Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 10
MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 DV 10 Senn koma jó/iu/ Fréttir Rjúpnaveiðin: 149.301 rjúpa. Árið 1998 veiddust 158.223 rjúpur, árið 1997 165.337, 157.900 veiddust 1996 og árið 1995 voru það 123.392 rjúpur. Á þessum tölum sést að veiðin hefur verið á niðurleið síðan 1997. Innlent fréttaljós Gunnar Bender blaðamaður Ert þú búinn að fá í jólamat- inn? „Ég hef aðeins fengið þrjár rjúpur enda fór ég aðeins fyrsta daginn sem mátti veiða. Maður hefur alltaf verið að bíða eftir snjónum," sagði Áki Ármann. Eftir því sem DV hefur hlerað hjá veiðimönnum hefur veiðin verið miklu minni en í fyrra og líklegar lokatölur eru rétt yfir 100 þúsund fuglar þetta árið. Fáir dagar eru eft- ir af veiðitímanum og margir ætla að fara lokatúrinn um helgina. Tíð- arfarið hefur breyst og þessi síðasta rjúpnahelgi gæti geflð vel af fugli, alla vega ætla margir að fara til rjúpna og reyna að ná í jólamatinn. Það er allra síðasti séns núna. „Við ætlum vestur í Dali ennþá einu sinni núna á þessum veiðitíma en ég reikna ekki með að fá mikið,“ sagði veiðimaður sem er þúinn að fá lítið af rjúpu og hann bætti við: „Maður gerir sig ánægðan með nokkra fugla, veðurfarið hefur breyst og fuglinnn er kannski kom- in meira í hópa,“ sagði veiðimaður- inn ennfremur. Mjög lítiö til af rjúpu Þeir sem ætla að borða rjúpur um jólin teljast heppnir ef þeir fá þær. Á stórum hluta landsins eru ekki til rjúpur i búðum sem áður hafa átt og selt þær. Stór hluti veiðimanna sem á fugl selur hann beint til þeirra sem vilja kaupa hann. Þeir fá hærra verð og engir milliliðir eru í mál- inu. Rjúpnaveiðimenn eru með sína fóstu kúnna sem vita að þeir fá ör- ugglega fugla hjá þeim, þó þeir þurfi kannski að borga aðeins meira verð fyrir. „Við eigum til eitthvað af rjúpu en það er greinilega minna til henni og verðið verður eitthvað hærra en í fyrra,“ sagði Jón Þor- steinn Jónsson, markaðsstjóri hjá Nóatúni, er við spurðum um stöð- una núna þegar nokkrir dagar eru til jóla og allir vilja fá rjúpur í jólamatinn. Rjúpan gæti orðið dýr- ari núna en oft áður, á milli 800 og 900 fyrir fuglinn heyrist oftar þessa dagana. Og þegar menn fá ekki það sem þeir eru að leita að borga þeir bara hærra verð til að fá það. Það á við rjúpumar líka þetta árið. Akureyringar um vínveitingastaði: Meirihluti vill hafa opið skemmri tíma - og er á móti nektardansstödum DV, AKUREYRI:~ Mikill meirihluti Akureyringa er hlynntur þeirri skerðingu sem gerð var á afgreiðslutíma vínveitingahúsa á Akureyri í haust. Þetta er niður- staða viðhorfskönnunar sem GaRup gerði fyrir Akureyrarbæ meðal ibúa á Akureyri og í nærsveitum. Úrtak könnunarinnar var 1000 manns á aldrinum 16-75 ára og var nettósvör- un 70,2% eða 656 manns. Um 72% voru fylgjandi því að af- greiðslutími vínveitingahúsa yrði takmarkaður til kl. 1 eftir miðnætti á virkum dögum, en 24% voru því andvíg. Fylgjandi því að afgreiðslu- tími vínveitingahúsa yrði takmark- aður við kl. 04 um helgar voru 62% en 34% voru ósammála. Þegar af- staða þeirra sem eru fylgjandi lengri opnunartima er skoðuð kem- ur í ljós að mikill meirihluti vill hafa opnunartíma ótakmarkaðan. Ríflega 56% sögðust hafa orðið fyrir einhverju ónæði af völdum hátíðarinnar Halló Akureyri und- anfarin ár en tæplega 44% töldu sig ekki hafa orðið fyrir ónæði. Af þeim sem sögðust hafa orðið fyrir ónæði sögðust 15% hafa orðið fyrir miklu ónæði. Þegar spurt var hvort þörf hafi verið fyrir að