hafi hann orðið æfur. „Hann hefur hótað að taka bömin frá mér og fara með þau til Þýska- lands,“ sem með hjálp lögfræðinga reynir nú að fá forræðið yfir sonunum. Dómstóllinn hefur úrskurðað að hvorki Barbara né Boris fái um sinn að fara með börnin frá Bandaríkjun- um. Boris og Barbara vora gift i sjö ár. ■—1 Auk forræðisins yfir börnunum krefst Barbara helmings eigna tennis- kappans sem rnemar em á jafnvirði nær 10 milljarða íslenskra króna. í Boris Becker Tenniskappinn neitar aö eiga vingott viö rappsöngkonuna Sabrinu Setlur. kröfu sinni nefnir Barbara að hún hafi ekki eigin banka-—. reikning og að hún óttist nú að eiginmað- ur hennar loki krítar- kortareikningi henn- ar. Barbara krefst ekki bara helmings eign- anna heldur einnig reglubundins fram- færslulífeyris svo hún geti haldið sama lífs- stíl og hingað til. Bor- is Becker yfirgaf fjöl- skyldu sína 24. nóvember síðastliðinn. Þýskir íjölmiðlar segja hann eiga vin- gott við rappsöngkonuna Sabrinu Setl- ur. Boris neitar því. Magnari z l .y^stgr. ^ Hátalarar 5.969stgr. Geislaspilari 26.900stgr. fptnsheldir pokar yrir GPS, GSM ofl 1.900stgr. IB talstöð 13.900stgr. enon Neon Ijós i bíla 4.191stgr. Bláar aðalljósaperur 1,995stgr. Inni/útihitamælir í útvarpið 5.900stgr. J* F talstöðvar 7-950stgr. stk. pfavarnarkerfi 2.900stgr. Fjarstart 16.580 " stgr. Eyjaradíó, Vestmannaeyjar Radarvarar ^ð9.900stgr petishitari 4.900stgr. Fjarstýring á samlæsingar 0S fyrir Palm lófatölvu 28.450stgr. Umboðsaðilar: Radíónaust, Akureyri Árvirkinn, Selfossi Eyjaradíó, Vestmannaeyjum Bensínstööin, ísafirði Rafeind, Egilsstööum Höf.: Jóhannes úr Kötlum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.