Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.12.2000, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 18. DESEMBER 2000 Fréttir X>V Ríkisstjórnin svíkur launafólkið - segja félagar í Bárunni-Þór og vilja að orð standi Stjórnvöld hafa gengið á bak lof- orða sinna sem gefin voru við gerð síðustu kjarasamninga, segja for- svarsmenn Verkalýösfélagsins Bár- unnar-Þórs sem vill að orð skuli standa. „Hækkun útsvars án sam- svarandi lækkunar tekjuskatts, hef- ur í fór með sér kjaraskerðingu í formi aukinna skatta á þegna lands- ins. Að óbreyttu þýða breytingar á útsvari og tekjuskatti einnig raun- lækkun skattleysismarka, sem einnig gengur þvert gegn yfirlýsingu ríkisstjómarinnar. í henni var þvi lofað að skattleysismörk mundu fylgja umsaminni launaþróun," seg- ir í ályktun félagsfundar á þriðju- dagskvöldið. Það var skilningur félaga Bárunn- ar-Þórs að víðtæk sátt hefði náðst um kjarasamninga sem stuöluðu að áframhaldandi stöðugleika, undir- stöðu kaupmáttar og bættu sérstak- lega stöðu þeirra lægst launuðu. „Verkcdýðsfélagið Báran-Þór skor- ar því á stjómvöld að standa við lof- orö sin og treystir því að þau taki þátt í því af heilum hug að veija lifs- kjör launafólks og forsendur kjara- samninga í stað þess aö grafa undan hvoru tveggja. Það er mikilvægt að þeir sem hafa í höndum efnahags- stjóm þjóðarbúsins grípi ekki til neinna aðgerða sem auka verðbólgu eða skerða kaupmátt launafólks með öðram hætti,“ segir í ályktuninni. Félagsmenn telja það hrein svik við launafólk ef breytingar á útsvari og tekjuskatti verða látnar standa. „Þessar aðgerðir ásamt öðrum hækkunum á opinberri þjónustu sem boðaðar eru um áramót eins og hækkun leikskólagjalda, grafa und- an þeim stoðum sem launafólk reisti til að viðhalda þeim stöðugleika, sem það átti stærstan þátt í að skapa með kjarasamningum undanfarins áratugar,“ segja félagar í Bárunni- Þór. -JBP Fyllt í eyöurnar í Grundarfirði: í stað Götuprýði kem- ur hús tæknifyrirtækis DV-MYND INGO Jól á Svarta svaninum Flestir landsmenr eru komnir í jólaskap og bíða þess spenntir að jólaklukk- urnar hringi inn hátíöina. Helga Finnsdóttir, afgreiöslumaður á Svarta svanin- um, er einstakiega kát enda mikiö jólabarn. Hún er framhaldsskólanemi í fríi og notar tækifæriö til aö vinna sér inn skotsilfur. Aö sjálfsögöu er hún komin meö jólasveinahúfu. DV-MYNDIR GUNNAR KRISTJÁNSSON Hús Mareindar rís Hér kemur hús tæknigúrúa Grundarfjaröar í staö hússins Götuprýöi sem var gamalt hús og var jafnaö viö jöröu. DV, GRUNDARFIRÐI:_________________ Götumyndin við tvær götur í Grundarfirði hefur breyst og er að breytast þessa dagana. Þegar menn fóra á stjá einn morguninn tóku at- hugulir eftir því að komið var hús á lóð þar sem aldrei hafði verið hús áöur. Löggæslan í Grundar- flrði hefur lengi mátt búa viö afar lélegan húsakost en úr því rættist sem sé þegar ákveðið var að flytja lögreglustöðina úr Stykkishólmi til Grundarfjarðar eftir að lögreglan þar fékk inni í nýju húsnæði sýslu- mannsembættisins á Snæfellsnesi sem var vígt í Stykkishólmi í síð- asta mánuði. Þetta hús, sem flutt var í heilu lagi af Vöruflutningum Ragnars og Ásgeirs, var á sínum tima flutt lengri veg en þetta, eða frá Selfossi til Stykkishólms, þegar Óli Þ. Guðbjartsson, fyrrverandi dóms- málaráðherra, færði Hólmuram húsiö. En götumyndin breytist víðar en í Grundarfirði þessa dagana því við Nes- veginn, sem liggur þvert á Hrannarstíginn, hafði myndast auð lóð fyrir nokkrum árum þegar gamalt hús sem þar stóð og kallað var Götuprýði var jafnað við jörðu. Þar ris nú húsnæði Feröaglöð löggustöö Nýja/gamla lögreglustööin er komin á sinn staö, hús sem hefur flakkaö frá Selfossi til Stykkishólms og nú til Grundarfjarðar. fyrir Mareind í Grundarfirði en það er fyrirtæki sem sérhæfir sig í tækjaþjónustu við skipaflotann, auk annarrar tæknivinnu. -DVÓ/ GK FRIÐARLJÓS \TKIU SELD Vin EFTIRT..\LDA KIRKJUGARÐA UM JÓLOG ÁRAMÖT: (iufiincss- og Fossvögskirkjugaröur: 23 tlcs. kl. 13-1"' * 2-i. dcs. kl. 9-1~ • 31.dcs.kl. 13-1 Kirkjugaröurinn viö Suöurgcítu: 2-i. dcs. kl. 9-17 KirkjugarOur Hafnarfjaröar: 2-t.dcs.kl. 10-r • 31.dcs.kl. 13-1 ~ Kirkjugarður Akrancss K i rk j uga röur Akurcvra r: 2-t.dcs. kl. 1 3-1 ~ • 3 1 - dcs. kl. 13-1 ___HJALPARSTARF Vnr/ KIRKJUNNAR — mf*ö hinni hiáln - með þinni hjálp Friöarljósin eru einning seld víða í verslunum í desember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.