breyta yfir- bragði hátiðarinnar um síðustu verslunarmannahelgi svöruðu 55% játandi en 38% að þörfin á breyting- um hafi verið lítil. Loks var spurt hvort viðkomandi væri hlynntur eða andvígur starf- semi nektardansstaða á Akureyri. Þar var niðurstaðan sú að 43% voru andvíg starfseminni, 23% hlynnt en 35% tóku ekki beina af- stöðu. -gk - erfitt að fá rjúpu víða Rjúpnaveiðitíminn er farinn að styttast verulega í annan endann en nokkrir dagar eru eftir og veðurfar- ið hefur ekki breyst mikið í stórum landshlutum. Snjóinn hefur vantað og það hefur bjargað rjúpunni þetta árið, þó hann hafi aðeins komið síð- ustu klukkutímana, þá sérstaklega fyrir norðan og austan. Veiðimenn eru ákveðnir i að nota þá fáu klukkutíma sem má skjóta og ætla margir á veiðar um helgina og fram í næstu viku. Einhveijir veiðimenn hafa ekki ennþá fengið rjúpur í jólamatinn og til eru þeir sem ekki hafa fengið nema eina, tvær rjúpur þó þeir hafi farið mörgum sinnum á skyttirí, það dugir varla í jólmatinn. „Það er mjög erfitt að segja hvað mikið hefur veiðst en veiðin er minni en i fyrra. Þetta höfum við heyrt hjá þeim fjölda veiðimanna sem við ræðum við dags daglega,“ sagði Áki Ármann Jónsson, veiði- stjóri á Akureyri, i samtali við DV. „Um fjöldann er ekki hægt að sega strax en við eigum von á að fá veiði- tölurnar fyrr núna en í fyrra. Núna geta veiðimenn skilað þessu á Net- inu til okkar, ætli tölurnar verði ekki komnar í febrúar, ég reikna með því. Þetta mun þýða að við verðum fyrr með þær en í fyrra.“ En tölurnar eru lægri en í fyrra, er þaö ekki oruggt? „Jú, það held ég örugglega, alla vega hafa veiðimenn þónokkuð kvartað við okkur um minni veiði en í fyrra. Þetta verður eitthvað minna en 150 þúsund fuglar eins og í fyrra, það er ljóst. Rjúpnaveiðin hefur líka verið að minnka síðan 1998.“ Rjúpnaveiðin hefur verið minnka síðustu árin og við skulum aðeins kíkja á staðreyndir í tölum, þá kem- ur ýmislegt í ljós. Síðan Veiðistjóra- embættið byrjaði með veiðikortin hafa tölurnar um rjúpnaveiðina leg- ið fyrir á hverju ári og síðustu ár líta svona út: í fyrra veiddist Calida 33' LOEWE. Þótt þab sé slökkt á því, er horft á þab Xelos 32 Xelos 32" 16:9 100Hz- Super black line flatskjár verb 169.900 Planus 29" 1:3 mynd í mynd-100Hz- iuper black line flatskjár veröl 1 9.900 Planus 32" 16:9 100Hz- Super black line flatskjár v.rt.179.900 Calida 33" 4:3 mynd í mynd-IOOHz- Super black line skjár v.rt.159.900 BRÆÐURNIR. ORMSSON Lágmúla 8 • Sími 530 2800 www.ormsson.is Loewe hefur veriö einn virtasti sjónvarpstækja- framieibandi Þýskalands frá árinu 1923. Tækin samanstanda af því besta úr öllum áttum, hljóö, mynd og umgjöröin sjálf endurspegla þaö, aö ekki sé talaö um endinguna. Fyrir vikiö erum viö hvergi smeyk aö bjóöa þriggja ára ábyrgö á þessari gæöavöru, ekki bara á myndlampa, heldur á öllu tækinu. Loewe er stofuprýði sem er unun aö horfa á, jafnvel þótt þaö sé slökkt á því. Öll tæki drifin m. 12 volta rafmótor. Hleðslutæki fylgir. Áfram og afturábak / hæg/hraðar stilling. Ljós-hljóð-speglar-símar o.fl. Verð frá kr. 30.000 - 36.000 Hjá Glóa færðu einnig: Tornados vatnsbyssur, kr. 2.800. Plöstunarvélar fyrir alla, frá kr. 4.800. Sól- og öryggisfilmur á i hús og bíla Píptæki á hurðir og glugga, kr. 2.400. Brunastiga, ál og stál, 5 m, kr. 4.800. Eftirlitsspegla, kúpta, ýmsar stærðir. Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770 ^ ' Búið að skjóta 100 þúsund fugla

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.